Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Education IS ↓ 76 episodes

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

Author

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Category

Education

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Feb 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ný íslensk-frönsk veforðabók 18.06.2021

Þann 16. júní var Lexía, ný íslensk-frönsk veforðabók opnuð á slóðinni lexia.hi.is. Lexía er samstarfsverkefni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við HÍ og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvarp spjallaði við þær Ásdísi Rósu Magnúsdóttur, forstöðumann Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Rósu Elínu Davíðsdóttur, orðabókafræðing við stofnunina og ritstjóra fra...

Önnur bylgja #MeToo 01.06.2021

Eyja Margrét Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki, fjallar um það sem kallað hefur verið önnur bylgja #MeToo á Íslandi.

Aldarminning Hermanns Pálssonar 21.05.2021

Í dag ræðum við um Hermann Pálsson, einn áhrifa- og afkastamesta fræðimann á sviði íslenskra fræða á seinni hluta 20. aldar. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands efna til ráðstefnu í Veröld 26. maí næstkomandi, í tilefni af því að öld er liðin frá fæðingu Hermanns Pálssonar, prófessors við háskólann í Edinborg. Torfi H. Tulinius, prófessor og f...

Ólafur Jóhann Ólafsson á Japanshátíð 05.02.2021

Ólafur Jóhann er einn þekktasti og vinsælasti rithöfundur landsins, en hann hefur jafnframt fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu og áhugaverðar tengingar við Japan í gegnum störf sín í u.þ.b. áratug fyrir japanska stórfyrirtækið Sony. Nýjasta bók Ólafs, Snerting, sem var söluhæsta bók landsins árið 2020, gerist að miklu leyti á japönskum veitingastað í London og í Japan. Í höfundarspjallinu fáum v...

Táknheimur íslenskra kirkjubygginga 02.12.2020

Viðtal við Sigurjón Árna Eyjólfsson, héraðsprest og stundakennara við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, en hann hefur skrifað bókina Augljóst en hulið - að skilja táknheim kirkjubygginga. Í bókinni er táknheimur kirkjuhússins útskýrður og byggir höfundur umfjöllun sína á erlendum rannsóknum og mátar þær við íslenskar kirkjur.

Smásögur heimsins: Ferðin út í eyjuna 18.11.2020

Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar fyrir ykkur kæru hlustendur. Nú er komið að Rúnari Helga Vignissyni að ljúk...

Saga viðhorfa til Íslands og Grænlands 17.11.2020

Út er komin bókin Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland, viðhorfssaga í þúsund ár í útgáfu Sögufélagsins. Höfundur er Sumarliði R. Ísleifsson, lektor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, en hann hefur um langt skeið rannsakað ímyndasögu Íslands og Grænlands. Af þessu tilefni fengum við Sumarliða til að lesa kafla úr bókinni og fjalla stuttlega um hana.

Smásögur heimsins: Mr. Taylor 13.11.2020

Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út og er það helgað smásögum frá Evrópu, en áður hafa komið út smásögur Norður-Ameríku, Afríku, Rómönsku Ameríku og Asíu og Eyjaálfu. Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjó...

Smásögur heimsins: Þegar ég var Pila gamla, dauð en í blóma lífsins 11.11.2020

Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út og er það helgað smásögum frá Evrópu, en áður hafa komið út smásögur Norður-Ameríku, Afríku, Rómönsku Ameríku og Asíu og Eyjaálfu. Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjó...

Sögur Rómafólks og sígauna 04.11.2020

Út er komin bókin Sunnudagsmatur og fleiri sögur Rómafólks í útgáfu Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Háskólaútgáfunnar. Bókin hefur að geyma smásögur eftir sex rithöfunda, en það er líklega óhætt að segja að bókmenntir Rómafólks og sígauna hafi til þessa verið lítt þekktar hér á landi. Ritstjórar bókarinnar eru þær Sofiya Zahova, Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Kristín Guðrún...

Konur sem kjósa 26.10.2020

Út er komin bókin Konur sem kjósa: Aldarsaga í útgáfu Sögufélagsins, Bókin fjallar um íslenska kvenkjósendur í eina öld og er sjónum beint að einu kosningaári á hverju áratug þar sem fjallað er um kvennablöð og kvennaframboð, kvennafrí og kvennaverkföll, um baráttu kvenna fyrir hlutdeild í stjórn landsins og frelsi til að ráða menntun sinni og atvinnu, barneignum og ástarsamböndum. Áður ósagðar sö...

Hugvísindaþing 2020 15.09.2020

Hugvísindaþing verður haldið á netinu 18. og 19. september. Af því tilefni sló Hugvarp á þráðinn til fjögurra fræðimanna og bað þá um að segja okkur frá þeirra fyrirlestrum og málstofum. Boðið verður upp á 22 málstofur um fjölbreytt viðfangsefni, þ.á m. konur og örnefni í fornsögum, samtöl við sýndarverur, íslenska vísindaskáldskaparmynd, hvítleikann í íslenskri samtímalist, annálaðan harðindakafl...

Til varnar mannhelginni 05.06.2020

Í tilefni af því að 75 ár eru liðin frá fæðingu Páls Skúlasonar, heimspekings, rektors Háskóla Íslands og stofnanda Siðfræðistofnunar, efndi stofnunin til opins fyrirlesturs í Hátíðasal Háskóla Íslands 4. júní. Það var Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki, sem flutti erindið „Til varnar mannhelginni“.

Samband fólks og dýra 19.05.2020

Fyrsta hefti Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar, á árinu 2020 er komið út og umfjöllunarefni þess eru náttúruhvörf, samband fólks og dýra. Í inngangi segir að vaktar séu upp aðkallandi spurningar er varða loftslagsbreytingar, fækkun dýrategunda, umhverfissiðfræði og sjálfbærni. Hugvarp ræddi við þemaritstjóra heftisins, þau Kötlu Kjartansdóttur, doktorsnemi í safnafræði og Kristinn Schram, dóse...

Hugmyndaheimur Páls Briem 13.05.2020

Út er komin bókin Hugmyndaheimur Páls Briem, en í hana skrifa sjö sagnfræðingar um Pál Briem, sýslumann og þingmann. Hugvarp ræddi við ritstjóra bókarinnar, sagnfræðingana Ragnheiði Kristjánsdóttur og Sverri Jakobsson. Í bókarkynningu segir að Páll sé einn áhrifamesti stjórnmálamaður Íslands á seinni hluta 19. aldar, en framlag hans til stjórnmála- og hugmyndasögu Íslendinga hafi verið vanmetið. V...

Örsögur frá Rómönsku-Ameríku 25.03.2020

Út er komin bókin „við kvikuna – örsögur frá Rómönsku-Ameríku“ og af því tilefni birtir Hugvarp upplestur fjögurra örsagna. Það eru þau Rebekka Þráinsdóttir og Jón Thoroddsen sem lesa. Það er Kristín Guðrún Jónsdóttir, dósent við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands sem valdi sögur til birtingar í bókinni, þýddi þær og skrifaði inngang. Ritstjóri er Ásdís R. Magnúsdóttir prófessor. Útgefandi er...

Íslandssaga fyrir erlenda nemendur og tvær byltingar 06.03.2020

Hugvarp ræddi við Markús Þórhallsson sem kennir hópi erlendra nemenda Íslandssöguna, þar á meðal sögu tveggja byltinga í Reykjavík.

Kennsluefni fyrir börn sem læra íslensku sem annað mál 20.02.2020

Nú er unnið að því hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum að búa til kennsluefni á netinu fyrir börn af erlendum uppruna sem læra íslensku sem annað mál. Kennsluefnið er unnið á vegum Icelandic Online. Hugvarp ræddi við Birnu Arnbjörnsdóttur, prófessor í annarsmálsfræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, en hún hefur umsjón með verkefninu.

Hernaðarlist Meistara Sun 12.02.2020

Hugvarp ræddi við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, en hann þýddi bókina Hernaðarlist Meistara Sun sem var nýverið gefin út. Bókin er eitt rómaðasta og víðlesnasta fornrit Kínverja.

Arabísk orð í íslensku 06.02.2020

Þórir Jónsson Hraundal, lektor í arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands flutti nýverið fyrirlestur í fyrirlestraröð Vigdísarstofnunar þar sem hann fjallaði um orð af arabískum uppruna sem finna má í íslensku og öðrum Evrópumálum. Hugvarp tók Þóri tali.

Kvennréttindi innan kirkjunnar 27.01.2020

Á liðnu ári var hundraðasta konan vígð sem prestur innan íslensku þjóðkirkjunnar og af því tilefni efndi Guðfræðistofnun Háskóla Íslands til málþings um prestvígslu kvenna. Hugvarp ræddi við Arnfríði Guðmundsdóttur, prófessor við Guðfræði- og trúarbragaðafræðideild Háskóla Íslands, en hún flutti erindi á þinginu um langa og stranga leið kvenna til vígðrar þjónustu innan kirkjunnar.

Afrískar smásögur og staða smásögunnar 17.01.2020

Fjórða bindi ritraðarinnar Smásögur heimsins var nýverið gefið út, en það geymir nítján sögur frá sautján löndum Afríku. Hugvarp ræddi við Rúnar Helga Vignisson, Jón Karl Helgason og Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur, ritstjóra ritraðarinnar, um afrískar bókmenntir, ritröðina, smásagnaformið og Stutt - nýja rannsóknastofu í smásögum.

Umhverfishugvísindi í Ritinu 08.01.2020

Fjallað er um umhverfishugvísindi í nýjasta hefti Ritsins - tímariti Hugvísindasviðs. Hugvarp ræddi við þemaritstjóra Ritsins, þau Guðbjörgu R. Jóhannesdóttur, heimspeking og lektor við Listaháskóla Íslands og Þorvarð Árnason, umhverfis- og náttúrufræðing og forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.

Íslenskar kvikmyndir í nýjasta hefti Ritsins 22.11.2019

Björn Þór Vilhjálmsson, lektor í kvikmyndafræði og þemaritstjóri Ritsins, fjallar um nýjasta hefti þess og ræðir við Gunnar Tómas Kristófersson, en að þessu sinni er fjallað um íslenskar kvikmyndir í Ritinu. Ritið er gefið út í rafrænu formi og það má nálgast á vefslóðinni ritid.hi.is.

Steinunn Sigurðardóttir fjallar um nýyrði í ljóðmáli íslenskra skálda 25.10.2019

Í dag hlýðum við á Steinunni Sigurðardóttur skáld flytja hátíðarfyrirlestur Jónasar Hallgrímssonar í tilefni af því að hún gegnir nú starfi Jónasar Hallgrímssonar í ritlist við Háskóla Íslands. Í fyrirlestrinum, sem hefur yfirskriftina „Klárlega gríðarlegur birkiþrastasveimur“, veltir Steinunn fyrir sér nýyrðum í ljóðmáli nokkurra íslenskra skálda, frá Jónasi Hallgrímssyni til Sigfúsar Daðasonar o...

Listen to the Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.