Ormstungur
Ormstungur
Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
3. Fóstbræðra saga - Holdgervingur vígamennskunnar 03.03.2024 38:56
Var komið nóg af drápum? Ó nei! Þorgeir er holdgervingur vígamennskunnar. Hann gerir hins vegar mistök sem mögulega kunna að bíta hann í rassinn seinna meir. Hjalti veltir svo fyrir sér hvenær ostur er forn eður ei.
2. Fóstbræðra saga - Víg fyrir vestan 03.03.2024 42:00
Við erum stödd á dögum Ólafs helga Noregskonungs. Aftur fara tungurnar vestur. Það hefur sjaldan gefið góða raun. Fóstbræðurnir Þorgeir og Þormóður eru kynntir til leiks. Þorgeir byrjar að drepa og drepa og drepa. Ekki bara menn heldur hvali líka.
1. Fóstbræðra saga - Lagt á borð 03.03.2024 11:29
Komið fagnandi í hundraðasta þátt Ormstungna! Oddur og Hjalti leggja í Fóstbræðra sögu sem er auðvitað öllum landsmönnum kunnug. Einna helst eftir að Nóbelskáldið gerði stólpagrín að henni á sínum tíma í Gerplu. Það er ekkert víst að þetta klikki.
7. Íslendingasögurnar á mannamáli - Örlög 02.11.2023 7:03
Hjalti og Oddur ljúka þáttaröðinni með því að skoða lykilhugtak - örlög. Hugtakið útskýrir margt í hegðun fólks í Íslendingasögunum og um leið og Hjalti og Oddur segja frá því draga þeir saman efni Laxdælu.
6. Íslendingasögurnar á mannamáli - Hefnd 02.11.2023 8:01
Það er ljótt að hefna sin, eða hvað? Á miðöldum giltu sérstakar reglur um hefnd sem sést greinilega í Íslendingasögunum. Í þættinum segja Hjalti og Oddur frá þeim og hlutverki kvenna í hefndaraðgerðum í Laxdælu.
5. Íslendingasögurnar á mannamáli - Hetja 02.11.2023 7:56
Það er hægt að hugsa sér margar hetjur og margs konar hetjuskap. En í Íslendingasögunum fylgdu hetjurnar ákveðnum reglum og í þessum þætti kynna Hjalti og Oddur til leiks eina frægustu hetju Íslendingasagnanna - Kjartan Ólafsson.
4. Íslendingasögurnar á mannamáli - Heiður 02.11.2023 8:04
Á miðöldum skipti heiður fólk öllu máli og þannig er það líka í Íslendingasögunum. Í þættinum útskýra Hjalti og Oddur hvernig heiður drífur oft áfram sögurnar og segja frá samskiptum húsfreyjunnar Jórunnar og ambáttarinnar Melkorku.
3. Íslendingasögurnar á mannamáli - Draumar 02.11.2023 5:23
Öll dreymir okkur, en stundum getur verið erfitt að rifja draumana upp að morgni dags. Í þessum þætti útskýra Hjalti og Oddur hvaða þýðingu draumar hafa í Íslendingasögunum og segja frá Guðrúnu Ôsvífursdóttur.
2. Íslendingasögurnar á mannamáli - Feðraveldi 02.11.2023 7:12
Hugtak þáttarins er feðraveldi. Hjalti og Oddur útskýra hugtakið með því að taka dæmi úr Laxdælu. Hverjar voru Unnur djúpúðga og Melkorka Mýrkjartansdóttir og hvernig notaði hún reglur feðraveldisins ser í hag?
1. Íslendingasögurnar á mannamáli - Íslendingasögurnar 02.11.2023 7:07
Í þessum þætti segja Hjalti og Oddur frá því hvað Íslendingasögurnar eru og hvaða hugtök er hitt að skilja til að njóta þeirra. Þeir kynna einnig söguna Laxdælu.
7. Njáls saga - Uppgjör 18.05.2023 1:11:14
Sælir kælir hitamæli… komið með slökkvitækið, þetta er búið! Erfiðasta verki Ormstungna lokið. Ekkert á að vera fullkomið og þessi þáttaröð um Njálu er dæmi um það. En þá er gott að eiga í handraðanum nokkra sérfræðinga sem geta dregið okkur að landi og það er á bullandi tali hjá Tungunum í þættinum. Vala Garðars um fornleifar, Einar Kára um höfundinn, Ragnhildur Elísabet um að alast upp með Njálu...
6. Njáls saga - Brenna og bugun 18.05.2023 48:29
Þetta byrjaði svo vel. Tungurnar höfðu alvöru trú. En svo bregðst krosstré sem viðarásar Bergþórshvols. Það óvæntur gestur sem leggur Tungurnar að velli - Ingjaldur á Keldum! Hver var hann? Hvaðan kom hann? Og hvaða andskotans máli skiptir hann í þessari sögu!? Örvæntið ekki, uppgjörið er eftir. Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Pat...
5. Njáls saga - Mörður á leik 18.05.2023 50:34
Hundraðasti þátturinn og Tungurnar heyra í kyndlum fyrir utan stúdíóið. Vafasamar kenningar um kristni, hestaát og hlutverk Skarphéðins í sögunni verða til þess að jafnvel sprelllifandi fræðifólk snýr sér við í kumlunum. En einhvern veginn tekst að klára þáttinn og þá er bara eitt eftir - að kveikja í skinninu. Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getu...
4. Njáls saga - Höskuldarviðvörun 18.05.2023 52:20
Tungurnar höfðu verið varaðar við, þær vissu örlög þeirra sem reyna að greiða úr hinum mörgu þráðum Njálu. Hlustuðu þær - nei. Það verður til þess að þrátt fyrir gott gengi í Noregsköflunum um Víga Hrapp þá fara þræðir Njálu að herðast um kverkar þeirra eins og Urður, Verðandi og Skuld séu að hengja þá. Tunguknörrinn brotnar í spón á ströndum kaflanna sem fjalla um Höskuldana tvo. Lifa þeir þetta...
3. Njáls saga - Fögur er hlíðin 18.05.2023 1:09:22
Gunnar slær sinn síðasta tón á atgítarstrenginn. En tónnin reynist falskur og holur og slitnar að lokum. Þá er nú gott eiga háprúða eiginkonu. Nema auðvitað að maður hafi einhvern tímann gert eitthvað á hennar hlut sem gæti komið manni í koll… karma is a bitch Gunnar! Hvernig höndla Tungurnar þessa ófyrirsjáanlegu framvindu? Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnan...
2. Njáls saga - Hornkerlingin hættulega 18.05.2023 1:06:15
Tungurnar stinga sér til sunds í Rangá og synda á móti straumnum allan þáttinn. Þær eru án kúts og korks en á einhvern ótrúlegan hátt ná þær að fara yfir misgáfulegar kenningar um kynlífskúnstir Hrúts og Unnar Marðardóttur, blóðug hjónabönd Hallgerðar og húskarlavíg húsfreyjanna á Bergþórshvoli og Hlíðarenda. Einungis ein spurning stendur eftir: „Hvað í fjandanum þýðir að fjórðungi bregður til fós...
1. Njáls saga - Lagt á borð 18.05.2023 21:43
Sú elsta. Sú virtast. Sú hættulegasta - Brennu Njáls saga. Okkar Everest og eldfimasta verkefni Tunganna hingað til. Það er enginn öruggur um að lifa Njáluna af og allra síst Tungurnar. Þær telja sig hafa pakkað í bakpokann og undirbúið sig vel en er það nóg? Eru þær nógu vel nestaðar? Guð blessi Ísland… og Tungurnar. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast...
x Dr. John Sexton (Saga Thing Podcast) 14.05.2023 46:38
Fyrsta viðtalið okkar á ensku! Hjalti var vant við látinn en Oddur nýtti tækifærið á meðan og fékk Dr. John Sexton, prófessor við Bridgewater háskóla í Massachusetts Bandaríkjunum. John kennir nemendum við Bridgewater háskóla Íslendingasögunar og heldur úti hlaðvarpinu Saga Thing ásamt öðrum prófessor, Dr. Andrew M. Pfrenger. Í hlaðvarpinu gera þeir sögurnar aðgengilegar og lifandi á ensku ásamt þ...
7. Egils saga - Uppgjör 17.06.2022 42:41
Tungurnar gera söguna upp og skila henni aftur í skinnhandritið. Auðvitað klúðraðist margt og gleymdist fullt (til dæmis að keyra heim punktinn með að Egils saga er í rauninni ástarsaga þar sem sterkustu viðbrögð Egils eru vegna ástarinnar. Til Þórólfs, til Ásgerðar, til sonar síns og síðast en ekki síst ástarinnar á peningum.) En einhvern veginn blessaðist þetta alveg eins og hjá Agli sjálfum. En...
6. Egils saga - Aurasálin 17.06.2022 45:49
Síðasti valsinn stiginn undir tryllingslegum takti! Egill er eins manns hljómsveit með allt vopnabúrið á lofti. Við fáum töfralækninn, bardagamanninn, skyrhatandi uppkastarann, skáldið og elliæra æringjann. Skipinu er siglt í land… já eða strand. Stóra spurningin er þó: Getur Stebbi Jak róað Egil áður en hann eyðileggur partýið? Hlustið og hlýðið. Gestur: Stefán Jakobsson Inn- og útgöngustef: Reyn...
5. Egils saga - Höggva mann og annan 17.06.2022 56:00
Lögmaðurinn Egill sprettur fram og gefur ekkert eftir frekar en fyrri daginn. Honum verður hins vegar lítið ágengt enda aldrei sniðugt að reyna að rukka Norðmann. Þá er bókstaflega ekkert annað í stöðunni en að tryllast, fjöldamyrða og reisa eins og eina níðstöng. Skallagrímur vill silfrið en maður fær ekki allt í lífinu. En við fáum brandara Ármanns þó í þessum þætti. Fatta Tungurnar hann? Hlusti...
4. Egils saga - Bræðrabönd 17.06.2022 45:12
Ástsýki og ælur, skyrdrykkja og skærur. Víkingurinn válegi sprettur fram eins og mamma hafði spáð fyrir og heggur mann og annan. Bræður munu berjast, saman að vísu, en það endar samt ekki vel. Ekki frekar en að blanda skyri og öli í mallakút. Egill er leiður en það er ekkert sem silfurkista eða tvær lagar ekki. Eða hvað? Hlustið og hlýðið. Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
3. Egils saga - Brestir bernskunnar 17.06.2022 51:53
Tungurnar leita á náðir uppeldisfræðimenntaða rithöfundarins Brynhildar Þórarinsdóttur til að ná tökum á æsku Egils. Kominn af hálftröllum og alinn upp af háöldruðum var drengurinn afskiptur í æsku en ofvirki ofurvitinn sem hann var líka fékk hann það sem hann vildi. Svona næstum því. Pabbi hans drap að vísu vini hans en hvað eru vinadráp milli vin… feðga? Er hamast? Já það er hamast! Hlustið og h...
2. Egils saga - Örlög í Austurvegi 17.06.2022 50:10
Það er byrjað þar sem allar góðar sögur byrja, í Noregi. Tungurnar lenda harkalega og það kemur sennilega fæstum á óvart að þær eru mjög fljótlega í veseni. Þær þurfa að klóra sig í gegnum nokkrar vel skrollaðar vesturstrandar mállýskur áður en þær geta tæklað skallann á Skallagrími, hárið á Haraldi hárfagra og Finnlandsskattinn. Hvernig fer það? Hlustið og hlýðið . Inn- og útgöngustef: Reynir Har...
1. Egils saga - Lagt á borð 17.06.2022 27:13
Ólíkindatólið Egill Skallagrímsson var ekki bara maður óðsins heldur fullkomlega og án efa óður maður. Hvað eru Tungurnar að pæla að glíma við þennan mann? Ef hann var þá maður? Þær þurfa vopn. Þær þurfa verjur. Þær þurfa ráðgjöf. Þær þurfa, Ármann Jakobsson. Eftir að hafa heyrt í honum fyllast þær öryggi. Fölsku öryggi? Hlustið og hlýðið. Gestur: Prófessor Ármann Jakobsson Inn- og útgöngustef: Re...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.