Samfylkingin

Kratinn

News IS ↓ 40 episodes

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

Author

Samfylkingin

Category

News

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jun 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi 12.06.2026

Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins. Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gja...

S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin 04.06.2026

Þátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag. Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur af Alþingi og fyrstu verk nýrrar borgarstjórnar ásamt fleiru.

S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB! 28.05.2026

Farið var yfir meirihlutamyndanir í Reykjavík og Hafnarfirði, rætt var um brakandi ferskar og lækkandi verðbólgutölur og svo um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

S233: Uppgjör eftir kosningar 21.05.2026

Farið var yfir sveitarstjórnarkosningarnar, rætt um kosningabaráttuna og niðurstöður í Reykjavík og á landsvísu.

S232: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum 07.05.2026

Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals. Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjav...

S231: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir Reykjavík 30.04.2026

Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði. Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortu...

S230: Fyrstu skrefin tekin í sameiningu Seltjarnar- og Akraness og staðan í Ölfusi 23.04.2026

Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár? Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali. Gunnsteinn R....

S229: Allt klárt í Kópavogi með Jónasi og Eydísi 16.04.2026

Oddviti Samfylkingar í Kópavogi, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir sem skipar 2. sæti listans kíktu í heimsókn og ræddu málin við þá Arnar og Val. Farið var yfir nýtt útspil Samfylkingarinnar sem kynnt var í síðustu viku og ber heitið Tökum ábyrgð hvert á öðru en Jónas leiddi þá vinnu. Barnaskatturinn í Kópavogi er eitthvað sem þau vilja afnema og þau vilja breyta opnunartíma sundlauga....

S228: Bjart yfir Reykjavík með Steinunni og Regínu 09.04.2026

Frambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna framundan. Rætt var um jákvæða hluti í borginni eins og frístundamiðstöðvar og græn svæði, reksturinn og leikskólamálin. Nú eru fimm vikur til kosninga og baráttan er að fara á fullt. Þær hvetj...

S227: Karate, húfueftirlit ríkisins og gremjupólitíkusar á jaðrinum 02.04.2026

Krati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú þegar einn og hálfur mánuður er til kosninga. Pétur ræðir meðal annars um Breiðholtið, mikilvægi íslenskukennslu, hvað sundlaugar og íþróttastarf sem miðja hverfa gefur Íslandi mikla sérstöðu...

S226: Eru ekki allir forvitnir? 26.03.2026

Um helgina fór fram afar vel heppnaður flokksstjórnarfundur. Hvað er flokkstjórnarfundur? Við fórum yfir það og stæla í stjórnarandstöðunni varðandi vindmyllur og bændamóttökur ásamt almennri Evrópu-umræðu. Viðmælandinn í dag er oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, Ólafur Ingi Óskarsson.

S225: Stýrivaxtahækkun og ein lengsta umræða um fyrri þingsályktunartillögu í sögunni 19.03.2026

Í nýjasta þætti Kratans förum við yfir helstu mál vikunnar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti bæði vegna innri og ytri þátta. Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu var ein sú lengsta í sögunni og Evrópumálin því aðeins rædd aftur. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal Arnars Þórs við oddvita Samfylkingarinnar á Akureyri.

S224: Stjórnarandstaða sem óttast að sumarfríið styttist 12.03.2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli stjórnarandstöðunnar undanfarna daga ásamt því að ræða um kosti Evrópusambandsins. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Kristinn Ólafsson “Seltjarnarneskempu” sem leiðir S listann þar.

S223: Fylgiskannanahlaðborð, ævintýri í kjördæmaviku og GÁS ræðir Kratabylgjuna í Hafnarfirði 05.03.2026

Í þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars Níelssonar sem bætti síðast við sig fylgi árið 2017. Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fær „shoutout“ fyrir frækna frammistöðu við björgun þingmanna í Skötufirði í síðustu viku og sú saga sögð fr...

S222: Siðrof í kjördæmaviku 26.02.2026

Það er kjördæmavika og þingmenn og starfsfólk því á fleygiferð um kjördæmin. Farið var yfir dagskrána framundan og það sem hefur drifið á daga okkar undanafarið. Rætt var um Vinstrið, Brynjar Nielsson og Loga Einarsson sem virðist hafa komið heim á töfrateppi frá Indlandi.

S221: Er Framsókn vídjóleiga nútímans? 19.02.2026

Í Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að verða formaður í þeim flokki sé sambærilegt og að erfa vídjóleigu árið 2026. Önnur framboðsmál eru rædd, Píratahornið er á sínum stað, velt er upp hvert Sjálfstæðisflokkurinn ætti helst að flytj...

S220: Gusumeistarar, nýju jógakennararnir og Framsókn í sjálfsmyndarkrísu 12.02.2026

Í Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl". Í seinni hluta þáttarins má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem farið er nánar yfir prófkjörið og næstu skref.

S219: Kjósendur elska Samfylkinguna sína (staðfest) 05.02.2026

Í Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað prófkjör. Þá er farið á dýptina í umræðu um hvort Íslendingar séu meðvitaðir neytendur og þáttastjórnendur skilgreina sig út frá þeim menntaskóla þeir voru í. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Gu...

S218: Verðandi borgarstjóri Reykjavíkur og nýliðið flokksval Samfylkingarinnar 29.01.2026

Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun Maskínu. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Pétur H. Marteinsson, verðandi borgarstjóra Reykjavíkur.

S217: Vinstrið sem gekk í Sönnu og hægrið sem ætlar í stríð um Borgarlínu 22.01.2026

Arnar, Ásta, Sonja og Þórður fóru yfir mál sem gengið hafa á undanfarna daga. Rætt var um hálku og handbolta, tilraun vinstrisins til að sameinast og sýn Miðflokks og sumra Sjálfstæðismanna á Borgarlínuna. Í síðari hluta þáttarins má heyra viðtal við Guðmund Ara Sigurjónsson um menntamálin.

S216: Sveitarstjórnarkosningar og kostnaður hvert atkvæði 15.01.2026

Kratinn er mættur aftur eftir jólafrí og í þessari viku voru þau þrjú, Arnar Þór Ingólfsson, Sonja Huld Guðjónsdóttir og Þórður Snær Júlíusson. Þau ræddu komandi sveitarstjórnarkosningar, breytingar á ráðherraskipan og kostnað við hvert atkvæði hjá flokkunum í kosningabaráttunni í hittiðfyrra en stjórnarandstaðan greiddi þrefalt meira fyrir hvert atkvæði en flokkar í stjórn.

S215: Ársuppgjör og valkyrjur með doktorsgráðu í breytingastjórnun 17.12.2025

Síðasti þáttur fyrir jól. Í tilefni af því fórum við yfir þingveturinn, krýndum best klædda þingmanninn, besta þingmannamálið, verstu ræðuna og ýmislegt fleira. Hlökkum til að mæta með nýtt kratakrydd eftir áramót. Gleðileg jól!

S214: Er Sjálfstæðisflokkurinn hinir nýju Píratar? 10.12.2025

Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Valur og Þórður yfir helstu fréttir vikunnar. Viðbætur sem samþykktar voru í 2. umræðu um fjárlögin, samgönguáætlun sem var kynnt fyrir viku og svo var því velt upp hvort að Sjálfstæðisflokkurinn væri í raun orðinn að Pírataflokki. Í seinni hluta þáttar kom Jóhannes Óli Sveinsson, forseti ungs jafnaðarfólks, í viðtal til Vals og ræddi um forprófkjör til sveitarstjórnak...

S213: Ár frá kosningum 03.12.2025

Ár er liðið frá því að þjóðin kaus breytingar. Í tilefni af því fara þau Arnar, Ásta, Sonja og Þórður yfir það besta sem ríkisstjórnin hefur gert hingað til. Svo er verðbólga að lækka, er sleggjan mætt? Þetta og ýmislegt fleira. Í seinni hluta þáttar er viðtal við Örnu Láru Jónsdóttur sem er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og situr einnig í fjárlaganefnd.

S212: Stóra tollamálið og hin ýmsu viðbrögð flokkanna 26.11.2025

Stór hluti þáttar fór í að ræða verndaraðgerðir ESB gegn kísilframleiðslu. Guðrún Hafsteinsdóttir talaði um glæpamennina í Evrópusambandinu, Sigurður Ingi stakk upp á að fara í tollastríð og Miðflokkur sagði EES samninginn í uppnámi. Í seinni hluta þáttar ræðir Arnar Þór Ingólfsson við Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um loftslagsmálin en hún er nýlega komin heim af COP30 í Brasilíu.

Listen to the Kratinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.