olibjorn

Óli Björn - Alltaf til hægri

News IS ↓ 100 episodes

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er alltaf til hægri.

Author

olibjorn

Category

News

Podcast website

olibjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

„Kerfið” vs. nýsköpun 24.08.2022

Fátt óttast „kerfið“ meira en nýja hugsun, nýjar aðferðir og frumkvöðla sem bjóða hagkvæmari lausnir sem byggja undir betri þjónustu. Frumkvöðlar brjóta niður múra úreltrar hugsunar og skipulagningar.  „Kerfið" er líkt og þurs sem er tilbúinn til að beita öllum ráðum í misskilinni baráttu við frumkvöðla, til að koma í veg fyrir nýsköpun og er reiðubúinn til að hindra af bestu getu að farvegur fyri...

Hræðsla og lýðhyggja ná undirtökum 21.08.2022

Það er miður hve marg­ir stjórn­mála­menn veigra sér við að tala með stolti um glæsi­leg fyr­ir­tæki sem byggð hafa verið upp af elju og hug­viti í sjáv­ar­út­vegi og tengd­um grein­um. Hræðslan við að sam­fagna þegar vel geng­ur í sjáv­ar­út­vegi hef­ur náð yf­ir­hönd­inni. Föng­um tor­tryggni og öf­und­ar stend­ur stugg­ur af vel­gengni og dug­mikl­um fram­taks­mönn­um. En það er ekk­ert nýtt. T...

Gildir jafnræði bara þegar hentar? 20.08.2022

Allir, óháð því hvar þeir eru í litrófi stjórnmálanna, vilja a.m.k. í orði tryggja jafnræði einstaklinga og fyrirtækja. Það gengur hins vegar misjafnlega að uppfylla fyrirheit um jafna stöðu allra. Raunar hefur löggjafinn gengið þvert á hugmyndir um jafnræði með því að byggja undir forskot og sérréttindi með lögum og reglum.

Sundrung og félagafrelsi 18.08.2022

Almennir félagsmenn verkalýðsfélaga sitja áhrifalitlir hjá þegar formenn eru í illdeilum hver við annan. Að einhverju verður launafólk að horfa í eigin barm. Herskáir verkalýðsleiðtogar hafa ekki síst komist til valda í skjóli þess að yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna nýtir sér ekki rétt til að kjósa forystu. Stór hluti launafólks er óvirkur í starfi eigin stéttarfélags og fyrir því kunna að ver...

Barnaleg stefna Evrópu í orkumálum 03.08.2022

Íslendingar, líkt og allar aðrar frjálsar þjóðir, hafa verið minntir harkalega á hve sameiginlegt öflugt varnarsamstarf NATO er mikilvægt. Værukærð, sakleysi eða rómantískar hugmyndir um vopnleysi og friðelskandi heim eru tálsýn sem í gegnum söguna hefur kostað þjóðir sjálfstæði og milljónir manna lífið. Svívirðileg innrás Rússlands í Úkraínu undir stjórn hrotta sem virðir hvorki sjálfstæði þjóða...

Ekkert breytist í Reykjavík 24.06.2022

Það var skrifað í skýin eftir sveitarstjórnarkosningarnar að Dagur B. Eggertsson héldi áfram sem borgarstjóri, þrátt fyrir að flokkur hans hafi tapað verulegu fylgi og þrátt fyrir að meirihluti undir hans forystu hefði fallið í annað skipti í röð. Hægt er að gagnrýna Dag B. Eggertsson borgarstjóra fyrir margt en fáir íslenskir stjórnmálamenn búa yfir sömu hæfileikum og hann til að spila úr þröngri...

Sérstakt og ekki alltaf áferðafallegt 22.06.2022

Þinghaldið var í mörgu sérstakt og ekki alltaf áferðafallegt eða þingheimi til sóma. Heilu vikurnar fóru í innihaldslitar umræður þar sem fá mál þokuðust áfram – allra síst þau sem horfa til framfara. Gallar þingskaparlaga komu vel í ljós – gallar sem þingmenn geta ekki lengur litið fram hjá og komið sér undan að sníða af. Í mörg ár hafa forsetar Alþingis ekki síður en óbreyttir þingmenn og ráðher...

Hugmyndafræði skiptir máli í sveitarstjórnum 12.05.2022

Það er misskilningur að halda því fram að hugmyndafræði skipti engu í sveitarstjórnum. Reynslan sýnir annað. Á meðan einn frambjóðandi berst fyrir lægri álögum gefur hinn loforð um aukin útgjöld. Frambjóðandi sem leggur áherslu á valfrelsi borgaranna getur aldrei átt samleið með þeim sem vill steypa alla í sama mótið. Stjórnmálamaður sem talar fyrir aðhaldssemi í rekstri kemur ekki fram og gefur ú...

Sundraðar þjóðir sameinast 19.03.2022

Í skjóli veik­lynd­is og klofn­ings Vest­ur­landa taldi Pútín sér óhætt að leggja til atlögu og ráðast inn í fullvalda ríki.  Þegar frjálsar þjóðir verða efnahagslega og pólitískt háðar landi sem stjórnað er af hrotta, sem hefur leikreglur lýðræðis að engu og virðir fullveldi nágrannaríkja að vettugi, eiga þær á hættu að verða berskjaldaðar gagnvart yfirgangi. Leiða má rök að því að Pútín hafi nýt...

Frá hungurmörkum til bjargálna, arðsemi og sjálfbærni 17.02.2022

Með kvóta­kerf­inu var hægt en ör­ugg­lega sagt skilið við kerfi sem var fjár­magnað með lak­ari lífs­kjör­um almenn­ings. Fyr­ir daga kvóta­kerf­is­ins var út­gerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tækj­um haldið við hung­ur­mörk með millifærsl­um og geng­is­fell­ing­um. Auðlind­um var sóað og sókn­ar­kerfi og póli­tísk miðstýr­ing leiddi til offjár­fest­ing­ar. Kerfið allt var rotið – gegn­sýrt af milli...

Löngunin að öðlast stundarfrægð 17.02.2022

Um­mæli eld­ast mis­jafn­lega. Sum halda gildi sínu í gegn­um tím­ann en önn­ur hefðu mátt vera ósögð. Í and­rúms­lofti þar sem frægðin í 15 mín­út­ur veg­ur þyngra en inni­haldið verða orðin ódýr – líkt og óþægi­legt suð í eyr­um kjós­enda. Orðræðan myndar ekki far­veg fyr­ir traust á stjórn­mál­um eða helstu stofn­un­um sam­fé­lags­ins. Þar leika fjöl­miðlung­ar og álits­gjaf­ar stórt hlut­verk...

Tálsýn 15.02.2022

Við eigum enn eftir að átta okkur að fullu á þeim félagslega og efnahagslega kostnaði sem almenningur hefur þurft að greiða vegna heimsfaraldursins og þeirra hörðu sóttvarnaaðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til. Vísbendingar eru orðnar nokkuð skýrar um að lokunarstefna sem flestar þjóðir innleiddu reyndist ekki eins árangursrík og vonir stóðu til. Kannski er mikilvægasti og dýrmætasti lærdómur al...

Frelsið á ekki samleið með óttanum 08.01.2022

Við getum ekki notað sömu bar­áttuaðferðir og í upp­hafi þegar óvinurinn var lítið þekkt­ur. Við get­um ekki gripið til harka­legri sótt­varna en þegar við vor­um lítt var­in og sent tugi þúsunda í ein­angr­un eða sótt­kví þegar lang­stærsti hluti lands­manna er bólu­sett­ur og al­var­leg veik­indi fátíð. Við sem eldri erum getum ekki kraf­ist þess að börn og ung­ling­ar sæti þving­un­um til að ve...

Stjórnlyndi á vaktinni 15.11.2021

Stjórnlyndir samfélagsverkfræðingar og ríkisreknar barnfóstrur láta ekki að sér hæða og eru alltaf á vaktinni. En framtakssamir og hugmyndaríkir einstaklingar leggja ekki árar í bát. Þeir finna nýjar leiðir, móta nýjar hugmyndir og ryðja farveg þar sem tækni samtímans er nýtt. Á undanförnum árum hefur komið fram á sjónarsviðið fjöldi hlaðvarpa sem mörg hver hafa notið mikilla vinsælda. Fjölbreytil...

Loftlagskvíði og barneignir 13.11.2021

Lækkandi fæðingartíðni hefur fylgt vaxandi velmegun þjóða. Að þessu leyti sker Ísland sig ekki úr, þótt þróunin hafi að nokkru verið hægari hér á landi en í nágrannalöndunum. Vísbendingar eru hins vegar um að aðrir þættir en efnahagslegir kunni að verða ráðandi í framtíðinni þegar kemur að lýðfræðilegri þróun þjóða. Í september síðastliðnum var kynnt í læknatímaritinu Lancet niðurstaða viðamikilla...

Innleiðum samkeppni í grunnskólann 11.11.2021

Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að okkur Íslendingum hafa verið mislagðar hendur í mörgu þegar kemur að grunnmenntun barnanna okkar. Grunnskólinn er sá dýrasti á Vesturlöndum en börnin standa jafnöldrum sínum í nágrannalöndunum að baki í undirstöðugreinum. Vísbendingar eru um að kulnun í starfi meðal grunnskólakennara sé að aukast sem beinir athyglinni að starfsumhverfi, starfskjörum...

Gegn eigendum lítilla fyrirtækja 27.10.2021

Aðeins fjögur lönd innan OECD leggja á stóreignaskatt / auðlegðarskatt - Noregur, Kólumbía, Spánn og Sviss. Á undanförnum áratugum hafa æ fleiri lönd horfið frá slíkri skattheimtu og horfa fremur til þess að skattleggja flæði fjármagns en stöðu. Fyrir þessu eru margar ástæður enda skatturinn óskilvirkur, erfitt er að skilgreina skattstofninn og skattheimtan skilað litlu en valdið efnahagslegum ska...

Sjálfstæðir fjölmiðlar í súrefnisvél 25.10.2021

Ríkisútvarpið hefur notið þess að faðmur flestra stjórnmálamanna er mjúkur og hlýr. Í hugum þeirra á allt umhverfi frjálsra fjölmiðla að mótast af hagsmunum ríkisrekna fjölmiðlafyrirtækisins. Ríkisstyrkir til sjálfstæðra fjölmiðla eru því ekki annað en fórnarkostnaður vegna Ríkisútvarpsins, – skjólveggur um Efstaleiti gegn vindum breytinga og framþróunar. Formaður Blaðamannafélagsins heldur því fr...

Erfið og flókin brúarsmíði 24.10.2021

Með hliðsjón af úrslitum kosninganna væri fráleitt annað en að forystumenn stjórnarflokkanna láti reyna á það hvort ekki séu forsendur til að halda samstarfinu áfram og það hafa þeir gert síðustu vikurnar. En verkefnið er langt í frá einfalt. Þrátt fyrir allt er hugmyndafræðilegur ágreiningur verulegur, allt frá skipulagi heilbrigðiskerfisins til orkunýtingar og orkuöflunar, frá sköttum til ríkisr...

Af bílslysi og gölluðu frumvarpi 12.09.2021

Eitt helsta loforð vinstri stjórnarinnar 2009 til 2013 – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, var að endurskoða lög um stjórn fiskveiða. Í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar sem oftast er kennd við Jónönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússonar var sagt að markmiðið væri að „skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar“ og um leið að „leggja grunn „að innköllun og...

Skattheimtuflokkarnir 05.09.2021

Lausn vinstri ríkisstjórnarinnar 2009 til 2013 við vanda ríkissjóðs var einföld: Skattar voru hækkaðir og útgjöld til velferðarmála skorin niður. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, sem gjarnan er kennd við Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon, en kenndi sjálfa sig við Norræna velferð, gerði nær 200 breytingar á sköttum á valdatíma sínum, - skattar jafnt á einstaklinga og fyrir...

Hugmyndafræði öfundar og átaka 30.08.2021

Baráttan um hylli kjósenda er margbreytileg en ekki síbreytileg – aðeins aðferðirnar breytast í takt við tæknina. Margir stjórnmálamenn eru sannfærðir um að hægt sé að ná verulegum árangri með því að ýta undir öfund og tortryggni meðal almennings. Raunar byggir hugmyndafræði sumra þeirra hreinlega á öfund, sundurþykkju og átökum þar sem nágrönnum er att saman, stétt gegn stétt, landbyggð gegn höfu...

Þolgæði, úthald, kraftur 16.08.2021

Ein helsta áskorun sem við Íslendingar þurfum að takast á við er að auka framleiðni á öllum sviðum, jafnt í opinbera geiranum sem og í atvinnulífinu öllu. Strangar reglugerðir kæfa samkeppni. Hindranir fyrir nýja innlenda eða erlenda aðila inn á markað eru miklar og það kemur í veg fyrir samkeppni. Þung stjórnsýslubyrði og umfangsmiklar og oft flóknar leyfisveitingar og leyfiskerfi virka sem vörn...

Háðsádeilur í þjóðfélögum skortsins 29.07.2021

Kennari spyr nemanda: „Hver er móðir þín og hver er faðir þinn? Nemandinn: Móðir mín er Rússland en faðir minn Stalín. „Mjög gott,“ segir kennarinn. „Og hvað langar þig til að verða þegar þú verður stór“ „Munaðarleysingi“ svarar nemandinn. Háðsádeil­ur, skop­sög­ur, brand­ar­ar eða sa­tír­ur, voru hluti af dag­legu lífi al­menn­ings í Sov­ét­ríkj­un­um og lepp­ríkj­um þeirra, und­ir ógn­ar­stjórn...

Áskoranir og niðurstaða kosninga 20.07.2021

Ein forsenda þess að Sjálfstæðisflokkurinn taki þátt í ríkisstjórn er að málefnasamningur og verk ríkisstjórnar, endurspegli skilning á samhengi skatta, ríkisútgjalda, hagvaxtar og velsældar. Að samkeppnishæfni þjóðar ráðist ekki síst af öflugum innviðum, hófsemd í opinberum álögum, greiðu aðgengi að erlendum mörkuðum, skilvirkni í stjórnkerfinu og hagkvæmum ríkisrekstri. Þegar tekin er afstaða ti...

Listen to the Óli Björn - Alltaf til hægri podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.