Gulla og Lydía

Í alvöru talað!

Education IS ↓ 68 episodes

Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.  Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása.  Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós. Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt. 

Author

Gulla og Lydía

Category

Education

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

May 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

67. Takk fyrir okkur elskurnar og farið vel með ykkur! 12.05.2026

Síðasti þátturinn okkar…allavega í bili! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði  - Húðklík Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.

66. Leiklistin og lífið! Þorsteinn Bachmann 01.05.2026

Þorsteinn Bachmann er einn af stórleikurum okkar Íslendinga sem í raun þarf ekki að kynna…enda gleymdum við því!  Leiklist og kennsla er hans ástríða en hann er óeigingjarn á tímann sinn og natinn við að ná því besta út úr nemendum sínum. Hann er einnig einstaklega næmur á hið mannlega en hjartahlýjan og einlægnin skýn af honum í viðtalinu. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?...

65. Dáleiðsla getur sýnt þér af hverju þú ert eins og þú ert. Stella Bára Eggertsdóttir. 25.04.2026

Stella Bára hefur starfað sem dáleiðari í fullu starfi í 9 ár. Hennar sannfæring er að hlutverk okkar allra sé að hjálpa og gerir hún það með besta verkfærinu sem hún veit um, dáleiðslu. Panta tíma hjá Stellu Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði  - Húðklíník - Gott jafnvægi, stre...

64. Íslenska menntakerfið er ekki aðgengilegt fyrir öll. Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir. 19.04.2026

Jóhanna Birna er skriðdreki og kjarnorkusprengja sem vill breyta íslensku menntakerfi. Hún er í mastersnámi við háskóla í Flórída það er sem hún er að læra kennsluhönnun og rekur einnig fyrirtækið sitt Harts. Sjálf er hún greind með einhverfu, lesblindu og ADHD og fannst skólakerfið ekki henta henni. Því vill hún breyta. Vefsíða Jóhönnu Vefsíða Harts Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samféla...

63. Kynlífssögur frá hlustendum. Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur 04.04.2026

Lesum upp og ræðum kynlífssögur frá hlustendum. Alls konar sögur og alls konar viðbrögð við sögunum. Góða skemmtun! Áslaug Kristjánsdóttir er sprenglærður kynfræðingur og kynlífsráðgjafi með mikla og langa reynslu í faginu. Hún hefur einnig skrifað bók sem heitir Lífið er kynlíf og er núna í leyfi frá kynlífsráðgjöfinni til þess að skrifa bók númer tvö. Vefsíða Áslaugar Ert þú ekki örugglega að fy...

62. Að minnka streitu með TRE. Svava Brooks 26.03.2026

Fróðlegur og fallegur þáttur með mikið hjarta! Svava Brooks er vottaður TRE® ráðgjafi síðan 2017 og BT bandvefslosun síðan 2024. Svava hefur unnið með sjálfshjálparhópum á vegum einkafyrirtækja, stofnana og grasrótarsamtaka í yfir 10 ár, og vann við forvarnir gegn kynferðisofbeldi í 20 ár. Svava skrifaði tvær vinnubækur fyrir fullorðna sem eru að takast á við áföll í æsku. Svava býður upp á fræðsl...

61. Tölum um fæðingareynslu! Sunna María Schram, ljósmóðir 22.03.2026

Hér er á ferðinni fræðandi þáttur með mikið hjarta. Sunna María Schram er ljósmóðir og jógakennari með mikla ástríðu fyrir sínu fagi. Hún talar um hversu mikilvægt það er að konan sé sem tengdust sjálfri sér og líkamanum í fæðingu og hvernig það er hlutverk ljósmóður að styðja konuna sem stendur á milli heima þegar barn er að fæðast.  Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvö...

60. Fullnæging? Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur 12.03.2026

Tölum um fullnægingar kvenna! Áslaug Kristjánsdóttir er sprenglærður kynfræðingur og kynlífsráðgjafi með mikla og langa reynslu í faginu. Hún hefur einnig skrifað bók sem heitir Lífið er kynlíf og er núna í leyfi frá kynlífsráðgjöfinni til þess að skrifa bók númer tvö. Vefsíða Áslaugar Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Inst...

59. Ást og aðlöðun. Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur. 05.03.2026

Fyrsti þátturinn í þriggja þátta seríu um ást og kynlíf. Áslaug Kristjánsdóttir er sprenglærður kynfræðingur og kynlífsráðgjafi með mikla og langa reynslu í faginu. Hún hefur einnig skrifað bók sem heitir Lífið er kynlíf og er núna í leyfi frá kynlífsráðgjöfinni til þess að skrifa bók númer tvö. Vefsíða Áslaugar Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram L...

58. Úr orkuleysi og verkjum í betra líf. Valgerður Tryggvadóttir, sjúkraþjálfari 26.02.2026

Valgerður Tryggvadóttir er sjúkraþjálfari sem hefur reynt ýmislegt á eigin skinni. Hún glímdi áður við mikla verki, orkuleysi og spennu. Bataferlið hefur kennt henni gríðarlega mikið sem hjálpar henni mikið í vinnunni sinni sem sjúkraþjálfari. Svo er hún líka hrikalega skemmtileg og orðheppin. Hér er skemmtilegur og fræðandi þáttur fyrir ykkur! Stúdíó Iða Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á sa...

57. Gleði, ólympíuleikar og kynlífssögur 19.02.2026

Bara Lydía og Gulla í þetta skiptið. Spjall um gleði og fíflagang, um skrítnar sögur af ólympíuleikunum og kall eftir kynlífssögum frá ykkur! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Geymsla 1 - Húðklík Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.

56. Um streitu og dópamín. Sæunn Kjartansdóttir 12.02.2026

Seinni þátturinn með Sæunni Kjartansdóttur. Hún er rithöfundur, sálgreinir og hjúkrunarfræðingur. Hennar aðaláhersla hefur verið á tengsl foreldra og barna og hún hefur skrifað tvær vinsælar bækur um það viðfangsefni. Einnig hefur hún skrifað bók sem heitir Gáfaða dýrið þar sem hún útskýrir taugakerfið okkar og hvernig það fúnkerar í nútíma samfélagi. Hér er á ferðinni gríðarlega áhugaverður þáttu...

55. Árin sem enginn man. Sæunn Kjartansdóttir 05.02.2026

Sæunn Kjartansdóttir er rithöfundur, sálgreinir og hjúkrunarfræðingur. Hennar aðaláhersla hefur verið á tengsl foreldra og barna og hún hefur skrifað tvær vinsælar bækur um það viðfangsefni. Einnig hefur hún skrifað bók sem heitir Gáfaða dýrið þar sem hún útskýrir taugakerfið okkar og hvernig það fúnkerar í nútíma samfélagi. Hér er á ferðinni gríðarlega áhugaverður þáttur sem allir sem eiga börn e...

54. Nýtt ár, hvað nú? 18.01.2026

Nýtt ár og nýir tímar! Jólakraftaverkið okkar kom og við segjum frá því.  Svo er spurning með nýja árið. Setur þú þér áramótaheit? Hvað getum við gert á þessum tímamótum til þess að styðja við okkur og framtíð okkar? Þátturinn um að gera upp árið með Rachel Brathen Setja sér ásetning fyrir nýtt ári með Rachel Brathen Mel Robbins á instagram, The let them theory Ert þú ekki örugglega að fylgja okku...

53. Þakklæti og krossgötur! 04.12.2025

Við stöndum á krossgötum með hlaðvarpið. Förum í saumana með það en fyrst og fremst spjöllum við um þakklæti og þakklætisiðkun. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.

52. Þunglyndi, skammdegisþunglyndi og streita. Ólöf Dröfn Eggertsdóttir, sálmeðferðarfræðingur 13.11.2025

Ólöf Dröfn Eggertsdóttir er sálmeðferðarfræðingur hjá Samkennd heilsusetri. Hlustendur þekkja hana vel enda hefur hún áður komið til okkar. Í þetta skipti segir hún okkur frá þunglyndi og skammdegisþunglyndi. Hver er munurinn og hvað er til ráða? Erum við þunglynd þegar við erum í mikilli streitu eða kulnun? Ólöf hjá Samkennd Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutal...

51. Ertu á breytingaskeiðinu? Hanna Lilja Oddgeirsdóttir, GynaMedica 30.10.2025

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir, kvensjúkdómalæknir, er framkvæmdastjóri lækninga og stofnandi GynaMedica. Kvenheilsa er hennar hjartans mál og hún stofnaði þess vegna GynaMedica sem er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur. Í þættinum ræðir Hanna Lilja um heilsu kvenna og breytingarskeiðið en leyfir sér líka að taka niður læknahattinn og vera persónuleg og segja sínar skoðanir á hlutunum. Vefsíða Gyn...

50. Systrakraftur! Ása Ottesen 16.10.2025

Ása Ottesen kom til okkar. Hún sterk og falleg kona sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Það sama mætti segja um systur hennar, Jónu. Þær misstu lítinn bróður sinn í umferðarslysi þegar þær voru unglingar en svo slasaðist Jóna alvarlega í umferðarslysi árið 2019. Ása segir Jónu ekki hafa fengið þá hjálp frá heilbrigðiskerfinu sem hún þurfti og þess vegna hafa vinir og fjölskylda hennar styrkt hana til þe...

49. Hvað með húðina okkar? Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir 02.10.2025

Dr. Jenna Huld Eysteinsdóttir er húðsjúkdómalæknir og einn stofnanda Húðvaktarinnar og einn af eigendum Húðlæknastöðvarinnar. Hún mætti til þess að ræða húðumhirðu og húðheilsu, enda hokin af reynslu í þeim bransa. Gulla var alveg að pissa í sig af spenningi fyrir þessum þætti enda er hún sérstök áhugakona um húðumhirðu. Hér er fróðlegur og skemmtilegur þáttur, gjörið þið svo vel! Húðlæknastöðin H...

48. Þreytt og streitt kona á rauðu ljósi. Kristín Þóra Haraldsdóttir, leikkona 11.09.2025

Kristín Þóra Haraldsdóttir, leikkona, er okkur flestum kunnug. Við höfum séð hana brillera á leiksviði og á skjánum undanfarin ár. Hún er þessi klassíska duglega íslenska kona, eins og við erum svo margar. Einn daginn gat hún ekki haldið áfram að vera dugleg, því líkami hennar gafst upp á streitunni og stoppaði hana af. Hún neyddist til þess að frá í slipp. Stoppa, fara í veikindaleyfi og hlúa að...

47. Hausttískan 2025 21.08.2025

Þátturinn sem beðið hefur verið eftir! Gulla segir frá hausttískunni 2025. Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Jörht góðgerðar og bætiefni - OsteoStrong Stef þáttarins gerði Ingi Björn I...

46. Ég vil mæta mér til að geta mætt öðrum. Lára Rúnarsdóttir í Móum. 24.07.2025

Lára Rúnarsdóttir er stofnandi Móa stúdíó sem er jógastúdíó sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, efla sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Lára er jógakennari og tónlistarkona með kennaramenntun og mastersgráðu í kynjafræði. Við áttum við hana einlægt spjall meðal annars um mennskuna og mikilvægi þess að mæta sjálfum sér nákvæmlega eins og maður er. Vefsíða...

45. Halla Himintungl skoðar stjörnukortin okkar 10.07.2025

Halla Himintungl komn aftur í heimsókn. Í þetta skiptið las hún í stjörnukort Gullu og Lydíu, ásamt í stjörnukort hlaðvarpsins. Vefsíða Höllu Hinintungls Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boð...

44. Halla Himintungl 26.06.2025

Halla Himintungl kom í heimsókn. Það er ekki bara nafnið hennar sem er áhugavert og spennandi…hún er sjálf hrikalega merkileg kona sem á margar skemmtilegar sögur. Hún er hjúkrunarfræðingur, heilari og stjörnuspekingur. Mjög skemmtilegur og hjartnæmur þáttur! Vefsíða Höllu Hinintungls Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega a...

43. Streita og óttaviðbrögðin fjögur 12.06.2025

Lydía fer yfir viðbrögðin fjögur sem taugakerfið velur á milli þegar við erum í ótta- eða streituviðbragðinu. Þau eru fight, flight, freeze og fawning. Líkaminn er alltaf að vinna fyrir okkur og hann virkjar óttaviðbragðið til þess að verja okkur. Mjög hjálplegt er fyrir okkur að skilja þessi viðbrögð og læra að bera kennsl á það þegar við erum í þessum viðbrögðum. Hlustendur fá 15% afslátt af vör...

Listen to the Í alvöru talað! podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.