malmalanna

Mál Málanna

News IS ↓ 95 episodes

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

Author

malmalanna

Category

News

Podcast website

malmalanna.podbean.com

Latest episode

Mar 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

7,5% Vextir: „Kristrún, það er ljótt að plata“ 18.03.2026

Stýrivextir fóru í 7,5 prósent í morgun og rök Seðlabankans eru þau að tölurnar hafi hreinlega breyst svo mikið að það hafi ekki verið annað í stöðunni. En á meðan forysta bankans talar um „lausbeislaðar verðbólguvæntingar“ þá situr launafólk eftir með hærri reikninga og svikin loforð. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri kynna röksemdir vaxtahækkunar. Vilh...

Long Covid: Eins og að hella vatni yfir tölvu 17.03.2026

Í dag kynnumst við raunveruleika þeirra fjögur þúsund Íslendinga sem glíma við eftirstöðvar Covid-sýkingar. Við heyrum sögu Gunnars Önnu Svanbergssonar, sérfræðings í sjúkraþjálfun sem varð öryrki eftir að hafa smitast um jólin 2020. Við ræðum líffræðina bak við þreytuna, skort á skilningi í kerfinu og hvers vegna alþjóðlegur vitundardagur Long Covid skiptir máli.

Trump krefst þátttöku bandamanna 16.03.2026

Nýjasta útspil Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem krefst þess að bandamenn taki við öryggisgæslu í Hormuz-sundi eða greiði fyrir verndina, er mál málanna. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, rýnir stöðuna. Fáðu samhengið í máli dagsins á undir korteri..

Vikuuppgjör: Holur, flug og stórtíðindi á fjölmiðlamarkaði 13.03.2026

Stærstu viðskiptatíðindi seinni ára á fjölmiðlamarkaði litu dagsins ljós á fjölmiðlamarkaði. Hinn þrautreyndi fjölmiðlamaður, Pálmi Guðmundsson rýnir í það mál. Patrekur Jaime, fjölmiðlastjarna og áhrifavaldur, er gjörsamlega búinn að fá nóg af holunum í malbikinu og lofar að kjósa hvern þann sem lagar það. Björk Úlfarsdóttir hjá Colas útskýrir hvers vegna göturnar eru eins og þær eru. Jón Karl Ól...

Jón Bjarnason: „Sama ESB-fenið og 2009.“ 12.03.2026

Í Máli málanna í dag ræðum við við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sem varar við því að sagan sé endurtekin í Evrópumálum. Hann lýsir því hvernig ríkisstjórnin nú notar sömu setningarnar og 2009 til að „friða fólk,“ á meðan ESB gerir engar málamiðlanir um grunnreglur sínar. Hvers vegna stöðvuðust viðræður um sjávarútvegsmál á sínum tíma? Fáðu samhengið í máli dagsins á um 15 mínútum.  

Segja íslenska ríkið greiða hundruð milljóna árlega erlendis fyrir aðgerðir sem hægt er að gera hér á landi 11.03.2026

Í Máil málanna í dag ræðum við skrítinn ráðahag varðandi efnaskiptaaðgerðir Íslendinga sem fluttir eru í stórum stíl til Svíþjóðar þar sem aðgerðin er framkvæmd, oft af íslenskum lækni fyrir sænskt fyrirtæki. Diljá Mist Einarsdóttir þingkona fer yfir sláandi tölur úr heilbrigðisráðuneytinu og við heyrum í læknum hjá Klíníkinni sem telja sig geta nýst kerfinu miklu betur. Er pólitísk hugmyndafræði...

Icelandair á útsölu 10.03.2026

Í Máli málanna í dag ræðum við sögulega lágt gengi Icelandair í Kauphöllinni. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri, varar við því að félagið sé orðið svo ódýrt að það borgi sig hreinlega að kaupa það og leysa það upp. Er fjandsamleg yfirtaka yfirvofandi? Samhengið í máli dagsins á undir 15 mínútum.

ESB: Lýðræðislegur réttur eða glatað fullveldi? 09.03.2026

Mál málanna er umræðan um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sem verður lögð fyrir Alþingi í dag. Tómas Möller úr Evrópuhreyfingunni og Erna Bjarnadóttir frá Heimssýn takast á um auðlindir og fullveldi. Einnig heyrum við í Már Wolfgang Mixa dósent um hvort ESB-aðild muni raunverulega lækka húsnæðisvexti eða hvort íslenski bankamarkaðurinn sé einfaldlega of lítill til að laða a...

Vikuuppgjör: Andlát Davíðs Oddssonar, kosningar um ESB, kostnaður við Nýja Landspítalann og átökin í Íran 06.03.2026

Fjölmargir minntust Davíðs Odssonar í vikunni. Við heyrum brot úr viðtali við Davíð úr Reykjavík síðdegis frá árinu 2016 og ræðum við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, svarar fyrir um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna um ESB og Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur metur stöðuna í Íran. Deilt er um framkvæm...

Kúveit að verða búið með varnareldflaugar: „Ellefu ára stelpa dó í gær“ 05.03.2026

Í Mál málanna í dag heyrum við aftur í Andra Ottesen í Kúveit, en ástandið þar hefur versnað snögglega frá því fyrr í vikunni. Hann lýsir því hvernig Íranir nota ódýra dróna til að herja á dýr varnarkerfi og varað er við því að birgðir af varnarflaugum gætu klárast á næstunni.

1.000 milljarða högg: Svartasta sviðsmynd Landspítalans. 04.03.2026

Rætt við Sigurð Sigurðsson, byggingarverkfræðing, um það sem hann kallar þúsund milljarða högg á ríkissjóð vegna Nýja Landspítalans. Af hverju hefur Landspítalinn verið á teikniborðinu í tvo áratugi á meðan aðrar stórbyggingar rísa á ógnarhraða? Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

Sprengjuregn og ferðatöskur: Íslendingar í Miðausturlöndum. 03.03.2026

Í Máil málanna í dag fáum við innsýn í hvernig það er að búa í Barein og Kúveit á meðan stríðið í Miðausturlöndum breiðist út. Guðlaug Sigfúsdóttir í Barein segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir í friðsælu landi og Andri Ottesen er með ferðatöskuna klára ef hann þarf að flýja Kúveit með fjölskyldu sína.

„Ég hef aldrei séð fólk gráta af gleði yfir dauða einhvers“ 02.03.2026

Rætt við Leo Karenarson Amiri frá Íran sem er búsettur hér á landi en Karen Stephensen Halldórsdóttir hefur myndað mjög sterk tengsl við hann og fjölskyldu hans. Þau segja 85% Írana fagna innrás Bandaríkjanna og Ísrael.

40 milljarða búhnykkur í ríkissjóð 25.02.2026

Rætt við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis, um risagreiðsluna sem skilar sér í ríkissjóð í haust. Eru fleiri vörur og fyrirtæki á Ísafirði sem skila fleiri 40 milljörðum og hvernig er umhverfið á Íslandi til verðmætasköpunar?

Mummi í Mótorsmiðjunni og Inga Sæland um barnavernd 24.02.2026

Í dag ræðum við um hrópandi ábyrgðarleysi í barnaverndarmálum. Hver ber ábyrgð þegar vistheimili ríkisins breytast í vettvang ofbeldis? Mummi “í Götusmiðjunni” Týr Þórarinsson, sakar kerfið um að hafa rústað úrræðum sem virkuðu og leyft mönnum að þvo hendur sínar af ofbeldi fortíðar. Inga Sæland, barnamálaráðherra, boðar aðgerðir. Fáðu samhengið í máli málanna.

Fögur ár í Úkraínu: Hver er að sigra áróðurstríðið? 23.02.2026

Mál málanna í dag er Úkraína. Á morgun eru fjögur ár liðin frá ólöglegri innrás Rússa í Úkraínu. Algjör kyrrstaða virðist komin í átökin. Albert Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra í Rússlandi og Jón Ólafsson prófessor við HÍ fóru yfir á Sprengisandi þetta mannskæða stríð sem virðist engan enda ætla að taka. Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

Hamfarir, hálfsannleikur og leikskólagjöld 20.02.2026

Í vikuyfirliti Máls málanna fer Auðun Georg á um 15 mínútum yfir samhengið á bak við stærstu fréttir vikunnar. Bakkakotsmálið: Ólöf Ásta Farestveit núverandi forstjóri Barna- og fjölskyldustofu um verklag barnaverndar nú á dögum. Athygli vakti í vikunni að Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, lýsti því í viðtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins að málefni Bakkakots rötuðu ekk...

Af hverju er ekki hægt að ryksuga svifrikið? 19.02.2026

Í Mál málanna í dag ræðum við um hættulega loftmengun í Reykjavík sem hefur neytt fólk til að leita á bráðamóttöku. Við heyrum í Björgvin Jóni Bjarnasyni, forstjóra Hreinsitækni, um af hverju rykbinding er „feluleikur“ og Magneu Gná Jóhannsdóttur, borgarfulltrúa, sem vill að borgin kaupi sína eigin ryksugubíla. Er verið að nota svifrykið sem vopn gegn einkabílnum eða vantar hreinlega forgangsröðun...

Týndu börnin í skólanum 18.02.2026

Soffía Ámundadóttir, verkefnisstjóri námssamfélaga á Menntavísindasviði HÍ, ræðir um skólaforðun á Íslandi. Talið er að allt að þúsund grunnskólabörn mæti hreinlega ekki í skólann. Hvernig þarf skólakerfið að breytast svo hægt sé að grípa börn sem passa ekki inn í hefðbundið mót skólastarfsins. Fáðu samhengið í Máli málanna á um 10 mínútum.  

Hvað er þetta Slapp sem allir eru að tala um? 17.02.2026

Við ræðum við Kristján Leó Guðmundsson, tölvunarfræðing og einn af stofnendum nýja íslenska samfélagsmiðilsins Slapp.  Köfum ofan í hvernig rafræn skilríki útrýma bottum og tröllum, hvers vegna miðillinn er auglýsingalaus og af hverju „samfélagsmiðlaþreyta“ er að breyta því hvernig við tengjumst á netinu. Fáðu samhengið í máli dagsins á tæpum 12 mínútum.

Mál málanna - mánudagur 16. febrúar 2026 16.02.2026

Aldraðir á biðlista: “Áratugum á eftir áætlun.” Hafdís Hanna Ægisdóttir og átakanleg saga föður hennar á níræðisaldri sem hefur þurft að bíða á bráðamóttöku Landspítalans eftir hjúkrunarrými síðan í október. Við heyrum líka í Ölmu Möller heilbrigðisráðherra sem viðurkennir að uppbygging kerfisins sé áratugum á eftir áætlun. Fáðu samhengið í máli dagsins á um 10 mínútum.

Mál málanna - föstudagur 13. febrúar 2026 13.02.2026

Heitustu málin í vikunni Í Máli málanna í dag rýnum við í stærstu fréttir vikunnar 9.–13. febrúar. Við förum yfir starfsóánægju á Bifröst sem endaði með afsögn rektors, hættulegt ástand gatna í Reykjavík og raddfalsanir með aðstoð gervigreindar. Vandræðaleg afsökunarbeiðni norsks skíðagarps vakti mikla athygli en stærstu málin voru auðvitað tengd bráðamóttökunni á Landspítalanum og gríðarlegt land...

Mál málanna - fimmtudagur 12. febrúar 2026 12.02.2026

30 millimetra slysagildrur Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur, ræðir um hræðilegt ástand gatna í Reykjavík. Hvers vegna eru rásir í malbikinu orðnar tvöfalt dýpri en hættumörk erlendis segja til um? Við berum saman öryggi á flugvöllum og þjóðvegum, ræðum hvers vegna malbikið „skríður“ og spyrjum hvers vegna það vantar skýr viðmið í vegalög um hvenær vegur telst hreinlega ónýtur. Samhe...

Mál málanna - miðvikudagur 11. febrúar 2026 11.02.2026

Eldey á tíma: Verður næsta gos neðansjávar? Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur rýnir í skjálftahrinuna við Eldey. Hvers vegna er jarðskorpan þarna eins og kalt Toffee eða mjúkt smjör? Við förum yfir líkurnar á gosi í náinni framtíð, ógnina við Keflavíkurflugvöll vegna hugsanlegs öskufalls og hvers vegna Reykjanesskaginn virðist vera að losa spennu í öllum áttum. Samhengið í máli dagsins á tæpu...

Mál málanna - þriðjudagur 10. febrúar 2026 10.02.2026

Hvað ef internetið á Íslandi hrynur? Í Mál málanna í dag ræðum við við Tryggva Farestveit, framkvæmdastjóra Photon, um brothætta stafræna innviði Íslands. Hvers vegna myndu flestir vefmiðlar liggja niðri ef sambandið við útlönd rofnar? Við ræðum stafrænt fullveldi, hvers vegna við hýsum mikilvæg gögn hjá Amazon og Cloudflare í stað þess að nýta íslensk gagnaver, og hverja við þurfum að ná í ef all...

Listen to the Mál Málanna podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.