Umboðsmaður skuldara
Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Author
Umboðsmaður skuldara
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 3, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Verndun og viðhald fasteigna - Stefán Árni Jónsson. 08.03.2024 1:01:03
Í þessu viðtali fer Stefán Árni Jónsson yfir hvernig við verndum og viðhöldum fasteignum okkar.
Að lenda í kulnun - Íris Dögg Kristmundsdóttir 11.01.2024 1:07:51
Íris Dögg vann mikið og var með mörg járn í eldinum. Þangað til allt í einu hún fór að finna til heilsubrests sökum álags. Við ræðum í þessum þætti um kulnun og hvernig allir geta lent í því ástandi og hvað það þýðir fyrir starfsframa og lífið yfir höfuð.
Að landa réttu starfi - Geirlaug Jóhannsdóttir 12.10.2023 1:10:23
Geirlaug Jóhannsdóttir starfar sem framkvæmdastjóri Hagvangs og býr að langri reynslu mannauðs- og ráðningum. Hún ræðir hér um hversu miklu máli góður undirbúningur skipti máli atvinnuviðtali og gefur góð ráð fyrir undirbúning slíkra viðtala. Hvernig við semjum um laun og margt fleira.
Fjármálaáföllin í kjölfar áfallsins að missa maka - Karólína Helga Símonardóttir 28.09.2023 54:23
Karólína Helga Símonardóttir ræðir í þessum þætti um áfallið sem fylgir því að missa maka. Hún fer yfir það áfall og áhrif þess á fjárhag heimilins. Hvernig viðhorfin breytast og hvað hún hefði viljað gera öðruvísi.
Boring but profitable, hvernig kaupir maður fyrirtæki - Steinar Þór Ólafsson 14.09.2023 58:12
Steinar Þór hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hann keypti nýverið steinsmiðjuna Rein ásamt félaga sínum auk þess sem hann sinnir störfum fyrir Samtök fyrirtækja í Sjávarútvegi sem sérfræðingur í samskiptum. Steinar hefur auk þess starfað í markaðs- og samskiptamálum hjá flugfélaginu Play, Viðskiptaráði og Skeljungi. Hann hefur náð miklum árangri á LinkedIn og deilir með hlustendum r...
Lífeyrismálin í lykilhlutverki - Björn Berg Gunnarsson 17.08.2023 1:05:05
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi fer hér yfir allar hliðar lífeyrismála og hvernig við skipuleggjum þessi mál þannig að við getum átt áhyggjulaust ævikvöld. Við ræðum líka hvernig það er að fara úr stórum banka í sjálfstæðan rekstur og kosti og ókosti þess að vinna fyrir sjálfan sig.
Hvað ber að skoða við fasteignakaup? - Simmi smiður 29.06.2023 1:16:40
Sigmundur. G. Hermannsson, Simmi smiður, hefur mikla reynslu af því að skoða fasteignir og galla og viðhald. Hann fer yfir það hér hvað ber að skoða sérstaklega.
Skipti jakkafötunum út fyrir rakarastofuna - Guðfinnur Sigurvinsson 08.06.2023 1:37:18
Guðfinnur Sigurvinsson skipti um kúrs í lífinu og fór að læra hárskurð eftir starfsframa í fjölmiðlum og í almannatengslum.
Þriðja æviskeiðið - Tryggvi Pálsson 18.05.2023 1:24:18
Tryggvi er bankamaður sem hefur komið víða við. Hann hefur fjallað um hvernig við eigum að nálgast þetta æviskeið þegar við hættum að vinna. Hann sagðist hafa sett sér tvö markmið um ævina að hann ætlaði að verða hamingjumsamur og fjárhagslega sjálfstæður. Þetta viðtal ætti því að verða innblástur fyrir öll þau sem stefna að því.
Hvernig verður maður athafnarmaður - Steinarr Lár 04.05.2023 1:07:41
Steinarr Lár er þekktastur fyrir að hafa stofna KúKí campers sem hann síðan seldi fyrir fullt af peningum. Hann hefur líka stofnað fullt af fyrirtækjum og hann hefur lært mikið um hvernig maður fer vel með peninga og hvernig maður getur náð árangri í þeim leik.
Fundið fé - Dagbjört Jónsdóttir 20.04.2023 1:04:05
Dagbjört gaf út fyrir síðustu jól bókina Fundið fé,. Hún fer hér yfir sparnað og góða meðferð á fjármunum.
Verðum rík - Alexandra Ýrr Pálsdóttir 30.03.2023 45:19
Alexandra Ýrr Pálsdóttir er hjúkrunarfræðingur sem fór að huga að fjármálum nokkrum árum síðan. Hún stofnaði m.a. anars Instagramsíðuna Verdumrik til að kynnast fólki sem væri eins hugsandi og halda sér við efnið.
Fjármál í fangelsi - Guðmundur Ingi Þóroddsson 09.03.2023 1:04:59
Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu félags fanga og hefur sjálfur setið inni. Hann ræðir í þessu viðtali hvernig það er að lenda í fangelsi. Hvað það þýðir peningalega að lenda fangesli fyrir fjárhaginn. Af hverju er svona hátt endurkomuhlutfall fanga á Íslandi.
Matarsóun og betra líf - Ebba Guðný Guðmundsdóttir 22.02.2023 58:01
Ebba Guðný Guðmundsdóttir er leikkona, fyrirlesari og sjónvarpskona sem hefur lært mikið um matarsóun. Hún er lærður kennari sem reynir að gera hollan mat og minnka sóun í mat.
Spurt og svarað um meiri fjárfestingar - Már Wolfgang Mixa 09.02.2023 1:26:23
Már Wolfgang Mixa starfar sem dósent við Háskóla Íslands. Hann hefur langa starfsreynslu af fjárfestingum og stýringu fjármuna í íslensku bankakerfi og erlendis. Hann var til viðtals árið fyrir nærri tveimur árum síðan í vinsælasta þætti Leitarinnar að peningunum þar sem hann fór yfir fjárfestingar. Nú þegar kólnað hefur í hagkerfinu er áhugavert að heyra hvernig hann sér fyrir sér umhverfi til...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.