Gulla og Lydía

Í alvöru talað!

Education IS ↓ 68 episodes

Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.  Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása.  Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós. Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt. 

Author

Gulla og Lydía

Category

Education

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

May 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

42. Er ekki bara gaman á Tinder? Hrafnheiður Valdís, sálfræðingur 29.05.2025

Hrafnheiður Valdís Baldursdóttir, sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri, kom í heimsókn. Við hana spjöllum við um hvernig það er að leita sér að maka á miðjum aldri, og þá sérstaklega hvernig það er að nota stefnumótaforrit. Það er á margan hátt mjög flókið, vekur upp alls konar flóknar tilfinningar og krefst sjálfskoðunar. Einlægt og skemmtilegt spjall um makaleit! Ert þú ekki örugglega að fylgja...

41. Tilfinningaát og streita í sumarfríinu 15.05.2025

Hér kemur þáttur sem átti að vera um eitthvað allt annað, en Gulla og Lydía detta hér í flæðið sem er oft svo gott. Lydía segir frá því hvernig hún er að læra að díla við tilfinningarnar sínar og líðan á annan hátt en með óhollum mat og svo ræða þær um sumarfríið. Það er nefnilega ekki endilega alltaf tækifæri fyrir ró og hvíld í sumarfríinu og sumar mömmur koma þreyttar úr sumarfríinu sínu. Ert þ...

40. Viðskiptafræðingurinn sem syngur Tangó. Svanlaug Jóhannsdóttir, OsteoStrong 01.05.2025

Svanlaug Jóhannsdóttir eða Svana er kona margra hatta. Hún er stórskemmtileg og stútfull af hæfileikum á ýmsum sviðum. Hún hefur frá mörgu spennandi og skemmtilegu að segja eftir viðburðaríka ævi. Meðal annars segir hún frá fyrirtækinu sem hún rekur nú með manni sínum og heitir OsteoStrong . Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi)...

39. Getum við ekki bara borðað? Dögg Guðmundsdóttir, næringarfræðingur 17.04.2025

Dögg Guðmundsdóttir mun útskrifast með master í klínískri næringarfræði í vor. Hún heldur úti instagram síðunni nutriment.rvk þar sem hún fræðir fólk um næringu og leiðir til þess að finna meiri gleði og ró í því að borða. Instagram Daggar Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - B...

38. Tískuvangaveltur fyrir sumarið 03.04.2025

Gulla fær að tala um ástríðuna sína, tísku! Hún skoðar með okkur tískustrauma fyrir sumarið og gefur góð ráð um hvernig er hægt að lífga upp á fataskápinn fyrir sumarið með fötum og aukahlutum…samt bara ef þú vilt og þá kaupirðu bara það sem þér finnst fallegt og líður vel í. Hún bendir nefnilega á að við þurfum ekki að elta tískuna, nema bara ef við viljum. Mikilvægast að okkur finnist við flott...

37. Nokkrar lífslexíur 20.02.2025

Lydía og Gulla bera saman og ræða nokkrar lífslexíur sem þær hafa upplifað. Allir fara í gegnum lífið og læra eitthvað. Stundum er gaman að bera saman bækur og skoða hverjar þessar lífslexíur eru! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Lúx hár og förðun , Faxafeni 14 - Balmain há...

36. Tölum um kynlíf! Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur 13.02.2025

Loksins fær Gulla að tala um eitthvað dónalegt! Áslaug Kristjánsdóttir er sprenglærður kynfræðingur og kynlífsráðgjafi með mikla og langa reynslu í faginu. Hún hefur einnig skrifað bók sem heitir Lífið er kynlíf og er núna í leyfi frá kynlífsráðgjöfinni til þess að skrifa bók númer tvö. Kynlíf og góð ástarsambönd hefur verið hennar ástríða og hún lýsir því sjálf að hafa alltaf haft áhuga á fólki o...

35. Aftur á vinnumarkað eftir 14 ár. Hekla Guðmundsdóttir, Bandvefslosun 06.02.2025

Einlægt samtal við Heklu, eiganda Bandvefslosunar, um slys, áföll og hvernig er að koma aftur á vinnumarkað eftir 14 ár. Hekla Guðmundsdóttir er eigandi fyrirtækisins Bandvefslosun og bjó til æfingakerfi sem heitir Body Reroll. Hún lenti í áföllum og slysum ung sem varð til þess að hún gat ekki unnið í 14 ár. Einnig þurfti hún að losa sig við mjög ávanabindandi verkjalyf sem hún varð að taka vegna...

34. Sambönd og samskipti 31.01.2025

Lydía og Gulla skoða saman hvaða máli sambönd og samskipti skipta fyrir okkur. Erum við að sinna þessari þörf okkar fyrir náin tengsl nógu vel? Hvað getum við gert til þess að eiga góð samskipti og náin sambönd? Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Lúx hár og förðun , Faxafeni...

33. Að lifa dauðann af! Gunnar Smári Jónbjörnsson 23.01.2025

Einlæg frásögn Gunnars Smára um það hvernig hann lifði dauðann af.  Gunnar Smári Jónbjörnsson er ungur og hraustur maður í blóma lífsins. Hann er sjúkraþjálfari, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, málari og einkaþjálfari sem hreyfir sig mikið og hefur iðulega mikið að gera. Hann hefur alltaf farið vel með sig, borðað hollan mat og passað upp á að streitan sé ekki of mikil.  Þrátt fyrir þetta ve...

32. Loddaralíðan og vinnustaðamenning. Lella Erludóttir 16.01.2025

Lella Erludóttir, markþjálfi kom í stórskemmtilegt og áhugavert spjall. Hún sagði okkur frá loddaralíðan sem heitir á ensku imposter syndrome. Fólk með loddaralíðan trúir því að það sé ekki nægilega hæft til þess að sinna því starfi sem það er í. Þetta getur verið mjög truflandi en nánast allir upplifa þetta einhvern tíma á lífsleiðinni. Einnig ræddum við um vinnustaðamenningu og hvað einkennir he...

Jólahugleiðsla 13.12.2024

Jólahugleiðsla til þín frá okkur 💕 Hafðu það sem allra best um hátíðarnar!

31. Jólaþátturinn 28.11.2024

Gulla og Lydía bera saman bækur sínar hvað varðar jólin. Eru jólin alltaf dásamleg? Eru þau erfið fyrir suma? Hvað getum við gert til þess að minnka jólastressið margumtalaða? Af hverju á Gulla ekki bleikt jólatré og hvað er með þessa jólakúlu? Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boð...

30. Verum meðvituð en ekki meðvirk! Berglind Magnúsdóttir 21.11.2024

Berglind Magnúsdóttir, meðferðaraðili hjá Fyrsta skrefinu kom í spjall til að tala um meðvirkni. Hún er með master í félagsráðgjöf, hefur lagt áherslu á að mennta sig vel og hefur ástríðu fyrir að aðstoða fólk við að minnka meðvirkni og kynnast sjálfu sér. Hún er einni aðjúnkt við Háskóla Íslands og heldur úti hlaðvarpinu Meðvirknipodcastið með eiginmanni sínum.  Fyrsta skrefið Ert þú ekki öruggle...

29. Tölum um ADHD. Regína Ólafsdóttir, sálfræðingur. 14.11.2024

Regína Ólafsdóttir, sálfræðingur, kom og talaði við okkur um ADHD. Stórskemmtilegt og fróðlegt spjall. Regína hefur brennandi áhuga á ADHD og hefur meðal annars unnið við greiningar á ADHD. Einnig hefur hún persónulega reynslu því hún er sjálf greind með ADHD. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þá...

28. Hvaða máli skiptir meltingin? Birna Ásbjörnsdóttir 07.11.2024

Birna G. Ásbjörnsdóttir hefur brennandi áhuga á heilsu, matarræði og næringu. Hún trúir því að við séum að miklu leyti sjálf ábyrg fyrir okkar heilsu og líðan, ásamt því hvernig við eldumst. Hún talar meðal annars um mikilvægi þarmaflóru þegar kemur að heilsu.  Birna er annar stofnenda Jörth.  Hún er doktor í heilbrigðisvísindum frá Háskóla Íslands og er með M.Sc. gráðu í næringarlæknisfræði frá S...

27. Rjúkandi rúst? Samfélagsrant! 31.10.2024

Gulla og Lydía tala um málefni sem þær vilja ekkert tala um! Það er svo margt erfitt í nútímasamfélagi sem hefur mjög slæm áhrif á líðan okkar. Við erum þess vegna oft hrædd og áhyggjufull, sorgmædd og reið. Tölum um þetta! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Tree hut sem fæst...

26. Átraskanir og óheilbrigt samband við mat. Aldís og Karen 24.10.2024

Sálfræðingarnir Aldís og Karen ræða um átraskanir hjá börnum og fullorðnum ásamt óheilbrigðu sambandi við mat sem því miður svo margir þurfa að fást við. Aldís Eva Friðriksdóttir starfar á Sálfræðistofunni Höfðabakka og hennar sérsvið eru átraskanir unglinga og fullorðinna ásamt ófrjósemisvanda. Karen Daðadóttir vinnur á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og vinnur mest með börnum og ungling...

25. Á Íslandi er allt of mikill hraði og streita. Ragga Nagli 17.10.2024

Ragnhildur Þórðardóttir eða Ragga Nagli talar um streitu, muninn á danskri og íslenskri menningu, breytingaskeið og matarvenjur hjá fólki með ADHD. Hún er eldhress, orðheppin og skemmtileg að vanda! Ragga Nagli á Facebook Ragga Nagli á Instagram Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í bo...

24. Fokk hvað það er flókið að borða hollan mat 10.10.2024

Gulla og Lydía reyna að komast til botns í því flókna máli hvernig við borðum hollan mat. Þær komast reyndar ekki að niðurstöðu svo þú skalt ekki hlusta á þáttinn! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Tree hut sem fæst í Krónunni - Lúx hár og förðun , Faxafeni 14 - Flísabúðin ,...

23. Við megum biðja um hjálp. Eva Mattadóttir 03.10.2024

Eva Mattadóttir er gestur þáttarins að þessu sinni. Hana þekkja margir enda hefur hún haldið úti hlaðvarpsþættinum Norminu í 5 ár með Sylvíu Briem vinkonu sinni. Einnig er hún markþjálfi, Dale Carnegie þjálfari og rithöfundur. Hún hefur verið afkastamikil og hugrökk í gegnum ævina en núna er hennar fulla starf að vera í endurhæfingu. Hún varð fyrir því óhappi að lenda í árekstri og hefur eftir það...

22. Hvað er að gerast í samfélaginu okkar? Matthildur Bjarnadóttir 26.09.2024

Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Garðabæ, ræðir þá hræðilegu hluti sem hafa gerst í íslensku samfélagi undanfarið. Hvað getum við gert sem samfélag og sem uppalendur barnanna okkar? Fræðandi og hjartnæmt spjall um manneskjuna og samfélagið sem við búum í. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þáttu...

21. Mikilvægast er að fólk eigi góð tengsl við aðra. Ólöf Dröfn Eggertsdóttir. 19.09.2024

Ólöf Dröfn Eggertsdóttir er sálmeðferðarfræðingur hjá Samkennd heilsusetri. Hún hefur lengi búið í Bandaríkjunum og gekk þar í háskóla. Nú býr hún á Íslandi með manni sínum og fjórum sonum. Hún segir meðal annars frá mikilvægi þess að eiga góð tengsl við fólk og hvernig mikil klámnotkun getur haft áhrif á nánd í samböndum. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á...

20. Stígum út úr þægindarammanum. 12.09.2024

Lydía og Gulla ræða um þægindarammann. Af hverju þeim finnst mikilvægt að ögra sér þannig reglulega. Þær gera báðar mikið af þessu en á ólíkan hátt. Gulla hefur gengið svo langt í þessu að hún væri næstum til í að gera hvað sem er er, allavega ef það er löglegt! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram...

19. Um barnamissi og sorgina. Guðlaug Rún Gísladóttir 06.09.2024

Trigger warning: í þessum þætti er rætt um andlát barns af slysförum og andlát fyrirbura. Guðlaug Rún Gísladóttir er mastersnemi í félagsráðgjöf og tveggja barna móðir. Hún hefur upplifað stærstu martröð foreldra tvisvar, en báðir drengir hennar eru látnir. Í þættinum segir hún frá andlátum þeirra og þeirri miklu sorg sem þau hjónin þurftu að læra að lifa með. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur...

Listen to the Í alvöru talað! podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.