olibjorn

Óli Björn - Alltaf til hægri

News IS ↓ 100 episodes

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er alltaf til hægri.

Author

olibjorn

Category

News

Podcast website

olibjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rætur samfélags 03.09.2023

Hún er í Sam­fylk­ing­unni. Ég í Sjálf­stæðis­flokkn­um. Sam­kvæmt bók­staf stjórnmálafræðinn­ar erum við póli­tísk­ir and­stæðing­ar. Þó er fleira sem sam­ein­ar okkar en sundr­ar. Við eig­um meiri sam­leið en ætla mætti af þeirri ein­földu mynd sem stjórn­mála­fræðing­ar og fjöl­miðlar draga gjarn­an upp. Við erum bæði sann­færð um að þrátt fyr­ir ýmsa galla sé ís­lenskt sam­fé­lag gott sam­fé­l...

Sjálfstæðisstefnan, málamiðlanir og áhrifaleysi 02.09.2023

Markmið Sjálfstæðisflokksins er að vinna að framgangi hugsjóna og hafa áhrif á framtíð samfélagsins. Hugsjónum er erfitt að hrinda í framkvæmd án þátttöku í samsteypuríkisstjórn enda hafa kjósendur aldrei veitt stjórnmálaflokki umboð sem dugar til að mynda meirihlutastjórn eins flokks. Einmitt þess vegna höfum við þurft að rækta hæfileikann til að koma til móts við andstæð sjónarmið án þess að mis...

Upphlaup og stóryrði 21.05.2023

Réttur þingmanna til að leggja fram vantraust á einstaka ráðherra eða ríkisstjórn í heild sinni, er ótvíræður. Þennan rétt nýttu fjórir stjórnarandstöðuflokkar undir forystu Pírata 30. mars síðastliðinn. Vonin um að vinna pólitísk strandhögg rættust ekki. Eftir standa stóryrðin líkt og minnisvarði um upphlaup sem engu skilaði.  

Erum við öll dauðadæmd? 19.05.2023

Ekki var það til að auka bjartsýni mína á framtíðina sem menntskælings að þurfa að lesa bókina „Endimörk vaxtarins“ eftir nokkra vísindamenn sem kölluðu sig Rómarsamtökin. Boðskapurinn var ekki uppörvandi. Það væri komið að endimörkum hjá mannkyninu, mikilvæg hráefni væru á þrotum og vöxtur efnahagslífsins gæti ekki haldið áfram. Hér eftir yrði mannkynið að læra nægjusemi og láta af neysluhyggju....

Útgjaldaregla er beittasta verkfæri fjármálaráðherra 16.05.2023

Það er aldrei einfalt að koma saman fjármálaáætlun til fimm ára en líklega sjaldan flóknara en við ríkjandi aðstæður. Verðbólga er mikil, vextir hafa hækkað verulega, þensla er á flestum sviðum. Við slíkar aðstæður er farið úr öskunni í eldinn ef útgjöld eru aukin umfram vöxt efnahagslífsins. Vandi fjármálaráðherra er sá að þrýstingurinn á aukningu útgjalda er mikill og eru fáir saklausir í kröfug...

Bölvun þverpólitískrar samstöðu 14.05.2023

Einn merkasti fjármálaráðherra Bretlands eftir stríð er fallinn frá. Nigel Lawson var áhrifamesti arkitekt róttækra efnahagsumbóta Margrétar Thatchers á níunda áratug liðinnar aldar. „Vinsæll fjármálaráðherra er ekki að sinna starfi sínu,“ sagði Lawson eitt sinn. Hann var sannfærður um að stjórnmálamaður sem væri tilbúinn til að mæta andúð andstæðinganna, væri stjórnmálamaður sem gæti látið hlutin...

Leitin heldur áfram 11.05.2023

Ég er oft spurður af ungu fólki sem þyrstir í upplýsingar um hugmyndafræði frelsis, hvar þeirra sé helst að leita. Við sem höfum skipað okkur undir fána frjálshyggjunnar, - trúnna á mátt og getu einstaklingsins og að frumréttur hans sé frelsið, andlegt og efnahagslegt frelsi – erum gæfusöm. Hundruð bóka standa okkur til boða eftir íslenska og erlenda hugsuði. Hayek, Friedman, Sowell, Mill, Popper...

Ríkið gerir flóruna fátækari 16.04.2023

Umsvif ríkisins á innlendum fjölmiðlamarkaði gerir sjálfstæðum fjölmiðlum erfitt fyrir – kippir rekstrargrunni undan sumum miðlum og veikir möguleika annarra. Strandhögg erlenda samfélagsmiðla inn á íslenskan auglýsingamarkað gerir stöðuna enn erfiðari. Ég hef leyft mér að kalla Ríkisútvarpið fílinn í stofunni og það hefur farið fyrir brjóstið á velunnurum ríkisrekstrarins. Magnús Ragnarsson, fram...

Sótt að frelsinu 07.02.2023

Hægt og bítandi hafa stjórnvöld víða um heim takmarkað ýmis borgaraleg réttindi á undanförnum árum. Covid-19 heimsfaraldurinn gaf mörgum skjól eða afsökun til að takmarka frelsi borgaranna enn frekar. Staða mannréttinda í heiminum versnaði nær stöðugt frá árinu 2008 til 2020 á mælikvarða Frelsisvísitölunnar [Human Freedom Index] sem Cato stofnunin í Bandaríkjunum og Fraser stofnunin í Kanada, stan...

Uppreisn frjálshyggjunnar 05.02.2023

Fyrir 44 árum kom út bókin Uppreisn frjálshyggjunnar - ritgerðarsafn 15 ungra karla og kvenna sem áttu það sameiginlegt að vera virkir þátttakendur í starfi Sjálfstæðisflokksins. Bókinni var ætlað að vera innlegg í hugmyndabaráttu samtímans og vopn í baráttunni milli stjórnlyndis og ríkishyggju annars vegar og sjálfstæði og frjálshyggju hins vegar.  Þótt bókin beri merki þess tíma sem hún var skri...

Varðmenn kerfisins og hagkvæmni ríkisrekstrar 24.01.2023

Talsmenn ríkisrekstrar þola illa að bent sé á mikla aukningu ríkisútgjalda á umliðnum árum. Og fátt virðist fara verr í þá en þegar spurt er hvort almenningur fái betri og tryggari þjónustu í samræmi við aukin útgjöld ríkisins. Varðmenn ríkisrekstrar – kerfisins – bregðast hart við þegar reynt er að spyrna við fótunum – koma böndum á aukningu ríkisútgjalda og hærri skattheimtu. Í draumaríki þeirra...

Innræting eða menntun? 22.01.2023

Hvernig kennara dettur í hug að setja þekkta hrotta, morðingja og andlýðræðissinna við hlið íslensks stjórnmálamanns er óskiljanlegt nema að tilgangurinn hafi verið sá einn að vekja ákveðin hugrenningatengsl hjá nemendum: Í raun séu hugmyndafræðileg tengsl á milli formanns Miðflokksins og tveggja af verstu illmennum sögunnar. Hitler og Mussolini eru í hópi með Stalín og Maó. Allir áttu þeir blóði...

Kom blessuð, ljóssins hátíð 24.12.2022

Jólin eru hátíð ljóss og friðar, hátíð gleði, fegurðar og hins sanna og góða. Þegar við fögnum komu frelsarans öðlumst við ró hugans. Helgi jólanna stendur okkur öllum til boða ef við opnum hjartað fyrir ljósinu. Guð hvorki neyðir okkur eða þvingar til að taka á móti Jesú. Hann býður öllum sem vilja leiðarljós kærleika og vonar. Ég óska öllum gleðilegra jóla. 

Að láta sig dreyma og gefast ekki upp 22.12.2022

Lög­gjaf­inn mót­ar lög­in og þær leik­regl­ur sem eru í gildi á hverj­um tíma. For­rétt­indi Rík­is­út­varps­ins og ójöfn og erfið staða sjálf­stæðra fjölmiðla, er ákvörðun sem nýt­ur stuðnings meiri hluta þing­manna. Ég hef orðað þetta þannig að mjúkar hendur og hlýjar faðma Ríkisútvarpið á hverju ári. Þetta sést ágætlega þegar horft er til framlaga ríkisins til ríkismiðilsins sem fjármögnuð eru...

Gríma alræðisstjórnar fellur 03.12.2022

Þolinmæði kínversku þjóðarinnar gagnvart hörðum sóttvarnaraðgerðum stjórnvalda í baráttu við Covid-19, virðist á þrotum. Eftir tæp þrjú ár af lokunum sem fylgt hefur verið eftir af hörku af lögreglu, þar sem heilu borgirnar eru settar í sóttkví, er mælirinn loksins fullur. Mótmælin sem brotist hafa út síðustu daga eru líklega mesta áskorun sem Xi Jinping forseti hefur staðið frammi fyrir frá því a...

1. desember 01.12.2022

Íslendingar endurheimtu fullveldi frá Dönum 1. desember 1918 á grunni sambandslagasamningsins sem renna skyldi út árið 1943. Strax árið eftir voru samþykkt lög um Hæstarétt Íslands. En ágreiningurinn var hversu langt skyldi ganga í sjálfstæði þjóðarinnar. Bjarni Benediktsson var alla tíð sannfærður um að Íslendingum myndi farnast best ef þeir fengu fullt sjálfstæði frá Dönum enda „reynslan orðið s...

Sáttmáli um heilbrigðisþjónustu 20.11.2022

Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir þingsályktun þar sem heilbrigðisráðherra var falið að láta Sjúkratryggingar Íslands bjóða út rekstur heilsugæslu á Akureyri. Ég blandaði mér í umræðuna - taldi að ekki væri hjá því komist eftir að hafa fylgst með andsvörum við ræðu Berglindar Óskar, sem var rökföst í öllum sínum málflutningi.  Hér er birt flutningsræða Berglinda...

Sósíalisminn sem hugsjón og veruleiki 10.11.2022

Árið 1950 skrifaði dr. Ólafur Björnsson grein í Stefni um sósíalisma og hvers vegna hann snýst í andhverfu hugsjóna sinna. Í stað velmegunar, öryggis, jöfnuðar og lýðræðis komi örbirgð, ójöfnuður og takmarkalaust einræði. Ólafur var prófessor í hagfræði og þingmaður Sjálfstæðisflokksins 1956 til 1971. Hér verður gripið niður í greinina sem á erindi við samtímann með sama hætti og þegar hún var skr...

Frelsi á landsfundi 04.11.2022

Landsfundir Sjálfstæðisflokksins eru ekki haldnir til að gára vatnið stutta stund heldur til að móta stefnu öflugasta stjórnmálaflokks landsins. Það er einhver ólýsandi kraftur sem leysist úr læðingi þegar sjálfstæðismenn, alls staðar af landinu, koma saman. Ég hef lýst landsfundi sem suðupotti hugmynda og hugsjóna. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa aldrei skilið hvernig tekist hefur að búa t...

Styrkur frelsisins 29.10.2022

Frumvarp þingmanna Sjálfstæðisflokksins um félagafrelsi á vinnumarkaði hefur valdið titringi meðal margra, jafnt stjórnmálamanna sem forystumanna stéttarfélaganna. Kannski var ekki við öðru að búast en umræðan sem hefur skapast hefur að mestu verið málefnaleg og án stóryrða sem á stundum er gripið til þegar deilt er um þjóðfélagsmál. Rökræðan um félagafrelsi á vinnumarkaði hefur dregið fram hugmyn...

Vítahringur Evrópusambandsins 25.10.2022

Kórónuveirufaraldurinn en þó einkum innrás Rússa í Úkraínu hafa afhjúpað djúpstæða veikleika í efnahagslífi Evrópu. Sú hætta er fyrir hendi að erfitt verði fyrir ríki Evrópusambandsins [ESB] að vinna sig út úr þeim efnahagsþrengingum sem barist er við. Vandinn virðist krónískur. Hættan er sú að forystufólk ESB velji „auðveldu“ leiðina í örvæntingafullri viðleitni til að vinna gegn þrengingum og ve...

Eiginleikar stjórnmálamanna 23.10.2022

Bjarni Benediktsson var einhver áhrifamesti stjórnmálamaður Íslendinga á liðinnni öld. Hann var formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og borgarstjóri. Bjarni markaði stefnu landsins í varnar- og öryggismálum - stefnu sem fylgt hefur verið eftir allar götur síðan.  Í tilefni af því að senn líður að landsfundi Sjálfstæðisflokksins leitaði ég í fræðakist...

Reynt að spinna nýjan ESB-þráð 25.09.2022

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktun um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka „upp þráðinn í aðildarviðræðum við Evrópusambandið“. Fyrsti flutningsmaður er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar en tillagan er forgangsmál flokksins á þessum þingvetri sem nýlega er hafinn. Logi Einarsson mælti fyrir tillögunni þriðjudaginn 20. september. Ein af...

Gengið gegn félagafrelsi 18.09.2022

Í 74. grein stjórnarskrárinnar er öllum tryggt félagafrelsi. Allir eiga „rétt til að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, þar með talin stjórnmálafélög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess“. Skýrt er tekið fram að engan megi „skylda til aðildar að félagi“ en þó megi með lögum „kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt lögmætu hlutverki vegna alman...

Slaufun og bergmálshellar samfélagsmiðla 10.09.2022

Ég ætla að ræða um tvennt, sem í fyrstu kann að vera alls ótengt en er að minnsta kosti áhyggjuefni fyrir opið og frjáls samfélag. Annars vegar félagslegan þrýsting á að hafa rétta skoðun og hins vegar skilin milli frétta og afþreyingar eru hægt að bítandi að hverfa og það ógnar því nauðsynlega aðhaldi sem fjölmiðlar verða að veita helstu stofnunum samfélagsins. Þegar sam­fé­lags­miðlar eru orðnir...

Listen to the Óli Björn - Alltaf til hægri podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.