Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Education IS ↓ 76 episodes

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

Author

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Category

Education

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Feb 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þróun útfararsiða og samband ríkis og kirkju 27.09.2019

Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu, hefur rannsakað þróun útfararsiða og samband ríkis og kirkju. Hugvarp ræddi við hann um einkagrafreiti, bálfarir og breytingar á útfararhefðum. Einnig ræddum við um samband ríkis og kirkju, en Hjalti birti nýverið grein um efnið í Ritröð Guðfræðistofnunar.

Aftökur og dauðadómar á Íslandi 11.09.2019

Nýverið var opnuð kortasjá um aftökur á Íslandi á slóðinni dhd.hi.is. Kortasjáin er afrakstur verkefnisins Dysjar hinna dæmdu en markmið þess er að leita upplýsinga um þá einstaklinga sem teknir voru af lífi hérlendis tímabilið 1550–1830. Kortasjáin sýnir nöfn þeirra 248 einstaklinga sem þá voru dæmdir til dauða en einnig heimabæi þeirra, aftökustaði, kyn, aldur, brot og dóma. Við ræddum við þrjá...

Heimili fátæks fólks á fyrri tíð 27.05.2019

Út er komin bókin Híbýli fátæktar: Húsnæði og veraldleg gæði fátæks fólks á 19. og fram á 20. öld, eftir þau Finn Jónasson, Sólveigu Ólafsdóttur og Sigurð Gylfa Magnússon. Hugvarp ræddi við tvo af höfundunum. Í bókinni eru heimili, efnisleg gæði og daglegt líf fátæks fólks á 19. öld og á fyrri hluta 20. aldar til skoðunar. Fátækt hafði afgerandi áhrif á alþýðu landsins en hver voru hin samfélagsle...

Grænlendingar og samband þeirra við Ísland 08.05.2019

Í ár hefur þess verið minnst að tæplega 90 Grænlendingar heimsóttu Ísafjörð árið 1925, en þeir voru sjaldséðir gestir hér á landi á þeim tíma. Hugvarp ræddi við þau Ann-Sofie Nielsen Gremaud, lektor við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands og Sumarliða R. Ísleifsson, lektor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, um samband þjóðanna, stöðu Grænlands og sýningu og málþing sem efnt er t...

Kæra Jelena 02.05.2019

Rebekka Þráinsdóttir, aðjunkt í rússnesku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, fjallar um leikverkið Kæra Jelena, höfund þess og viðtökur í Sovétríkjunum þegar það var fyrst sett upp í byrjun níunda áratugs 20. aldar. Leikritið er nú sýnt á fjölum Borgarleikhússins.

Einelti og ofbeldi á fyrri tíð 23.04.2019

Marín Árnadóttir, meistaranemi í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, rannsakar einelti og ofbeldi í íslensku samfélagi 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar. Nýverið hlaut hún styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar fyrir verkefnið.

Loddarinn í samtali við leikhús 15.04.2019

Guðrún Kristinsdóttir doktorsnemi fjallar um leikverkið Loddarinn eftir franska leikskáldið Moliere. Hún tekur þátt í Samtali við leikhús, málfundi um leikritið í Veröld - húsi Vigdísar, mánudaginn 29. apríl næstkomandi kl. 17. Aðrir í pallborði verða Hallveig Kristín Eiríksdóttir aðstoðarleikstjóri, Guðjón Davíð Karlsson leikari og Hallgrímur Helgason þýðandi.

Er í lagi með lýðræðið? 05.04.2019

Nýverið fór fram málþing á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands um stöðu og þróun lýðræðis á Íslandi í upphafi 21. aldar, en þar fjölluðu þau Guðmundur Hálfdanarson, Stefanía Óskarsdóttir og Guðmundur Heiðar Frímannsson um nýútkomna bók sem nefnist Íslenskt lýðræði: Starfsvenjur, gildi og skilningur.

Þar sem vísindaheimspeki og þekkingarfræði mætast 27.03.2019

Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknastjóri Hugvísindasviðs, ræðir við Finn Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, en hann hlaut nýverið Nils Klim verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á þekkingarfræði og vísindaheimspeki, fyrstur Íslendinga.

Mazen Maarouf og Brandarar handa byssumönnum 20.03.2019

Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræðum og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum, fjalla um íslensk-palestínska rithöfundinn Mazen Maarouf sem hefur verið tilnefndur til alþjóðaverðlauna Man Booker verðlaunanna fyrir smásagnasafnið Brandarar handa byssumönnum.

Það besta á Stockfish 2019 15.03.2019

Björn Þór Vilhjálmsson, lektor í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði, ræðir við Álfheiði Richter Sigurðardóttur og Rósu Ásgeirsdóttur, nemendur í kvikmyndafræði, um nýjustu mynd Lars von Trier, The House That Jack Built, en hún var sýnd á nýafstaðinni kvikmyndahátíð, Stockfish. Þá er hátíðin sjálf rædd og það sem þar bar hæst, auk þess sem vikið er að mikilvægi kvikmyndahátíða í kvikmyndalan...

Hugsað með líkamanum 06.03.2019

Eiríkur Smári Sigurðarson ræðir við þau Sigríði Þorgeirsdóttur og Björn Þorsteinsson, prófessora í heimspeki, um rannsóknarverkefnið Líkamleg gagnrýnin hugsun. Þau flytja bæði erindi á málstofu um verkefnið á Hugvísindaþingi laugardaginn 9. mars næstkomandi.

Greenblatt, nýsöguhyggja og skemmtilegar skattaskýrslur 05.03.2019

Toby Erik Wikström, doktor í frönskum bókmenntum og sérfræðingur við Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, segir hér frá nýsöguhyggjunni og Stephen Greenblatt, prófessor í bókmenntum við Harvard háskóla og hátíðarfyrirlesari Hugvísindaþings í ár. Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþætti Hugvísindasviðs og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á Spotify, iTunes og öðrum hlaðvarpsveitum.

Íslenskt rapp, fagurfræði og andóf 28.02.2019

Helga Þórey Jónsdóttir, doktorsnemi í menningarfræði, segir frá erindi sem hún flytur á Hugvísindaþingi 9. mars. Þar fjallar hún um íslenskt rapp, andóf og fagurfræði aldamótakynslóðarinnar.

Húsmæður í krísu, netakerlingar og mjólkurverkfall 21.02.2019

Ragnheiður Kristjánsdóttir og Erla Hulda Halldórsdóttir, dósentar í sagnfræði, segja frá málstofu á Hugvísindaþingi sem fjallar um það hvernig íslenskar konur, þar á meðal húsmæður, netavinnukonur og listakonur, tókust á við þær hindranir sem komu í veg fyrir að þær fengju notið sín sem fullgildir borgarar.

Norður-Kórea, þýskumælandi gæslumaður og aðskildir elskhugar 13.02.2019

Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum, ferðaðist nýverið til Norður-Kóreu. Hann segir frá ferðinni, ströngu eftirliti með ferðum hans og von heimamanna um sameiningu Kóreuríkjanna.

Karin Sander, pálmatré og list í almannarými 31.01.2019

Hlynur Helgason, lektor í listfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, fjallar um list í almannarými og þýsku listakonuna Karin Sander, en hún er höfundur umdeildrar tillögu um pálmatré í hinni nýju Vogabyggð í Reykjavík.

Helgi Þorláksson og Guðmundur Jónsson um bókina Líftaug landsins 08.11.2017

Út er komið ritverkið Líftaug landsins. Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010. Verkið er í tveimur bindum, alls um 1000 síður. Þar er í fyrsta sinn sögð heildarsaga íslenskrar utanlandsverslunar frá landnámstíð til okkar daga. Fjallað er um framandi kaupmenn og fátæka landsmenn, harðan fisk og mjúka ull, mjöl og öl, brennivín og bjór, við og vax, lýsi og smjör, freðfisk og ál, nauðsynjar og...

Davíð Ólafsson um bókina Minor Knowledge and Microhistory. Manuscript Culture in Nineteenth Century 06.12.2016

Út er komin bókin Minor Knowledge and Microhistory. Manuscript Culture in Nineteenth Century hjá hinu þekkta alþjóðlega bókaforlagi Routledge. Höfundar hennar eru sagnfræðingarnir Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands og Davíð Ólafsson, aðjunkt menningarfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Nánar á hi.is/frettir/fanyt_...

Anna Agnarsdóttir um minningarþing um Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðing 12.10.2016

Anna Agnarsdóttir prófessor segir frá minningarþingi sem haldið verður um Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðing í Þjóðminjasafninu 15. október 2016.

Haraldur Bernharðsson um áhuga erlendra nemenda á norrænum miðaldafræðum 19.09.2016

Á þessu haustmisseri hófu 24 erlendir nýnemar frá tíu löndum meistaranám í miðaldafræðum við Háskóla Íslands. Þeir eru nemendur í námsbrautunum Medieval Icelandic Studies og Viking and Medieval Norse Studies, Námsbrautirnar hafa notið mikilla vinsælda og hafa nemendur t.d. komið frá Brasilíu, Bandaríkjunum, Ísrael, Kanada og Þýskalandi. Haraldur Bernharðsson, dósent við Íslensku- og menningardeild...

Rannveig Sverrisdóttir um Signgram og stöðu táknmálsins í samfélaginu. 14.04.2016

Rannveig Sverrisdóttir, lektor í táknmálsfræði við Háskóla Íslands, er fulltrúi Íslands í Signgram verkefninu, sem samið hefur fyrsta leiðarvísi að mállýsingum evrópskra táknmála. Hún ræðir verkefnið og stöðu táknmálsins við Háskóla Íslands og í samfélaginu.

Orri Vésteinsson um fornleifarannsókn á Grænlandi og stöðu fornleifafræða 10.02.2016

Orri Vésteinsson um fornleifarannsókn á Grænlandi og stöðu fornleifafræða by Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Benedikt Hjartarson um útópíu, módernisma og framúrstefnu 14.01.2016

Út er komið ritið „Utopia: The Avant-Garde, Modernism and (Im)possible Life“ sem gefið er út af hinu virta forlagi De Gruyter. Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Hugvísindasvið HÍ, er einn af fjórum ritstjórum verksins. Hann ræðir um útópíu, módernisma og framúrstefnu.

Halla Kristín Einarsdóttir um stöðu heimildamyndarinnar og nám í menningarmiðlun 27.11.2015

Viðtal við Höllu Kristínu Einarsdóttur kvikmyndagerðarkonu og aðjunkt í hagnýtri menningarmiðlun við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.

Listen to the Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.