olibjorn

Óli Björn - Alltaf til hægri

News IS ↓ 100 episodes

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er alltaf til hægri.

Author

olibjorn

Category

News

Podcast website

olibjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Að selja Ísland fokdýrt er eina markmiðið sem er ljóst 01.07.2026

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, vill að þjóðin veiti þeim umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að hefja aðlögunarviðræður við ESB án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði. Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa um markmið stjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu. Engu er líkara en í hugum þeirra sé eðlilegt og sk...

Pólitísk orðaverkstæði 27.05.2026

Orð og skilgreiningar skipta máli. Þetta vita snjallir vinstri sinnaðir hugsjónamenn betur en flestir aðrir og þess vegna hafa þeir lagt áherslu á að breyta merkingu orða eða hreinlega smíða ný orð og orðasambönd. George Orwell varaði við því að sannleikurinn yrði fórnarlamb þegar tungumálið er misnotað. Í ritgerð sem hann birti árið 1946, „Stjórnmál og enska tungan“, hélt hann því fram að villand...

Sveiflan til hægri 20.05.2026

Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega...

Ævintýri í Norðurhöfum 01.05.2026

Í október 2010 setti ég fram þá hugmynd, í Morgunblaðsgrein, að Íslendingar ættu að hafa frumkvæði að því að mynda nýtt fríverslunarsvæði á norðurslóðum. Markmiðið er ekki aðeins að mynda fríverslun milli sjö landa (Bandaríkjanna, Kanada, Noregs, Bretlands, Færeyja, Grænlands og Íslands) heldur ekki síður að búa til formlegan samstarfsvettvang vegna nýtingar auðlinda, náttúruverndar og sameiginleg...

„Atvinnustefnuráð“ er lausnarorðið 24.04.2026

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur samþykkt sérstaka atvinnustefnu fyrir landið sem er sögð sú fyrsta hér á landi. Markið er sett hátt og stóru orðin eru ekki spöruð frekar en fyrri daginn til að lýsa stefnunni. Atvinnustefna Íslands er sögð vera vaxtarplan til 10 ára sem lýsi því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífinu og samfélaginu að aukinni verðmætasköpun. Markvi...

Endursýning á pólitísku leikriti 17.04.2026

Árið 2009 var sett á fjalirnar pólitísk leiksýning sem stóð yfir tæp fjögur ár. Þá, líkt og nú, var reynt að telja almenningi trú um að um sérstakar samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins væri að ræða. Byggt var undir þá von að Íslendingar gætu samið um breytt regluverk Evrópusambandsins – að Evrópusambandið myndi aðlaga sig að sérþörfum Íslendinga. Forystumenn vinstri stjórnarinnar v...

Antonin Scalia: Maður textans 09.04.2026

Antonin Scalia var einn áhrifamesti hæstaréttardómari Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldar og fram á þá 21. Hann var fæddur árið 1936 og var skipaður dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna árið 1986 af Ronald Reagan. Scalia lést 13. febrúar 2016 og voru fréttir af andláti hans fluttar um allan heim. Fáar andlátsfréttir hafa vakið meiri athygli á síðustu árum nema þá fréttir af fráfalli helstu þjóðar...

Hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins 01.04.2026

Forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, rithöfundur, leikritaskáld, listamaður, útvarpsmaður, blaðamaður og ritstjóri. Hægt er að nota öll þessi starfsheiti til að lýsa Davíð Oddssyni sem lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars aðeins 78 ára að aldri. Með Davíð er genginn einhver áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldisins – stjórnmálamaður sem hafði ekki aðei...

Ríkisstjórn brostinna vona 25.02.2026

Það er ekki sérlega óvæginn dómur yfir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, eftir 14 mánuði í stjórnarráðinu að segja að stjórnin hafi komið litlu í verk og að staða flestra heimila og fyrirtækja sé verri nú en þegar ríkisstjórnin tók við völdum í desember 2024. Hástemmdar yfirlýsingar í upphafi eru annað hvort gleymdar eða hljóma líkt og háðung fyrir ríkisstjórnina. Hin fögru fyrirheit hafa að me...

Endurheimtum stöðu okkar í heiminum 19.02.2026

Sem utanríkisráðherra ber Marco Rubio ábyrgð á að framfylgja utanríkisstefnu Donalds Trumps Bandaríkjanna með trúverðugum hætti og á traustum grunni. En hann nálgast verkefnið út frá eigin sannfæringu. Frá því hann tók sæti í öldungadeildinni árið 2011 hefur hann verið haukur í öryggis- og varnarmálum, gagnrýnt einræðisríki á borð við Kína, Rússland, Íran, Kúbu og Venesúela og lagt áherslu á fælin...

Kerfisbundið niðurrif borgaralegra réttinda 11.02.2026

Hafi einhver efast um eindreginn ásetning kínverska kommúnistaflokksins að virða að vettugi almenn mannréttindi þá hlýtur efinn að hafa horfið eftir að 20 ára fangelsisdómur var kveðinn upp yfir Jimmy Lai, 78 ára útgefanda og stofnanda dagblaðsins Apple Daily. Dómurinn jafngildir lífstíðardómi. Jimmy Lai, sem er einn þekktasti baráttumaður mannréttinda í Hong Kong, hefur setið í fangelsi í rúm fim...

Forræðishyggja gegn fjárhagslegu sjálfstæði launafólks 21.01.2026

En þrátt fyrir skýran vilja mikils meirihluta landsmanna og þá ekki síst þeirra sem nú eru á leigumarkaði, er verið að ryðja braut félagshyggjunnar. Sameiginlega fjármuni borgaranna skal nota til að byggja upp félagslegt íbúðakerfi. Með góðu og illu, fjárhagslegum hvötum og þvingunum, skal almenningi beint inn á leigumarkaðinn. Kjörorðið er: Leiga ekki eign. Forræðishyggjan er allsráðandi með svip...

Hugsaðu sjálfstætt: Konan sem ögraði rétttrúnaði fjölmiðla 13.01.2026

Bari Weiss er án nokkurs vafa ein áhrifamesta fjölmiðlakona Bandaríkjanna. Hún hefur skapað sér áhrifastöðu í bandarísku þjóðlífi með baráttu gegn pólitískri rétthugsun og „wok-isma“, og skýrri hugmyndafræði um grunngildi blaðamennsku: sanngirni, hlutlægni og réttar upplýsingar.  Bari hefur byggt upp eigin fjölmiðil - The Free Press - og sett ný viðmið í fjölmiðlun. Miðillinn byggir á hugmyndum um...

Harðstjóri fjarlægður - óvissa og vonir 07.01.2026

Óvissan um hvort lýðræði komist aftur á í Venesúela er mikil þótt vonir almennings hafi vaknað eftir handtökuna á Mudoro. Valdakerfi sósíalista stendur óbreytt. Varaforsetinn, Delcy Rodríguez, hefur tekið við og hún er sannfærður sósíalisti og harður andstæðingur Vesturlanda og Bandaríkjanna sérstaklega. Rodríguez hefur verið í innsta hring valdakerfis sem byggt var upp á valdatíma Hugo Chávez og...

Ríkisútvarpið fest í setti 30.12.2025

Hafi einhver borið þá von í brjósti að spilin á íslenskum fjölmiðlamarkaði yrðu raunverulega stokkuð upp með sérstakri aðgerðaráætlun menningarmálaráðherra, hefur sá hinn sami orðið fyrir miklum vonbrigðum. Tillögur ráðherra undir hatti aðgerðaráætlunar í málefnum fjölmiðla, sem ríkisstjórnin hefur gert að sínum, taka mið af því að fyrst skuli staðið vörð um Ríkisútvarpið og síðan reynt að styðja...

Þyngri byrðar vinstri stjórnar 20.12.2025

Fjárlög komandi árs eru fyrstu fjárlög vinstri stjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins. Á grunn þeirra birtist pólitísk stefna stjórnarinnar: Aðalverkfæri ríkisstjórnarinnar er ekki sleggjan, sem Kristrún ætlaði að nota, heldur aukin skattheimta til að standa undir gríðarlegri aukningu ríkisútgjalda. Og aukin ríkisútgjöld eru ekki vegna óvænt...

Leitin að nýjum og nýjum málstað 13.12.2025

Hægt er að draga sögu vestrænna sósíalista frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar saman í eina setningu: Stöðug og endurtekin leit að nýjum málstað í baráttunni gegn gildum vestrænna samfélaga og kapítalisma – markaðshyggju. Allar hugmyndir, hvert verkefni, hver krossferð snýst í grunninn um eitt og hið sama – djúpa tortryggni á frjálsu framtaki, frjálsum markaði og baráttu gegn þjóðskipulagi sem he...

Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk 09.12.2025

Það væri hægt að sækja í orðakistu forseta Alþingis til að lýsa síðustu viku fyrir ríkisstjórnarflokkana. Djöfulsins, helvítis, andskotans. Þingvikan – frá mánudeginum 1. desember til föstudagsins 5. desember, var ekki sérlega góð fyrir ríkisstjórnarflokkana – var raunar í flestu afleit. Og það er greinilegt að þráðurinn er stuttur í stjórnarliðinu enda flestum ljóst að ráðherrar hafa ekki haldið...

Gíslar í haldi Ingu og Flokks fólksins 05.12.2025

Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ákveðið á víkja farsælum og vinsælum skólameistara úr starfi. Þegar forsaga málsins er höfð í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að baki ákvörðun ráðherrans sé hefndaraðgerð  – misnotkun á pólitísku valdi til að koma þeim frá sem er ráðherra og félögum hans í Flokki fólksins ekki þóknanlegur. Það má hafa nokkra samúð með forsætisráðherra sem ítrek...

Grafið undan EES með grófu broti 20.11.2025

Ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að leggja verndartolla á kísilmálm frá Íslandi og Noregi markar þáttaskil í samskiptum EES-ríkjanna. Þrátt fyrir áratugalangt samstarf og aðild Noregs og Íslands að innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn var hvorugt landið undanþegið tollunum sem eru undir hatti svokallaðra verndartolla. Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, gagnrýnd...

BBC í krísu - en hvað með RÚV 18.11.2025

Breska ríkisútvarpið – BBC er í djúpri kreppu, eftir rökstuddar ásakanir um hlutdrægni, pólitískan rétttrúnað og fréttafalsanir hafa komið fram. Orðstír fréttastofu BBC, sem eitt sitt var talin fyrirmynd annarra fjölmiðla um vönduð vinnubrögð, er í húfi enda illa hægt að treysta lengur að það sem fréttamenn breska ríkisútvarpsins bera á borð sé byggt á staðreyndum og upplýsingaöflun og hlutlausum...

Hægri menn standa á krossgötum 06.11.2025

Við sem erum hægri menn getum ekki einblínt á ofstæki vinstri manna en látið pólitíska rétthugsun og yfirgang svokallaðra hægri mann óátalin. Barátta okkur fyrir frelsi – málfrelsi – er barátta fyrir frelsi allra ekki aðeins þeirra sem eru okkur þóknanlegir. Að öðrum kosti gerum við okkur seka um það sama og vinstri róttæklingar, sem við höfum með réttu gagnrýnt harðlega. Við eigum ekki að verja þ...

Fyrirgefning og tjáningarfrelsi 25.09.2025

Þú þarft að búa yfir einhverjum innri krafti – trú á hið góða – til að tala með þeim hætti sem Erika Kirk gerði í ræðu á minningarathöf um eiginmann hennar Charlie Kirk – aðeins ellefu dögum eftir hann var myrtur. Erika sækir styrkinn í trúnna á Jesús Krist líkt og eiginmaður hennar gerði. Fæst okkar höfum þennan styrk eða þá bjargföstu trú sem gerir okkur kleift að fyrirgefa þeim sem drepur nákom...

Sleggjan notuð á barnafjölskyldur 22.09.2025

Kristrún Frostadóttir lofaði fyrir kosningar að nota sleggju til „negla niður þessa vexti“. Loforðið endurspeglast í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem gefin eru fyrirheit um að fyrsta verk stjórnarinnar sé stöðugleiki og lækkun vaxta. Hvorugt hefur gengið eftir. Verðbólgan hefur reynst þrálát og vextir hafa ekki þokast niður. En sleggjan nýtist vel við að berja á barnafjölskyldum með þv...

Kyndilberi vonar og frelsis 19.09.2025

Venesúela er í rúst – efnahagslega og pólitískt. Samfélagslegir innviðir hafa verið brotnir niður. Mannréttindi eru fótum troðin og milljónir manna hafa flúið land. Nicolás Maduro, lærisveinn og eftirmaður Chavez á forsetastóli, heldur ótrauður áfram við að breyta auðugasta landi Suður-Ameríku í það fátækasta. Enn eitt draumaríki sósíalismans hefur breyst í martröð – auðlegð hefur orðið að örbirgð...

Listen to the Óli Björn - Alltaf til hægri podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.