Linda Pétursdóttir
Podcastið með Lindu Pé
Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com
Author
Linda Pétursdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 1, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
154. 6 atriði sem ég geri þegar ég er veik 22.11.2023 17:14
Hvað er best að gera þegar maður er með stór markmið og þéttsetna dagskrá og eitthvað óvænt kemur uppá eins og flensa? Linda deilir hér með þér 6 atriðum sem hún gerir þegar hún er veik til að hlúa að sjálfri sér. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA NÁNARI UPPLÝS...
153. Yfirþyrming 15.11.2023 24:23
Í nútímaþjóðfélagi er mjög auðvelt að upplifa hálfgerða drukknun í öllum skyldunum sem okkur finnst að við eigum að uppfylla. Þetta virðist vera mjög algeng líðan hjá fólki. Fólk upplifir að það sé að svamla í djúpu lauginni og nái aldrei í bakkann. Í þættinum fer Linda yfir þetta og gefur ráð hvernig hægt er að yfirstíga yfirþyrmingu og stress. - Ekki missa af þessu boði! Mig langar að bjóða þér...
Þér er boðið! Aukið sjálfstraust á einni kvöldstund 09.11.2023 1:31
Mig langar að bjóða þér á örnámskeið sem ég verð með fimmtudaginn 16. nóvember 2023 kl.20.00 sem ber heitið „Aukið sjálfstraust á einni kvöldstund með Lindu Pé" Ef þú vilt þiggja boðið smelltu þá endilega á hnappinn hér að neðan og skráðu nafn þitt og netfang (ókeypis!) og ég mun senda þér allar nánari upplýsingar á netfangið þitt. Ég hlakka til að verja kvöldstund með þér á netinu fimmtudaginn 16...
152. Hvað er lífsþjálfun? 08.11.2023 33:42
í þættinum leiða lífsþjálfar LMLP prógrammsins, þær Linda og Dögg þig í gegnum hvað lífsþjálfun er og af hverju allir eiga að vera með sinn eigin lífsþjálfa. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í v...
151. Hvernig náðu þær árangri? 01.11.2023 37:03
Dagný Þóra, Þóra Ingibjörg og Þórdís Jóna eru hér mættar í spjall við Lindu. Þær deila með þér hvernig þær hafa náð árangri og forsendur þess að þær skráðu sig upphaflega í LMLP prógrammið. Þessar frábæru konur segja hér frá reynslu sinni á einlægan hátt. „Ég var komin í algjört þrot með sjálfa mig, andlega og líkamlega, ég var alltof þung og orðin nokkuð vonlaus. Ég var að leita að einhverju til...
150. Að taka ákvarðanir 25.10.2023 15:31
Ertu ein af þeim sem burðast með ákvarðanir í margar vikur og jafnvel mánuði áður en þú tekur þær? Og þú tekur ekki ákvarðanir af ótta við að taka ranga ákvörðun. Tekur þú kannski helst engar ákvarðanir og upplifir þig ákvarðanafælna? Í þætti dagsins fer Linda yfir með þér hvernig þú getur hætt að lifa í „kannskilandi" og að óttast að þú sért ekki að taka rétta ákvörðun -og verið kona sem tekur á...
149. Að þora að upplifa sorg 18.10.2023 25:46
Í þætti dagsins ræðir Linda um tilfinningar. Þessar vikurnar er Linda að kenna „Haminguseríuna" í LMLP prógramminu en á sama tíma er hún að upplifa sorg þar sem hún kvaddi nýverið hundinn sinn Stjörnu, hennar besta vin til fimmtán ára. Og í þessum þætti ræðir hún af einlægni litróf tilfinninganna sem hún er að ganga í gegnum, þar sem sorgin er þó ráðandi og hvernig hún tekst á við það. LOKAÐ ER...
148. Hamingja og vellíðan 11.10.2023 23:29
Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um framtíðina? Flestar okkar eyða miklum tíma í að hugsa um fortíðina og núið. Hvað er ekki að virka vel og hvað allt er vonlaust. Ef flestar hugsanir okkar koma úr fortíðinni þá verðum við góðar í að endurtaka fortíðina. Það er talað um að um 90% hugsana okkar séu endurteknar hugsanir gærdagsins. Í þættinum lærirðu hverju þú þarft að breyta til að búa til n...
147. Fegurðin í einfaldleikanum 04.10.2023 25:11
Það er fátt sem aftrar okkur meira í að ná árangri í lífinu en óvissa og yfirþyrming. Stanslausar hugsanir okkar um hvað það er mikið að gera og lítill tími, að við vitum ekki hvernig og hvað við eigum að gera og svo framvegis, býr til stress og yfirþyrmandi ástand sem dregur alltaf úr okkur. Þetta er einn af stærstu þáttunum sem leiða af sér algjöra vanvirkni og frestun. Í þætti dagsins fer Linda...
146. Þetta hindrar þig í að léttast 27.09.2023 17:40
Þú ert kannski ein af þeim sem hefur reynt að léttast en ekki náð því til langframa, og það er af því að þú hefur ekki unnið með það sem skiptir í raun og veru máli - og það er ekki hvað þú borðar! Hlustaðu til að læra hvernig þú gerir þetta sem auðveldast fyrir þig. Það eru mörg atriði sem þarf að hafa í huga, og þau eru ekki endilega það sem þú hefur lagt áherslu á fram til þessa. En í þessum þæ...
145. Talaðu lífið til þín 20.09.2023 29:45
Í þessum þætti ræðir Linda hvernig við getum talað framtíðina inn í líf okkar og hversu mikilvægt það er að átta sig á að o rð okkar bera orku. Orðin sem þú talar hafa mátt til að hvetja þig og styrkja þig , eð a letja þig og draga úr þér. Það er mjög mikilvægt að auka meðvitund um hvernig við tölum við okkur -og aðra. Ertu að tala þig niður og nota fortíðina sem mælikvarða eða talar þú til þín...
144. Á persónulegum nótum (þáttur 2 af 2). 13.09.2023 20:58
Þetta er seinni hluti þáttarins „Á persónulegum nótum" þar sem Linda situr fyrir svörum en þátturinn var tekinn upp nýverið inn á Óstöðvandi námskeiðinu sem hún bauð uppá nýverið. Ef þú hefur ekki hlustað á þátt nr. 143, á undan þessum, skaltu endilega gera það fyrst og koma svo og hlusta á þennan sem er síðari hlutinn. Spurningarnar sem konurnar spurðu hana voru allskonar og hún svaraði þeim bers...
143. Á persónulegum nótum (þáttur 1 af 2) 06.09.2023 21:34
Linda situr fyrir svörum í þessum þætti, sem var tekinn upp nýverið inn á Óstöðvandi námskeiðinu sem hún bauð uppá í sl. viku. Spurningarnar sem konurnar spurðu hana voru allskonar og hún svaraði þeim berskjölduð og einlæg eins og við má búast frá henni. Allt frá ástinni, morgunrútínu, gjaldþroti, förðun, ferðalögum, atvinnurekstri, að vera einstæð móðir og margt fleira. Þetta er þáttur 1 af 2 þar...
142. Valdeflandi samfélag 30.08.2023 30:00
Í þætti dagsins eru mættar þær Dögg og Lilja sem eru í draumteyminu með Lindu. Þær fara hér allar yfir allt það spennandi efni sem er í boði hjá okkur núna, og að á þriðja þúsund konur eru að taka þátt í námskeiðinu Óstöðvandi , það er svo gaman! Og rúsínan í pylsuendanum er að nú loks opnum við aðgangsgluggann inn í LMLP prógrammið sem verið hefur lokað. Þið hafið nú örfáa daga til að skrá ykkur...
141. Kröftugar aðgerðir 23.08.2023 17:59
Þetta er síðasti þátturinn í fjögurra þátta seríu sem ég hef verið með nú í ágústmánuði sem ég tileinka kröftugu konunni og nú ætla ég að tala við þig um kröftugar aðgerðir. Þótt ég kenni mátt hugsanastjórnunar þá er ekki nóg að sitja í sófanum og hugsa eitthvað. Það þarf að nota kröftugar hugsanir til að grípa til kröftugra aðgerða og þannig breytast niðurstöðurnar. Kröftugar aðgerðir eru þær að...
140. Farðu á eftir draumum þínum 16.08.2023 16:27
Ég er kona sem fer á eftir draumum mínum. Ég hef alltaf haft hvöt sem knýr mig áfram og ég er kappsöm og metnaðarfull kona. Nú á ég mér þann draum að hvetja sem flestar íslenskumælandi konur áfram og hjálpa þeim að lifa sínu besta lífi. Ég vinn að því að vera dæmi um hvað er mögulegt og ég er svo stolt af því samfélagi kvenna sem ég hef búið til af því að ég var tilbúin að fara á eftir draumum mín...
139. Hækkaðu viðmiðin þín 09.08.2023 17:45
Í þessum þætti ætla ég að fara yfir með þér hvernig við ætlum að hætta að skella skuldinni á aðra og lærum að stíga inní kröftugu orkuna okkar til að gera breytingar. Breytingar eru nefnilega erfiðar ef þær eru á valdi einhvers annars. Þegar við höfum ákveðið að hætta að sætta okkur við lífið og kenna öðrum um hvar við erum staddar- þá er næsta skref að ákveða hvað við ætlum að byrja að sætta okku...
138. Berðu ábyrgð á lífinu þínu 02.08.2023 20:31
Þú færð ekki það sem þú vilt, þú færð það sem þú sættir þig við. Það er mjög mikilvægt að átta sig á sannleikanum í þessu. Ef þú spáir virkilega í þetta þá er allt sem þú hefur í lífinu þínu í dag sem þér líkar ekki við tilkomið af því að þú hefur lært að sætta þig við eitthvað sem þú vilt ekki. Alveg sama hvað það er. Eitt af því sem er okkur mjög tamt og við höfum vanið okkur á er að kenna öðru...
Vertu kröftugri á 30 dögum! 28.07.2023 2:03
Þér er boðið! Ókeypis áskorun. Vertu kröftugri á 30 dögum er ókeypis áskorun sem þér er boðið að taka þátt í. Það eina sem þú þarft að gera til þess að taka þátt er að fylgja Lindu á Instagram @lindape → Smelltu hér til að fylgja henni. Við byrjum sunnudaginn 30. júlí nk. Daglega í 30 daga kemur Linda með ráð á Instagram svo þú getir gert kröftugar breytingar á lífi þínu. Láttu þig hlakka til að...
137. Kíktu á bakvið tjöldin 19.07.2023 22:00
Kíktu á bakvið tjöldin! Þessi þáttur er upptaka af vinnustofu í LMLP prógramminu þar sem ég tók meðal annar fyrir hugsunarháttinn og orðin sem við tölum - og þau áhrif sem þau hafa á orkuna okkar. Einnig tók ég fyrir spurningar og svör. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLI...
136. Matarlanganir og þyngdartap 05.07.2023 17:41
Lykillinn að því að grennast er að losna við ákafa löngun í mat. Allar langanir orsakast af hugsunum, en upphaflega eru hugsanirnar hluti af ómeðvitaðri röð endurtekinna hugsana. Löngun er bara hvöt, sterk hvöt sem orsakast af hugsunum þínum. Þegar við látum undan lönguninni viðheldur það henni. Því meira sem við látum undan löngunum okkar því ákafari verða þær. Hvað gerirðu þá ef þú finnur fyrir...
135. 5 atriði sem þú þarft að hætta að gera 21.06.2023 32:19
Þú átt skilið að lifa þínu æðsta lífi-og njóta draumalífsins þíns á heildrænan hátt. Vera í þínu besta andlega og líkamlega formi, eiga meiri peninga, láta gott af þér leiða, vera í draumastarfinu þínu og eiga í samskiptum við fólk sem bætir líf þitt. Til þess að geta tekið á móti draumalífinu þínu sem bíður þín, þá þarftu alltaf að fara í gegnum umbreytingar fyrst. Þú getur ekki náð lengra og li...
134. Dramað í lífinu 07.06.2023 17:43
Á hverjum degi skrifa ég niður markmiðin mín. Sama hver markmiðin eru skrifa ég þau niður. Þú vilt aldrei láta heilann gleyma því sem er þér mikilvægast. Okkur finnst auðvelt að einblína á það sem er að eða virkar ekki en ef þú vilt vera manneskjan sem hugsar um markmiðin sín þegar lífið er erfitt, þá þarftu að vera sú sem hugsar um markmiðin sín með virkum hætti og með því að skrifa þau niður á h...
133. Skiptir fegurð máli? 24.05.2023 29:54
Þegar kemur að fegurð trúi ég því að allar konur hafi sína einstöku fegurð. Hana er að finna innra með okkur og hana er að finna í umhverfi okkar. Vi ð höfum hana allar en því miður höfum við margar eytt meirihluta lífsins í að segja okkur að okkur skorti fegurð. Við erum búnar að fóðra hugsanir sem hafa dregið úr okkur og gefið okkur þá mynd af okkur sjálfum að fegurð sé eitthvað sem sé ekki okka...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.