Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Arts IS ↓ 14 episodes

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri.   Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100 tónleika á ári hverju af ýmsum toga og tekur á móti breiðum hópi áheyrenda. Leyfðu þér að hrífast með og kynntu þér tónleika sveitarinnar á vefnum sinfonia.is og á samfélagsmiðlum.

Author

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

Category

Arts

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

May 19, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur 19.05.2026

Undir lok maí, nánar tiltekið 29. og 30. maí, flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands áttundu sinfóníu Gustavs Mahler en þetta verður í fyrsta sinn sem þetta stórvirki verður flutt á Íslandi. Hljómsveitin verður með stærsta móti, myndarlegur kór á sviðinu ásamt barnakór og einsöngvararnir verða átta talsins. Það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi SÍ, sem stjórnar flutningi...

Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime 20.02.2026

Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime. Platan kemur út 27. febrúar næstkomandi hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus og inniheldur þrjú verk eftir Daníel í flutningi Sinfóníuhljómveitar Íslands undir stjórn Daníels sjálfs.

Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan 26.01.2026

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum í ár, 29. janúar næstkomandi, hljómar básúnukonsert eftir skoska tónskáldið Sir James MacMillan sem jafnframt stjórnar tónleikunum. Einleikari í konsertinum er Jón Arnar Einarsson, leiðari básúnudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafél...

Mugison tekinn tali 28.10.2025

Guðni Tómasson ræðir við tónlistarmanninn Mugison í tilefni tónleika hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 6. & 7. nóvember næstkomandi.

Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25 04.04.2025

Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónsöngvari er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á yfirstandandi tónlistarári. Hér ræðir Guðni Tómasson framkvæmdastjóri SÍ við Ólaf um líf í söng.

Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár 28.03.2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Guðnýju Guðmundsdóttur sem var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið. 

Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár 21.03.2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Joe Ognibene hornleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leiddi horndeildina um árabil. 

Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár 13.03.2025

Sigurður Ingvi Snorrason  ræðir við Helgu Hauksdóttur sem var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og síðar tónleikastjóri hennar. 

Eggert Pálsson – Sinfónían í 75 ár 03.03.2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Eggert Pálsson slagverksleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands um ýmislegt úr sögu hennar. 

Einar Jóhannesson – Sinfónían í 75 ár 28.02.2025

Í þessum þætti Hljómkviðunnar ræða tveir klarinettuleikarar saman – Einar Jóhannesson sem var fyrsti klarinettuleikari sveitarinnar um árabil og Sigurður Ingvi Snorrason sem ræðir við nokkra hljóðfæraleikara sveitarinnar í tilefni 75 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Víkingur og Daníel – Halla Oddný ræðir við tónskáldið og einleikarann um FEAST 28.02.2022

Þriðji píanókonsert Daníels Bjarnasonar, FEAST, var saminn fyrir Víking Heiðar Ólafsson að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Útvarp og Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles. Konsertinn var frumfluttur í Walt Disney-tónleikahöllinni í Los Angeles 18. febrúar síðastliðinn og er nú frumflutt á Íslandi á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Grænu röðinni miðvikudaginn 2. mars. Halla Oddný Magnú...

Sinfónía nr. 1 – Halla Oddný ræðir við Högna Egilsson 01.11.2021

Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins. Þessir spennandi  tónleikar í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru helgaðir nýrri sinfónískri tónlist Högna og mun hann einnig koma fram sjálfur með hljómsveitinni í sumum verkanna. Hljómsveitin hefur áður flutt tónlist Högna, meðal annars tekið upp tónlistina fyrir Netflix-sjónvarpsþáttaröðina Kötlu og ver...

Töfrar fortíðar – Halla Oddný ræðir við Þórunni Ósk 29.10.2021

Í hverri sinfóníuhljómsveit starfa hátt í hundrað manns sem hver og einn á að baki langt og strangt nám í sinni grein. Hver leggur sitt af mörkum til heildarinnar en er um leið fær um að stíga inn í sviðsljósið sem einleikariþegar færi gefst.  Á næstu tónleikum Grænu raðarinnar, sem að þessu sinni bera yfirskriftina Töfrar fortíðar, stígur Þórunn Ósk Marinósdóttir, leiðari víóludeildar Sinfóníuhlj...

Strauss og Shostakovitsj – Halla Oddný spjallar við Árna Heimi 30.09.2021

Í fyrsta þætti Hlaðvarps Sinfóníuhljómsveitar Íslands spjallar Halla Oddný Magnúsdóttir við Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing um verkin á efnisskrá fyrstu tónleika grænu raðarinnar í vetur, sem bera yfirskriftina Strauss og Shostakovits. Verkin sem fjallað er um: Richard Strauss Hornkonsert nr. 1 Dmítríj Shostakovitsj Píanókonsert nr. 2 Richard Strauss Don Juan Tónleikarnir fara fram í Eldbor...

Listen to the Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.