Linda Pétursdóttir
Podcastið með Lindu Pé
Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com
Author
Linda Pétursdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 1, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Jólagjafaleikurinn er hafinn! 01.12.2022 2:32
Jólagjafaleikur Lindu Pé dagana 1.-14.desember. Vinningur dreginn út á hverjum degi. HVERNIG TEKUR ÞÚ ÞÁTT? 1). Vertu áskrifandi og virkur lesandi af magasíninu Lífið með Lindu Pé. Smelltu hér: https://mailchi.mp/lindape.com/magasinid 2). Fylgdu Lindu á Instagram, á 2 stöðum: Smelltu hér til að fylgja: https://www.instagram.com/lindape/ og svo einnig hér https://www.instagram.com/lindape.official/...
109. Rómantík um jólin 30.11.2022 26:15
Í þessum þætti tala ég á persónulegum nótum og ræði framtíðarsjálfið og rómantík. Jólin eru uppáhaldsárstíminn minn. Þegar kemur að því að skipuleggja tíma minn á þessum árstíma er mín uppáhalds hugsun: Hvernig vil ég að mér líði 1. janúar? Síðan tek ég ákvarðanir út frá þeirri líðan. Hvað þarf ég að gera til að mér líði svona vel og sé stolt af sjálfri mér í lok árs? Ég tek ákvarðanir og stend me...
108. Fjórar ástæður þess að þú borðar of mikið 23.11.2022 21:11
Í dag langar mig að tala um fjórar ástæður þess að við borðum of mikið. Ef við gætum fengið matarplan til að fara eftir og við færum alltaf 100% eftir því værum við ekki með aukakíló. Allar könnumst við líklega við að hafa byrjað á einhverjum kúr sem lofaði góðu og við bundum miklar vonir við að hann skilaði okkur árangrinum sem við óskuðum eftir. En einhverra hluta vegna gekk okkur samt svo erfið...
107. 3 holl ráð á aðventu 14.11.2022 24:47
Í þessum þætti færðu þrjú einföld ráð til að vera hollari á aðventunni. Hér færðu verkfæri til að takast á við aðventuna til að ÞÚ getir verið öðruvísi í sömu gömlu aðstæðunum. Nú er tíminn til að hætta að láta utanaðkomandi aðstæður hafa áhrif á líðan þína. Þú mun gera og hugsa aðra hluti en þú ert vön og leiða þig í átt að vellíðan. Linda og Ásthildur næringarráðgjafi í LMLP gefa hér þrjú hol...
106. Ætlar þú að missa af þessu? 09.11.2022 29:15
Ef þú vilt bæta líf þitt á einn eða annan hátt skaltu hlusta! Linda og Dögg segja þér hér frá öllu því fjölbreytta efni sem stendur þér til boða í LMLP prógramminu. Framundan er ótrúlega spennandi efni sem við erum að fara að kenna, bæði nú í lok árs og í byrjun næsta árs og í þættinum segjum við frá því. Það er engin kona sem getur sagt, „Það er ekkert þarna fyrir mig" . Dæmi um það efni sem þú f...
105. Minn hefðbundni vinnudagur 02.11.2022 20:04
Hvernig er hinn hefðbundni vinnudagur hjá lífsþjálfa í eigin fyrirtæki? Hvernig gengur einstæðri móður að halda jafnvægi á milli vinnu og fjölskyldulífs? Í þessum þætti svarar Linda persónulegum spurningum, meðal annars um það hvernig dagurinn hennar gengur fyrir sig, hvernig hún hleður batteríin og gerir sér glaðan dag og hvernig hugmyndin um magasínið Lífið með Lindu Pé kviknaði - og svo ýmisle...
104. Konur og peningar 26.10.2022 22:47
Ég hef unnið með konum í yfir þrjátíu ár. Ég trúi að konur séu konum bestar og ég er sannkallaður feministi. Ég trúi á kraft kvenna og mun halda áfram að hvetja konur til dáða og að fylgja draumum sínum eftir. Í síðustu þáttum hef ég verið að opna á nýja umræðu sem mér hefur fundist þörf á í heimi kvenna. Ég hef rætt um peninga og fjárhagslega farsæld. Ég hef nefnilega tekið eftir því að þ...
103. Farsæld eða hamingja? 19.10.2022 26:37
Það sem mig langar að afhjúpa í þættinum er annars vegar trú okkar um hamingju og hins vegar fjárhagslega farsæld. Oft er eins og við trúum annað hvort að þetta tvennt haldist algjörlega í hendur - þ.e. að til þess að upplifa hamingju þurfum við að eiga fullt af peningum - eða öfugt, að þetta tvennt geti engan veginn farið saman. Fólk með peninga sé aldrei hamingjusamt og kunni ekki að meta það se...
102. Fjármál og farsæla konan 12.10.2022 29:16
Peningar skipa stóran sess í lífi okkar allra en samt er eins og það sé einhvers konar tabú að tala um þá. Þetta finnst mér sérstaklega þetta eiga við um konur. Það virðist oft minna gagnrýnt og eðlilegra að karlar ræði um peninga og fjárhaglega stöðu en þegar konur tala um eigin fjárhag og skoðanir á peningum. Þessu viðhorfi þarf að breyta - og ég vil leggja mitt af mörkum. Við eigum allar einhve...
101. Laus við 26 kíló: Árangurssaga Ingunnar 05.10.2022 44:55
Ingunn L Hannesdóttir hefur barist við aukakílóin frá 14 ára aldri og prufað allt mögulegt en í fyrsta sinn í yfir 40 ár hefur hún náð varanlegum árangri. Hún hefur byggt sig upp andlega og losað sig við 26 kíló með sjál f svinnu í LMLP prógramminu. Og ekki nóg með það, þá hefur eiginmaður henna r tileinkað sér fræðin sem hún lærir hjá Lindu og losað sig við annað eins. Á einu ári eru hjónin 5...
100. Sterk sjálfsmynd þrátt fyrir áföll 28.09.2022 30:45
Ofbeldi, áfallastreituröskun og gjaldþrot. Hvað gerir maður þegar ævistarfið og allt veraldlegt hverfur? Ásgeir Páll útvarpsmaður situr við stjórnina í þessum þætti og tekur viðtal við Lindu og spyr hana út í lífsgöngu hennar, áföll sem hún hefur farið í gegnum og hvernig hún hefur haldið sjálfsmynd sinni sterkri. Hann spyr hana líka hvers vegna hún ákvað að beina lífi sínu á nýja braut og gerast...
99. 10 daga leiðarvísir -fyrir þig og heimilið 19.09.2022 27:56
Í þætti dagsins ætla ég að gefa þér fullkominn 10 daga leiðarvísir til að gíra þig í gang að bættum lífsstíl. Ég ætla að hjálpa þér að undirbúa þig- og heimilið þitt fyrir breyttan lífsstíl. Því það er ljóst að þegar þú ert að breyta um lífsstíl, þá gengur það svo mikið betur ef þú undirbýrð og skipuleggur þig vel á öllum sviðum; ekki síst heima fyrir. Slepptu öllu rugli sem þú hefur heyrt og held...
98. Af hverju að fasta? 12.09.2022 28:07
Það að fasta með hléum getur haft margvísleg áhrif á líkamann. Rannsóknir hafa sýnt fram á fjölmarga jákvæða heilsufarslega þætti föstu. Í þessum þætti spjöllum við Ásthildur sem er ljósmóðir, næringarráðgjafi og aðstoðarmanneskjan mín um kosti föstu og hvernig fasta með hléum hefur persónulega bætt líf okkar beggja. - - - Hvernig myndi þér líða ef sjálfsmynd þín væri sterk, aukakílóin væru hor...
97. Frelsið í skipulaginu 05.09.2022 31:24
Flestir vita að það væri gott að plana hlutina betur, að vera skipulagaðri en gera það samt ekki. Þetta er svipað og með líkamsrækt. Það vita flestir að það væri gott fyrir þá að stunda líkamsrækt en gera það samt ekki. Ég trúi því að við fáum að hanna lífið okkar. Að við fáum að taka ákvarðanir sem leiða okkur þangað sem við viljum fara. Til þess að gera það þurfum við að tileinka okkur að gera p...
Heilsuvika! 31.08.2022 2:07
Flest fæðumst við heilsuhraust en um leið og við eigum samskipti við veröldina, annað fólk og nýjar aðstæður, leggst ákveðinn hjúpur ofan á heilsu okkar. Stundum er það ótti. Stundum eru það á áhyggjur og stundum er það löngunin eftir staðfestingu á því að við séum nógu góð eða samþykki annarra. Stundum leggjast á okkur hjúpar eftir áföll eða frá umhverfinu. En burtséð frá því hvaðan þeir koma er...
96. Þarmaheilsa 29.08.2022 28:29
Heilsan, bæði líkamleg og andleg hefst í þörmunum. Starfsemi þarmanna hefur meiri áhrif á okkur heldur en að við gerum okkur grein fyrir. Að hlúa vel að góðgerlunum okkar hefur víðtík áhrif á heilsuna sem dæmi: Styrkir ónæmiskerfið, heilbrigðari húð, getur komið í veg fyrir hina ýmsu sjúkdóma og síðast en ekki síst, bætt andlegt heilbrigði. Í þættinum spjalla ég við Ásthildi en hún starfar sem ljó...
95. Að njóta vegferðarinnar 22.08.2022 23:16
Eitt af því sem ég hef tekið eftir bæði með sjálfa mig og konurnar sem ég er að þjálfa er að við höfum sögu um að markmiðasetning sé alvarlegur hlutur. Okkur þarf að vera dauðans alvara og við þurfum að vera tilbúnar að gefa allt upp á bátinn sem okkur hefur fundist gaman og gott. Sérstaklega þegar markmiðið snýst um þyngdarstjórnun. En hvað ef að það þarf alls ekki að vera svona alvarlegt og gæ...
94. Heilsuvika! 6 Stólpar heilsu 15.08.2022 33:32
Heilsuvika samanstendur af sex stólpum sem eru: Tilfinningaleg heilsa. Fjárhagsleg heilsa. Félagsleg heilsa. Andleg heilsa. Næringarleg heilsa og líkamleg heilsa. Í þættinum ræðum við Dögg um mikilvægi þess að sinna öllum þessum heilsustólpum til þess að upplifa vellíðan og jafnvægi í lífinu. Heilsuvika er sér námskeið sem verður í september, og er stútfull af fróðleik sem gefur þér tækifæri til a...
93. Hvaða kona ert þú? 08.08.2022 31:11
Lífsþjálfarnir Linda Pé og Dögg ræða hér saman um hvernig þær nýta sér sjálfar lífsþjálfun í þeirra daglega lífi. Þær koma inn á mikilvægi þess að temja sér að halda dagbók og skrifa niður markmið sín og taka fyrirfram teknar ákvarðanir um það hvaða kona þær eru. Við mannfólkið búum yfir þeim eiginleika að geta hugsað um hugsanir okkar og það eru frábærar fréttir því við getum alltaf breytt hugsun...
Magasínið Lífið með Lindu Pé. 07.08.2022 6:15
NÝJUNG! Ég kynni með stolti nýtt vikulegt magasín! Magasínið Lífið með Lindu Pé. Alla sunnudaga . Ég hef ástríðu fyrir því að hjálpa konum að bæta líf sitt og ævistarf mitt hefur verið tileinkað heilsu og vellíðan kvenna. Því ákvað ég að bæta við nýjung í vörumerkið mitt Lífið með Lindu Pé, rafrænu magasíni. LÍFIÐ MEÐ LINDU PÉ: Podcastið - Prógrammið - Magasínið. Magasínið er mikilvægur hluti af...
92. Áskoranir varðandi þyngdartap 01.08.2022 19:57
Þú ert of þung vegna þess að þú borðar einhverra hluta vegna meiri mat en líkaminn þarf á að halda sem eldsneyti og hann geymir umframmagnið í formi fitu. Það er mikilvægt fyrir þig að komast að sannleikanum um það hvers vegna þú ert of þung og hvers vegna þú borðar of mikið. Vertu virkilega heiðarleg varðandi hvaða ástæður liggja að baki. Það er mikilvægt að þú stillir þig inn á að vera forvitin,...
91. Svona virkar heilinn þinn 25.07.2022 13:37
Sem lífsþjálfi pæli ég mikið í heilanum og ég hef mestan áhuga á því hvernig hann hefur áhrif á hugsanir okkar og tilfinningar og hvernig það hefur svo áhrif á lífshætti okkar. Til að skilja mannlega hegðun og eðlishvatir er mikilvægt að átta sig á því að heilinn starfar á tvo vegu þegar kemur að hugsunarferli. Ég vil skipta þeim tveimur hlutum heilans, sem hafa gríðarleg áhrif á daglegt líf okkar...
90. Kvíði, ótti og streita 18.07.2022 13:16
Hvað finnst þér um að upplifa neikvæðar tilfinningar? Veitirðu þeim viðnám eða forðastu þær? Í þessum þætti ætlum við að fara yfir hvernig við getum brugðist við þegar neikvæðar tilfinningar byrja að ná tökum á líkamanum. Það sem við þurfum að átta okkur á er að heilinn í okkur er upprunalega forritaður til að upplifa ótta í lífsbaráttunni en við höfum þróast í gegnum tíðina og nú á dögum er ótti...
89. Hormón og þyngdartap 11.07.2022 14:56
Þegar kemur að svengd skipta þrjú hormón höfuðmáli. Insúlín er lang mikilvægast og svo eru það ghrelin og leptin. Hormón ákvarða hversu oft við verðum svöng, hvernig við geymum fitu, hvernig við brennum henni og hvenær við verðum södd. Insúlín, leptín og ghrelin eru þau hormón sem við ætlum að kynna okkur í þessum þætti og mikilvægi þess að skilja áhrif þeirra þegar við erum að vinna að þyngdarta...
88. Að gera erfiðu hlutina 04.07.2022 20:55
Stundum þegar ég er að þjálfa konurnar mínar fæ ég að heyra að það sé svo erfitt að gera eitthvað. Í mínum huga er það akkúrat ástæðan fyrir því að við eigum að gera hlutina. Mig langar að tala um þetta í dag. Af hverju við eigum að gera erfiða hluti. Einhverra hluta vegna segjum við okkur stundum að hlutir eigi eftir að verða erfiðir og við látum það draga úr okkur. Eins og við eigum skilið að ha...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.