Menntavísindavarpið
Menntavísindavarpið
Hvað er að gerast í menntavísindum? Markmið Menntavísindavarpsins er að kynna rannsóknir fræðafólks Menntavísindasviðs, kynnast rannsakendum og fjölbreyttum hliðum menntarannsókna. Upphafsstef: Adam Switala Umsjón: Marta Goðadóttir, Áslaug Björk Eggertsdóttir og Íris Sigurðardóttir hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: rss.com
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Reynsla mæðra með geðsjúkdóma af móðurhlutverkinu og áskoranir og bjargir leikskólastjóra sem starfa við ungbarnaleikskóla 12.02.2025 19:01
Meistaranemarnir Áróra Huld Bjarnadóttir úr Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA. og Jóna Rún Gísladóttir úr Stjórnun menntastofnana M.Ed. kynntu meistaraverkefni sín á dögunum. Áróra segir frá verkefninu „Að berjast við dreka“: Reynsla mæðra með geðsjúkdóma af móðurhlutverkinu og Jóna Rún segir frá verkefni sínu: Áskoranir og bjargir leikskólastjóra sem starfa við ungbarnaleikskóla.
„Hinsegin nemendum líður verr en öðrum nemendum“ 30.01.2025 24:19
Íris Ellenberger, dósent í Deild faggreinakennslu í kennslu samfélagsgreina er jafnframt öflugur rannsakandi og hefur skoðað jaðarhópa í íslensku samfélagi og hvernig jaðarsetning og innlimun virkar. Íris hefur einnig rannsakað hinseginleika; en um þessar mundir er hún til að mynda að skoða hinseginleika í skólastarfi með sérstaka áherslu á kennara, nemendur og hinseginleika foreldra út frá ólíkum...
„Leikurinn, er það sem drífur okkur áfram“ 14.01.2025 22:50
Jakob Frímann Þorsteinsson, nýdoktor í menntavísindum, aðjúnkt og kennari til margra ára í tómstunda og félagsmálafræði við Háskóla Íslands ræðir í Menntavísindavarpinu um doktorsverkefni sitt um útimenntun. Þar skoðar hann möguleika til útimenntunar á Íslandi m.a. með því að skoða reynslu og upplifanir fólks á aldrinum 20-40 ára sem hefur tekið þátt í útiferlum. Einnig ræðir hann um mikilvægi þes...
Leiðir verkefni sem styður við foreldra á flótta 02.01.2025 24:06
Margrét Sigmarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið hefur rannsakað og unnið mikið með foreldrafærni. Í þessu varpi ræðir hún verkefnið SPARE ( Strengthening Parenting among Refugees in Europe ) sem snýr að eflingu foreldrastarfs með flóttafólks í Evrópu þar sem stuðst er við PMTO – foreldrafærni aðferðina. Margrét tók nýtekið við sem formaður vísindanefndar Menntavísindasviðs og leiðtogi ranns...
„Aðeins 7% fótboltarannsókna hafa verið gerðar á stúlkum“ 18.12.2024 25:40
Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor við Menntavísindasvið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda leiðir rannsóknarverkefnið SKORA ( Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi) . Þar er líkamlegt atgervi knattspyrnustúlkna, andleg og félagsleg líðan, áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu á Íslandi skoðað. Rúna fer um víðan völl í Menntavísindavarpinu um stúlkur og...
Föruneyti barna og hvað felst í góðri skólamenningu? 04.12.2024 22:59
Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor á Menntavísindasviði í leikskólafræðum er öflugur rannsakandi sem leiðir mörg verkefni og rannsóknir; t.d. Föruneyti barna, nýja rannsókn á skólamenningu og raunfærnimat í leikskólakennarafræði.
Hver eru tengsl lesturs á mið- og unglingastigi við snjallsímanotkun? 20.11.2024 21:05
Kristján Ketill Stefánsson, lektor í kennslufræði við Menntavísindasvið HÍ kíkti í Menntavísindavarpið og ræddi rannsókn sína Lestur á mið- og unglingastigi og tengsl við snjallsímanotkun á skólatíma, Skólapúlsinn sem hann setti á laggirnar, snjallsímanotkun ungmenna og rannsóknirnar á teikniborðinu.
Hver eru áhrif styttingar námstíma til stúdentsprófs? – Sjónarhorn menntarannsókna 06.11.2024 23:05
Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor og María Jónasdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði eru hluti af rannsóknarhópi sem skoðað hafa áhrif styttri námstíma til stúdentsprófs í samhengi við aðrar stefnubreytingar sem gerðar hafa verið á framhaldsskólastiginu. Í þessu fimmta varpi Menntavísindavarpsins ræðum við um undirbúningstíma stúdentsprófa og hvernig framhaldsskólanemar í dag eru undi...
Upplifun ungra kvenna af krabbameini og vettvangsstarf sem lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðningskerfi varðandi börn – splunkuný meistaraverkefni krufin 23.10.2024 18:57
Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Andrea Marel úr tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed. og Ebba Áslaug Kristjánsdóttir úr uppeldis- og menntunarfræði, MA og ræða meistaraverkefni sín sem þær kynntu á dögunum á málþingi meistaranema á Menntavísindasviði. Andrea segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið: „Vettvangsstarf er lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðnin...
Jafnvægi starfs og einkalífs ungra kvenkyns kennara í íslenskum grunnskólum á Menntakviku 09.10.2024 19:39
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emeritus í kennslufræðum við Menntavísindasvið mætti í Menntavísindavarpið og ræddi rannsóknina sem hann vann með Maríönnu Jónsdóttur Maríudóttur grunnskólakennara og Valgerði S. Bjarnadóttur lektor við Menntavísindasvið sem þau kynntu á Menntakviku og ber heitið: Jafnvægi starfs og einkalífs ungra kvenkyns kennara í íslenskum grunnskólum. Ingólfur ræddi ran...
Læsi, félagakennsla og lestrarfærni barna á Menntakviku 25.09.2024 23:34
Lesfimipróf hafa verið gagnrýnd og áhyggjur eru uppi um að læsi og lestrarkunnáttu barna og ungmenna fari dalandi. Greint var frá því nýverið að 40 prósent nemenda í 6. bekk næðu ekki grunnviðmiði í lesfimi til að mynda. Auður Soffíu- og Björgvinsdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði og fyrrum grunnskólakennari til margra ára mætti í Menntavísindavarpið og sagði frá niðurstöðum ran...
Hnífaburður grunnskólabarna, algengi og ástæður til umræðu á Menntakviku 11.09.2024 17:52
Síðastliðið vor var í fyrsta sinn spurt um hnífaburð í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem Menntavísindastofnun Menntavísindasviðs Háskóla Íslands stýrir. Rannsóknin er framkvæmd á hverju ári í grunnskólum en annað hvert ár í framhaldsskólum. Þær Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið og er faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísi...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.