Gulla og Lydía
Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi. Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós. Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Author
Gulla og Lydía
Category
Podcast website
Latest episode
May 12, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
18. Haust, húð, hár og tíska 29.08.2024 1:09:40
Lydía og Gulla tala um haustið og hvað fylgir því að haustið og veturinn sé að koma. Gulla gefur góð ráð um húðrútínu á veturnar og hvernig við ættum að hugsa um hárið. Einnig hvernig við getum klætt okkur í vetur. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagra m Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Tree hut sem fæst í Krónu...
17. Það er gott líf eftir ofbeldissamband! Jenný Kristín Valberg 22.08.2024 1:32:12
Trigger warning: í þessum þætti er rætt um ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar, kom í þáttinn. Jenný er menntuð í kynjafræði, mannfræði og opinberri stjórnsýslu og hefur gríðarmikla reynslu og þekkingu á sviði ofbeldis. Hún hefur sjálf lifaða reynslu af ofbeldi, en hún var í ofbeldissambandi í 13 ár. Jenný fræðir okkur um andlegt og líkamlegt ofbeldi, birti...
16. Gulla og strákarnir 15.08.2024 1:30:37
Gulla segir frá gömlu ofbeldissambandi og öðrum óheilbrigðum samböndum sem hún hefur verið í áður en hún hitti þann eina rétta, dásamlegan eiginmann sinn. Persónulegur og á köflum átakanlegur þáttur. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Tree hut sem fæst í Krónunni - Lúx hár og...
15. Innsæið og hættulegur mafíuforingi 08.08.2024 1:21:32
Lydía og Gulla tala um innsæið í þættinum. Hvað er þetta innsæi og skiptir einhverju máli að hlusta á það? Vinkonurnar verða óvart mjög persónulegar í þættinum en þær höfðu ekki planað það fyrirfram. Umræðan leiðir þær meira að segja að frásögn um mjög hættulegar aðstæður sem Gulla lenti í með mafíuforingja frá Afríku og kvenréttindi. Takk fyrir að hlusta! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á s...
14. Ég fer í nærbuxur fyrir Jesú! Ágústa Kolbrún Roberts 01.08.2024 1:48:06
Jógadrottningin Ágústa Kolbrún Roberts mætti í þáttinn til Gullu og Lydíu. Ágústa hefur verið í jóga frá 17 ára aldri og hefur lengi kennt jóga og verðandi jógakennurum. Hennar markmið var að allir á Íslandi vissu hvað jóga væri. Hún hefur verið brautryðjandi í jóga á Íslandi en jafnframt farið út fyrir kassann og stundum stuðað fólk með jóga og heilun, til dæmis með því að tala um píkuheilun. Þát...
13. Hreyfing og kvenheilsa. Aðalheiður Jensen. 25.07.2024 1:28:12
Gulla og Lydía fengu líkamsræktardrottninguna Aðalheiði Jensen í þáttinn. Aðalheiður hefur verið líkamsræktarþjálfari í fjölmörg ár. Fyrst var hún barnajógakennari, svo með námskeiðið Kröftugar konur en mun í ágúst opna sína eigin stöð, Tilveruna heilsusetur. Þar mun hún bjóða upp á ýmisskonar námskeið, t.d. Kröftugar konur, Barre og Rope jóga. Aðalheiður lætur sig konur varða og hennar aðaláhuga...
12. Hvað er sjálfsvinna og hver gætu fyrstu skrefin verið? 18.07.2024 1:15:28
Lydía og Gulla hafa fengið spurningar frá hlustendum um sjálfsvinnu. Þær reyna að svara þessum spurningum í þættinum. Hvað er sjálfsvinna? Hvernig veit maður hvaða sjálfsvinnu er gott að fara í? Hvar byrjar maður? Vinkonurnar verða óvart mjög persónulegar í þættinum en þær höfðu ekki planað það fyrirfram. Þátturinn er því blanda af upplýsingum um sjálfsvinnu og persónulegum sögum. Takk fyrir að hl...
11. Er hægt að taka töflu við streitu? Katla Hreiðarsdóttir 14.07.2024 1:21:17
Gulla og Lydía fengu kjarnorkuverið Kötlu Hreiðarsdóttur, úr Systrum og mökum, í þáttinn. Katla er með mörg járn í eldinum. Hún á fatamerkið Volcano design þar sem hún hannar fötin sjálf, framleiðir á Íslandi og selur. Hún rekur hönnunarverslunina Systur og makar. Hún er menntuð sem innanhúshönnuður og heldur úti mjög vinsælum reikningi, Systurogmakar, á instagram. Hún á einnig stóra fjölskyldu en...
10. Spilum saman samskiptaspil 07.07.2024 1:02:16
Gulla og Lydía ákveða að spila samskiptaspil í þættinum. Þær spyrja hvora aðra erfiðra, djúpra og skemmtilegra spurninga um lífið og tilveruna. Við hvetjum þig til þess að spyrja sjálfa(n) þig sömu spurninga þegar þú hlustar! Kannski lærir þú eitthvað um þig. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Ste...
9. Lífið eftir fertugt 27.06.2024 59:07
Gulla og Lydía skoða hvort lífið breytist eftir fertugt. Stundum heyrist sagt að lífið byrji eftir fertugt eða að lífið verði miklu betra eftir fertugt. Er það satt? Eða er lífið erfiðara eftir fertugt en fyrir þann aldur? Stelpurnar ræða málið og skoða margar hliðar á lífinu eftir fertugt. Hvernig sjálfstraustið er mögulega aðeins meira en hvernig þær eru orðnar meiri “dúllur” og þurfa að hugsa b...
8. Sjitt, við bjuggum til podkast! 20.06.2024 51:00
Við ákváðum óvænt og með engum fyrirvara að taka upp þátt þar sem við töluðum um það hvernig upplifun það var að búa til podkast. Hvenær og hvernig varð hugmyndin til? Hvernig hefur gengið? Hvað hefur verið erfitt í ferlinu og hvað hefur verið auðvelt? Skemmtilegur þáttur þar sem orkustigið og gleðin er mikil. Lydíu og Gullu liggur mikið á hjarta og langar að þakka hluta af því góða fólki sem hjá...
7. Taugakerfið og streita 12.06.2024 1:01:52
Við höldum áfram að tala um streitu, en núna skoðum við hvernig taugakerfið tengist streitu. Í þættinum setur Lydía aftur á sig sálfræðingshattinn og fræðir Gullu og hlustendur um taugakerfið. Gulla segist ekkert vita um taugakerfið, en Lydía fæst við taugakerfi fólks í vinnunni alla daga. Hvað er þetta taugakerfi? Hvernig virkar það? Hvað þýðir að vera strekktur á taugum? Hvernig hefur streita o...
5. Tölum um gleði 06.06.2024 50:04
Í þessum þætti af Í alvöru talað! fjöllum við um gleði frá ýmsum hliðum. Er gleði bara viðbrögð okkar við því sem gerist eða getum við stjórnað henni sjálf? Getum við bætt lífið okkar með því að reyna að auka gleðina? Lydía og Gulla upplifa gleðina á ólíkan hátt. Gullu er eðlislægt að bæta gleði og fíflaskap inn í flest sem hún gerir en Lydía á það til að upplifa lífið með of miklum alvarleika. Er...
6. Örþáttur - Hugleiðsla Lydíu 06.06.2024 10:15
Hæ og takk fyrir að hlusta. Þessi þáttur af Í alvöru talað! er frábrugðinn öðrum. Þetta er stuttur þáttur, svokallaður örþáttur, sem inniheldur stutta hugleiðslu fyrir þig. Komdu þér fyrir í ró og næði og njóttu þessarar hugleiðslu. Hún getur hjálpað þér að róa taugakerfið aðeins og að tengjast þér betur. Hugleiðslan er gjöf frá mér til þín. Njóttu vel! Kveðja, Lydía. Ert þú ekki örugglega að fyl...
4. Skiptir máli að hugsa um útlitið? 31.05.2024 41:04
Í þessum þætti af Í alvöru talað! skoðum við saman hvort það skiptir okkur einhverju máli að hugsa um útlitið. Hverju getur það breytt og hverju getur það ekki breytt. Er það að hugsa um útliði yfirborðskennt prjál eða er það öflugt verkfæri til sjálfsástar. Þrusulíflegar samræður um útlit þar sem Gulla kennir okkur alls konar trikk og hlær að því að Lydía viti ekki hvað rótarsprey er. Ert þú ekk...
3. Hvað er streita? 31.05.2024 1:16:08
Við elskum að tala um streitu! Í þættinum setur Lydía á sig sálfræðingshattinn og fræðir Gullu og hlustendur um streitu. Hvað streita er, hvernig mismunandi streituvaldar geta valdið álagi ásamt því að við ræðum það hvað hægt er að gera til þess að minnka streitu, hlúa að sér og finna jafnvægið. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnv...
2. En hver er þessi Lydía? 30.05.2024 1:18:18
Í þættinum kynnumst við Lydíu Ósk, sem er annar stjórnanda hlaðvarpsins. Lydía segir frá lífi sínu og hvað hefur mótað hana og gert að þeirri manneskju sem hún er í dag. Lydía er þriggja barna móðir, sálfræðingur og jógakennari. Hún er sterk og dugleg kona með það markmið að minnka streituna í samfélaginu. Í æsku var hún ábyrgðarfullur nörd sem fannst hún ekki passa inn í hópinn í skólanum. Lydí...
1. Hver er þessi Gulla? 30.05.2024 1:20:49
Í þættinum kynnumst við Gullu, sem er annar stjórnanda hlaðvarpsins. Gulla segir frá lífi sínu og hvað hefur mótað hana og gert að þeirri manneskju sem hún er í dag. Gulla er tveggja barna móðir, förðunarfræðingur, áhugaleikari og grallaraspói með ólæknandi áhuga á öllu sem tengist tísku og förðun. Hún hress, skemmtileg og klár kona sem elskar að hjálpa öðrum konum að auka sjálfstraust sitt í gegn...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.