Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Education IS ↓ 76 episodes

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

Author

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Category

Education

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Feb 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Heiðursdoktorsathöfn Péturs Gunnarssonar 05.02.2026

Heiðursdoktorsathöfn Péturs Gunnarssonar by Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Sigríður Þorgeirsdóttir og Finnur Dellsén fjalla um Helenu Longino 25.09.2025

Í þessum þætti ræða þau Sigríður Þorgeirsdóttir og Finnur Dellsén, prófessorar í heimspeki, um Helenu Longino, prófessor emeritu í heimspeki við Stanford-háskóla, en hún flytur opinn fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar HÍ í stofu 101 í Lögbergi miðvikudaginn 8. október kl. 15:00. Þetta verður fyrsti fyrirlesturinn í röð árlegra fyrirlestra í samstarfi Heimspekistofnunar og Duke-háskóla í Bandar...

Þorvarður Árnason um bókina Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands 16.06.2025

Rætt við Þorvarð Árnason, forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, um bók hans Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands. Í bókinni eru íslensk víðerni könnuð frá ólíkum sjónarhornum og leitað svara við helstu spurningum um þau: hvað víðerni eru í raun og veru, hvar þau fyrirfinnist á landinu, hvaða gildum þau búi yfir, hvernig hafi verið staðið að verndun þeirra og...

Sögulegt mann- og bæjatal 21.03.2025

Opnuð hefur verið ný útgáfa af stafræna sögulega mann- og bæjatalinu á slóðinni smb.mshl.is. Af því tilefni var rætt við Pétur Húna Björnsson, umsjónarmann þess.

Norður af Sólu. Greinasafn um Sjón 20.02.2025

Gunnþórunn Guðmundsdóttir prófessor ræðir við Sjón, Ástu Kristínu Benediktsdóttur dósent, Úlfhildi Dagsdóttur og Jón Karl Helgason prófessor um nýtt greinasafn á ensku um höfundarverk Sjón.

Sofiya Zahova, nýr forstöðumaður Vigdísarstofnunar 06.01.2025

Hugvarp ræddi við Sofiya Zahova en hún var nýverið ráðin forstöðumaður Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar.

Dauðadómurinn - annar lestur 02.12.2024

Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Í henni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Guðjón Andri Jóhannsson, nemi í fornleifafræði, les kafla úr bókinni. Þetta er annar lestur af þremur.

Dauðadómurinn - þriðji lestur 02.12.2024

Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Í henni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Guðjón Andri Jóhannsson, nemi í fornleifafræði, les kafla úr bókinni. Þetta er síðasti lestur af þremur.

Dauðadómurinn - fyrsti lestur 29.11.2024

Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Í henni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Guðjón Andri Jóhannsson, nemi í fornleifafræði, les kafla úr bókinni. Þetta er fyrsti lestur af þremur.

Ástand Íslands um 1700 25.09.2024

Ástand Íslands um 1700. Lífshætti í bændasamfélagi er titillinn á nýrri bók þar sem kynntar eru nýjar rannsóknir á íslenska bændasamfélaginu í upphafi 18. aldar og fjallað um hugmyndir fræðimanna um það. Rætt er við Guðmund Jónsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, en hann er ritstjóri bókarinnar og höfundur sex greina og Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði og forseta Hugvísindasviðs HÍ, en hú...

Annars hugar: Jakub Stachowiak 21.03.2024

Jakub Stachowiak, skáld, rithöfundur og bókavörður flutti nýverið opinn fyrirlestur í fyrirlestraröðinni Annars hugar sem haldin er á vegum námsgreinarinnar Íslensku sem annars máls í samstarfi við Árnastofnun og Málvísindastofnun Háskóla Íslands. Af því tilefni ræddi Hugvarp við Jakub um ástæður þess að hann flutti til Íslands og lærði ekki bara íslensku heldur hóf að rita ljóð og skáldsögur á ís...

Japanshátíð í tuttugu ár 22.01.2024

Kristín Ingvarsdóttir, lektor í japönskum fræðum við Mála- og menningardeild HÍ, segir frá Japanshátíðinni sem haldin verður 27. janúar og tuttugu ára sögu hátíðarinnar.

Mikill fjöldi skjala vesturfara aðgengilegur í fyrsta sinn 10.11.2023

Gagnagrunnur með handritum og bréfum íslenskra vesturfara hefur verið opnaður á vegum Árnastofnunar á slóðinni vesturheimur.arnastofnun.is. Þar munu þúsundir mynda af íslenskum handritum, bókum, bréfum og öðrum skjölum í söfnum og einkaeigu í Kanada og Bandaríkjunum koma fyrir sjónir almennings í fyrsta sinn. Hugvarp ræddi við Katelin Marit Parsons, aðjunkt í íslensku við Háskóla Íslands og ritstj...

Kynvillta bókmenntahornið 31.10.2023

Kynvillta bókmenntahornið – spjall um hinsegin bókmenntir er greinaflokkur á hugras.is, vefriti Hugvísindasviðs Hí sem hóf göngu sína fyrir ári síðan. Þar er skrifað um hinsegin bókmenntir og hinseginleikann í bókmenntum og lesið á skjön, skyggnst út fyrir síðurnar og skoðað það sem býr á milli línanna. Við ræddum við Ástu Kristínu Benediktsdóttur, lektor við Íslensku og menningardeild Háskóla Ísl...

Ísland, einsaga og rússnesk hugvísindi 22.08.2023

Nýverið var haldin við Háskóla Íslands lokaráðstefna öndvegisverkefnisins „Heimsins hnoss: Söfn efnismenningar, menningararfur og merking” sem stjórnað var af Sigurði Gylfa Magnússyni prófessor. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni voru vel virtir erlendir fræðimenn og af því tilefni settust þrír þeirra niður að ósk Hugvarps – hlaðvarps Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og ræddu m.a. um Íslandsheimsókni...

Hugvísindaþing 2023: Samtalið sem siðferðilegt hugtak 16.03.2023

Vilhjálmur Árnason, prófessor emeritus í heimspeki við Háskóla Íslands, hélt hátíðarfyrirlestur Hugvísindaþings í Hátíðasal skólans föstudaginn 10. mars síðastliðinn. Erindið nefndi Vilhjálmur Samtalið sem siðferðilegt hugtak og í því velti hann fyrir sér samræðuhugtakinu, merkingu þess, margvíslegu hlutverki og mikilvægi.

Hugvísindaþing 2023: Biblían, trúin og menning íslenskra leikmanna á miðöldum 06.03.2023

Torfi Tulinius, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, segir frá málstofunni Biblían, trúin og menning íslenskra leikmanna á miðöldum sem haldin verður á Hugvísindaþingi 2023 í Árnagarði 311, laugardaginn 11. mars kl. 13-16:30.

Hugvísindaþing 2023: Nýjar rannsóknir í listfræði. Endurskoðun listasögunnar 02.03.2023

Sigrún Inga Hrólfsdóttir og Hlynur Helgason fjalla um málstofuna Nýjar rannsóknir í listfræði sem haldin verður á Hugvísindaþingi 2023 í Árnagarði 422, 11. mars kl. 10:00-12:00.

Hugvísindaþing 2023: Hetjur, kreppur og heimsveldi 21.02.2023

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Rósa María Hjörvar og Vera Knútsdóttir ræða um málstofuna Hetjur, kreppur og heimsveldi sem haldin verður á Hugvísindaþingi 2023. Þar verður hugað að dæmum úr samtímabókmenntum um hetjur í fjölbreyttu samhengi.

Hugvísindaþing 2023: María mey – einn mesti áhrifavaldur allra tíma 17.02.2023

Steinunn Kristjánsdóttir og Rúnar Már Þorsteinsson segja frá málstofunni María mey – einn mesti áhrifavaldur allra tíma sem haldin verður á Hugvísindaþingi föstudaginn 10. mars kl. 13:15-17:00. María guðsmóðir er án efa áhrifamesta kona sögunnar, bæði sem söguleg persóna og ímynd. Í þessari þverfræðilegu málstofu guðfræðinga og fornleifafræðinga verða ýmsir þættir þessarar áhrifamiklu sögu skoðaði...

Arfur aldanna, ný ritröð um fornaldarsögur 24.11.2021

Út eru komin fyrstu tvö bindin í ritröðinni Arfur aldanna eftir Aðalheiði Guðmundsdóttur, prófessor í íslenskum bókmenntum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Höfundur les fyrir okkur tvo kafla úr verkinu sem fjallar um fornaldarsögur, uppruna þeirra, útbreiðslu og einkenni.

Lars Lönnroth er nýr heiðursdoktor 21.09.2021

Þórdís Edda Jóhannesdóttir, sérfræðingur við Stofnun Árna Magnússonar, fjallar um dr. Lars Lönnroth, en hann verður sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands við athöfn í Hátíðasal skólans fimmtudaginn 23. september kl. 15.

Uppskeruhátíð Smásagna heimsins 14.09.2021

Erindi flutt á uppskeruhátíð Smásagna heimsins í Norræna húsinu nýverið, en Smásögur heimsins í fimm bindum er eitt viðamesta þýðingaverkefni sem ráðist hefur verið í á vegum íslenskrar bókaútgáfu á þessari öld. Á hátíðinni stigu á stokk fulltrúar ritstjórnar, þýðenda, forlags og gagnrýnenda, auk fjögurra nemenda úr ritlist og bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Viðburð...

Sagnfræðirannsóknir í hálfa öld 03.09.2021

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands fagnar um þessar mundir hálfrar aldar starfsafmæli og af því tilefni hefur verið opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni um sögu stofnunarinnar. Sagnfræðingarnir Guðmundur Jónsson, Helgi Þorláksson og Ragnheiður Kristjánsdóttir ræddu um þessi tímamót.

Heimspekilegar áskoranir Covid-19 30.06.2021

Heimspekilegar áskoranir á farsóttartímum nefnist rannsóknarverkefni sem var unnið að á vegum Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Það eru prófessorarnir Eyja Margrét Brynjarsdóttir, Finnur Dellsén og Vilhjálmur Árnason sem eru umsjónarmenn verkefnisins en fjórir heimspekinemar unnu við rannsóknina og Hugvarp ræddi við þrjá þeirra, þau Vigdísi Hafliðadóttur, Hörð Brynjar Halldórsson og Victor Karl Magnússon...

Listen to the Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.