Umboðsmaður skuldara
Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Author
Umboðsmaður skuldara
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 3, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Safnaði 17 milljónum á tveimur árum - Sævar Helgi Bragason 19.01.2021 1:19:07
Sævar Helgi Bragason einnig þekktur sem Stjörnu Sævar er landsmönnum vel kunnur. Hann gekk í gegnum skilnað nærri þrítugur og þurfti að taka stórar ákvarðanir og færa miklar fórnir. Hann flutti aftur í foreldrahús, vann frá morgni til kvölds með það að markmiði að þéna meira, hækka laun sín og spara fyrir íbúð. Á tveimur árum sparaði Sævar sér 17 milljónir króna með því að minnka neyslu, leggja...
Stelpur eiga ekki að tala um peninga - Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir 12.01.2021 34:57
Stefanía útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 2019 og hefur síðan unnið mikið með það að markmiði að spara eins mikla peninga og mögulegt er. Hún hefur náð nú þegar að safna sér dágóðri upphæð en hún hyggur á nám og vill eiga sparnað þegar þar að kemur. Stefanía segir að hún hafi sótt sér mikinn fróðleik um fjárfestingar og sparnað. Það sem hefur þó komið henni leiðinlega á óvart er...
Frá fjárhagserfiðleikum til fjárhagslegs sjálfstæðis. Milljónamæringurinn í næsta húsi - Kolbeinn Marteinsson 05.01.2021 1:11:40
Kolbeinn Marteinsson er einn eiganda almannatengsla- og kynningarfyrirtæksins Athygli. Hann er jafnframt einn stofnenda og eigenda Útilegukortsins og fleiri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Kolbeinn ræðir í þessum þætti um sín fjármál en hann er í dag mikill áhugamaður um fjármál. Þessi áhugi kviknaði samt í kjölfar mjög erfiðra aðstæðna. Á árunum eftir hrun urðu fjármál Kolbeins rústir einar eftir...
Ef maður nær nógu mörgum litlum markmiðum þá nær maður á endanum stóra markmiðinu - Vilborg Arna Gissurardóttir 29.12.2020 54:32
Vilborg Arna þarfnast ekki kynningar en þessi magnaða kona var fyrsta konan í heiminum til að afreka það að ganga ein á Suðurpólinn á skíðum og klífa 8000 metra tind ein. Hún hefur sett sér skýr markmið í fjármálum sem og í leiðöngrum sínum og segir markmiðin eitt það mikilvægasta þegar kemur að árangri.
Erum við ekki gerð til að gera meira en að borga reikninga og deyja? - Guðrún (Gógó) Magnúsdóttir 22.12.2020 1:04:13
Guðrún Magnúsdóttir er alltaf kölluð Gógó. og hefur verið hluti af FIRE( Financial, Freedom, Retire, Early) hreyfingunni lengi þar sem stefnt er að fjárhagslegu sjálfstæði. Hún segist hafa reynt mikilvægi þessa þegar henni var sagt upp starfi nokkrum dögum eftir að hafa flutt með fjölskylduna í draumahúsið sumarið 2020. Hún fann þó ekki til ótta eða kvíða því hún vissi að hún átti sparnað sem m...
Gerðu fólk ástfangið af þér - Þórarinn Ævarsson 15.12.2020 1:05:09
Þórarinn Ævarsson er bakari sem uppgötvaði þegar hann var farinn að vinna hjá Dominos að hann hafði nef fyrir viðskiptum. Á þeim tíma tileinkaði Þórarinn sér lífsspeki sína sem er að selja mikið með lágri framlegð. Af þeim sökum hefur Þórarinn aldrei viljað tala um markhópa heldur vill hann eiga viðskipti við alla. Frá Dominos lá leið Þórarins til IKEA þar sem hann var í 15 ár. Sömu viðskiptalögm...
Hamingjuna finnur maður í fjárhagslegu frelsi - Georg Lúðvíksson 07.12.2020 1:02:13
Georg Lúðvíksson er einn stofnanda hugbúnaðarfyrirtækisins Meninga sem var stofnað með það að markmið að geta aðstoðað fólk með lausnum sem tengjast fjármálum heimilisins í gegnum netbanka. Með því að breyta fjármálahegðun sinni getur fólk aukið lífsgæði sín mikið. Lausnin er ekki að halda skipulegt heimilisbókhald þar sem allt er fært inn að sögn Georgs heldur að nýta lausnir eins og Meniga sem...
Hvað kostar að eiga bíl í raun? - Björn Berg Gunnarsson 01.12.2020 1:07:42
Björn Berg Gunnarsson starfar sem deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. Hann hefur kynnt sér fjármál bíla í þaula . Hvað þýðir það ef maður kaupir sér bíl í kringum tvítugt, hverju fórnum við í staðinn? Það mun að öllum líkum seinka íbúðarkaupum og jafnvel hafa slæm áhrif á mögulegt nám. Peningur sem fer í rekstur og kaup á bíl er svo mikill að þú getur gert mjög mikið fyrir þá...
Sambönd, kaupmálar og erfðaskrár - Jóhannes Árnason 24.11.2020 48:56
Jóhannes Árnason lögmaður en hann rekur ásamt öðrum síðurnar, kaupmali.is og erfðaskra.is. um 40% hjónabanda á Íslandi enda með skilnaði og því er mikilvægt að kynna sér vel fjárhagsstöðu og réttindi í sambandi eða hjónabandi. Í flestum tilfellum er samið um fjármál þegar fólk skilur eins er ekki hægt að skilja fyrr en Mikilvægast er að huga að fjármálum, þegar fólk hefur fyrstu sambúð þá á f...
Vikumatseðill og viðbótarlífeyrissparnaður - Snædís Ögn Flosadóttir 17.11.2020 44:22
Snædís Ögn sýslar með stórar upphæðir dags daglega en hún starfar sem framkvæmdastjóri þriggja eftirlaunasjóða. Hún lærði snemma í uppeldinu að hver einasta króna skiptir máli en hún varð ólétt 17 ára gömull og stofnar þá heimili. Besta ráðið sem Snædís hefur fengið og hún hefur reynt að temja sér er að skilja á milli gerviþarfa og raunverulegra þarfa. Hún hefur gert matseðil á sunnudagskvöld...
Atvinnuleysi og atvinnuleit. Hvernig landar maður góðu starfi? 10.11.2020 46:22
Í þessum þætti eru viðmælendur þau Jóhanna Hauksdóttir frá Vinnumálastofnun og Sverrir Briem sérfræðingur í ráðningum hjá Hagvangi. VIð munum ræða og skoða sérstaklega: Hvað þýðir það fjárhagslega að missa vinnuna og hvað er það fyrsta sem maður á að gera ef slíkt hendir mann? Má maður vera í námi á sama tíma og maður fær atvinnuleysisbætur og hver er tekjutenging þeirra. Ferilskráin skiptir...
Ástríðan varð að fyrirtæki - Sigrún María Hákonardóttir 03.11.2020 39:38
Sigrún María Hákonardóttir er menntaður viðskiptafræðingur, náms- og starfsráðgjafi sem rekur í dag í eigið fyrirtæki Fitby Sigrún. Hún stofnaði fyrirtækið í kjölfarið á því að hún fór að deila fríum æfingum á Instagram árið 2014 fyrir óléttar konur og nýbakaðar mæður. Hún segir nám sitt í viðskiptafræðinni hafa nýst mjög vel við reksturinn. Hún lenti í kulnun 21 árs gömul. Sú reynsla hefur b...
Ríki pabbi, fátæki pabbi - Kjartan Örn Sigurðsson 28.10.2020 1:08:20
Kjartan Örn Sigurðsson kaupsýslumaður fjallar hér um bókina Ríki pabbi, fátæki pabbi (Rich Dad Poor Dad) sem kom út árið 1997 en sú bók hefur verið ein mest selda bók um fjármál einstaklinga síðan hún kom út. Hann segir bókina vera fyrir alla þá sem vilja skilja grundvallaratriði fjármála og hefur hann gefið fjölmörgum þessa bók. Kjartan segir bókina í grundvallaratriðum fjalla um hvernig efna...
Instagram og Extraloppan - Brynja Dan Gunnarsdóttir 20.10.2020 45:20
Brynja útskrifaðist sem verkfræðingur árið 2011. Fyrsta verkefnið eftir útskrift var að markaðssetja íslenskt vodka og fór hún í markaðsbransann í framhaldi af því starfi. Hún ræðir hér um stofnun Extraloppunar og þær áskoranir sem fylgt hafa opnun hennar. Hvað skiptir mestu við reksturinn og hvaða mistök hefur hún gert við rekstur hennar? Og við spyrjum hvort Brynja gangi bara í notuðum fötum...
Þetta reddast, er versta fjármálaráðið. Edda Hermannsdóttir 17.09.2020 36:38
Edda Hermannsdóttir markaðs - samskiptastjóri Íslandsbanka fjallar fjármál og hvernig hún tileinkaði sér reglur í fjármálum á unga aldri sem hafa reynst henni vel allar götur síðan. Hún byrjaði snemma að vinna og unnið mikið og áttaði sig fljótt á því hvað hún þurfti að vinna mikið til að eiga fyrir ákveðnum hlutum. Hvernig nær maður árangri þegar kemur að sparnaði og margt fleira áhugavert í þ...
Hvernig kaupir maður íbúð í dag? Páll Pálsson 15.09.2020 51:48
Páll Pálsson fasteignasali ræðir um hvernig maður ber sig að við kaup á fasteign. Hvar er hagstæðast að kaupa, hvað ber að varast og hvað þarf maður að eiga af peningum? Á hvað ætti maður að horfa þegar keypt er fyrsta íbúðin? Húsnæðislán er fyrir flesta stærsta fjárfestingin og því borgar sig að skoða valkosti og ólíkar gerðir. Umsjón: Júlí Heiðar Halldórsson Þessi þáttur er framleiddur af umbo...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.