Linda Pétursdóttir

Podcastið með Lindu Pé

Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com

Author

Linda Pétursdóttir

Category

Education

Podcast website

lmlp.libsyn.com

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

132. Sumarplanið mitt 10.05.2023

Vorið er minn uppáhaldstími og það er einhver aukin von í loftinu. Eftir að hafa tekið upp síðasta podcastþátt minn, um vorhreingerningu hugans, hef ég tekið ákvörðun sem ég segi ykkur frá í þessum þætti. Ég hef útbúið sumarplan fyrir mig - og eins og þið vitið legg ég áherslu á að þið hlúið að ykkur sjálfum og mitt sumarplan snýst einmitt um það. Það er margt mjög spennandi að gerast í fyrirtækin...

131. Vorhreingerning hugans 03.05.2023

Nú þegar vorið og sumarið er að skella á er gott að fara í það sem ég kalla vorhreingerningu hugans. Þ á á ég við skipulagða vinnu þar sem þú skoðar það sem fer í gegnum kollinn á þér á hverjum degi . Með því að verða meðvituð um hugsanir þínar getur þú valið þær hugsanir sem þjóna þér og koma þér þangað sem þú vilt fara.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú...

130. Tilfinningar og velgengni í viðskiptum 26.04.2023

Fyrir stuttu var ég beðin um að halda fyrirlestur í Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Það var mikill heiður að fá þetta tækifæri til að segja söguna mína úr viðskiptaheiminum. Ég hef upplifað mikla velgengni í viðskiptum, misst allt og staðið upp sterkari sem aldrei fyrr.   Ég talaði við stóran hóp af viðskiptafræðinemum um þetta ferðalag mitt og talaði sérstaklega um það hvernig tilfinningar og hug...

129. 4 stig þyngdartaps 19.04.2023

Í þætti dagins ætla ég að kenna þér að gera þyngdartapið auðveldara. Ég ætla að fara yfir fjögur skref þyngdartaps.   Margar okkar tala þyngdartapið niður vegna þess að við eigum ömurlegar sögur af því að reyna að léttast. Það er svo erfitt. Það er ómögulegt. Það útheimtir að ég sé viðkvæm, finni til, þurfi að grafa djúpt og fleira og fleira. En sjáðu til. Það er ekki þyngdartapið sjálft sem er óv...

128. Viltu vera með okkur? 12.04.2023

Í þessum þætti spjallar Linda, við starfsmenn í LMLP prógramminu, og þær segja þér frá því af hverju þeim finnst svo gaman og gefandi að vinna við að hjálpa konum að bæta líf sitt. Þær tala um hvernig þær hafa sjálfar gert breytingar á eigin lífi og hvað þeim finnst skipta mestu máli - og margt fleira. Teymið er með breiða menntun og reynslu og eru sérfræðingar á sínum sviðum.   LMLP prógrammið, ...

Aðgangsglugginn í LMLP er OPINN! 09.04.2023

Æðislegar fréttir fyrir þær ykkar sem hafið verið að bíða eftir að komast inn í LMLP prógrammið! Nú er aðgangsglugginn OPINN í örfáa daga þannig að þetta er tækifærið þitt. Þú vilt ekki missa af þessu, skráðu þig núna  - og þín bíða spennandi breytingar á lífi þínu. Þú skapar stærri og meira spennandi framtíð en þig órar fyrir í dag. Það er ástæða fyrir því að margar LMLP konurnar segja það að haf...

127. Árangurssaga Elínar: „Ég sjálf var vandamálið" 05.04.2023

Í þætti dagsins heyrum við árangurssögu Elínar Káradóttur, 32 ára LMLP konu.   „Mér finnst að allar konur eftir tvítugt ættu að koma í prógrammið því þá hafa þær svo mikinn tíma framundan til þess að læra aðferðir til að lifa sínu besta lífi. Ég er búin að kafa djúpt og læra margt um sjálfa mig í LMLP prógramminu . Ég var búin að fara á mörg námskeið áður, sem hafa virkað , nema hvað hausinn á mér...

126. Vigtin og spegillinn 29.03.2023

Vigtin og spegillinn eru verkfæri til að vinna í sambandi þínu við sjálfa þig. Að horfa í spegil og að stíga á vigtina eru leiðir til þess að vinna í sambandinu sem þú átt við þig í dag.  Vigt in  leiðbeinir þér á  þyngdartaps ferðalagi þínu. Ekki  til  láta þér líða  illa þegar þú stígur á vigtina - hún hefur ekki vald yfir líðan þinni. Það eru alltaf hugsanir þínar um vigtina sem gera það. Þyngd...

125. Tvær tegundir af framtíð 22.03.2023

Þegar við tökum ákvörðun festumst við oft í að sjá fyrir okkur rétta og ranga ákvörðun byggða á þeirri framtíð sem við höldum að ákvörðunin gefi okkur. Við festumst í óttanum við að taka ranga ákvörðun og þetta veldur vanlíðan í langan tíma.  En við getum trúað því sem við viljum um lífið okkar í framtíðinni. Fullt af fólki er alveg staðráðið í að trúa að framtíðin sé mjög neikvæð og ríghalda í bö...

124. Ég er... 15.03.2023

Ábyrgð og orka fylgir orðunum okkar og þar með talið samtalinu sem við eigum við okkur sjálfar. Allt sem kemur á eftir  „ég er" eru kröftugustu orð sem þú segir, því það sem kemur á eftir þessum orðum mun verða að veruleika. Heilinn okkar trúir því sem við segjum við hann og fer á fullt að sanna þessi orð rétt. Þessi orð tengjast beint þeirri sjálfsmynd sem þú hefur, við ræðum um þessi mikilvægu o...

123. Fimm leiðir að árangri 08.03.2023

Hvað er það sem býr til árangur? Allar höfum við einhverja drauma um það sem við viljum gera. Ég hvet ykkur allar til að átta ykkur á því hvað það er sem ykkur dreymir um að gera. Það er að mínu mati það sem gerir lífið svo skemmtilegt. Draumarnir okkar eru eins og innri áttaviti.  Hlustaðu til að læra 5 leiðir að árangri. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú...

122. Leyndir draumar 01.03.2023

Stundum er talað um að allir hafi köllun eða tilgang í lífinu. Ég trúi því að okkar dýpstu þrár og langanir séu áttavitinn að því sem okkur er ætlað að gera. Það er svo ótrúlega auðvelt að fara í gegnum dagana sína á sjálfsstýringu, algjörlega ómeðvituð um dýpstu langanir okkar og hreinlega velta þessu aldrei fyrir sér. Í þessum þætti tala ég um það sem er kraumandi undir niðri og við horfumst ekk...

121. Markmið frá auðvídd 22.02.2023

Í heimi lífsþjálfunar er lögð mikil áhersla á að vera alltaf með einhvers konar markmið. Ég er stundum spurð út í það hvort öll þessi áhersla á markmið stangist ekki á við það að lifa í núinu. Núvitundina sem er líka svo mikilvæg. Þegar ég hélt áfram námi mínu og jók skilning minn á því hvernig við vinnum með markmið kom þetta allt heim og saman í huga mínum og í þessum þætti ætla ég að útskýra þe...

120. Að takast á við erfiða daga 15.02.2023

Mörgum finnst skammdegið erfitt, og ég skil það vel. Fyrir þá sem eru annars í góðu jafnvægi - líkamlega og andlega - og eiga ekki við andleg veikindi að ræða, er mjög gott að temja sér hugsanastjórnun. Þegar ég lærði að temja mér hugsanastjórnun breyttist andleg líðan mín mjög mikið. Allt í einu hætti ég að láta annað fólk eða lífsreynslu úr fortíðinni stjórna því hvernig mér líður í dag. Að átta...

119. Óður til LMLP kvenna 08.02.2023

Þegar ég byrjaði með LMLP prógrammið átti ég mér draum. Ég átti mér draum um að prógrammið mitt yrði kröftugt samfélag dásamlegra kvenna sem myndu hvetja og styðja við hverja aðra, á meðan þær uppgötvuðu sinn innri kraft undir minni leiðsögn. Ég sá fyrir mér byltingu sterkra kvenna úr öllum áttum og á öllum aldri sem sameinuðust í því að sætta sig ekki við hlutina heldur hanna lífið sitt meðvitað...

118. Viljastyrkur er ekki nóg 01.02.2023

Það þarf úthald til að gera breytingar á lífi sínu, því alvöru breytingar gerast ekki á einni nóttu. Þegar þú gerir stórar breytingar á lífsstíl þínum þarftu að setja þér nýjar reglur. Þar spila bæði sjálfsagi og viljastyrkur stórt hlutverk. En hver er munurinn á viljastyrki og sjálfsaga?     LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista...

117. Mistök fortíðar 25.01.2023

„ Framtíðin ræðst af því sem þú gerir í dag " - Mahatma Ghandi Eitt af því mikilvægasta sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu er að við látum fortíðina ekki spá fyrir um framtíðina. Við látum mistök fortíðar ekki spá fyrir um hvernig okkur á eftir að vegna í framtíðinni. Við erum alltaf bara einni ákvörðun frá því að breyta lífi okkar og þá ákvörðun er hægt að taka í dag. Dagurinn í dag er sá dagur...

116. Þú laðar að þér það sem þú ert 18.01.2023

Þú laðar að þér það sem þú ert, en ekki það sem þú vilt.  Núna í byrjun árs þegar ég hvet ykkur til að setja ykkur markmið er svo mikilvægt að skilja þessa setningu.  Hún útskýrir í grófum dráttum allt sem ég kenni.  Í þætti dagsins ætla ég að útskýra þetta hugtak nánar og hvetja ykkur til að opna huga ykkar fyrir því sem það felur í sér - því það getur breytt lífi ykkar til hins betra.      NÁNAR...

115. Það sem kom mér mest á óvart 11.01.2023

„Það sem kom mér mest á óvart" Þetta er upptaka af beinni útsendingu í Facebookgrúppuni Taktu skrefið þar sem þið heyrið hvað konur úr LMLP prógramminu hafa að segja um reynslu sína og árangur. Hlustaðu á hvað kom þeim mest á óvart. ATH: Skráningu í LMLP prógrammið lýkur. Þú hefur til og með 15. janúar að skrá þig.  Skráðu þig með því að smella hér https://www.lindape.com/skramig   Aðgangsgluggi L...

Við lokum-síðasti séns! 09.01.2023

Það lokar fyrir nýskráningar í LMLP prógrammið ! Nú er rétti tíminn til að gera breytingar á lífi þínu.  Aðgangsglugginn í LMLP er opinn til og með 15.janúar . Þá er hægt að skrá sig í prógrammið en eftir það lokast fyrir nýskráningar og opnast ekki aftur fyrr en síðar á árinu. Nýjar aðildarkonur í prógramminu fá sérstaka aðstoð til að koma sér af stað nú í upphafi árs og konurnar sem hafa verið l...

114. Markmiðavika 04.01.2023

Margir eiga í mjög flóknu sambandi við markmiðasetningu og hafa jafnvel gefist upp á að setja sér markmið. Sagan er orðin of löng af óuppfylltum markmiðum og vantrúin og sjálfsefinn hafa náð yfirhöndinni. Stundum viljum við ekki setja okkur markmið af ótta við vonbrigðin sem við upplifum þegar við náum þeim ekki. Þetta kalla ég að upplifa vonbrigðin fyrir fram og ég mæli aldrei með því. Í þessum þ...

113. Brot af því besta árið 2022 28.12.2022

Á tímamótum sem þessum finnst mér við hæfi að líta um öxl og rifja upp það fjölbreytta efni sem við höfum tekið fyrir hér í podcastinu á líðandi ári. Njóttu þess að hlusta á brot af því besta úr þáttunum árið 2022.   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meða...

112. Lágmarksviðmið 21.12.2022

Í dag ætla ég að tala um mjög kröftugt hugtak sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu sem kallast lágmarksviðmið. Þegar við ætlum að gera breytingar í lífinu okkar, hverjar sem þær eru, kemur frumheilinn okkar til með að mótmæla. Þessi hluti heilans er þannig hannaður að hann vill aldrei gera breytingar. Markmið hans er að halda okkur á lífi og hann trúir því að ástæða þess að við séum á lífi í dag s...

111. Hvað á ég að borða um hátíðirnar? 14.12.2022

Ég er alin upp við ekta íslenskan jólamat en matarhefðir mínar hafa breyst mjög mikið síðan í æsku. Jólin eru risastór kveikja fyrir ofát hjá mörgum. Við höldum gjarnan að það séu allar veislurnar og matarboðin sem gera það svona erfitt fyrir okkur að léttast en það er ekki rétt og ég tek það fyrir í þessum þætti. Ef þú vilt breyta til á jólunum, prófa nýjan og bragðgóðan mat sem er líka hollur  o...

110. Gjafir til framtíðarsjálfsins 07.12.2022

Nútímasálfræði byggir æ meira á mætti framtíðarsýnar. Í lífsþjálfun vinnum við mikið með hugtak sem við köllum framtíðarsjálfið og í þessum þætti legg ég fyrir þig fimm spurningar sem aðstoða þig við að búa til skýrari framtíðarsýn. Ég hvet þig til að svara þessum spurningum. Skýr framtíðarsýn minnkar hættuna á því að við föllum fyrir skammtímaánægju sem hefur langtíma neikvæðar afleiðingar.   Jól...

Listen to the Podcastið með Lindu Pé podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.