Óli Jóns

Jóns

Business IS ↓ 196 episodes

Hlaðvarp um sölu og markaðsmál

Author

Óli Jóns

Category

Business

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Nov 2, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

FKA Dísa Óskarsdóttir 24.06.2020

Næst á dagskrá í þessari nýju þáttaröð þar sem Óli Jóns hittir FKA konur er Dísa Óskarsdóttir. Ég heimsótti Dísu í Skjaldarvík rétt við Akureyri þar sem hún rekur gistiheimili. Dísa sem er grafískur hönnuður hefur skreytt gistiheimilið með verkum sem hún sjálf hefur gert. Á Skjaldarvík er líka hestaleiga og veitingastaður, þegar ég kom í heimókn var frekar rólegt yfir staðnum enda Kovid búið að ha...

94. Magnús Hafliðason 24.06.2020

Magnús er í dag forstöðumaður samskipta og markaðssviðs Sýnar. Magnús starfaði í mörg ár hjá Dominos, einnig hjá Joe & the Juice ásamt því að sitja í stjórn ÍMARK og fjölda fyrirtækja. Magnús segir okkur frá árunum hjá Dominos og muninum á því að starfa að markaðsmálum annars vegar á Íslandi svo hinum norðurlöndunum.

FKA Sigríður Hrund Pétursdóttir 22.06.2020

Ný þáttaröð þar sem Óli Jóns tekur púlsinn á FKA konum. Sigríður Hrund Pétursdóttir eigandi Vinnupalla ehf, fjárfestir og FKA kona ríður á vaðið í fyrsta þætti af þessari nýju þáttaröð. Við ræðum meðal annars, lífið, menntun, fyrirtækjarekstur, fjölskyldulíf og jafnrétti. Áhugavert og skemmtilegt viðtal við Sigríði.

93. Haukur Jarl Kristjánsson 19.06.2020

Haukur Jarl er titlaður hjá Performance Marketing Director hjá The Engine sem er hluti af Pipar/TBWA en hann hefur starfað að markaðsmálum í mörg ár. Í þessu viðtali spjöllum við Haukur um ýmislegt sem snýr að SEM (searh engine marketing) um markmiðasetningu mælingar og margt fleira. Haukur hefur starfað fyrir mörg stór vörumerki hér heima og erlendis ástamt því að vinna til verðlauna fyrir störf...

92. Andri Jónsson 10.06.2020

Andri Jónsson stofnaði Barnaloppuna ásamt Guðríði Gunnlaugsdóttur. Barnaloppan sem er að erlendri fyrirmynd er staður þar þú getur keypt og selt notaðar barnavörur. Á barnaloppan.is segir; "Í Barnaloppunni getur þú bæði keypt og selt notaða barnavöru, allt frá fötum og leikföngum til barnavagna og bílstóla. Sem seljandi leigir þú bás (erum með 205 bása til leigu) í eina viku að lágmarki og verðleg...

91. Þórhildur Edda Gunnarsdóttir 03.06.2020

Þórhildur Edda eigandi og ráðgjafi hjá Parallel er gestur Óla Jóns í þætti 91. Parallel sérhæfir sig í greiningu og stjórnun stafrænna verkefna, innleiðingu nýrra verkferla og stefnumótun fyrir stafræna umbreytingu. Í þessu viðtalið kryfjum við hvað stafræn umbreyting er, afhverju hún er mikilvæg og fyrir hverja hún er. Þórhildur segir okkur frá ferlinu sem þau hjá Parallel fóru í gegnum með Kring...

90. Ari Steinarsson 26.05.2020

Ari Steinarsson er gestur þáttar númer 90, Ari kom líka í heimsókn til Óla Jóns í þætti 2. Margt hefur gerst hjá Ara síðan þá, helst ber auðvitað að nefna að hann er orðinn afi. Ari hefur einnig ásamt fleirum stofnað fyrirtækið YAY þar sem hann er framkvæmdastjóri.

89. Andri Heiðar Kristinsson 20.05.2020

Andri Heiðar er gestur Óla í þætti 89. Umræðuefnið er verkefnið Stafrænt Ísland. á stafraent.island.is segir um verkefnið "Við vinnum að margvíslegum verkefnum sem öll stuðla að því að gera opinbera þjónustu skilvirkari og notendavænni."

88. Leiry Seron 13.05.2020

Í þessum þætti sem er frumraun Óla að taka viðtal í gegnum fjarfundabúnað ræðir hann við Leiry Seron en hún er frá Honduras. Leiry kom til Íslands fyrir nokkrum árum og heillaðist alveg, hún hefur meðal annars búið í Reykjavík og á Þingeyri. Leiry er grafsíkur hönnuður og frá heimalandi sýnu en lagði einnig stund á nám við Listaháskóla Íslands. Leiry heldur úti hlaðvarpi sem hún kallar Creative De...

87. Gunnar Þór Sigurjónsson 08.05.2020

Gunnar Þór Sigurjónsson er gestur minn í þætti 87. Gunnar Þór er upplýsingaöryggisstjóri hjá samkeppniseftirlitinu og ljósmyndari. Gunnar segir okkur frá starfi sýnu hjá samkeppniseftirlitinu og kemur með góð ráð varðandi upplýsingaöryggi. Hann segir okkur frá því hvað ber að varast til dæmis í sambandi við lykilorð og hvaða tölvupóstföng við erum að nota.

86. Edda Hermannsdóttir 07.05.2020

Edda Hermannsdóttir kom í heimsókn og sagði okkur frá nýútkominni bók sinni Framkoma.

85 Jón Ingi Gunnarsson 30.04.2020

Jón Ingi er verslunarstjóri hjá Iceland Engihjalla. Hann segir okkur frá áskorunum í sýnu starfi, kostina og gallana. Jón Ingi hefur starfað í 17 ár í matvöruverslunum og hefur því mikla reynslu á þessu sviði. Jón Ingi segir okkur líka frá því hvernig þau hafa þurft að bregðast við vegna Covid 19 hjá Iceland, hvernig starfsfólk og viðskiptavinir hafa brugðist við. Einnig segir Jón Ingi okkur frá þ...

84. Ólöf Rún Tryggvadóttir 22.04.2020

Ólöf Rún Tryggvadóttir stofnaði Eylíf heilsuvörumerkið 2018, eftir að hafa selt fyrirtækið sitt, IceCare árið 2017. Hún segir frá sínum ferli fram að stofnun fyrirtækisins, hvers vegna hún seldi það og hvaða verkefni það eru sem hún er að fást við í dag með Eylíf og framtíðarplönin.

83. Fjóla Guðrún Friðriksdóttir 15.04.2020

Fjóla G. Friðriksdóttir eigandi Spa of Iceland er gestur Óla í þætti 83. Fjóla rekur fyrir okkur sýna sögu í viðskiptalífinu á Íslandi. Fjóla rak ásamt manni sínum heildsölu sem seldi leikfangabíla til að byrja mér en þróaðist svo síðar út í snyrtivörur ofl. Fjóla stofnaði með annars apótek og rak um tíma brugghús og veitingastað í í Grandagarði 8.

82. þáttur Paula Gould 08.04.2020

Í þessum þætti spjöllum við Paula Gould í annað sinn. Hún kom til mín í þátt 30 í júlí 2017. Við ræðum hvað á daga Paula hefur drifið síðan og þá helst nýja fyrirtækið hennar Float and Gather Á floatandgather.com segir: Founded by Paula Gould in the fall of 2019, Float and gather helps internationally-minded companies, entrepreneurs and artists strategize and execute on their go-to-market and grow...

81. Ásgeir Höskuldsson 26.03.2020

Ásgeir sem er markaðsstjóri Dohop kom í viðtal í byrjun mars. Hann fer yfir starfsferil sinn í þessu viðtali sem er mjög áhugaverður og skemmtilegur. Ásgeir hefur til dæmis starfað fyrir Niktia, Artic Adventures, West Tours og Cintamani. Við fáum að vita allt um starfsemi Dohop sem er tölvuvert meiri en margir vita.

80. Sturla Þórhallsson Splitti 18.03.2020

Sturla stofnaði fyrirtæki Splitti með félaga sínum Hannesi Baldurssyni í upphafi árs 2019. Í þessu viðtali segir Sturla okkur frá Splitti, hversvegna það varð til og hvað þjónustu þeir bjóða uppá.

79. Jón Gunnar Geirdal 04.03.2020

Gestur Óla Jóns í þætti 79 er athafnamaðurinn, námsmaðurinn, fjölmiðlamaðurinn og fjölskyldumaðurinn Jón Gunnar Geirdal. Jón fer yfir í þessu viðtali hluta af þeim fjölmörgu verkefnum sem hann hefur komið að í gegnum tíðina. Í fjölbrautarskólanum í Garðabæ hófst útvarpsferill Jóns þegar hann fór á dagskrárgerðarnámskeið hjá Þorsteini Joð ásamt félaga sínum Þór Bæring (viðmælanda í þætti 5). Jón st...

78. Ragnhildur Ágústsdóttir 26.02.2020

Í þessu þætti spjallar Óli Jóns við Ragnhildi Ágústsdóttir sem er með þann skemmtilega titil Sölustjóri samstarfsaðila og SMB fyrirtækja hjá Microsoft á Íslandi. Ragnhildur hefur hjá Microsoft í að verða 4 ár og hefur líkað mjög vel. Hún vinnur mest með samstarfsaðilum Microsoft á Íslandi, sem eru rétt ríflega 100 talsins ef allt er talið með. Starfið gengur í raun út á að ráðleggja samstarfsaðilu...

77. Birkir Fannar Einarsson 19.02.2020

Á dögunum fékk ég í heimsókn til mín Birkir Fannar Einarsson. Vestmanneyingurinn Birkir sem er nú ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og klikkar heldur ekki á því í þessu viðtali. Hann er markaðsstjóri Godo í dag, Godo er fyrirtæki sem er með alhliða þjónustu fyrir gististaði. Birkir rak auglýsingastofuna Verðandi í nokkur ár ásamt Steinþóri félaga sínum. Hann hefur sterkar skoðanir á st...

76. Björgvin Pétur Sigurjónsson 12.02.2020

Björgvin segir okkur í mjög opinskáu viðtali um hvernig það var að alast upp í körfuboltabænum Njarðvík án þess að hafa "íþróttagenin" í sér. Hann hefur alltaf verið hrifinn af sköpun, tók aðeins í gítarinn sem unglingur og er ný byrjaður á því aftur. Eftir að hafa farið í grafíska miðlum opnaðist þessi heimur fyrir Björgvin og línan þannig lögð. Vann um tíma hjá Morgunblaðinu eftir útskrift. Í fr...

75. Renata Sigurbergsdóttir Blöndal 05.02.2020

Í þetta skiptið fékk ég til mín Renötu Sigurbergsdóttur hún starfar í dag hjá Krónunni og er yfir viðskiptaþróunn þar. Renata hefur einnig starfað hjá Landsbankanum, Meniga og CCP og segir hún okkur störfum sínum þar og ólíkri menningu þessara fyrirtækja.

74. Ólafur Örn Nielsen 20.01.2020

Ólafur Örn kom í heimsókn til mín í nóvember síðastliðnum. Ólafur sagði okkur frá dögum sínum hjá Árvakri og Eddu útgáfu. Tíminn hjá WOW var líka ræddur þar sem Ólafur leiddi stafræna hlutann á upphafsárum WOW. Hann segir okkur líka frá því þegar hann og Steinar Ingi sem kom til mín í þátt 56 stofnuðu Form 5 sem síðar varð Kolibri.

73. Ellen Ragnars Sverrisdóttir 06.01.2020

Í fyrsta þætti ársins 2020 er viðtal sem ég tók við Ellen Ragnars Sverrisdóttur í nóvember 2019. Ellen segir okkur frá frumkvöðlaheiminum, frá sumarstörfum sínum í London á menntaskólaárunum, og fyrirtækinu hennar Ragnars.

72. Kristín Hrefna Halldórsdóttir FLOW 05.12.2019

Í þessum þætti spjalla ég við Kristínu Halldórsdóttur framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá FLOW. Kristín Hrefna er með MBA frá Háskóla Íslands og var í viðskiptaþróunarteymi Meniga í 5 ár en síðast var hún sérfræðingur í gagnagreiningu hjá Valitor. Á árunum 2007-2010 var Kristín Hrefna framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.

Listen to the Jóns podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.