Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 18 02.05.2025 1:33:17
Föstudagur 2. maí Vikuskammtur: Vika 18 Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur. Saman fara þau yfir þetta helsta og áhugaverða...
Sjávarútvegsspjallið - 48. þáttur - Trillukarlar 01.05.2025 59:00
Fimmtudagur 1. maí Sjávarútvegsspjallið - 48. þáttur Grétar fær að þessu sinni til sín tvo trillukarla, Þá Kjartan Sveinsson formann Strandveiðifélagsins og Guðlaug Jónasson.
Sósíalísk stjórnarandstaða - Sósíalistar í Hafnarfirði 30.04.2025 56:08
Miðvikudagur 30. apríl Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarkona og starfskona Kvikmyndasafns Íslands, Jón Hallur Haraldsson forritari, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Í þættinum munum við beina sjónum okkar að Hafn...
Rauða borðið 30. apríl: Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur 30.04.2025 3:44:53
Miðvikudagur 30. apríl Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur Vilhjálmur Bjarnason ræðir við Sigurjón M. um mál málanna þennan miðvikudaginn, afhjúpun Kveiks en Vilhjálmur er einn þeirra sem voru óafvitandi um nokkurt skeið undir vökulu auga njósateymis á vegum Björgólfs Thors. Reynsluboltar Sigurjóns M. að þessu sinni eru þau Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Saunders, og Pá...
Rauða borðið 29. apríl: Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar 29.04.2025 4:50:58
Þriðjudagur 29. apríl Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins ræðir harða gagnrýni á rekstur félagsins og veika stöðu blaðamennsku. Pólitísk afskipti af fréttamennsku, fjölmiðlastyrkir og fleira verður til umræðu í samtali hennar við Björn Þorláksson. Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor og tónlistarmaður, sérfræ...
Rauða borðið 28. apríl - Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð 28.04.2025 4:05:19
Mánudagur 28. apríl Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð Maria Lilja fær til sín þær Drífu Snædal, talskonu Stígamóta og Dr. Margréti Valdimarsdóttur til að ræða afbrotatölfræði, falsfréttir, rasisma og nauðgunarmál. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, heimspekingur og ritstjóri Hugar ræðir við Oddnýju Eir um dómstól götunnar og óréttmæta vitnisburðavæðingu. U...
Synir Egils 27. apríl - Átök og umræða, fréttir og pólitík 27.04.2025 2:22:36
Sunnudagurinn 27. apríl Synir Egils: Átök og umræða, fréttir og pólitík Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau fyrst Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og síðan þau Ólína Kjerúlf...
Hipp hopp varpið - 4. þáttur: DJ Platurn 27.04.2025 1:04:56
Atriðaorðaskrá Madonna U2 MTV, tónlistarsjónvarp Michael Jackson “Billy Jean” Run Dmc, Raising hell Run Dmc & Aerosmith “Walk this way” Pop lock, dans Electric boogaloo West coast electro (vesturstranda elektró/raftónlist) Boom bap Gangstarr KRS-One Techincs SL 1200 plötuspilari Stevie Wonder Otis Redding Old school hipp hopp, snemma á níunda tug síðustu aldar (upp úr 1980) Beasti...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Heiða Björg 26.04.2025 1:13:31
Laugardagur 26, apríl Helgi-spjall: Heiða Björg Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri mætir á persónulegu nótunum í Helgi-spjall hjá Maríu Lilju. Skemmtilegt samtal um sveitastúlku sem verður að Borgarstjóra, áskoranir móður langveiks barns, næringarfræði, grænt gímald, flóttafólk og hlutverk borgarinnar í friðarumleitunum í veröldinni.
Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 17 25.04.2025 1:28:02
Föstudagur 25. apríl Vikuskammtur: Vika 17 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri Vg, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frel...
Rauða borðið 23. apríl: Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin 23.04.2025 4:08:03
Miðvikudagur 23. apríl Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin. Við hefjum samræðuna við Rauða borð kvöldsins á Reynsluboltunum. Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín fína gesti, þau Oddnýju Harðardóttur, Lárus Guðmundsson, Jakob Frímann og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Þau ræða um mannlífið, pólitíkina hér og erlendis og margt annað, veiðigjöld, skólamat, páfa. Marí...
Hipp-hopp varpið - 3. þáttur: Kalliman Jah og Gnúsi Yones 22.04.2025 1:19:44
Föstudagur 18. apríl Hipp-hopp varpið - 3. þáttur Laufey og Sesar fá til sín góða gesti, bræðurna Karl Kristján Davíðsson (Charlie D/KallimanJah/Youze/UC) og Magnús Jónsson (Gnúsi Yones/Magse/Maximus), sem hafa komið víða við í íslenskri tónlistarmenningu og víðar. Bræðurnir segja okkur frá sínum fyrstu kynnum af hipp-hoppi og ferðalagi sínu um menningarheim þess. Lagalista við þennan þátt má finn...
Rauður raunveruleiki - Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin 22.04.2025 1:05:54
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna. Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?
Hipp hopp varpið - 2. þáttur: Þórdís Claessen 22.04.2025 52:10
Föstudagur 11. apríl Hipp hopp varpið - 2. þáttur í þessum þætti ræðir Sesar A við Þórdísi Claessen um hennar fyrstu kynni af, og lífinu með, hipp-hoppi. Þórdís breikaði í Breiðholti, og kynntist Hipp Hoppinu um miðjan níunda áratuginn þegar hún var í barnaskóla. Kraftur þessarar hreyfingar greip hana samstundis og mótaði að einhverju leyti hennar líf. Hún gaf út bók um íslenskt graffíti fyrir nok...
Rauða borðið 22. apríl - Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir 22.04.2025 5:09:48
Þriðjudagur 22.april Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir María Lilja fer með okkur á mótmæli við dómsmálaráðuneytið vegna brottvísunar Oscar Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs. Gunnar Smári ræðir við Pétur Pétursson guðfræðiprófessor um Frans páfa, sem Pétur hitti á sínum tíma og sem hafði mikil áhrif á hann eins og heiminn allan. Björn Ólafsson, ú...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 15 11.04.2025 1:15:36
Föstudagur 11. apríl Vikuskammtur: Vika 15 Í Vikuskammtinn mæta að þessu sinni Rauða borðs-liðar Samstöðvarinnar og gera upp samræðu vikunnar og ársins og ræða um persónuleg tengsl sín við páska. Gunnar Smári og Sigurjón Magnús, Björn, María Lilja og Oddný Eir ásamt Laufeyju Líndal spyrja hvert annað spjörunum úr.
Rauða borðið 9. apríl - Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, þingmaður, vá og ópera 10.04.2025 5:03:09
Miðvikudagur 9. apríl Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, óþekktur þingmaður, vá og ópera Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um tolla og efnahag...
Rauða borðið - Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði 08.04.2025 4:59:23
Þriðjudagur 8. apríl Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði Hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Gylfi Magnússon ræða um um tolla og efnahagsstefnu Trump. Og eru ekki á sama máli í samtali við Gunnar Smára. Þorsteinn segir þá leiða til góðs en Gylfi til ills. Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og Valgerður Þ. Pálmadóttir, kennari í Háskóla Íslan...
Rauður raunveruleiki - Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar 07.04.2025 48:44
Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.
Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál 06.04.2025 2:28:48
Sunnudagurinn 6. apríl Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Hallgrímur Helgason rithöfundur og ræða fréttir vikunnar og stöðu...
Hipp-hopp varpið - 1. þáttur - Sesar A og Laufey 05.04.2025 1:22:20
Atriðaorðalisti: Hipp hopp varpið 1.þáttur Þjóðviljinn Rokk í Reykjavík Grace Jones Bob Marley Prince, Purple rain Poppkorn (tónlistarþáttur) Skonrokk (tónlistarþáttur) Eric B & Rakim, “Microphone fiend” Mc Lyte, platan: Lyte as a rock Eric B & Rakim, “Follow the leader” Wham, hljómsveit Duran duran, hljómsveit Mc Lyte, “Cappucino” - platan: Eyes on this EPMD, “So what cha sayin” Dura...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ólöf Arnalds 05.04.2025 1:08:24
Laugardagur 5. apríl Helgi-spjall: Ólöf Arnalds Ólöf Arnalds, söngvaskáld, kemur í helgi-spjall og segir frá ástinni á tónlistinni og á öllu hinu, ræðir um sönginn, sorgina, gleðina og samruna skynsviðanna.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 14 04.04.2025 1:09:02
Föstudagur 4. apríl Vikuskammtur: Vika 14 Ingibjörg Reynisdóttir, leikkona og jógi - Maren Freyja Haraldsdóttir, félagsfræðingur - Björgvin Gunnarsson blaðamaður á Mannlífi og Egill Viðarsson, rafbókaframleiðandi og tónlistarmaður koma í vikuskammt til Maríu Lilju í dag.
Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur: Litlar útgerðir, strandveiðar og útflutningur 03.04.2025 55:36
Fimmtudagur 27. mars Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira.
Rauða borðið 3. apríl: Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál 03.04.2025 3:57:54
Rauða borðið 3. apríl Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Fida Abu Libdeh varaþingmaður Framsóknarflokksins, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi Garðarbæjarlistans og verkefnisstjóri S78 og Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum ASÍ fóru yfir málefni flóttafólks og kerfislegar hindranir með Maríu Lilj...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.