Óli Jóns

Jóns

Business IS ↓ 196 episodes

Hlaðvarp um sölu og markaðsmál

Author

Óli Jóns

Category

Business

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Nov 2, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

FKA Silja Mist Sigurkarlsdóttir 30.09.2020

Silja Mist Sigurkarldóttir er markaðstrjóri Nóa Síríus. Í þessu viðtali segir Silja okkur frá því hvernig er að vera markaðsstjóri yfir einu af elstu vörumerkjum landsins. Við komum inn á vöruþróun, markaðsmál, starfsmannamál og auðvitað FKA.

FKA Eydís Rós Eyglóardóttir 22.09.2020

Eydís Rós er býflugnabóndi, ferðaþjónustubóndi, nautgripabóndi, viðskiptafræðingur, förðunarfræðingu, FKA kona og nemi í bændaskólanum á Hvanneyri svo fátt eitt sé nefnt. Þessi kraftmikla konu segir okkur sögu sína og útskýrir fyrir okkur hvað felst í því að vera með býflugur á Íslandi.

104. Bjarni K. Thors 16.09.2020

Bjarni stofnandi og eigandi Brandson kom í vital hjá Óla Jóns í sumar. Bjarni fer vel yfir hvernig ferlið er í sölu og markaðsmálum hjá honum, hvaða tól hann notar og hvernig.

FKA Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir 15.09.2020

Sigríður Bylgja er 33 ára gamall frumkvöðull sem er búin að vera að vinna af öllu sínu hjarta að verkefni undanfarin fimm ár sem er Tré Lífsins. Í þessu viðtali sem var tekið í sumar segir Sigríður okkur frá Tré lífsins frá menntun sinni og þeim ævintýrum sem hún hefur lent í sem er fjölmörg þrátt fyrir ungan aldur.

103. Silja Thor 11.09.2020

Silja Thor sem er Startup Coach hitti Óla Jóns í sumar í heimsókn sinni til Íslands. Silja hefur búið í 9 löndum en býr í núna í Hollandi. Hún hefur mikla reynslu í hinum stóra Startup heimi, hún segir okkur frá honum og sínu starfi. Silja segir okkur líka frá hjálparstarfi sem hún vinnur í Úganda ásamt ýmsu fleiru. Silja stendur einnig fyrir námskeiðum með Ellen Ragnars sem kom í þátt 73 á female...

FKA Ásta Guðmundsdóttir 10.09.2020

Ásta Guðmundsdóttir er forstöðumaður Kerfisreksturs og Framlínuþjónustu hjá Origo. Ásta segir okkur frá því að hún eignaðist barn áður en hún varð 18 ára eftir að hafa flosnað upp úr námi en svo kom vendipunktur þar sem hún ákvað að fara í meira nám og flutti á Bifröst. Þar kláraði hún viðskiptafræði og í kjölfarið fór hún svo til Bretlands í meistaranám í verkefnastjórnun. Ásta segir okkur þessum...

102. Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir 02.09.2020

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar er gestur Óla Jóns í þætti 102. Við ræddum markaðsmál, menntun, lífið og tilveruna. Hulda kemur einnig inn á hvernig er hægt að nýta sér betur samfélagsmiðla til markaðsetningar og algeng mistök í því sambandi. Við ræðum golf og fótbolta en Hulda sem er frá Akranesi starfaði um tíma hjá ÍA og er einnig menntaður golfkennari.

FKA Rakel Lind Hauksdóttir 02.09.2020

Rakel Lind Hauksdóttir er fjármála- og fjáröflunarstjóri hjá SOS barnaþorp. Í þessu einlæga viðtali segir Rakel okkur frá því meðal annars hvað varð til að hún hóf störf hjá SOS barnaþorp. Rakel segir okkur einnig frá starfseminni þar og sögunni. Rakel sem nýlega var kjörin í stjórn FKA framtíð segir okkur frá því hvers vegna hún telur mikilvægt að taka þátt í félagsstörfum ásamt því að segja okku...

101. Gréta María Grétarsdóttir 26.08.2020

Gréta sem ólst upp úti á landi segir það forréttindi að alast upp upp þar. Íþróttir hafa alltaf átt stóran þátt í lífi Grétu en hún á að baki glæstan feril í körfuboltanum bæði sem leikmaður og þjálfari. Hún þjálfaði meistaraflokk KR og segir okkur frá því að það hafi í raun verið fyrsta alvöru stjórnunarstaðan. Bæði sem þjálfari og stjórnandi hefur Gréta lagt áherslu á að hjálpa fólki að hafa trú...

FKA Ragnheiður H Magnúsdóttir 26.08.2020

Við höldum áfram að ræða við félagskonur FKA. Í þetta skiptið er það Ragnheiður H. Magnúsdóttir en hún er vélaverkfræðingur og master í framleiðsluverkfræði frá Álaborgarháskóla árið 2000. Ragnheiður segir okkur frá námi sínu, starfsferli fram að þessu ásamt því að koma inn á hin ýmsu mál varðandi jafnrétti og baráttumál kvenna.

100. Óli Jóns 12.08.2020

Þá er komið að þætti 100 af hlaðvarpinu með Óla Jóns. Þegar stefndi í að þessi þáttur væri á næsti leiti spurði ég á Linkedin hvern fólk vildi sjá í þessum hundraðasta þætti. Þórarinn Hjálmarsson stakk upp á því að tekið yrði viðtal við mig Óla Jóns og þessa vegferð. Þessi tillaga fékk góðan hljómgrunn og úr varð að hann tók viðtal við mig. Þórarinn sem er markaðsstjóri Félagsvísindasviðs Háskóla...

99. Freyr Ólafsson 05.08.2020

Freyr Ólafsson stjórnendaráðgjafi og formaður frjálsíþróttasambandsins er gestur minn í þætti númer 99 af Hlaðvarpinu á Jóns. Freyr sem er fjögurra barna faðir, íþróttafræðingur, tölvunarfræðingur og pistlahöfundur svo fátt eitt sé nefnt segir okkur frá lífi í leik og starfi í þessu viðtali. Freyr fer líka yfir hvað honum finnst mikilvægt í stjórnun fyrirtækja, hvar tækifæri liggja oþh.

FKA Snjólaug Ólafsdóttir 05.08.2020

Einn af síðustu viðmælendum mínum í þessari þáttaröð FKA og Jóns er dr. Snjólaug Ólafsdóttir. Snjólaug er doktor í umhverfisverkfræði frá Háskóla Íslands og með BS gráðu í efnafræði frá sama skóla. Hún valdi námið sem hún fór í af því að hún vildi kynnast umhverfinu og auka skilning sinn og annarra á því. Snjólaug fór í efnafræði til að læra betur um umhverfismál, og síðan í umhverfisverkfræðina í...

FKA Erla Ósk Pétursdóttir 28.07.2020

Erla starfar hjá fjölskyldufyrirtækinu Vísi hf í Grindavík. Í þessu spjalli segir hún okkur frá námi og starfi sínu í Bandaríkjunum, hvers vegna hún staldraði þar við eftir nám. 
Erla segir okkur líka frá því hvernig það er að alast upp við fiskinn og sjóinn og í fjölskyldurfyrirtæki. Einnig förum við inn á það hvernig viðhorf íslendinga hefur breyst gagnvart sjávarútvegsfyrirtækjum og öllum þeim...

FKA Svana Jóhannsdóttir 25.07.2020

Fyrir tæpum mánuði síðan koma í heimsókn til mín hún Svana Jóhannsdóttir eftir að hafa sent mér póst um að koma í spjall með þessari kynningu "Ég hef búið í Ecuador sem skiptinemi, í Argentínu til að læra að syngja tangó, í London sem aðstoðarleikstjóri og sýningarstjóri í fjórum leikhúsum á West End, í Barcelona sem viðskiptafræðinemi og seinna í spænskri sveit sem eiginkona sláturhússstjórans".

98. Harpa Guðmundsdóttir 23.07.2020

Það var mér sönn ánægja og mikill heiður að fá að spjalla í stutta stund við kjarnakonuna og frumkvöðulinn Hörpu Guðmundsdóttur núna í júli. Harpa sem er iðjuþjálfi tók þátt í því að stofan Vesturafl  sem er "geðræktar og virknimiðstöð fyrir fólk sem vegna sjúkdóma, veikinda og/eða annarra tímabundinna aðstæðna býr við skert lífsgæði og getur því ekki tekið eins virkan þátt í samfélaginu og það ós...

FKA Ágústa Sigrún Ágústsdóttir 21.07.2020

Það er óhætt að segja að Ágústa Sigrún sé með marga hatta. Hún er menntuð í og hefur starfað við markþjálfun, mannauðsstjórnun, sáttamiðlun, fararstjórn og söng svo eitthvað sé nefnt. Í þessu viðtalið fer Ágústa yfir þetta ásamt mörgu fleiru.

FKA Eva Magnúsdóttir 17.07.2020

Ég hitti Evu Magnúsdóttur í júní síðast liðnum og þar ræddum við um hennar líf og störf. Hún sagði mér frá fyrirtækinu sínu Podium en það býður uppá sérfræðikunnáttu í stefnumótun, sjáfbærni og ímynd fyrirtækja. Eva sagði okkur líka frá Landvættinum sem hún er að taka þátt og frá FKA.

FKA Thelma Kristín Kvaran 15.07.2020

Skemmtilegt viðtal við Thelmu Kristínu Kvaran þar sem hún segir okkur frá sínum náms og starfsferli, útskýrir fyrir okkur Jafnvægisvogina og ræðir um FKA framtíð og margt fleira.

97. Þór Sigurðsson 15.07.2020

Þór Sigurðsson frumkvöðull og stofnandi Expluria er viðmælandi Óla Jóns í þætti 97. Þór segir okkur frá startup verkefnum sem hann hefur komið að og kynnir okkur einnig fyrir Expluria. Á expluria.com segir um fyrirtækið "We believe connectivity and communication help create unforgettable travel experiences Expluria empowers tour operators, guides and booking offices, helping them provide unrivalle...

96. Þóranna Jónsdóttir 08.07.2020

Í þessum þætti fáum við að heyra í Þórönnu Jónsdóttir en hún er markaðs- og kynningarstjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Þóranna segir okkur frá SVÞ, og leiðinni frá leiklist og söng í störf við markaðsmál, hvað efnismarkaðssetning er og margt fleira.

FKA Lilja Bjarnadóttir 07.07.2020

Í þessum þætti fáum við að kynnast Lilju Bjarnadóttur. Lilja er með fyrirtækið Sáttaleiðin sem hún hefur rekið frá árinu 2015 og er ein af fáum starfandi sáttamiðlurum á landinu. Lilja hjálpar fólki að leysa ágreiningsmál af ýmsum toga, t.d. skilnaðarmál, umgengnismál, erfðamál, viðskiptadeilur, samskiptaerfiðleika á vinnustað og margt fleira.

FKA Hafdís Erla Bogadóttir 02.07.2020

Við höldum áfram að ræða við skemmtilegar FKA konur í þetta skiptið er það frumkvöðullinn Hafdís Erla Bogadóttir. Þessa dagana er hún og hennar fólk að kynna nýtt Ratleikjaapp. Appið er unnið í samvinnu við sveitarfélög og er það Akranesbær sem ríður á vaðið í tengslum við Írska daga.

95. Einar Þór Gústafsson 02.07.2020

Gestur minn í þetta sinn er Einar Þór Gústafsson meðstofnandi Getlocal sem er 4 ára sprotafyrirtæki sem hefur stækkað hratt. Í dag er Getlocal með 60 kúnna í 40 löndum. Einar segir að Getlocal sé einskonar Shopify fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.

FKA Olga Björt Þórðardóttir 29.06.2020

Olga Björt Þórðardóttir er útgefandi og ritstjóri bæjarblaðsins Hafnfirðingur. Hún er með BA gráðu í íslensku og MA í blaða- og fréttamennsku. Olga Björt segir frá því hvað varð til þess að hún valdi fjölmiðlun, eftir að hafa starfað víða á vinnumarkaði til að finna sína styrkleika og réttu fjalir. Hún kynntist fjölmiðlafræðum þegar hún kláraði „loksins“ stúdentspróf 32 ára í FB, eftir að hafa ste...

Listen to the Jóns podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.