Bjarni Snæbjörnsson
Mennska
Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi. Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light. Most episodes are in Icela...
Author
Bjarni Snæbjörnsson
Category
Podcast website
Latest episode
Nov 23, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
"Ég hugsa listina sem þjónustustarf" - Una Torfadóttir 14.09.2024 53:04
Una þarf varla að kynna en hún hefur geirneglt sig inn í íslenskt tónilstarlíf á stuttum en kraftmiklum ferli frá því fyrsta lagið hennar kom út í mars 2022. Í þætti dagsins förum við yfir hvað leiddi hana að tónlistarferlinum og hvernig er umhorfs hjá henni í dag. Við ræðum einnig sviðslistir, klæðskerasaum, giggin og að sjálfsögðu nýjan söngleik hennar Storm, sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsi...
"Ég nota öll fornöfn - ég vil aðallega vera sexý" - Sindri "Sparkle" Freyr 06.09.2024 1:04:59
Sindri Sparkle (hún/hán/hann) er einstakt fjöllistakvár sem starfar við grafíska hönnun, uppistand, ljóðaskrif og myndlist. Í þætti vikunnar kynnist ég þessum stormsveip sem er uppfullt af húmor, gáska og hlátri. Við ræðum að sjálfsögðu hinseginleikann í allri sinni dýrð og förum vítt og breitt um heim listarinnar, hvernig við látutum hlutina gerast og þurfum líka að vinna tengiliðavinnu og plögga...
"Gerðu það sem hjartað þitt segir" - Birna Rún Eiríksdóttir 31.08.2024 1:27:49
Birna Rún er manneskja með marga hatta og hún er alveg svakalega góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Sem leikkona hefur hún sést á skjám landsmanna í fjölda ára og hlaut Edduna á sínum tíma fyrir Rétt. Hún hefur leikið mikið á sviði og flæddi lífrænt inn í það að verða mjög vinsæl á tiktok og instagram. Svo er hún uppistandari, veislustjóri og er nú að stíga sín fyrstu skref sem leikstjóri...
"Ég vil alltaf vera fyrirmynd" - Kristín Taiwo Reynisdóttir 26.08.2024 1:00:21
Kristín Taiwo Reynisdóttir (hún/hennar) er háskólanemi og einn af stofnendum Antirastistanna sem er hópur aktivista sem er með það markmið að fræða Íslendinga um rasisma. Hópurinn heldur úti instagram reikningnum @antirasistarnir og hefur gefið út hlaðvörp og staðið fyrir ýmiskonar fræðslu. Í þættinum segir Stína mér frá reynsluheimi sínum og hvernig það er að vera svört á Íslandi. Svo förum við y...
"Við stóðum saman" - Einar Þór Jónsson 16.08.2024 1:06:16
Einar Þór er einstakur aktívisti sem hefur staðið vaktina í málefnum hinsegin fólks og HIV smitaðra í áraraðir. Í þætti vikunnar förum við yfir æsku hans í Bolungavík og lærum hvernig sögur okkar tveggja eru að mörgu leiti líkar, þó 20 ár skilji okkur að. Einar segir okkur einnig frá ferðalagi sínu út úr skápnum og hann lýsir því hvernig alnæmisfaraldurinn var fyrir hann og hans samferðafólk. Svo...
"My mind is occupied" - Bashar Murad 12.08.2024 56:35
Bashar Murad was the main guest at Reykjavík Pride this year performing both at the opening ceremony as well as on the big stage in down town Reykjavík for the 100.000 guests that showed up for the celebration. He is a Palestinian pop star who has been making a name for himself in Europe and beyond. In this episode he tells me about his childhood and how it was growing up under an occupation. We d...
"Það er í lagi að skilja ekki" - Helga Haraldsdóttir 30.07.2024 1:12:50
Helga Haraldsdóttir stendur í ströngu þessa dagana enda er hún formaður Hinsegin daga í Reykjavík (ekki "Íslands" eins og ég segi í þáttunum!). Hún er einnig magnaður kokkur og við tengjumst beint í gegnum nostalgískar æskuminningar frá Vestfjörðum. Í þætti vikunnar förum við yfir mikilvægi Hinsegindaga og tölum um hátíðina í ár sem er stórglæsileg að vanda. Hún segir mér frá skemmtilegu...
"Tengslin eru númer 1, 2 og 3" - Lilja Sif Þorsteinsdóttir 27.07.2024 1:10:54
Lilja Sif er magnaður sálfræðingur sem heldur úti instagram reikningnum Heilshugar (@heilshugar_) Eftir tveggja vikna sumarfrí dembum við okkur á dýptina varðandi hvað tengsl eru mikilvæg fyrir okkur mannverur, hvernig við erum hópdýr og hvernig það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að eiga náin sambönd við annað fólk. Við ræðum líka sjálfsrækt og sjálfsvinnu og auðvitað komum við inn á kerfin sem m...
“Especially in the arts, we have to hold each other accountable” - REC Arts Reykjavik 06.07.2024 1:27:16
For this episode I welcome the amazing humans who are creators of REC Arts Reykjavik; Chaiwe Sól Patiswa Drífudóttir (she/her), Eva Yggrasil (she/they) and Rebecca Hidalgo (she/her). They are activists, artists, teachers and so many other beautiful things are fighting continuously to make the world a better place by highlighting stories and artistry of marginalised groups We go over many heartfelt...
“Ég legg mig fram við það að vera í hárri þakklætis- og kærleikstíðni” - Ellý Ármanns 28.06.2024 1:04:16
Í þætti vikunnar förum við Ellý Ármanns um víðan völl. Ellý þarf vart að kynna enda ein af eftirminnilegustu þulum RÚV og starfar m.a. í dag sem spákona og myndlistakona. Ég var svo spenntur að kynnast Ellý í gegnum þetta samtal og hér förum við í fullkomið flæði þar sem við ræðum þakklæti, lærdóm lífsins, listina, litlu börnin innra með okkur, leiðir til heilunar og margt margt fleira. Ellý á in...
"Listin er samfélagslega mótandi" - María Thelma Smáradóttir 22.06.2024 1:16:46
María Thelma (hún) er mögnuð leikkona sem hefur komið víða við á sinni stuttu starfsævi; skrifað og leikið í sínum eigin einleik, leikið í Þjóðleikhúsinu og mörgum sjónvarpsþáttum og fengið tilnefningar til Grímunnar. Í þætti vikunnar ræðum við á dýptina um list leikarans, um stóra samhengi lista, fjölbreytileika og hvað það skiptir miklu máli að eiga dýnamískar fyrirmyndir. Við förum yfir hvað þa...
"Við höfum öll rétt á því að líða vel" - Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir 14.06.2024 1:12:19
Ugla er mögnuð kona sem hefur stigið fast til jarðar varðandi réttindi trans fólks frá unga aldri. Í þætti vikunnar segir hún okkur frá sögu sinni og hvernig hún datt inn í aktívisma. Við ræðum einnig stöðuna í dag í réttindamálunum og hvernig við þurfum að passa upp á það á hverjum degi að sjálfsögð mannréttindi okkar séu ekki tekin af okkur. Ugla á instagram: uglastefania ---- Bjarni Snæbjörnss...
"Ástin sameinar því hún er mótspyrnan við hatri" - Ingileif Friðriksdóttir 09.06.2024 1:25:12
Ingileif Friðriksdóttir er mögnuð kona sem framkvæmir hugmyndir sínar og hefur því komið víða við, t.d. sem aktivisti, framleiðandi og höfundur sjónvarpsefnis, áhrifavaldur, fjölmiðlakona og margt margt fleira. Fyrir stuttu gaf hún út sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Ljósbrot sem er mjög spennandi og grípandi bók sem hverfist um ástir kvenna. Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um hinseginleikann,...
"Við erum öll heil" - Bjarki Steinn 31.05.2024 1:15:28
Bjarki Steinn (hann) er ein af þessum manneskjum sem kemur inn í lífið manns og það er eins og við höfum alltaf þekkst. Hann er einstök fyrirmynd, opin og kærleiksrík sál sem segir mér frá lífi sínu og lærdóm í gegnum heilunarvinnu. Við ræðum hugvíkkandi efni, hinseginleikann, óttann, skömmina og mikilvægi þess að taka fagnandi á móti öllum tilfinningum okkar. Bjarki Steinn á instagram: https://ww...
"Við eigum ekki endilega að vera alltaf hamingjusöm" - Hulda Tölgyes 24.05.2024 1:24:21
Hulda Tölgyes er sálfræðingur, rithöfundur og mögnuð kona. Í þættinum eigum við dásamlegt samtal um fjöldamörg málefni sem við elskum bæði, t.d. partavinnu, triggera, leiðir til að koma okkur í jafnvægi og hvernig við getum hlúð að litlu börnunum innra með okkur. Við ræðum auðvitað líka þriðju vaktina, feðraveldið og hvernig við getum hjálpað hvort öðru og börnunum okkar að upplifa að þau tilheyri...
"Ég ákvað bara að ráðast í þetta" - Hafsteinn Þórólfsson 18.05.2024 1:58:12
** Varúð váhrif / Trigger Warning. Í samtalinu við Hafstein eru mörg erfið málefni rædd eins og einelti, kynferðisofbeldi gegn börnum, nauðgun og sjálfsvígshugsanir. ** ----- Hafsteinn Þórólfsson (hann) er söngvari, tónskáld og einstakur listamaður. Í þætti vikunnar segir hann okkur frá mögnuðu heilunarferðalagi sem hann þurfti að fara í vegna mikilla áfalla sem hafa dunið á honum í gegnum ævina....
"Ekki láta öfgafulla umræðu þagga niður raddir umburðarlyndis" - Þorbjörg Þorvaldsdóttir 11.05.2024 53:44
Þorbjörg Þorvaldsdóttir (hún) er verkefnastýri hjá Samtökunum 78 og hefur verið ósérhlífin síðustu ár að berjast fyrir auknum mannréttindum ólíkra jaðarhópa. Í þættinum ræðum við um muninn á hatursorðræðu og hættulegri orðræðu. Ég læri um gagnvirka orðræðu og hvernig það er hjálplegt að manneskjuvæða hvort annað. Samtalið var mikill innblástur og minnti mig á hvernig mannréttindabarátta er maraþon...
"Fjölbreytileiki er lífið" - Guðbrandur Árni Ísberg 04.05.2024 1:13:08
Gestur vikunnar er Guðbrandur Árni Ísberg sem er reynslumikill sálfræðingur og höfundur Hann hefur skrifað bækur bæði um NÁNDINA og SKÖMMINA og er þessi misserin að skrifa nýja bók um ÁSTINA. Þetta var svo skemmtilegt og lærdómsríkt samtal þar sem við fórum á dýptina og ég lærði mikið um hvernig skömmin er í raun til staðar til að hjálpa okkur, þó hún sé oftast óþægileg. Ég mæli einnig með samtali...
"We can't talk about diversity without talking about inclusion" - Achola 25.04.2024 1:00:24
Achola is the creator of the very educational instagram account @inclusiveiceland and works towards raising awareness of the underrepresented priorities of women of foreign origin, people of colour and minorities. She holds an MA in International Affairs from the University of Iceland and has worked in different specialist positions relating to immigrant issues in Iceland. In this episode we talk...
"Gullvagninn kemur ekki að sækja mann." - Vala Kristín Eiríksdóttir 21.04.2024 1:01:46
Gestur þessa fyrsta þáttar er Vala Kristín Eiríksdóttir. Hún er leikkona, höfundur, framleiðandi og ein af mínum bestu vinkonum. Við kynnumst kvíðnum gíraffa, ræðum um ferðalag hennar í listinni, tilfinningar, breyskleika, vináttuna, innsæi og hlæjum okkur í gegnum klukkutíma af spjalli. We Can Do Hard Things, viðtal við Alok: https://open.spotify.com/episode/6AzxGzTIB4SNEIkJOfo7fh?si=5734a95d893f...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.