olibjorn

Óli Björn - Alltaf til hægri

News IS ↓ 100 episodes

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er alltaf til hægri.

Author

olibjorn

Category

News

Podcast website

olibjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Prófraun ríkisstjórnarinnar 04.09.2025

Þegar þing kemur saman 9. september hefst nýr kafli í sögu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Ráðherrar og þingmenn samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin sé verkstjórn, þar sem verkin tali. Ríkisstjórninni hefur ekki enn sem komið er tekist að koma á stöðugleika eða leggja grunn að lækkun vaxta sem áttu að vera hennar fyrsta...

Flokkur á útsölu 26.07.2025

Stundum er engu líkara en að saga endurtaki sig, með nýjum leikurum en öðrum blæbrigðum. Í mörgu er staða Flokks fólksins sú sama og Vinstri grænna fyrir rúmum einum og hálfum áratug. Með sama hætti og Vinstri grænir hefur Flokkur fólksins selt stefnu sína í Evrópumálum fyrir aðild að ríkisstjórn og ráðherraembætti.  Andstaðan við Bókun 35 er horfin, áralöng baráttan fyrir að draga aðildarumsókn a...

Ríkisstjórn án áttavita 10.07.2025

Ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins – hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin væri verkstjórn, þar sem verkin tali. Stefnan sé skýr og umboð óumdeilt. Fyrstu þrjár setningar í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar eru skýrar: „Ný ríkisstjórn gengur samstíga til verka. Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagsl...

Hvernig lítið furstadæmi kaupir bandarísku valdaelítuna 04.06.2025

Donald Trump forseti Bandaríkjanna heimsótti Katar í maí síðastliðnum og átti m.a. fund með Al Thani konungsfjölskyldunni. Þá skoðaði forsetinn Al Udeid herflugstöðina sem er stærsta herstöð Bandaríkjanna á svæðinu. Trump hefur örugglega þakkað fyrir höfðinglega „gjöf": 400 milljóna dollara Boeing 747-8 þotu sem Katar hefur gefið forsetanum, og verður notuð sem Forsetavél - Air Force One. Heimsókn...

Ég, blýantur - rökin fyrir frjálsum markaði 06.05.2025

Hayek sýndi okkur fram á að upplýsingar í samfélaginu eru alltaf dreifðar – enginn einstaklingur eða stofnun býr yfir allri þeirri þekkingu sem þarf til að taka réttar ákvarðanir í efnahagsmálum. Þekkingin sem einstaklingar búa yfir er oft takmörkuð, brotakennd og jafnvel mótsagnakennd, en samanlagt er þessi dreifða þekking undirstaða skynsamlegra ákvarðana í gegnum frjálst samspil markaðarins. Ma...

Sótt í skúffur Jóhönnu og Steingríms J. 16.04.2025

Vinstri ríkisstjórn þriggja flokka undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur minnir æ meira á aðra vinstri stjórn – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013. Þá lögðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon til atlögu við atvinnulífið og millistéttina. Skattar voru hækkaðir og haft í hótunum við undirstöðuatvinnugreinar landsins. Hugmyndafræði vinstri manna hefur þv...

Lagt til atlögu við frelsið 08.04.2025

Hugmyndafræði Trumps á ekkert skylt við hugsjónir Ronalds Reagans sem var forseti Bandaríkjanna 1980 til 1988. Það er umhugsunarvert að báðir skuli tilheyra Repúblikanaflokknum. Ronald Reagan trúði því að Bandaríkin hefðu ekki aðeins hag af frjálsum viðskiptum heldur bæru siðferðilega skyldu til að efla þau milli landa. Reagan var einn helsti talsmaður frjálsra viðskipta meðal stjórnmálaleiðtoga 2...

Grafið undan lífskjörum 02.04.2025

Með skipulegum hætti hafa andstæðingar viðskiptafrelsis reynt að grafa undan athafnamönnum með ágætum árangri, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í öðrum greinum. Þeir hafa sáð fræjum tortryggni gagnvart þeim sem stunda atvinnurekstur, gert þá sem hagnast á viðskiptum að skotspæni og táknmyndum hins illa. Skiptir engu hvort um er að ræða dugnaðarforka sem byggt hafa upp glæsileg fyrirtæki í...

Planið er vinstri stjórn og hærri skattar 27.11.2024

Næstkomandi laugardag taka kjósendur ákvörðun um hvort hér komist til valda vinstri ríkisstjórn eða borgaraleg ríkisstjórn með öflugum Sjálfstæðisflokki. Skoðanakannanir benda til að fyrri kosturinn verði niðurstaðan þar sem Samfylking og Viðreisn taka höndum saman og skjóta einhverju varadekki undir. Við vitum af reynslunni að vinstri stjórn býður alltaf upp á Rússíbanareið fyrir fólk og fyrirtæk...

Ný ríkisstjórn - áskoranir og tækifæri 14.04.2024

Það var langt í frá sjálfgefið að ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Vinstri grænir, héldu áfram samstarfi í nýrri ríkisstjórn, eftir að Katrín Jakobsdóttir baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Myndun nýrrar ríkisstjórnar er aldrei einföld. Allra síst þegar fulltrúar ólíkra póla í stjórnmálum gerast samverkamenn, jafnvel þótt reynslan af rúmlega sex ára sa...

Sundrung og skautun ógna frelsinu 03.03.2024

Sundrung og skautun vestrænna samfélaga eru ógnir sem fæstir virðast leiða hugann að. Umburðarlyndi á raunverulega í vök að verjast. Óþol gagnvart þeim sem eru á annarri skoðun vex, óþolinmæði og fordómar sundra og grafa undan lýðræði. Eitrið seytlar um æðar háskólasamfélaga, sem áður voru brjóstvörn frjálsra skoðanaskipta. Skautun samfélagsins birtist í áhrifamiklum fjölmiðlum sem er fyrirmunað a...

Eldar í húsi Samfylkingarinnar 29.02.2024

Þegar spurðist út að formaður Samfylkingarinnar telji nauðsynlegt að breyta stefnunni í málefnum hælisleitenda fóru margir af taugum. Stór orð voru látin falla. Svo mikill var pólitíski skjálftinn innan raða Samfylkinga að tveir gamlir formenn töldu sig nauðbeygða til að taka til varna fyrir Kristrúnu. Össur Skarphéðinsson hafnaði því að Kristrún hafi verið að boða stefnubreytingu og í svipaðan st...

Púkinn í fjósinu fitnar og fitnar 09.02.2024

Samkvæmt fjárlögum liðins árs var skattgreiðeindum ætlað að greiða Ríkisútvarpinu um 5,7 milljarða króna og á þessu ári um 6,1 milljarð. Þetta þýðir að á ellefu árum hefur ríkismiðilinn fengið í sinn hlut yfir 61 milljarð frá skattgreiðendum með milligöngu ríkissjóðs. Við þetta bætast tekjur af samkeppnisrekstri. Á sama tíma og ríkismiðilinn fitnar líkt og púkinn í fjósinu hans Sæmundar, berjast s...

Lægri skattar - aukin velferð 07.02.2024

Alls greiddu einstaklingar um 333 milljörðum króna lægri fjárhæð í tekjuskatt á ellefu ára tímabili (2013-2023) en þeir hefðu greitt ef skatthlutföll og skattareglur hefðu verið óbreytt frá tíð vinstri ríkisstjórnarinnar Samfylkingar og Vinstri grænna 2009 til 2013. Tryggingagjöld hafa lækkað verulega og sama má segja um tolla og vörugjöld, erfðafjárskatt og fjármagnstekjuskatt tekjulægri hópa með...

Með eina tösku ... Pabbi 17.01.2024

Pabbi var meðalmaður á hæð, með þykkt hrafntinnu svart liðað hár sem fór ekki að grána fyrr en hann stóð á fimmtugu. Hann var kvikur í hreyfingum enda hjólaði hann alla daga í og úr vinnu, jafnt sumar sem vetur. Pabbi féll frá árið 1991. Aðeins 58 ára gamall. Hann fékk heilablóðfall nokkrum árum áður og var aldrei sami maður. Hann gat sætt sig við hreyfihömlun en aldrei við lömun í tali. Fyrir áfa...

Með eina tösku og poka ... IV. hluti 15.01.2024

Af bréfaskriftum Kára er augljóst að það hefur ekki verið einfalt fyrir hann að taka ákvörðun að snúa aftur heim til Íslands. Hann segir móður sinni 25. febrúar 1955 að ekki sé ráðlegt að koma heim að sinni þrátt fyrir atvinnuleysið. Hann vilji vinna sér „inn pening og koma ekki með öllu allslaus heim“. Hann biður móður sína að sýna sér skilning í þessum efnum. Kári viðurkenndi í bréfi til föður s...

Með eina tösku og poka ... III. hluti 13.01.2024

Eftir því sem líður á dvöl æskuvinanna í „fyrirheitna landinu“ verður tóninn þyngri og greinilegt er að Kanada olli þeim töluverðum vonbrigðum. Kári talar um þetta „óttalega“ land og að engin hætta sé á að Ameríka gleypi hann enda sé hann „fullseigur biti og bragðvondur að auki“. Kári og Haukur voru atvinnulausir í marga mánuði.  Kári tekur fram að þótt ekki hafi allt gengið eftir eins og hann von...

Með eina tösku og poka ... II. hluti 07.01.2024

Á fyrstu árum sjötta áratug tuttugustu aldarinnar voru fá tækifæri fyrir unga menn á Sauðárkróki. Það er því skiljanlegt að tveir æskuvinir - Kári Jónsson og Haukur Stefánsson - freistuðu gæfunnar í öðru landi; Kanada. Æskuvinirnir voru fullir tilhlökkunar og bjartsýni þegar þeir héldu utan í júní 1954. Kári segir í bréfi til vinar síns að þeir séu loksins komnir „til fyrirheitna landsins og ég ge...

Með eina tösku og poka með tveimur teppum - I. hluti 06.01.2024

Saga af tveimur æskuvinum frá Króknum sem freistuðu gæfunnar í Kanada Árið 1954 ákváðu tveir ungir menn frá Sauðárkróki að freista gæfunnar í öðru landi. Æskuvinir vildu reyna fyrir sér í Kanada. Annar þeirra var pabbi, Kári Jónsson og hinn Haukur Stefánsson.  Fyrir síðustu jól gaf ég út litla bók um þetta ævintýri og leitinni að grænna grasi. Bókin kom út í takmörkuðu upplagi og sendi ég hana ætt...

Brotið kerfi 03.01.2024

Ég hef lengi haft töluverðar áhyggjur af menntakerfinu og gæði menntunar, allt frá grunnskóla- til háskólastigs. Áhyggjur mínar hafa síst minnkað með árunum og þá sérstaklega þegar kemur að gæðum grunnskólanáms, sem er undirstaða alls annars náms. Hér er ekki við kennara eða foreldra að sakast. Kerfið er brotið. Við Íslendingar rekum einn dýrasta grunnskóla heims. Sem hlutfall af landsframleiðslu...

Stutt uppgjör 2023 30.12.2023

Í mörg ár hef ég skrifað reglulega pistla  í Morgunblaðið – varla er sá miðvikudagur á árinu sem fellur úr. Á árinu 2023 skrifaði ég 48 pistla um margvísleg efni. Skólamál, trúmál, atvinnumál, félagafrelsi, skatta, ríkisrekstur, heilbrigðismál, frelsið sem á í vök að verjast, fjölmiðla, ríkisfjármál, sveitarfélög, loftlagsmál, orkumál, og þannig má lengi telja. Ég ætla að ljúka árinu með að hlaupa...

Fjölbreytileika fórnað og valkostum ungs fólks fækkað 24.09.2023

Áform um sameiningu MA og VMA byggir á miklum misskilningi. Hér er ekki verið að sameina stjórnsýslustofnanir eða eftirlitsstofnanir ríkisins. Ekki einkynja sýslumannsembætti eða dómstóla, ekki skatt- og tollstjóri, ekki veikburða ríkisstofnanir sem sinna afmörkuðum verkefnum. Nei. Ætlunin er að sameina menntastofnanir, með ólíkar hefðir, uppbyggingu og skipulag náms. Skóla sem byggja á ólíkri hug...

„Kerfið er ófreskja“ 13.09.2023

Hvers vegna er ríkisbáknið orðið ófreskja? Þannig spurði Eyjólfur Konráð Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í erindi sem hann flutti árið 1976. Yfirskriftin var „Embættisvaldið gegn borgurunum”. Orðrétt sagði Eykon: „Á því leikur naumast vafi, að útþensla ríkisbáknsins meðal vestrænna lýðræðisþjóða er orðið alvarlegt vandamál, enda má segja að kerfið stjórni sér orðið sjálft — það stjórni man...

Ég skal láta ykkur í friði 07.09.2023

Fyr­ir síðustu kosn­ing­ar spurðu nokkr­ir fram­halds­skóla­nem­ar mig: „Hvað ætl­ar þú að gera fyr­ir okk­ur?“ Nem­arn­ir höfðu gengið á milli fram­bjóðenda flokk­anna og krafið þá svara. Og fengið lof­orð – sum stór. „Ég ætla að láta ykk­ur í friði,“ svaraði ég, „en leita allra leiða til að tryggja að þið hafið aðgengi að öfl­ugu mennta­kerfi, þar sem þið getið ræktað hæfi­leika ykk­ar, fundið f...

Þegar lögin verða úrelt 05.09.2023

Tíminn og tæknin grafa oft undan lögum – gera þau úrelt, tilgangslaus eða það sem verra er, lögin hamla framþróun samfélagsins. Löggjafinn á þá um tvennt að velja. Annars vegar að fella viðkomandi lög niður og/eða breyta þeim í takt við breytta tíma. Eða hins vegar að þráast við, berja hausnum við steininn og neita að horfast í augu við samtímann og skynja í engu framtíðina. Velji löggjafinn síðar...

Listen to the Óli Björn - Alltaf til hægri podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.