Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins
Í þættinum er að finna ýmist efni, bæði fræðandi og skemmtilegt. Við tökum viðtöl við blint og sjónskert fólk og aðra sem standa okkur nærri, fjöllum um tækninýjungar og samfélagsþróun sem varðar blinda og sjónskerta og margt fleira. Þátturinn kemur að jafnaði út mánaðarlega og hann má nálgast á öllum helstu stöðum þar sem hlaðvörp er að finna og er hann einnig aðgengilegur í vefvarpi Blindrafélagsins og á heimasíðu þess, blind.is.
Author
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur 34 25.08.2023 39:08
Í þessum þætti er fjallað um Iris Vision gleraugun og farið yfir þá möguleika sem þau veita ásamt viðtölum við Völu Jónu Garðarsdóttur hjá Sjónstöðinni og Svavar Guðmundsson, félagsmann í Blindrafélaginu.
Þáttur 33 28.07.2023 52:19
Í þessum þætti fjöllum við um NaviLens merkingar og fyrirhugaða uppsetningu þeirra á öllum biðstöðvum og vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Einnig settist Hlynur niður og ræddi við Má Gunnarsson, ekki missa af því.
Þáttur 32 30.06.2023 41:46
Í þessum þætti fjöllum við um nýlega sjónlýsingu á leikjum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, Hlynur tók viðtal við Kristinn Halldór Einarsson varðandi það verkefni. Einnig fjöllum við um appið Clew sem er sniðugt staðsetningar- og leiðarvísis app en Eyþór ræddi við Þorkel Jóhann Steindal um það.
Þáttur 31 26.05.2023 1:18:12
Hljóðbrot er með öðru sniði að þessu sinni. Við héldum opinn umræðufund um foreldrahlutverkið og áhrif blindu og sjónskerðingar á það. Líflegar umræður sköpuðust, fólk deildi reynslusögum og nokkur góð trix litu dagsins ljós.
Þáttur 30 28.04.2023 41:36
Í þessum þætti er viðtal við Hjalta Sigurðsson, félagsmann í Blindrafélaginu og neyðarvörð hjá 112. Einnig leyfir Eyþór okkur að heyra upptökur frá páskum á Grikklandi, sem eru töluvert frábrugðnir páskunum eins og við þekkjum þá hérlendis.
Þáttur 29 31.03.2023 40:19
Í þessum þætti verður farið um víðan völl, rætt um nýjustu vendingar í tækniheiminum og þróun gervigreindar, litið við á markboltaæfingu og spilakvöld.
Þáttur 28 24.02.2023 1:05:45
Við höldum áfram umfjöllun okkar um hæfingu og endurhæfingu blindra og sjónskertra. Fróðlegt viðtal við Brynju Arthúrsdóttur um dvöl sína og endurhæfingu í Bretlandi.
Þáttur 27 27.01.2023 59:14
Í þessum þætti er fjallað um mikilvægi endurhæfingar blindra og sjónskertra. Við heyrum gamalt viðtal við Halldór Rafnar, en hann hefði orðið 100 ára 20. janúar síðastliðinn. Auk endurhæfingar er einnig rætt um hæfingu almennt og hæfni einstaklinga.
Þáttur 26 24.12.2022 42:11
Í þessum þætti fara Eyþór og Hlynur yfir stöðuna í nýlegu máli þar sem Eyþóri og eiginkonu hans var meinað að fljúga með SAS í tvígang með kornunga dóttur sína og nýjar upplýsingar koma fram. Einnig ræða þeir jólin, jólahefðir og Sigþór formaður Blindrafélagsins sendir jólakveðju.
Þáttur 25 26.11.2022 44:16
Í þessum þætti ræða Eyþór og Hlynur um íslenska máltækni og talgervla. Við fáum að heyra hljóðupptöku frá fyrsta talgervli sem búinn var til í heiminum árið 1939 og rekjum sögu talgervla, greinum stöðuna í íslenskri máltækni og veltum framtíðinni fyrir okkur.
Þáttur 24 28.10.2022 57:19
Í þessum þætti er rætt við Daniel Kish um umferli og aðgengismál. Daniel Kish er framkvæmdastjóri World Access for the Blind og missti sjón á fyrsta æviári sínu. Hann sinnir kennslu og þjálfun um víða veröld og framlag Daniels til rannsókna á skynjun ýmiskonar er víðtækt. Á ferli sínum hefur hann vakið mesta athygli fyrir færni og kennslu á sviði hlustunar, í því að skynja rými og í því að nýta ti...
Þáttur 23 30.09.2022 43:28
Í þessum þætti er fjallað um greiðslur með farsímum og hvernig er öruggast að borga ef maður getur ekki stimplað inn PIN númer. Einnig er fjallað um sjónlýsingar, hvaða hlutverki þær gegna og spiluð upptaka af sjónlýsingu á Árbæjarsafni.
Þáttur 22 15.06.2022 39:57
Í þessum þætti er fjallað um leiðsöguhunda. Heyrt var í nokkrum leiðsöguhundanotendum og þeir spurðir hvað hundarnir geri fyrir þau. Einnig er umfjöllun frá Þorkatli Steindal þar sem hann fer með hundinum sínum Gaur út í Kringlu. Þá umfjöllun er gott að hlusta á með heyrnartólum til að fá bestu upplifunina
Þáttur 21. 06.05.2022 22:20
Eyþór Kamban ræðir við Ástu Björnsdóttur um VIVA verkefnið.
Þáttur 20 23.12.2021 34:38
Í þættinum heyrum við jólakveðju frá formanninum Sigþóri U. Hallfreðssyni. Þórunn Hjartardóttir ræðir og fræðir okkur um hljóðlýsingar. Gísli Helgason sendir okkur jólakveðju frá Kanada. Svo er heyrum við jólakveðju frá Hljóðbókasafninu. Þættinum stýrir Eyþór Kamban Þrastarson.
Þáttur 19 12.11.2021 56:21
Í þættinum talar Hlynur Þór Agnarsson við Ísak Jónson foreldri í Blindrafélaginu um nýtt app sem hann vinnur nú að því að framleiða sem eykur aðgengi blindra og sjónskertra að borðspilum. Einnig er kynning á tölvuleiknum Eurofly frá Eyþóri þar sem flogið er frá Keflavík til Egilstaða.
Þáttur 18 24.09.2021 32:33
Í þættnum er að finna viðtal við Gunnar Thor Örnólfsson máltæknisérfræðing um nýjar íslenskar talgervilsraddir sem eru í þróun um þessar mundir. Einnig leit Marjakaisa Matthíasson við á Blindravinnustofunni í tilefni af 80 ára afmæli hennar.
Þáttur 17 27.08.2021 35:35
Í þættinum heyrum við í þeim Patreki Axelssyni og Má Gunnarssyni sem eru staddir í Tókíó og taka þáttí Ólympíumóti fatlaðra sem nú stendur yfir. Einnig heyrum við innslag frá Gísla Helgasyni sem fjallar um fyrsta tölvustýrða punktaletursprentarann sem kom til Íslands árið 1986 en nú eru þrjátíu og fimm ár liðin síðan.
Þáttur 16 28.05.2021 48:14
Eyþór Kamban Þrastarson sér um þáttinn. Friðrik Steinn Friðriksson tekur viðtal við Ásdísi Evalalíu Guðmundsdóttur, varaformann Blindrafélagsins.
Þáttur 15 30.04.2021 37:05
Eyþór Kamban Þrastarson sér um þáttinn. Hann og Þorkell Steindal fjalla um umferli í umferðinni. Gísli Helgason gróf upp ákaflega skemmtilega upptöku um ökudag blindra sem haldinn var 19. október árið 1997.
Þáttur 14 26.03.2021 34:20
Fjórtandi þátturinn af Hljóðbroti, hljóðtímariti Blindrafélagsins er kominn út. Þættinum stjórnar Eyþór Kamban Þrastarson. Í þessum þætti heyrum við í nýjum forstöðumanni Miðstöðvarinnar Elfu Svanhildi Hermannsdóttur. Við fáum að heyra í nýjasta og heitasta eldgosinu sem Anna Marsibil Clausen tók upp. Hún segir okkur frá tilurð upptökunnar. Að lokum fáum við að heyra í Hlyni Þór sem segir okkur að...
Þáttur 13 12.02.2021 44:14
Þrettándi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins. Þættinum stjórnar Friðrik Steinn Friðriksson. Í þessum þætti heyrum við viðtal við Hjalta Sigurðsson og fáum kynningu á forritinu Retina Risk.
Þáttur 12 18.12.2020 55:34
Tólfti þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Friðrik Friðriksson. Í þessum þætti fáum förum við niður í miðbæ með Þorkatli og reynum að fanga jólaandann. Þorkell Jóhann Steindal og Theódór Helgi Kristinsson ræddu við Marín Guðrúnu Hrafnsdóttur, nýjan forstöðumann Hljóðbókasafnsins. Einnig fáum við að heyra jólakveðjur.
Þáttur 11 15.10.2020 48:17
Í tilefni af degi hvíta stafsins, 15. október 2020. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti fáum við kynningu á hvíta stafnum. Þorkell Jóhann Steindal og Eyþór Kamban Þrastarsson fara í göngutúr með hvíta stafinn og tala um hversu mikilægur stafurinn er blindum og sjónskertum.
Þáttur 10 20.08.2020 54:12
Tíundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Friðrik Steinn Friðriksson. Í þessum þætti fáum við innsent sumarkort frá Gísla Helgasyni og Herdísi Hallvarðsdóttur. Einnig heyrum við áhugavert viðtal um Borgarlínuna, en þar ræða þeir Þorkell Jóhann Steindal og Theódór Helgi Kristinsson við Hrafnkel Á. Proppé, Verkefnastjóra Borgarlínunnar, og Eddu Ívar...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.