Samfylkingin
Kratinn
Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.
Author
Samfylkingin
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 12, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
S211: Efnahagsmálin á mannamáli 19.11.2025 57:22
Í þættinum fóru Arnar, Ásta, Þórður og Valur yfir fréttir vikunnar. Efnahagsmálin voru fyrirferðarmikil enda gengur vel, tiltekt í ríkisrekstri hefur skilað raunverulegum árangri og nú heldur vaxtalækkunarferlið áfram. Í síðari hluta þáttarins ræddi Sonja við Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formann ÖBÍ um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
S210: Fagurfræðilega ómöguleg lausn framkallar samsæriskenningu á forsíðu Morgunblaðs 12.11.2025 51:35
Í Krata dagsins er kafað ofan í ótrúlega fyndna, ranga og nett brjálaða forsíðufrétt Morgunblaðsins, nýja ásýnd Sjálfstæðisflokksins sem felur í sér að horfa til fortíðar og hvort það sé ekki bara fínt að fá á sig Kristrúnar Frostavetur. Farið er yfir ríkislögreglustjóramálið, eða JYSK-skandalinn, og skýrt af hverju það þurfi að setja lög um snjallsímabann í skólum. Í síðari hluta þáttarins ræðir...
S209: Kratabylgjan sem tröllríður heiminum og stóri fallegi húsnæðispakkinn 05.11.2025 45:35
Í þætti dagsins er fjallað um stöðu ríkislögreglustjóra, kratabylgjuna sem fer nú um heiminn, nýjustu könnun á fylgi flokka, vandamál Pírata við að kjósa sér formann og Arnaldarvísitöluna, svo fátt eitt sé nefnt. Í síðari hluta þáttarins er fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar svo krufinn.
S208: Málefnastarf og efnilegir Kratar 29.10.2025 53:40
Valur ræsti varaliðið út þessa vikuna og fór yfir fréttir með þeim Bjarnveigu Birtu og Jóla. Jónas Már kom svo í spjall um málefnastarf Samfylkingarinnar sem nú er í fullu fjöri.
S207: Kvennasamstaða, sveitarfélög og íslenski fáninn 22.10.2025 49:13
Í þættinum fara þau Sonja, Valur, Ásta og Arnar yfir fréttir vikunnar og í síðari hluta heyrum við viðtal Arnars við Kristján Þórð en hann stóð fyrir sérstakri umræðu um launaþjófnað og mansal í síðustu viku.
S206: Maine coon, Laxness og leikskólamál 15.10.2025 49:21
Í þættinum í dag fara Ásta, Sonja, Valur og Þórður yfir fréttir vikunnar sem voru nokkuð margar og vítt og breitt um sviðið. Í seinni hluta þáttar heyrum við viðtal við Dagbjörtu Hákonardóttur um þingmannamál sem hún lagði fram í síðustu viku um leikskólamál.
S205: Varnir Alþingis og varnir Íslands 07.10.2025 51:08
Öryggismálin eru á oddi í þessum þætti. Farið var yfir nokkrar fréttir vikunnar, öryggisbrot á Alþingi, Reykjavíkurleiðina og fleira og í seinnipart þáttar heyrum við viðtal við Víði Reynisson, einn helsta varnar- og öryggissérfræðing landsins.
S204: Veðmálastarfsemi og vendingar vikunnar 30.09.2025 48:26
Farið var yfir fréttir síðustu daga, fall Play, ótrúlega frásögn af Birgi Þórarinssyni, frábæran flokksstjórnarfund, hrókeringar í Miðflokknum og það hvort búið sé að eyðileggja Reykjavík eins og sumt stjórnmálafólk virðast halda. Viðmælandi þáttarins var Sigurþóra Bergsdóttir sem ræddi um ólögmæta veðmálastarfsemi við Þórð.
S203: Sokkar, bolir og afsökunarbeiðni frá Samfylkingunni 24.09.2025 35:56
Í þessum þætti fara Arnar, Sonja og Þórður yfir ýmis mál sem báru á góma í fréttavikunni. Þátturinn hefst á afsökunarbeiðni fyrir hönd Samfylkingarfólks í Reykjavík.
S202: Kristrún Frostadóttir 17.09.2025 55:58
Forsætisráðherra mætti í spjall til Þórðar Snæs og var á nokkuð persónulegum nótum. Á fjórum árum fór hún úr því að verða þingmaður yfir í að gegna embætti forsætisráðherra. Hún fer yfir það og margt fleira.
S201: Forsetaslagur í UJ 10.09.2025 44:02
157. löggjafarþing er sett og hlaðvarp Kratans snýr aftur. Í þessum fyrsta þætti vetrarins tökum við frambjóðendur til embættis forseta Ungs jafnaðarfólks tali.
S104: Logi Einarsson 18.06.2025 46:18
Logi, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands er gestur í hlaðvarpsþætti Kratans í þessari viku. Hann var formaður Samfylkingarinnar árin 2016 -2022.
S103: Oddný Harðardóttir 11.06.2025 49:50
Þriðji viðmælandi Þórðar er Oddný G. Harðardóttir sem var fyrst kvenna fjármálaráðherra á Íslandi. Hún var formaður Samfylkingarinnar árið 2016.
S102: Árni Páll Árnason 04.06.2025 50:47
Árni Páll er gestur í öðrum þætti okkar í Kratanum. Hann fer yfir sinn pólitíska feril og formannstíð og ræðir jafnaðarmennskuna.
S101: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 28.05.2025 1:03:00
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrsti viðmælandi Þórðar Snæs Júlíussonar þar sem hún ræðir um sinn stjórnmálaferil og þátttöku í starfi jafnaðarfólks um áratugaskeið.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.