Umboðsmaður skuldara
Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Author
Umboðsmaður skuldara
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 3, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
3. kafli - Fjárhagslegt sjálfstæði 19.05.2022 12:31
Fjárhagslegt sjálfstæði
2. kafli - Fjárhagslegir ósiðir 12.05.2022 10:43
Fjárhagslegir ósiðir
1. kafli - Hvað hugsar þú um þegar þú hugsar um peninga? 05.05.2022 9:17
1. kafli Hvað hugsar þú um þegar þú hugsar um peninga?
Leitin að peningunum hljóðbók 05.05.2022 0:59
Við munum næstu vikurnar fara af stað með hljóðbók.
Peningar eftir Björn Berg - Lokaþáttur Leitarinnar 18.10.2021 1:09:48
Björn Berg Gunnarsson mætir hér og fjallar um væntanlega bók sína Peningar í þessum síðasta þætti Leitarinnar að peningunum. Bókin fjallar um peningalegar hliðar ýmissa hluta og fólks frá áhugaverðu sjónarhorni. Bókin kemur út 29 október nk. Auk þess kemur framleiðandi þáttana Kolbeinn Marteinsson og ræðir um framhaldið.
Fyrst uppruninn svo peningarnir - Kolbrún Sara Larsen 11.10.2021 1:11:31
Gestur þáttarins í dag er Kolbrún Sara Larsen. Kolbrún er einn stjórnenda hópsins FIRE á Íslandi, hjúkrunarfræðingur, annar stjórnenda hlapvarpsins Peningakastið og sjálflærður heimilisfjármálafræðingur. Í þættinum ræðum við meðal annars Hennar fyrstu kynni af FIRE-hreyfingunni Leitina að upprunanum, sem Kolbrún á stóran þátt í að varð til Leiðir Kolbrúnar að því að verða fjárhagslega sjálfstæð Þæ...
Samgöngur eru þriðji stærsti útgjaldaliðurinn - Þorsteinn Hermannsson 05.10.2021 1:01:49
Þorsteinn Hermannsson er samgöngustjóri Reykjavíkur en er nú í tímabundnu starfi hjá Betri samgöngum. Samgöngur eru mjög stór þáttur við rekstur heimila og er áætlað að þau séu í dag þriðji stærsti útgjaldaliðurinn á eftir húsnæði og matarinnkaupum. Kostnaður við rekstur bíls er áætlaður um 120 þúsund á mánuði. Betri samgöngur eru með stór áform um uppbyggingu almenningssamgangna með Borgarlínu...
Hlutabréf á heimsmarkaði 21.09.2021 1:30:26
Svandís R. Ríkharðsdóttir og Sigurður B. Stefánsson ræða hér nýútkomna bók sína Hlutabréf á heimsmarkaði - eignastýring í 300. Bókin byggir á langri reynslu og þekkingarleit höfunda sem hafa sérhæft sig í eignastýringu á hlutbréfum. Hlutabréf eru besta leiðin til að byggja upp eignir. Í Hlutabréfum á heimsmarkaði - eignastýring í 300 ár er leitast við að auka skilning og gefa betri yfirsýn um...
Gjaldþrot og greiðsluerfiðleikar - Lovísa Ósk Þrastardóttir 14.09.2021 58:49
Lovísa Ósk Þrastardóttir starfar sem yfirlögfræðingur hjá Umboðmanni skuldara. Hún þekki mjög vel fjárhagserfiðleika einstaklinga og afleiðingar þeirra. Í þessum þætti ræðum við því erfiðleika þegar kemur að fjármálum Hvað gerir Umboðsmaður skuldara? Hvernig er staðan í dag þegar kemur að greiðsluerfiðleikum? Hvað einkennir hópinn sem leitar til Umboðsmanns skuldara. Hvað er greiðsluaðlögun og...
Hvað er eiginlega að gerast á húsnæðismarkaði? - Páll Pálsson 07.09.2021 2:01:32
Páll Pálsson er fasteignasali með fimmtán ára reynslu og kemur nú sem viðmælandi í Leitina að peningunum í annað sinn. Meginumfjöllunarefni þáttarins er staðan á húsnæðismarkaði um þessar mundir, sem einkennist af litlu framboði og mikilli eftirspurn eftir húsnæði. Þar fyrir utan ræðum við: Hvaða þýðingu það hefur að fyrirvarar við tilboð í fasteignaviðskiptum séu til vandræða fyrir kaupendur Hva...
Raggi Bjarna var fyrsti fjármálaráðgjafinn - Páll Óskar Hjálmtýsson 31.08.2021 2:02:22
Páll Óskar Hjálmtýsson er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hann hefur skemmt Íslendingum frá árinu 1991 og gengið í gegnum ýmislegt þegar fjármál eru annars vegar. Í þessum þættir ræðum við: Ráðleggingarnar frá Ragga Bjarna Mikilvægi þess að fá ekki leið á slögurunum sínum Breyttan heim listamanna í Covid Tekjurnar af plötusölu og Spotify Fjárhagsvandræðin upp úr aldamótum Hvort peningar sé...
Að lesa ársreikninga - Silja Ósvaldsdóttir 24.08.2021 1:08:52
Silja Dögg Ósvaldsdóttir er framkvæmdastjóri bókhaldsfyrirtækisins Fastlands sem sérhæfir sig í öllum hliðum fjármála fyrir atvinnurekstur. Fyrirtækið sinnir bókhaldsþjónustu og útbýr ársreikninga fyrir mörg hundruð fyrirætki á hverju ári. Í þessum þættir ræðum við: Hvernig nálgast ég ársreikninga á netinu? Hvað er ársreikningur? Hvernig les maður úr ársreikningi? Hvað segir ársreikningur manni u...
Borgar menntun sig og fleira forvitnilegt - Konráð S. Guðjónson 17.08.2021 1:19:23
Konráð er hagfræðingur og starfar sem aðstoðar framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Konráð hefur velt fyrir sér hinum ýmsu málum samfélagsins og deilir þeim reglulega á Twitter. Í þessu viðtali ræðum við. Borgar menntun sig? Hvaða menntun skilar mestum tekjum? Muninn á tekjum háskólamenntaðra og þeirra sem aðeins eru með grunnmenntun. Af hverju er tekjujöfnun há hér á landi? Af hverju er svona...
Sumarfrí 02.08.2021 0:28
Leitin að peningunum er komin í tveggja vikna sumarfrí. VIð mætum aftur með nýjan þátt 17 ágúst nk.
Framtíðin og fjármál - Bergur Ebbi 27.07.2021 1:48:00
Bergur Ebbi er rithöfundur og fyrirlesari. Hann lærði lögfræði og vann sem slíkur í nokkur ár í banka en í kjölfarið á því að hann fór að byrja í uppistandi færði hann sig hægt og rólega í núverandi starfsvettvang. Hann hefur undanfarin ár pælt mikið í framtíðinni og skrifað bækurnar Stofuhita og Skjáskot sem fjalla um tíðarandann, tæknina og þær miklu breytingar sem þær hafa á hegðun okkar og sam...
Að kaupa notaðar vörur - Ruth Einarsdóttir 20.07.2021 46:03
Ruth Einarsdóttir starfar sem rekstrarstjóri nytjamarkaðs SORPU Góða hirðinn. En Góði hirðirinn skilar öllum hagnaði til góðgerðarmála. Ruth hefur lengst af starfað í verslun og í fatageiranum þangað til hún tók við Góða hirðinum fyrir þremur árum síðan sem aðallega selur húsmuni og húsgögn. Í þessu viðtali ræðum m.a: Hvernig umhverfið fyrir sölu á notuðum vörum hefur breyst á nokkrum árum Mi...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.