Menntavísindavarpið

Menntavísindavarpið

Education IS ↓ 37 episodes

Hvað er að gerast í menntavísindum? Markmið Menntavísindavarpsins er að kynna rannsóknir fræðafólks Menntavísindasviðs, kynnast rannsakendum og fjölbreyttum hliðum menntarannsókna. Upphafsstef: Adam Switala Umsjón: Marta Goðadóttir, Áslaug Björk Eggertsdóttir og Íris Sigurðardóttir hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Author

Menntavísindavarpið

Category

Education

Podcast website

rss.com

Latest episode

Jun 24, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Kolbrún Þ. Pálsdóttir á tímamótum 24.06.2026

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, prófessor og forseti Menntavísindasviðs stendur á tímamótum. Á dögunum hlaut hún framgang í starf prófessors og hélt kynningarfyrirlestur af því tilefni en nánast á sama tíma eða þann 1. júlí næstkomandi lætur hún af störfum forseta Menntavísindasviðs eftir átta ár. Kolbrún mætti í Menntavísindavarpið og ræddi hvað stendur upp úr síðastliðinn átta ár, sýn hennar og gildi í s...

Kynþátta-og menningarfordóma í daglegu lífi ungs fólks 11.06.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkt við Menntavísindasvið í tómstunda- og félagsmálafræði og aktívista fyrir réttindum flóttafólks og hælisleitenda á Íslandi. Sema segir okkur frá rannsókn sinni um kynþátta-og menningarfordóma í daglegu lífi ungs fólks þar sem hún skoðar upplifun þeirra af slíkum fordómum og einelti sem einkennist af þeim. Sema gefur okkur einnig innsýn...

Auðurinn í fjöltynginu 27.05.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar doktorsnema við Menntavísindasvið, þær Kriselle Lou Suson Jónsdóttur og Önnu Katrínu Eiríksdóttur sem rannsaka fjöltyngi, máluppeldi og samstarf fjölskyldna og skóla í íslensku samfélagi. Þær byggja rannsóknir sínar meðal annars á reynslu fjölskyldna, nemenda og kennara um allt land og varpa ljósi á hvernig styðja má betur við börn með fjölbreyttan tungumála- og m...

Háskólakennslufræði og Heimahöfn 15.05.2026

„Við höfum séð í okkar rannsóknum að þeir sem hafa farið í gegnum námið eru allir ánægðir, þeim finnst þeir hafa vaxið ásmegin í kennslu og vita betur hvað þeir eru að gera og hvers vegna þau eru að kenna. Þau hafa betra orðfæri og hugtök til að tala um kennslu við aðra. Svo er það samfélagið sem þau fá með því að kynnast og vera með kennurum af öllum sviðum Háskóla Íslands,“ segir Guðrún Geirsdót...

„Tími til kominn að rannsaka ástina“ 29.04.2026

„Ástinni hefur verið haldið utan við hið akademíska rými lengst af, hún hefur verið meðhöndluð eins og trúarbrögð, ósnertanleg og eitthvað sem má ekki ræða, allra síst á rökfræðilegum nótum. Hún hefur verið tengd við geðveiki, í raun allt sem við getum hugsað sem óskynsamlegt,“ segir Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið í nýjasta þætti Menntavísindavarpsins. Berglind Rós er p...

„Það er framtíðarstarf að kenna íslensku sem annað tungumál“  15.04.2026

Renata Emilsson Pesková, dósent í kennslufræði menntunar fyrir alla á Menntavísindasviði mætti í Menntavísindavarpið og ræddi m.a. fjölbreyttar leiðir til að verða ÍSAT kennari en vaxandi þörf er fyrir kennara með sérhæfingu í kennslu íslensku sem annað mál í skólakerfinu. Í Menntavísindavarpinu ræðir hún fjölbreytt námstækifæri til að verða ÍSAT kennari og rannsókn sem hún vinnur um þessar mundir...

Heittrúuð starfendarannsóknakona 31.03.2026

Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, dósent í leikskólakennarafræði við Deild kennslu og menntunarfræði á Menntavísindasviði er að eigin sögn heittrúuð starfendarannsóknakona. Hún trúir á þá aðferð, þegar kennarinn er stöðugt að skoða sig í starfi og finna leiðir til að bæta sig. Ingibjörg Ósk hefur starfað mikið við slíkar rannsóknir, komið að innleiðingu raunfærnimats í leikskólakennarafræði HÍ og m.a....

Efling orðaforða barna er fyrst og fremst jöfnunartækifæri 13.03.2026

Sigríður Ólafsdóttir, dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands vinnur þessa stundina að rannsókninni Kennsluleiðbeiningar með námsorðaforða: Innleiðing lista yfir íslenskan námsorðaforða og gæðatexta með námsorðaforða í læsismenntun grunnskólanema. Listinn gefur upplýsingar um námsorð sem nemendur á mismunandi aldri þurfa að þekkja til að geta skilið, rætt og skrifað um það sem þeir fást við í...

Gildi útiveru og hreyfingar og hlutverk og verkefni tengiliða við innleiðingu farsældarlaga 25.02.2026

Díana Ívarsdóttir og Emilía Örlygsdóttir brautskráður nýverið frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og kynntu lokaverkefni sín á málþingi meistaranema í lok janúar. Emilía lauk meistaranámi í menntunarfræði leikskóla og ber meistaraverkefni hennar heitið: „Við verðum alltaf sterkari og sterkari“ Gildi mikillar útiveru, markvissrar hreyfingar og náms í nærumhverfinu“. Díana lauk meistaranámi í Sta...

Færri börn undir 13 ára eru á samfélagsmiðlum 09.02.2026

Samkvæmt nýjum niðurstöðum rannsóknarinnar, Börn og netmiðlar, samstarfs Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands eru mörg dæmi þess að við séum að búa börnum heilbrigðara umhverfi á netinu. Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Fjölmiðlanefnd, mættu í Menntavísindavarpið og ræddu nið...

Nýir draumar um framtíð menntunar 28.01.2026

Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið ræðir nýja drauma um menntun framtíðar í nýjasta þætti Menntavísindavarpsins. Hann hefur unnið mikið með sjálfbærnimenntun þar sem kemur við sögu þær hörmungar sem ganga á í heiminum af margvíslegu tagi; loftslagsváin, líffræðilegur fjölbreytileiki, stríð, fátækt og gervigreind. Þá kemur að spurningunni, hvernig eigum við að skipuleg...

Varði nýverið doktorsrannsókn um félagslyndi ungra leikskólabarna 14.01.2026

Bryndís Gunnarsdóttir varði nýverið doktorsrannsókn sína, Félagslyndi ungra leikskólabarna: Rannsókn á óyrtum félagslegum samskiptum í jafningjahópnum og mætti í Menntavísindavarpið á dögunum þar sem segir frá rannsókninni, hvað kom á óvart í niðurstöðunum og hvernig þær geta nýst áfram. Í doktorsrannsókninni fjallar hún um félagslyndi (e. sociality) ungra leikskólabarna með áherslu á þátttöku þei...

Að kenna myndlist sem nálgun við siðferðislega menntun 10.12.2025

Ingimar Ólafsson Waage, deildarforseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands varði doktorsritgerð sína í Deild faggreinakennslu við Háskóla Íslands á dögunum. Í Menntavísindavarpinu ræðir hann doktorsverkefni sitt og ferlið að vinna doktorsritgerð. Hann ræðir jafnframt helstu niðurstöður rannsóknarinnar sem leiða í ljós mikilvægi þess að nemendum gefist tækifæri til að ígrunda listaverk og ræða...

Hvað er hugsandi skólastofa í stærðfræði? 26.11.2025

Bjarnheiður Kristinsdóttir lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun á Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði ræðir í Menntavísindavarpinu um þá aðferðafræði sem er notuð í stærðfræðikennslu til að fá nemendur til að hugsa í stað þess að mata nemendur af upplýsingum. 

Hver er upplifun nemenda af eigin snjallsímanotkun? 13.11.2025

Hver er samfélagslegur ávinningur aukinnar fræðslu um stafræna borgaravitund? Er frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um lög sem heimila samræmdar reglur um notkun snjalltækja og samfélagsmiðla í skólum málið? Eru spurningar sem  Svava Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið og talskona stafrænnar borgaravitundar ræðir í Menntavísindavarpinu auk þess sem hún ræðir INSPECT rannsóknina þar sem h...

Hamingjuhópurinn og verkefnið Krakkar með krökkum í Menntavísindavarpinu 15.10.2025

Bryndís Ingimundardóttir og Aðalheiður María Þráinsdóttir eru að ljúka meistaranámi á Menntavísindasviði og kynntu lokaverkefni sín á málþingi meistaranema í byrjun september. Bryndís er að ljúka meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði og gerði lokaverkefnið; Hamingjuhópurinn - Áhrif jákvæðra inngripa á hamingju og einmanaleika grunnskólabarna og Aðalheiður er að ljúka meistaranámi í tómstunda-...

Er sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi? 02.10.2025

Berglind Gísladóttir, dósent á Menntavísindasvið HÍ kynnir rannsóknir sínar á Menntakviku í ár. Ein rannsóknin sem hún vinnur með Birnu Svanbjörnsdóttur, dósent við Háskólann á Akureyri, ber heitið Sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi.  En rannsóknir hafa ítrekað sýnt mikilvægi þess að kennaranám byggi á skýrri sameiginlegri sýn á hvað felst í góðri kennslu. Berglind ræðir rannsóknir sínar á...

Hvers vegna er mikilvægt að rannsaka heimalestur? 17.09.2025

Karen Rut Gísladóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Anna Kristina Regina Söderström, doktorsnemi í þjóðfræði rannsaka um þessar mundir heimalestur. Þær telja að tryggja þurfi jafnrétti í kringum lestrarþjálfun barna, og ef lestur er settur alfarið á hendur foreldra og fjölskyldna þá er  hætta á því að börn fái mismikla þjálfun. Niðurstöður síðustu PISA rannsóknar benda til þess að það eru te...

Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna á Íslandi 🎧 11.06.2025

Hanna Ragnarsdóttir er prófessor í fjölmenningarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún kíkti í Menntavísindavarpið og ræddi meðal annars stóra rannsókna sem hún leiðir og vinnu í samstarfi við þverfaglegt teymi. Rannsóknin ber heitið ESRCI – Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og ungmenna á Íslandi þar sem aðlögun flóttabarna og -ungmenna á leik-, grunn- og fram...

Námsrými í íslenskuverum og valferli og aðgengi nemendaráða í íslenskum grunnskólum   – ný meistaraverkefni krufin 🎧 28.05.2025

Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Aníta Jasmín Finnsdóttir meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræði og Þórunn Kristín Erlingsdóttir, meistaranemi á námsleiðinni: Menntun allra og sérkennslufræði og segja hlustendum frá meistaraverkefnum sínum sem þær kynntu á dögunum. Aníta Jasmín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið „Útvalin eða útilokuð: Valferl...

“Þrek 15 ára - 23 ára minnkar um 7% á ári" 14.05.2025

Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um Heilsuferðalagið – langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands auk erlendra samstarfsaðila.  Markmið rannsóknarinnar er að skoða langtímabreytingar á andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu Íslendinga fæddra árið 1988 frá u...

Ræddi við feður sem beitt hafa ofbeldi og greindi 250 fréttir í doktorsrannsókn sinni 30.04.2025

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, aðjúnkt við Deild menntunar- og margbreytileika ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um doktorsrannsókn sína sem hún varði á dögunum. Heiti doktorsritgerðar Rannveigar er: Feður sem beitt hafa ofbeldi: Hindranir og möguleikar til breytinga. Niðurstöðurnar varpa m.a. ljósi á hvernig feðurnir takast á við óþægindi í frásögnum sínum af ofbeldi, föðurhlutverkinu og breytin...

Hvernig tengist stafrænt sorp, haflæsi og leiklistarkennsla? 09.04.2025

Rannveig Björk Þorkelsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Jóna Guðrún Jónsdóttir, aðjúnkt í Deild faggreinakennslu eru leiklistarkennarar Menntavísindasviðs og öflugir rannsakendur. Rannveig Björk hefur verið leiðandi í kennslufræði leiklistar á Menntavísindasviði og hafa rannsóknir hennar og Jónu Guðrúnar snúið að bættum kennsluaðferðum í leik- og grunnskóla með aðferðum leiklistar. Hér se...

„Við sjáum vísbendingar um að þau hafi meiri ánægju af því að borða“ 21.03.2025

Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við Menntavísindasvið HÍ og Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, doktorsnemi á Menntavísindasviði ræða í Menntavísindavarpinu rannsóknina Bragðlaukaþjálfun sem Anna Sigríður bjó til og leiðir. Markmið rannsóknarinnar er að skoða matvendni barna og nota aðferð þar sem börn eru markvisst þjálfuð í að smakka og upplifa mat með öllum skynfærum sínum. Berg...

Hvað hefur áhrif á aðsókn í starfsnám? 🎧 26.02.2025

Sæberg Sigurðsson, aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið rannsakar starfsnám og er að skoða sérstaklega málaraiðn, múraraiðn og bifvélavirkjun. Í doktorsrannsókn sinni skoðar hann sveiflur í aðsókn í iðngreinar og hvað valdi því. Fyrstu niðurstöður benda til þess að efnahagssveiflur eru stærsta breytan varðandi aðsókn í tilteknar iðngreinar sem tengjast mannvirkjagreinum og fólk virðist ver...

Listen to the Menntavísindavarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.