malmalanna

Mál Málanna

News IS ↓ 95 episodes

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

Author

malmalanna

Category

News

Podcast website

malmalanna.podbean.com

Latest episode

Mar 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Mál málanna - mánudagur 9. febrúar 2026 09.02.2026

Krísan á Bifröst Njörður Sigurjónsson, prófessor við háskólann á Bifröst og Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi nemenda, lýsa því hvernig stjórnunarhættir rektors hafa leitt til algjörs trúnaðarbrests. Við ræðum þöggunarmenningu, vísanir í siðanefndir og kröfuna um að leiðtogar sýni auðmýkt og stígi til hliðar. Samhengið í máli dagsins á rúmum 10 mínútum.

Mál málanna - föstudagur 6. febrúar 2026 06.02.2026

Bakkakot, Landspítali og krísa í konungshöllinni. Í vikuuppgjöri Máls málanna rýnum við í hneykslið í Bakkakoti og viðbrögð ráðamanna við því. Ungmenni réðust á töframann í Garðabæ og lögregla hefur tekið upp nýstárlegar forvarnir með því að spila tölvuleiki í Roblox. Við ræðum enn eitt neyðarástandið á Landspítala og heyrum af loforði forsætisráðherra um fyrstu skrefin til að afnema verðtryggingu...

Mál málanna - fimmtudagur 5. febrúar 2026 05.02.2026

Bakkakotsmálið: Þegar kerfið sefur á verðinum. Mál málanna í dag er mál drengjanna á Bakkakoti sem Kveikur dró fram í dagsljósið í vikunni. Inga Sæland barnamálaráðherra ræðir ábyrgð kerfisins og boðar ný úrræði á Gunnarsholti fyrir börn í vanda. Eygló Harðardóttir hjá ríkislögreglustjóra fer yfir þann mikla aðstöðumun sem ríkir í barnavernd á milli landshluta. Við rýnum einnig í reiði netverja og...

Mál málanna - miðvikudagur 4. febrúar 2026 04.02.2026

Mitt DNA: Sannleikurinn, skömmin og púslið sem smellur. Í Máil málanna í dag ræðum við við Benediktu Eik Eiríksdóttur sem nýlega stofnaði samtökin Mitt DNA – félag rangfeðraðra. Benedikta deilir magnaðri sögu af því að komast að hinu sanna um faðerni sitt eftir áratuga óvissu. Við ræðum lagalega hliðina á því að „affeðra“ sig og frelsandi kraftinn sem fylgir því þegar sannleikurinn kemur loksins í...

Mál málanna - þriðjudagur 3. febrúar 2026 03.02.2026

Krísa í konungsríkinu og börn með fitulifur Hneykslið í Noregi: Krónprinsessan Mette-Marit þarf að svara fyrir náin tölvupóstasamskipti við Jeffrey Epstein á sama tíma og sonur hennar er hnepptur í gæsluvarðhald. Við heyrum í Erlu Friðgeirsdóttur í Osló sem lýsir ástandinu. Danir snúa baki við Bandaríkjunum: Ný könnun sýnir að 60% Dana líta nú á sinn nánasta bandamann sem andstæðing. Við ræðum um...

Mál málanna - mánudagur 2. febrúar 2026 02.02.2026

Árásin í Garðabæ, afnám verðtryggingar og Mette-Marit. Mál málanna byrjar á hrikalegri frásögn Daníels Arnar sem varð fyrir tilefnislausri líkamsárás ungmenna í Garðabæ. Við rýnum í loforð Kristrúnar Frostadóttur um afnám verðtryggingar, fjöllum um níu ára börn sem eru komin á þyngdarstjórnunarlyf og tölvupósta Mette Marit krónprinsessu til Jeffrey Epstein sem skekur Noreg. Allt sem skiptir máli í...

Mál málanna - föstudagur 30. janúar 2026 30.01.2026

Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari....

Mál málanna - fimmtudagur 29. janúar 2026 29.01.2026

Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari....

Mál málanna - miðvikudagur 28. janúar 2026 28.01.2026

Drengirnir á jaðrinum og kerfi meðaltalsins. Mál málanna rýnir í raunveruleika stráka í íslensku skólakerfi. Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, ræðir hvers vegna kerfið okkar er hannað fyrir „meðaltalið“ en bregst jaðartilvikunum. Við skoðum hvers vegna enginn vill kenna „erfiðu“ strákahópunum, af hverju stimplar og greiningar duga ekki án lausna og hvers vegna festan e...

Mál málanna - 27. janúar 2026 27.01.2026

Er “Íslandsbíllinn” biluð drusla? Mál málanna í dag snýst um Tesla Model Y og sláandi niðurstöður. Af hverju falla 45% þessara bíla á fyrsta prófi í Danmörku? Björn Kristjánsson hjá FÍB fer yfir hvernig á þessu stendur.

Mál málanna - mánudagur 26. janúar 2026 26.01.2026

Sjálfsvirðing eða sæng yfir höfuð? Ísland stendur á krossgötum þar sem „forritun“ okkar nánasta bandamanns hefur snúist gegn okkur. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur J. Sigfússon rýna í nýja heimsmynd þar sem Bandaríkin beita bandamenn sína efnahagslegum hernaði og ásælast fullveldi Grænlands. Við ræðum hvort Ísland eigi að leita skjóls í Evrópu, hvers vegna NATO-ríki æfa nú varnir gegn Bandaríkjun...

Mál málanna - föstudagur 23. janúar 2026 23.01.2026

Vikan var vægast sagt skrautleg. Trump ruglaði saman Íslandi og Grænlandi, hótaði tollum og hernámi en segist svo hafa landað „eilífðarsamkomulagi“ við NATO um auðlindir og loftvarnir. Á meðan berst HSÍ í bökkum þrátt fyrir gengi strákanna á EM og Viðskiptaráð bendir á að við borgum meira fyrir minni þjónustu hjá ríkinu.

Mál málanna - fimmtudagur 22. janúar 2026 22.01.2026

„Vandamálið eru Bandaríkin: Traustið hrynur.“ Lars Christensen hagfræðingur skrifar harðan pistil um hvernig Bandaríkin hafa svikið alþjóðakerfið. Samúel Karl Ólason greinir ræðu Trump á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos.

Mál málanna - miðvikudagur 21. janúar 2026 21.01.2026

Blóð, sviti og tvö stig. Ísland lagði Ungverjaland í dramatískum leik á EM í handbolta karla en missti Elvar Örn Jónsson úr leik vegna meiðsla. Henry Birgir Gunnarsson lýsir faglegum vinnubrögðum strákanna gegn andstæðingum og ófaglegum dómurum. Við hitum upp fyrir milliriðilinn í Malmö.

Mál málanna - þriðjudagur 20. janúar 2026 20.01.2026

Barnalegt hrekkjusvín með kjarnorkukóða? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir rýnir höfuðið á Bandaríkjaforseta eftir Nóbels-fýluna sem hann fór í og hótunina um yfirtöku á Grænlandi. Getum við notað aðferðir úr uppeldisfræði til að setja forsetanum mörk?

Mál málanna - mánudagur 19. janúar 2026 19.01.2026

Á skákborði stórveldanna.“ Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, rýnir í Mál málanna þar sem Donald Trump hótar að hætta að skuldbinda sig friði og hersveitir NATO eiga þá væntanlega að mætast á Norðurslóðum. Erum við að bakka inn í kalda stríðið þar sem smáþjóðir eins og Ísland eru bara skiptimynt?

Mál málanna - föstudagur 16. janúar 2026 16.01.2026

„Við erum svolítið á taugum,“ segir Inga Dóra Guðmundsdóttir í Nuuk, þar sem íbúar safna nú neyðarbirgðum vegna hótana Donalds Trump um yfirtöku á Grænlandi. Í föstudagsuppgjöri Máls málanna gerum við upp dramatíska viku þar sem Grænland og Trump bar á góma, afsögn á Alþingi vegna vændismáls og varað var við læknisfræði ChatGPT. Undir lok vikunnar snérist allt um handbolta enda framundan fyrsti le...

Mál málanna - fimmtudagur 15. janúar 2026 15.01.2026

Á meðan íbúar Grænlands safna neyðarbirgðum kallar þingmaður þeirra á danska þinginu eftir að landið fái sjálfstæðari rödd á alþjóðavettvangi. Í þætti dagsins ræðum við við Ingu Dóru Guðmundsdóttur, sem búsett er á Grænlandi. Hún lýsir óttanum hjá íbúum á meðan danskar, franskar og þýskar könnunarhersveitir lenda til að verja fullveldi eyjunnar gegn bandamanni okkar í vestri.

Mál málanna - miðvikudagur 14. janúar 2026 14.01.2026

„Ál, bensen og hormónatruflandi efni.“ Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í umhverfislækningum, varar við því að daglega notkun hreinlætisvara sé ekki eins saklaus og hún virðist. Í þætti dagsins ræðum við um muninn á svitalyktareyði (deodorant) og svitahamlandi efnum (antiperspirant). Hvers vegna berst úði í lungun og af hverju er varasamt að nota svitavörn eftir rakstur? Erum við að fórna heilsunni...

Mál málanna - þriðjudagur 13. janúar 2026 13.01.2026

„Gervigreindin skáldaði vísindagrein eftir mig,“ segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í þætti dagsins. Við könnum flókið ástar-haturs samband okkar við gervigreind í heilbrigðiskerfinu. Getur ChatGPT verið lífbjörg sem finnur svör sem læknar misstu af, eða erum við að týna okkur í óáreiðanlegum upplýsingaspuna? Við ræðum um kosti tækninnar, mikilvægi gagnrýnnar hugsunar og hvers vegna við höfum enn...

Mál málanna - mánudagur 12. janúar 2026 12.01.2026

„Þetta er algjör kúvending,“ segir Inga Sæland, nýr barna- og menntamálaráðherra. Hún ætlar ekki lengur að vera hrópandinn í eyðimörkinni heldur raungera breytingar í kerfi sem hún segir að hafi brugðist börnum og kennurum. Í þætti dagsins ræðum við um hvers vegna 47% drengja eru ólæsir, af hverju Inga vill afnema skóla án aðgreiningar í núverandi mynd og hvort „finnska leiðin“ sé það sem íslenska...

Mál málanna - föstudagur 9. janúar 2026 09.01.2026

Þrír bjórar. Foreldrar kaupa áfengi fyrir unglinga í þeirri trú að það sé skárra heima fyrir til að fylgjast með neyslunni. Kidda Svarfdal, ritstjóri Hún.is og stjórnandi hlaðvarpsins Fullorðins hefur verið edrú í 16 ár og spyr einfaldlega, af hverju ættum við að kenna börnum okkar að nota eitur? Í þættinum er rætt um unglingadrykkju, áfengismenningu á Íslandi, nýlegar rannsóknir og hvað gerist þe...

Mál málanna - fimmtudagur 8. janúar 2026 08.01.2026

Ríkisstjórnin og borgarstjóri kynntu í fyrra áform um 4.000 nýjar íbúðir í Úlfarsárdal - á svæði sem skipulagt var fyrir 562 íbúðir. Í öllu póstnúmeri 113 (Úlfarsárdal og Grafarholti) eru nú 3.723 íbúðir. Hverfið verður ansi þétt og þröngt með fáum bílastæðum að mati Björns Gunnars Steinþórssonar, íbúa í hverfinu sem sett hefur af stað undirskriftalista til að mótmæla þessum áformum.

Mál málanna - miðvikudagur 7. janúar 2026 07.01.2026

Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, forstöðumaður hjá Icelandair, útskýrir hvers vegna félagið greiðir milljarða í kolefnisgjöld til Evrópusambandsins sem skekkir verulega samkeppnisstöðuna á flugleiðinni yfir Atlandshafið. Í þætti dagsins spyrjum við hvort þetta sé sanngjarnt. Og hvert fer peningurinn?

Mál málanna - þriðudagur 6. janúar 2026 06.01.2026

Rithöfundurinn Helen Hafgnýr Cova býr á Íslandi en á fjölskyldu í Venesúela. Þegar Bandaríkin réðust inn í heimaland hennar og handtóku Maduro forseta þá hafði hún strax samband við fjölskyldu sína og vini. Í þættinum í dag spyrjum við: hvenær fórum við að tala um mannréttindi í Venesúela? Munið þið þegar 1.592 hælisleitendur þaðan komu til Íslands - og við gáfum 98% þeirra synjun?

Listen to the Mál Málanna podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.