Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

Education IS ↓ 45 episodes

Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi. Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light. Most episodes are in Icela...

Author

Bjarni Snæbjörnsson

Category

Education

Podcast website

mennska.buzzsprout.com

Latest episode

Nov 23, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

"Berum virðingu fyrir öllum og tölum saman þaðan" - Kitty Anderson 23.11.2025

Kitty er magnaður aktivisti sem hefur sannarlega sett sitt mark á baráttu hinsegin fólks á Íslandi og víða um heim. Hún sat í stjórn Samtakanna '78 frá 2014 til 2018 og í kjölfarið einbeitti hún sér að uppbyggingu evrópsku intersex hreyfingarinnar Organisation Intersex International – Europe (OII-Europe). Nú í haust fagnaði hún tímamótum á vegum OII-Europe sem hún segir okkur frá.  Kitty er l...

“Þá var ég á stað sem ég vissi ekki að væri til” - Kolbeinn Arnbjörnsson 09.11.2025

Kolbeinn Arnbjörnsson er einstakur listamaður: leikari, myndlistarmaður og þúsundþjalasmiður, fyrir utan að vera faðir, kærasti og hið mesta gæðablóð. Í þessum þætti förum við í djúp samtöl um kulnun, sem Kolbein hefur reynt á eigin taugakerfi, við tölum um glansmyndirnar á samfélagsmiðlum, mataræði, sjálfsmildi og auðvitað listina. Kolbeinn er einstakur maður sem er óhræddur við að berskjalda sig...

"Við þurfum meiri nánd" - Embla Guðrúnar Ágústsdóttir 20.10.2025

Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er m.a. akvívisti, dansari og móðir. Hún hefur verið virk í aktívisma frá unga aldri og er ein af stofnendum tabu ( tabu.is ). Embla er einnig með mastergráðu í félagsfræði og hlaut grímutilnefningu sem dansari ársins fyrir verkið Góða ferð inn í gömul sár sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hún er líka ein af fyndnustu manneskjum sem ég þekki og ég fæ þann heiður að leika...

“Ég trúi því að leikhúsið geti bjargað heiminum” - Gréta Kristín Ómarsdóttir 13.08.2025

Gréta Kristín er leikstjóri sem hefur sett sitt mark á íslenskar sviðslistir á aðeins níu ára ferli sínum. Hún hefur leikstýrt fjölda atvinnusýninga og verið tilnefnd þrisvar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, sem leikstjóri ársins. Auk þess að vera einstakur listamaður starfar hún einnig sem fagstjóri sviðshöfundabrautar Listaháskóla Íslands. Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu listin...

"Fólk er ofboðslega fljótt að dæma" - Særún Lísa Birgisdóttir 10.07.2025

Særún Lísa er þjóðfræðingur, kennari og móðir sem hefur unnið síðustu ár við að kenna unglingum íslensku. Þegar hún var í þjóðfræðinámi eyddi hún töluverðum tíma í að rannsaka birtingarmyndir homma allt frá landnámi og fram yfir síðari heimsstyrjöld. Þessar rannsóknir leiddu til útgáfu á bók hennar "Hættið þessu fikti strákar" þar sem hún skrifar um uppgötvanir sínar. Í þættinum förum vi...

“Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir 22.06.2025

Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér stöðu heimsmálanna í dag þegar kemur að málefnum hinsegin fólks. Svo ræðum við auðvitað ógleymanlega grein sem hún skrifaði í Tímarit Hinsegindaga árið 2022 þ...

"Orðið 'kynvilla' er svo jaðarsett - þegar þú ert villtur ertu ekki heima" - Hafdís Erla Hafsteinsdóttir 09.06.2025

Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er fyrrum afrekskona í sundi og sagnfræðingur. Hún  hefur eytt töluverðum tíma í sagnfræðirannsóknir á jaðarsettum hópum. M.a. gerði hún MA rannsókn um ungar konur sem voru dæmdar fyrir lauslæti á ástandsárunum en þessi misserin einbeitir hún sér að því að klára doktorsritgerð um HIV faraldurinn á Íslandi.  Í þættinum kynnumst við Hafdísi og fáum að heyra sögu hennar, h...

"Ég hafna alltaf yfirgangi" - Hörður Torfason 01.06.2025

Þann 1. ágúst næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Hörður Torfason birtist í Samúel og opinberaði samkynhneigð sína fyrir alþjóð. Í þættinum fáum við að vita um aðdraganda þessa merka viðtals sem er einn af hornsteinum íslenskrar hinsegin sögu og við heyrum líka hvaða toll það tók af Herði og frama hans sem þjóðfrægur leikari og söngvaskáld. Auðvitað forvitnast ég aðeins um æsku hans í miðbænum,...

“Samkennd er fallegasta afl sem við eigum” - Lára Rúnarsdóttir 25.05.2025

Lára Rúnarsdóttir er einstök kona með ótalmarga hatta. Þessi misserin er hún eigandi Móa jógastúdíós sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, eflir sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Tilgangur Móa er að skapa rými þar sem einstaklingar geta öðlast frið frá ytri kröfum samfélagsins og tengst sjálfum sér betur. Þetta er einstakt samtal og við vorum fljót að fara...

"Ég ákvað þá að leyfa listinni að eiga mig" - Aldís Amah Hamilton 18.05.2025

Aldís Amah er mögnuð leikkona, höfundur og aktívisti. Hún hefur komið víða við á síðustu árum í listinni bæði á sviði og á skjánum. Svo er hún líka formaður Samtaka grænkera á Íslandi. Í þættinum spjöllum við auðvitað um listina, mýmargar tilraunir Aldísar til að eyðileggja fyrir sjálfri sér og svo komum við auðvitað inn á sameiginlega ástríðu sem er grænkeralífsstíllinn. Svo skemmtilegt og gefand...

"Alein - saman" Bragi Páll 10.04.2025

Bragi Páll er einn af okkar mögnuðu rithöfundum sem hefur gefið út fjölmargar bækur. Þátturinn er að þessu sinni óvenjulegur því ég fékk Braga til að lesa inn pistil sem hann skrifaði á facebook vegginn sinn í vikunni sem fjallar einfaldlega um mennskuna. --- Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð....

„Þessi aðför að trans konum bitnar beint á sís konum“ - Arna Magnea Danks 31.03.2025

Arna Magnea er einstök listakona og aktívisti. Hún er leikkona og nýlega var frumsýnd bíómyndin Ljósvíkingar þar sem hún brilleraði í stóru hlutverki. Hún er einnig með sérhæfingu í sviðsbardögum, kennari, móðir og ljóðskáld. Í þættinum förum við mjög víða og Arna segir okkur frá æsku sinni sem var undirlögð af togstreitu og ofbeldi. Við ræðum raunveruleika trans fólks á Íslandi í dag og að sjálfs...

„Risa hagsmunaöfl hagnast á því að halda upplýsingum frá okkur” - Rósa Líf Darradóttir 16.03.2025

Rósa Líf er einstök baráttukona. Hún er formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi sem hefur látið til sín taka síðustu ár. Hún er einnig læknir, hestakona og almennt mikið hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl. Í þættinum tölum við að sjálfsögðu um grænkeralífsstílinn, sem er sameiginlegt grunngildi okkar beggja. Við förum einnig yfir hvernig við getum verið betri við dýrin og svo förum við að sjálfsö...

„Hún er þrálát hugmyndin um að fatlað fólk sé þiggjendur“ - Freyja Haraldsdóttir 02.03.2025

Freyja Haraldsdóttir er einstakur aktivisti og doktorsnemi sem hefur komið víða við í baráttu sinni fyrir bættum heimi fyrir fatlað fólk. Í þættinum segir hún mér frá uppvextinum í Garðabæ, hvernig flutningur fjölskyldunnar til Nýja Sjálands mótaði hana og auðvitað hlæjum við okkur í gegnum unglingsárin. Við tölum um baráttu hennar fyrir NPA aðstoðinni, dómsmál sem hún höfðaði gegn barnaverndarsto...

„Það þýðir ekki að breiða yfir allt sem er erfitt" - Inga Auðbjörg Straumland 13.01.2025

Inga Auðbjörg er kona ekki einhöm. Hún vinnur vanalega sem verkefnastjóri og athafnastjóri og er einnig formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi. Hún hefur óskaplega gaman af stjórnarsetu almennt og er mikill Eurovision-nörd. Það er gaman að ræða við Ingu um Siðmennt og hver krafa félagsins er varðandi jafnræði meðal trú- og lífsskoðunarfélaga. Svo deilum við reynslusögum úr athafn...

"Það eru byltingar og breytingar í kortunum" - Jara Gian Tara 29.12.2024

Jara er kyngimögnuð. Hún er stjörnuspekingur, yogakennari, tónlistarkona, coach og margt fleira fallegt sem gerir heiminn að betri stað. Í þessum áramótaþætti dembum við okkur djúpt í stjörnuspekina og skoðum árið sem er að kveðja og það sem er að taka við. Það er alltaf jafn gaman þegar ég upplifi samhljóm með djúpum lestri á stjörnunum og raunverulegu lífi og það gerist sannarlega í þættinum. Fy...

"Að berjast fyrir betri heimi fellur aldrei úr gildi" - Þorvaldur Kristinsson 15.12.2024

Þorvaldur Kristinsson hefur lifað tímana tvenna. Hann fæðist í Hrísey árið 1950 og nám leiddi hann erlendis og aftur heim nokkrum sinnum. Á viðburðarríkri ævi tók hann virkan þátt í mannréttindabaráttu hinsegin fólks og fyrir þá mikilvægu vinnu var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar Íslensku fálkaorðu árið 2004.  Fyrir utan það vann hann við ritstörf, m.a. sem útgefandi, höfundur og ritstjóri. Hann...

„Kerlingabylting mun sameina okkur“ - Eva Rún Snorradóttir 03.12.2024

Eva Rún er mögnuð sviðslistakona og höfundur sem hefur komið víða við á litríkum ferli. Hún hefur gefið út ljóðabækur, skrifað leikrit og verið mjög virk í sjálfstæðum leikhópum eins og Kviss búmm bang og 16 elskendum. Hún er nýbúin að gefa út nýja skáldsögu sem nefnist Eldri konur. Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um listina, hvað drífur okkur áfram og baráttu okkar við að halda okkur á jaðrinu...

“Það er ekki hættulegt að leyfa fólki að vera eins og það er” - Daníel E. Arnarsson 17.11.2024

Daníel E. Arnarsson er magnaður hugsjónamaður og hefur komið víða við á stuttri ævi. Hann var um tíma framkvæmdastjóri Vinstri grænna og starfaði einnig sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78 í 7 ár. Þar að auki hefur hann verið á þingi sem varamaður og freistar þess nú að komast inn í lögfræði í HÍ. Í þessum þætti fræðist ég mikið um Samtökin '78 og það magnaða starf sem þar er unnið. Við...

"Það er ekki til quick-fix" - Dögg Guðmundsdóttir 02.11.2024

Dögg Guðmundsdóttir er mögnuð kona sem hefur mikla ástríðu fyrir næringarfræði og heilbrigðu sambandi við mat. Hún er á lokametrunum að klára MS í næringarfræði vinnur við ráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins. Við förum vítt og breitt í hið stóra viðfangsefni sem er næringarfræðin og kemur í ljós að það er ekki til neitt eitt svar til að öðlast heilbrigt líf í gegnum mataræði (sem var ákveðinn skell...

“Listin getur verið rás fyrir kærleikann” - Vigdís Jakobsdóttir 28.10.2024

Vigdis Jakobsdóttir er ástríðufullur listamaður sem hefur komið að ævintýralegum verkefnum. Hún lærði leikstjórn í Bretlandi og við heimkomu byrjaði hún strax að leikstýra ásamt því að stofna fræðsludeild Þjóðleikhússins og starfaði þar í áratug. Hún var einnig aðjúnkt í listkennsludeild LHÍ, hefur verið í alþjóðastjórn ASSITEJ (samtök sviðslistahópa og leikhúsa fyrir unga áhorfendur) og er þessi...

"Ég sætti mig ekki við að vera smættaður niður í eitthvað eitt" - Bjartmar Þórðarson 21.10.2024

Bjartmar er magnaður listamaður og sprenglærður í þokkabót. Hann vinnur jöfnum höndum við að leika, syngja, leikstýra og kenna auk þess sem hann nýtur þess að gera upp íbúðir. Sameiginlegir snertifletir okkar tveggja eru margir í lífi og list þar sem við erum báðir hommar og leikarar. Við köfum djúpt í þann skrítna veruleika sem getur myndast þegar hið heterónormatíva samfélag vill setja okkur í b...

"I put my life into 23kg bag to come here" - Ray Milano 12.10.2024

Ray left his home country of Venezuela because of persecution because there he is a well known out gay man and drag queen, and he didn't feel safe. He moved to Iceland last year and has already made a huge impact on the queer community here with his drag performance artistry and love. We talk about his background in his hometown in Venezuela, his dancing and drag. He tell me about how he stop...

"Við erum orka" - Jóhanna Jónas 06.10.2024

Jóhanna Jónasdóttir er leikkona, heilar, þerapisti og dansari. Hún er móðursystir mín og hefur verið uppáhaldsfrænka frá því ég man eftir mér. Hún menntaði sig sem leikkona í Bandaríkjunum og átti mikilli velgengni að fagna í þeim bransa, fyrst í New York og Hollywood, en við heimkomu til Íslands var hún fastráðin við Borgarleikhúsið í nokkur ár. Í kjölfar algers hruns á líkama og sál tók við djúp...

"Afsala ég mér mannréttindum mínum því ég á erfitt með gang?" - Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir 23.09.2024

Kolbrún Dögg er sviðslistakona, höfundur, aktívisti og leikkona. Hún leikur nú í sínu eigin verki í Þjóðleikhúsinu sem nefnist Taktu flugið, beibí og þar segir hún frá lífshlaupi sínu, sigrum og hindrunum. Í spjalli vikunnar förum við vítt og breitt eins og vanalega og tölum að sjálfsögðu um listina, aktívismann, aðgengismál, mannréttindi, ritstörfin og drauma framtíðarinnar. Kolbrún er svo yndisl...

Listen to the Mennska podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.