Umboðsmaður skuldara

Leitin að peningunum

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson. 

Author

Umboðsmaður skuldara

Category

Education

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Apr 3, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Eikonomics, hugleiðingar hagfræðings með athyglisbrest - Eiríkur Ragnarsson. 13.07.2021

Eiríkur Ragnarsson er hagfræðingur sem hefur skrifað pistla undir heitinu Eikonomics. Hann var að gefa út bók  með sama heiti og er til umfjöllunar í þessu viðtali.   Í þessu viðtali ræðum við fjölmargt áhugavert tengdu hagfræði, má þar nefna:  Fjárfestingar á tímum Covid, Gamestop og Robinhood  Á hverju maður á að fjárfesta í leiðinlegum hlutum  Hvaðan þetta nafn Eikonomics kom til?  Skattlagning...

Allt um húsnæðislán - Jónas R. Stefánsson 06.07.2021

Jónas Stefánsson starfar sem sérfræðingur hjá Landsbankanum viðskiptalausnum einstaklinga en hann hóf störf þar árið 2012.  Hann hefur sinnt íbúðalánaráðgjöf í bankanum og hefur séð mikla vitundarvakningu hjá viðskiptavinum bankans um vexti og kjör.   Í þessu viðtali ræðum við um nánast allt það sem snýr að íbúðalánum sem eru fyrir flesta stærstu viðskipti hvers og eins.   En hér má sjá nokkur þei...

Hvað kostar að eignast barn? Hlynur Hauksson 29.06.2021

Hlynur Hauksson starfar sem viðskiptastjóri hjá Meniga. Meniga ákvað að skoða hvað það kostar að eignast barn fyrir Leitina að peningunum.   Hvaða áhrif hefur fæðingarorlof á tekjur á meðan á orlofi stendur og hver eru áhrifin á framtíðartekjur?  Hvar eru íslenskir foreldrar að eyða mest þegar þeir fara í fæðingarorlof?  Hver er startkostnaður við að eignast barn?  Er þessi markaðir þjakaður af mi...

Fyrirtækið þú, skattar, rekstur og stofnun fyrirtækja - Árni Þór Hlynsson 22.06.2021

Árni Þór Hlynsson er framkvæmdastjóri Skatts og bókhalds sem sér um bókhald og reikningsskil fyrirtækja.  Hann hefur unnið við fyrirtækjaráðgjöf varðandi rekstur, bókhald og skattamál í áratugi.   Hann ræðir í þessu viðtali allt það sem viðkemur rekstri einstaklinga og fyrirtækja. Við ræðum í þessu viðtali meðal annars.    Hvort Íslendingar séu skattafælnir?  Hvað þarf maður að gera ef maður vill...

Fjárfestingar og Fortuna Invest - Aníta Rut Hilmarsdóttir 15.06.2021

Aníta Rut Hilmarsdóttir er ein þriggja kvenna sem starfa sem verðbréfamiðlarar.  Starf sem hún segir vera mjög spennandi og krefjast þess að maður sé sífellt að fylgjast með mörkuðum og fréttum af þeim.  Hún stofnaði fræðsluvettvanginn Furtuna Invest á Instagram í ársbyrjun 2021 ásamt Rakel Evu Sævarsdóttur og Rósu Kristinsdóttur en þær vinna allar í fjármálageiranum.  Meg­in­mark­mið Fort­una In­...

Hvað eru rafmyntir? - Kristján Ingi Mikaelsson 08.06.2021

Kristján Ingi Mikaelsson er frumkvöðull og introvert að eigin sögn og fór fljótt í að vinna í tölvum. Hann varð fljótlega var við áhuga við að fara í eigin rekstur.  Þegar hann var kominn í nám í Versló var hann kominn á fullt í eigin rekstur samhliða.   Hann fór að vinna við gerð appa hjá Stokk á upphafsárum þeirra hér á landi. Hann fór svo að vinna hjá Green Cloud sem varð svo keypt af Netapp.co...

Hvernig verð ég betri samningamaður? - Aðalsteinn Leifsson 01.06.2021

Aðalsteinn Leifsson starfar í dag sem ríkissáttasemjari og lektor við Háskólann í Reykjavík.  Hann skrifaði bókina Samningatækni með það að markmiði að bókin gæti orðið hagnýtt tæki við samninga og í daglegu lífi.  Við ræðum í þessu viðtali: Hvað gerir ríkissáttasemjari?  Hvaða þættir skipta máli svo aðilar séu sáttir við samninga?  Samningar er eitthvað sem við fáumst við alla daga og eitt mikilv...

Hálfþrítugur húsbyggjandi - Sóley Ósk Hafsteinsdóttir 25.05.2021

Sóley Ósk Hafsteinsdóttir er tveggja barna  móðir sem vakið hefur athygli á samfélagsmiðlum fyrir skynsamlega nálgun á fjármál og við rekstur heimilis.  Í þessu viðtali ræðum við um.  Skipulag við matarinnkaup. Af hverju maður á að versla í matinn einu sinni í viku?  Hvernig stendur á því að Sóley og maður hennar eru að byggja hús?  Hvernig byggir maður hús?  Af hverju þau hættu við að byggja fyri...

Líkindi og happdrætti - Pawel Bartozek 18.05.2021

Pawel Bartozek fæddist í Póllandi og flutti til Íslands 8 ára gamall.  Hann er stærðfræðingur sem hefur látið samfélagsmál til sín taka. En hann hefur ritað pistla á vefinn í fjölmiðla reglulega undanfarin 20 ár. Pawel er jafnframt  borgarfulltrúi.  Í þessu viðtali ræðir Pawel um æsku sína í Póllandi og kommúnismann sem þar var yfir öllu. Vandamál þar var ekki skortur á peningunum heldur skortur á...

Fávitinn í fjármálum - Haukur HiImarson 11.05.2021

Haukur Hilmarsson er ráðgjafi í fjármálahegðun og kennari í fjármálameðferð við félagsráðgjafadeild HÍ. Hann rekur einnig vefinn skuldaus.  Haukur segist sjálfur vera fáviti í fjármálum þar sem hann lét fjármál stjórnast af tilfinningum. Þar sem hann kom sér í skuldir sem hann borgaði upp aftur og aftur.  Eftir að hafa skoðað þetta sá hann að hegðun hans var á sjálfstýringu.   Haukur lifði tvöföld...

íbúðaskipti og hagkvæmni í ferðalögum - Snæfríður Ingadóttir 04.05.2021

Snæfríður Ingadóttir er blaðamaður, rithöfundur, fyrirlesari og síðast en ekki síst ferðafrömuður.   Snæfríður er fædd og uppaldin á Akureyri og býr þar í dag með manni og þremur börnum. Hún hefur undanfarið skrifað ferðahandbækur um íbúðaskipti, flutninga til Spánar auk bókar um eyjurnar Tenerife og Gran Canary.   Snæfríður byrjaði á íbúðaskiptum fyrir nokkrum árum og þá með það í huga að spara p...

Sambúð, gifting, erfðamál og fjármál - Elva Ósk Wiium 27.04.2021

Elva Ósk Vium lögfræðingur ræðir í þessum þætti um fjármál og hvernig við eigum helst að nálgast þau þegar kemur að maka okkar.     Frá því að Elva hóf að starfa sem lögmaður hefur hún unnið mikið í sambúðar- og hjúskaparmálum sem og erfðarétt.   Lögmenn eru oft kallaðir að málum þegar málin eru komin í óefni. Hún hefur þú séð því séð mistökin sem fólk gerir og fer yfir það í þessu viðtali hvernig...

Úr klóm smálána og fíkniefna - Daníel og Gísli Magnússynir 20.04.2021

Daníel og Gísli Magnússynir eru bræður á þrítugsaldri.   Gísli lenti ungur í klóm smálána og fjárhagserfiðleika í tengslum við fíkniefnaneyslu. Eftir að hafa tekist á við fíkniefnavandann þurfti hann að takast á við annan erfiðan andstæðing sem voru skuldir sem hann hafði safnað upp í neyslu. Skuldir sem voru að stórum hluta smálán.  Bróðir hans Daníel rann blóðið til skyldunar og fór hann í að se...

Peningauppeldið kemur allt frá rappi - Herra Hnetusmjör 13.04.2021

Árni Páll Árnason er rappari, viðskiptamaður og samfélagsrýnir er oftast þekktur undir listamannsnafni sínu hr. Hnetusmjör.    Í þessu viðtali ræðum við um fjármál og líf rappara á Íslandi.  Auk þess ræðum við um:   Af hverju hann vill að stjórnvöld bregðist við  Covid.  Hvernig hann fór í að leita að peningum eftir að tekjur hans drógust saman um 50% á síðasta ári.  Hvernig fyrirmyndir hans í rap...

Hagsýni í mat og fjármál við skilnað - Berglind Guðmundsdóttir 06.04.2021

Berglind Guðmundsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur og stofnandi matarvefjarins Gulur rauður grænn og salt. Hún er einnig þáttastjórnandi Dagmála á mbl.is. Hún heldur úti hlaðvarpinu Matur fyrir sálina sem er þáttur sem miðar að valdeflingu kvenna.  Hún mun sá einnig um sjónvarpsþátt sem fjallar um lífstíl á Sikiley sem verður sýndur á sjónvarpi Símans í apríl. Hún starfar sem sem sjálfstæður...

Allt það sem þú vildir vita um hagfræði - Kristrún Tinna Gunnarsdóttir 30.03.2021

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir er hagfræðingur og starfar í dag sem forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Íslandsbanka.  Kristrún segir frá starfsferli sínum í íslenskum bankageira auk þess sem við ræðum um allt það sem þú vildir vita um hagkerfið en þorðir ekki að spyrja um.  Auk þess ræðum við:  Hvernig fjárhags uppeldi hún fékk.  Af hverju hagfræðin varð fyrir valinu þegar hún valdi sér h...

Brottrekstur úr Borgarleikhúsinu var vakning - Ólafur Darri Ólafsson 23.03.2021

Ólafur Darri Ólafsson er einn ástsælasti leikari íslensku þjóðarinnar.  Í dag er hann leikandi í skjónvarpsseríum hér á landi og í stórum Hollywood kvikmyndum. Líf hans hefur samt ekki verið eintómur dans á rósum og hann gekk í gegnum töluverða fjárhagsörðugleika sem ungur maður.  Við ræðum hér:  Listina hvernig maður lifir af henni.  Mikilvægi góðs endurskoðanda  Hvernig fjármál hans voru komin á...

Sjö smáskref (Baby steps) Dave Ramsey - Trausti Sigurbjörnsson 16.03.2021

Trausti Sigurbjörnsson er 30 ára Skagamaður sem hefur lengi haft áhuga á fjármálum. Hann starfar sem kerfisstjóri hjá DK hugbúnaði. Og er fyrrverandi knattspyrnumaður en hann lagði skóna á hilluna í fyrra.  Í þessu viðtali ræðir Trausti um sín fjármál hvenær hann fór að fá áhuga á þeim og hann mun fræða okkur um Dave Ramsey. En Dave er einn þekktasti fjármálafræðingur Ameríku og eru þættir hans og...

Sýnileiki skapar tækifæri, tækifæri skapa færni - Andrés Jónsson 09.03.2021

Andrés Jónsson starfar í dag sem almannatengil og ráðningarráðgjafi við fyrirtæki sitt Góð samskipti. Umræðuefni þessa þáttar er hvað fólk getur gert til að styrkja sig á vinnumarkaði, aukið tekjur sínar og náð meiri árangri.  Andrés er með hlaðvarpið Ræðum það þar sem rætt um er um atvinnulífið á Íslandi úr annarri átt.  Auk þess ræðum við.  Hvernig uppeldi hans mótaði viðhorf hans til lífsins  S...

Allt sem þú vildir vita um skatta og fjárlög - Svanhildur Hólm Valsdóttir 02.03.2021

Svanhildur Hólm Valsdóttir starfar í dag sem  framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hún starfaði í fjölda ára sem aðstoðarmaður fjármála- og forsætisráðherra. Einnig starfaði hún lengi í fjölmiðlum.  Hún ræðir hér um skatta, ríkisfjármál og af hverju við eigum að þekkja til þessara málaflokka og láta þá okkur varða. Auk þess ræðum við fjölmargt fleira: Uppeldi hennar út á landi og ólík starfsreynslu.  H...

Staða og horfur á fasteignamarkaði, að leigja eða kaupa? - Ari Skúlason 23.02.2021

Ari Skúlason hagfræðingur hjá Landsbankanum hefur skoðað íslenskan fasteignamarkað undafarin ár. Hann ræðir í þessu áhugaverða viðtali stöðu fasteignamarkaðar.  Borgar sig frekar að leigja en að kaupa?  Hvernig Covid hefur haft áhrif á fasteignamarkaðinn og starfsumhverfi. Hvernig vaxtalækkanir Seðlabankans hafa gjörbreytt fasteignamarkaði.  Þetta og margt fleira er rætt í þaula í þessu áhugaverða...

Fékk nóg af fátæktargildrunni og stofnaði Fjármálatips - Sædís Anna Jónsdóttir 16.02.2021

Sædís Anna Jónsdóttir er þriggja barna móðir sem hefur á nokkrum árum losnað úr fátæktargildru og fjárhagsáhyggjum  Hún er jafnframt stofnandi Facebookhópsins fjármálatips en í hópnum eru þegar þetta er ritað um 13.000 manns.  Í þessu viðtali ræðum við um: Af hverju Fjármálatips hefur gengið svona vel Hvað hún hafi lært frá hópnum  Hvað hún leggur áherslu á við uppeldi á sínum börnum  Hvað hún hef...

Sátt manneskja kaupir sér ekki neitt - Ragna Benedikta Garðarsdóttir 09.02.2021

Ragna Benedikta Garðarsdóttir er með doktorsgráðu og starfar sem dósent við félagssálfræði við Háskóla Íslands.  Hún ræðir í þessu viðtali áhrif umhverfisns á hegðun okkar og þá oft neyslu. Þeim óhamingjusamari sem þú ert því líklegri ertu til að falla fyrir markaðsbrellum og kaupa einhvern óþarfa.  Það er munur á ánægju sem fylgir nýjum hlut og hamingju. Ánægjan fer fljótt. Við eigum frekar að ke...

Verðmætasta eignin og Farsæl skref í fjármálum - Gunnar Baldvinsson 02.02.2021

Gunnar Baldvinsson er framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og var auk þess formaður Landssambands lífeyrissjóða um árabil.  Hann hefur skrifað fjölmargar bækur um fjármál einstaklinga sem í dag eru nýttar til kennslu . Nýjasta bók hans Farsæl skref í fjármálum er nýkomin út og er til umræðu í þessum þætti. Gunnar ræðir einnig lífeyrismál og af hverju í eftirlaunum okkar er oft að finna verðmæ...

Spurt og svarað um fjárfestingar - Már Wolfgang Mixa 26.01.2021

Már Wolfgang Mixa starfar sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur langa starfsreynslu af fjárfestingum og stýringu fjármuna í íslensku bankakerfi og erlendis.  Már ræðir hér fjárfestingar og gefur góð ráð við ávöxtun peninga.  Þetta viðtal er mjög yfirgripsmikið og nokkuð langt en hér er farið á dýptina þegar kemur að sparnaði og fjárfestingum. Meðal þess sem hér er rætt  Er hægt að tímas...

Listen to the Leitin að peningunum podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.