Ormstungur

Ormstungur

Arts IS ↓ 104 episodes

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.

Author

Ormstungur

Category

Arts

Podcast website

www.ormstungur.is

Latest episode

Jun 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

x Hjalti Halldórsson - Barnabókmenntir og Íslendingasögurnar 05.06.2022

Tungurnar hverfa djúpt inn í sjálfhverfuna og taka viðtal við sjálfar sig. Það er að segja Oddur spyr Hjalta spjörunum úr enda stúdíóið gluggalaust og heitasti dagur vorsins. Benni Erlings taldi Hjalta ruglaðan að gera barnabók um Egil Skallagrímsson, sturlaða fyllibyttu og fjöldamorðingja, en er kannski eitthvað við í því? Hlustið og hlýðið á af hverju Hjalti skrifar og af hverju um barnabækur in...

Kvikmyndarýni - Austmaðurinn (The Northman) 30.05.2022

Tungurnar eru vanar fljótaskrift á skraufþurrt skinnhandrit en reyndu sitt besta við að rýna í hina stafrænt skráðu, epísk-amerísku íslendingasagnaræmu Austmanninn. Vopnaðar súru slátri, mysu og signum silungi sátu þær sem dæmdar undir feðraveldisklámi Róberts Eggertsonar hins föðurlausa. Og ekki síðan þær sáu Ástrík og víkingana hafa þær verið jafn heillaðar af nokkru SJÓNarspili.

5. Króka-Refs saga - Sögulok 21.04.2022

Bragðarefurinn skýtur mönnum ref fyrir rass í síðasta sinn og það í Danmörku af öllum stöðum. Jesu kemur við sögu en hver í fjúkandi fjandanum var Pétur Postuli?! Hvað um það, tungurnar komast upp úr leðjunni og gera söguna upp í leiðinni. Spurning hvort þær leggja í frekari leiðangra eftir þessa krókaleið? (svarið er að sjálfsögðu já) Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/orm...

4. Króka-Refs saga - Virki og vítiseldar 21.04.2022

Sagan tekur á sig VIRKIlega ævintýralegan blæ. Sem betur fer eru tungurnar vel lærðar í verkfræðinni og fara auðveldlega með að útskýra skurðgröft og vatnsveitur á miðöldum… NOT! Þær eru á útivelli sem aldrei fyrr og gera varla lesið söguna sér til gamans hvað þá gagns. En einhvern veginn klárast nú þátturinn, eða hvað? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og...

3. Króka-Refs saga - Gassagangur á Grænlandi 21.04.2022

Refurinn er sigldur frá skítaskerinu Íslandi, tekur land á stærstu eyju heims og gerist stórtækur á Grænlandinu góða. Skreytir sig með rostungstönnum og safnar selum eins og sannkallaður Nanook norðursins. En hómófóbían er víða og Daltonbræður miðaldanna æra óstöðugan með rógburði og ræfilsskap. Endar það vel? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og útgönguste...

2. Króka-Refs saga - Erjur á Íslandi 21.04.2022

Krókurinn hér hvar og hvenær sem er söng Sálin hans Jóns míns en tungurnar eru ekki hvar sem er, þær eru í Kvennabrekku í dölunum. Þar hafa menn löngum haft áhuga á skinnum, enda  hundraðkallinn sálugi Árni Magnússon fæddur þar en öfugt við hann hefur okkar maður Refur meiri áhuga á að naga skinn en að skrifa á það. En eins og gjarnan er með fálát börn þá rætist fljótt úr Rebba. Hvernig? Hlus...

1. Króka-Refs saga - Lagt á borð 21.04.2022

Ormstungur halda í enn eina óvissuferðina. Í þetta skiptið er ótroðna slóðin krókótt en eins og tungurnar segja gjarnan er betri krókur en kelda enda engin Íslendingasaga sem heitir Keldu-saga. Það þýðir auðvitað ekki að tungurnar lendi ekki í keldunni. Ójú, eins og kettir út í mýri vaða þeir leðjuna strax í byrjun. Komast þeir af stað? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/or...

x FGrettir 24.03.2022

Oddur er fjarri góðu gamni að gamna sér í útlöndum en Hjalti deyr ekki ráðalaus og fær annan Odd og einn Alexander með honum í viðtal. Þeir fara yfir uppfærslu Fjölbrautarskólans í Garðabæ á söngleiknum Gretti. Tungurnar hvetja… nei hreinlega skipa öllum að fara og sjá sýninguna. Auðvitað lesa Grettis sögu fyrst. Og lesa hana svo aftur eftir sýningu. Kannski best að taka hana bara með á sýninguna.

x Arngrímur Vídalín 22.12.2021

Jólaþátturinn er lentur. Þegar Ormstungur eru nýkomnir úr glímu sinni við skrímsli og drauga þá verður að hringja í skrímslafræðing. Eina akademíska skrímslafræðing sem finnst hér á landi. Dr. Arngrím Vídalín. Hann skólar okkur til í hugtökum eins og afmennskun, blámenn, tröll, draugar, kúgun kvenna og...hvar á að hætta? Eða byrja?  Hlustið bara, þið sjáið ekki eftir því!

x Oddur Atli 17.12.2021

Oddur Atli er venjulegur strákur sem gengur í 8. bekk í Oddeyrarskóla. Eða hvað? Oddur er kannski betur þekktur undir listamannanafninu OddurArg og sennilega yngsti atvinnulistamaður á Íslandi. Ef þú hefur stoppað við í Hauganesi, rétt hjá Dalvík, á ferð þinni um landið þá hefur þú kannski rekist á verk eftir Odd þar sem hann fær útrás fyrir brennandi áhuga sinni á miðöldum og Íslendingasögunum. O...

x Hundur í óskilum 11.11.2021

Njála í höndunum á hundunum  Njála hræðir tungurnar meira en flest annað, nema ef vera skyldi að hitta Án hrísmaga í dimmu húsasundi. Þáttastjórnendur liggur við yfirliði þegar drottningu Íslendingasagnanna svo mikið sem ber á góma. Þá er gott að viðmælandinn að þessu sinni er vanur að blása í ýmsa heimagerða lúðra og flautur og gæti blásið í tungurnar lífi ef illa skyldi fara.  Tónmennt...

x Aðalheiður Guðmundsdóttir 27.09.2021

Eru miðaldabókmenntir framtíðin? Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands svarar þessari spurningu og fræðir tungurnar um fornaldarsögur, Íslendingasögur, samtíðarsögur og riddarasögur. Hún hefur rannsakað allt milli himins og jarðar er varðar bókmenntir fyrri alda þar á meðal galdra, hina munnlegu geymd, dans og rímur. Hlustið og hlýðið!

8. Grettis saga - Uppgjör 13.09.2021

Þá er sagan öll en eigi er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Ormstungur vita sem er að enginn er allheimskur ef þegja má og kalla því til sérfræðinga til að klára yfirferðina, enda hlýtur jafnan illt af athugaleysi og jafnan er hálfsagan sögð ef einn segir. Stebbi Jak fer yfir nestismálin, Sigrún Þ. Geirsdóttir kennir tungunum að synda í sjó og Ragnar Bragi Sveinsson fræðir þær um hestaatið á Þing...

7. Grettis saga - Drungi í Drangey 13.09.2021

Lífið í Drangey leikur við Gretti sem hefur sigrast á margri þrautinni þegar hér er komið við sögu. En loks mætir hann ofjarli sínum. Fátt er rammara en forneskjan og illa rotinn rekaviður verður söguhetjunni að falli. Grettir er ekki ber á bakinu og litli bróðir hjálpar honum að spyrna við fótum. Glaumur reynist hins vegar verri en enginn, enda illt að eiga þræl að einkavin.

6. Grettis saga - Ævintýri í útlegð 13.09.2021

Tungurnar renna sér stjórnlaust fram af snjóhengjunni með bundið fyrir bæði augu í örvæntingarfullri tilraun til að halda í við söguhetjuna. Grettir slakar ekkert á þrátt fyrir að vera orðinn útlægur. Alls konar hindranir verða í veginum - Um hvað var Megas að semja? Hvað er Íslandsmetið í réttstöðulyftu? Hver er munurinn á réttstöðulyftu og hnébeygju? Lögfræðin fer líka illa með Tungurnar. Betur...

5. Grettis saga - Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin 13.09.2021

Hvert ferðu þegar það er komið bremsufar í buxurnar? Hvar er best að vera þegar álögin leggjast ofan á þig eins og mara? Hvar er hamingjuna að finna þegar Glámskrattinn hefur hrifsað frá þér lífsviljann? Jú auðvitað í landi tækifæranna, perlu Skandinavíu - Noregi. Þessi seinni utanför er þó ekki eins gæfusöm og fyrr en varir fer allt bókstaflega í bál og brand. Grettir fer óvarlega með eld í Noreg...

4. Grettis saga - Gæfa eða gjörvileikur 13.09.2021

Erfiður þáttur fyrir Ormstungur, eðlilega. Einn svakalegasti Svíi bókmenntasögunnar stimplar sig inn með skelfilegum afleiðingum - hinn hljóðmikli og dimmraddaði smali Glámur, AKA Staffan Olson miðalda. Eftir hrikalegustu glímu Grettis við drauginn skeinuhætta hefur hann náð toppnum. Gjörvulegur er hann, um það er ekki deilt. En gæfusamur ekki. Það er kalt á toppnum og okkar maður ekki í kuldagall...

3. Grettis saga - Sætir sigrar í Noregi 13.09.2021

Tungurnar eru landkrabbar báðar tvær og það er vesen því sagan er komin út á haf. Dæmdur Grettir siglir í útlegðina álíka súr og nestið sem olli útlegðinni. Fljótlega tekur hann þó gleði sína þegar hann kemst til perlu Skandinavíu - Noregs. Draugar eru rassaðir, berserkir barðir í spað og skógarbjörn fær makleg málagjöld. Grettir er að finna sjálfan sig. Þetta getur ekki klikkað - eða hvað?

2. Grettis saga - Tréfættur forfaðir og bernskubrek brjálæðings 13.09.2021

Það er byrjað í Noregi og Tungurnar ruglast strax á fyrstu mínútu leiksins! En hverjum er ekki sama hvort Önundur var afi eða langafi? Maðurinn var viskílepjandi víkingur með tréfót! Fljótlega berst leikurinn þó til Íslands og æsku Grettis. Þá ná tungurnar betri tökum á leiknum enda uppeldisfræðimenntaðar báðar. Það er þó bara í stuttan tíma og þegar morð er framið út af nesti er þeim öllum lokið.

1. Grettis saga - Lagt á borð 13.09.2021

Ormstungur ráðast í sitt stærsta verkefni til þessa og eru hreinlega ekki vissar um að valda verkefninu. Því byrja þær á að hringja í Ármann Jakobsson til að nesta sig almennilega fyrir verkefnið. Manni er eðlilega efins um tungurnar, enda hefur hann sjálfur orðið fyrir barðinu á vanþekkingu þeirra í viðtalsþætti, en gefur að lokum ráðin góð. Ormstungur halda þá út á Grettishafið, vissulega á hrip...

Ormstungur - Áður en þú hlustar 05.08.2021

Hjalti og Oddur leggja þér línurnar áður en þú veður í sögurnar.

Hrafnkels saga Freysgoða - Uppgjör 08.01.2021

Austfaðirinn gerður upp. Ormstungur reyna að setja einhvern boðskap í söguna, bera hana saman við aðrar Íslendingasögur ásamt því að bulla töluvert. Eftir stendur ærandi spurning - hvert skal halda næst?

Hrafnkels saga Freysgoða - Lagt á borð 08.01.2021

Ormstungur iða í sætunum eins og Gísli Marteinn á föstudagskvöldi - bísperrtir. Enda er gestalistinn ekki af verri gerðinni. Til veislunnar er boðið sjálfum Hrafnkatli Freysgoða með sögu sína. Eftar að hafa skaðað sig á Gísla sögu verður spennandi að sjá hvort Ormstungur verði líka gerðar útlægar af Austurlandi?

Hrafnkels saga Freysgoða kaflar 1-6 08.01.2021

Ormstungur halda inn í þokuna og rekast strax á hindranir. Að vísu eru þeir fljótir að reikna út manngerð Kela en þegar kemur að Einari smala vandast málið. Hvað gera smalar? Hvað þurfa þeir að kunna fyrir sér? Og síðast en ekki síst, hvað þurfa þeir að hafa í nesti? Sem betur fer er sérfræðingur að norðan í símanum og Orsmtungur fá svör við öllu. Já, svo er framið eitt morð.

Hrafnkels saga Freysgoða kaflar 7-11 08.01.2021

Ormstungur halda til Alþingis og reyna að skilja ráðabrugg Þorkels Þjóstarsonar. Það tekst ekki betur en svo að fljótlega eru þeir farnir að ræða pabba Kardashian systra. Þeir eru nú meiri dusilmennin þessar Ormstungur.

Listen to the Ormstungur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.