Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins
Í þættinum er að finna ýmist efni, bæði fræðandi og skemmtilegt. Við tökum viðtöl við blint og sjónskert fólk og aðra sem standa okkur nærri, fjöllum um tækninýjungar og samfélagsþróun sem varðar blinda og sjónskerta og margt fleira. Þátturinn kemur að jafnaði út mánaðarlega og hann má nálgast á öllum helstu stöðum þar sem hlaðvörp er að finna og er hann einnig aðgengilegur í vefvarpi Blindrafélagsins og á heimasíðu þess, blind.is.
Author
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur 59 27.06.2025 1:13:41
Í þessum þætti ræðir Hlynur Þór við Patrek Andrés Axelsson, félagsmann í Blindrafélaginu. Patrekur er einnig fyrsti íslenski blindi eða sjónskerti einstaklingurinn til að útskrifast sem sjúkraþjálfari.
Þáttur 58 13.06.2025 48:23
Í þessum þætti fer Eyþór í göngutúr með Þorkeli Steindal og leiðsöguhundinum Gaur um Hlíðahverfið og Öskjuhliðina. Einnig fjöllum við um ýmis tól og tæki sem blindir og sjónskertir geta nýtt sér í umferli.
Þáttur 57 30.05.2025 49:02
Í þessum þætti tók Hlynur Þór viðtal við Gunnar Má Óskarsson, félagsmann og starfsmann Blindrafélagsins.
Þáttur 56 09.05.2025 11:33
Í þessum þætti heyrum við viðtal sem Már Gunnarsson tók við sjálfboðaliða Bresku Leiðsöguhundasamtakanna Guide Dogs UK. Þess ber að geta að viðtalið er á ensku.
Þáttur 55 25.04.2025 1:18:32
Í þessum þætti ræðir Hlynur við Ásdísi Evlalíu Guðmundsdóttur, félagsmann í Blindrafélaginu og við skellum okkur í NaviLens ratleik með UngBlind.
Þáttur 54 11.04.2025 57:11
Í þessum þætti tekur Eyþór Kamban Þrastarson viðtal við Inga Þór Einarsson, aðstoðarprófessor í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík. Umfjöllunarefnið er rannsóknir sem Ingi hefur gert á fötluðum börnum og fötluðu íþróttafólki með áherslu á blint íþróttafólk.
Þáttur 53 28.03.2025 1:08:56
Í þessum þætti tekur Hlynur Þór nærmyndarviðtal við Rósu Maríu Hjörvar og Már Gunnarsson ræðir við Theódór Helga Kristinsson um talgervla og snjalltæki.
Þáttur 52 28.02.2025 46:10
Í þessum þætti ræða Hlynur, Eyþór og Már um gervigreind í daglegu lífi. Við fjöllum einnig um nýjar íslenskar raddir fyrir Apple snjalltæki og ræðum við Önnu Nikulásdóttur hjá Grammatek um það spennandi verkefni. Már Gunnarsson fer einnig í leiðangur með aðstoð rauntímasjóngreinis (live recognition).
Þáttur 51 31.01.2025 1:29:16
Í þessum þætti verður fjallað um færnibúðir sem haldnar voru hérlendis í október síðastliðnum og fengu þar ungmenni að spreyta sig í alls kyns íþróttum, við ræðum við Margréti Helgu, eða Möggu, formann UngBlindar um starfið hjá þeim, Hlynur leit við í sundleikfimi hjá Trimmklúbbnum Eddu og Már Gunnarsson fjallar um skemmtilegan ratleik sem hann stóð fyrir í Hörpu.
Þáttur 50 23.12.2024 45:09
Í þessum þætti svífur jólaandinn yfir vötnum. Við heyrum innsendar jólakveðjur, ræðum ýmislegt jólalegt og Lions Song Festival for the Blind.
Þáttur 49 29.11.2024 1:31:24
Þessi þáttur er upptaka af opnum umræðufundi um menntamál gagnvart blindum og sjónskertum. Fjölbreyttur hópur sótti fundinn með hjálp fjarfundarbúnaðar og líflegar umræður sköpuðust. Í pallborði voru þau Ágústa Eir Gunnarsdóttir, Eyþór Kamban Þrastarson, Hlynur Þór Agnarsson, Íva Adrichem og Már Gunnarsson.
Þáttur 48 25.10.2024 1:01:33
Í þessum þætti fjöllum við um nýja íslenska heimildarmynd um heilatengda sjónskerðingu sem ber nafnið Fyrir allra augum eða Acting Normal with CVI. Myndin er eftir þær Dagbjörtu Andrésdóttur, Elínu Sigurðardóttur og Bjarneyju Lúðvíksdóttur. Hlynur tók viðtal við þær á frumsýningardaginn. Eyþór reynir að nota óaðgengilgan hleðslumæli til að sjá hvort rafhlöðurnar sínar séu hlaðnar og Már Gunnarsson...
Þáttur 47 27.09.2024 54:12
Að þessu sinni er aðalumræðuefnið Ólympíuleikar fatlaðra. Már og Eyþór deila sinni reynslu af mótinu og Hlynur ræðir við Halldór Sævar Guðbergsson, sem fór á leikana 1988 í Suður Kóreu og 1992 í Barcelona.
Þáttur 46 30.08.2024 1:08:45
Í þessum þætti fögnum við 85 ára afmæli Blindrafélagsins. Hlynur og Eyþór ræða við Gísla Helgason um Hamrahlíð 17, merkilega sögu hússins og þann stóra part sem það á í sögu Blindrafélagsins. Einnig ræða þeir merkilega biósýningu sem fram fór í tilefni afmælis Blindrafélagsins, þegar kvikmyndin Snerting eftir Baltasar Kormák var sýnd með sjónlýsingu. Einnig tók Már Gunnarsson frábært viðtal við Ar...
Þáttur 45 26.07.2024 1:00:30
Í þessum þætti ræðum við nýja útgáfu nafnskírteina og hvort þau séu sniðug lausn fyrir t.d. einstaklinga sem ekki hafa ökuskírteini. Eyþór fræðir okkur um aukinn veruleika (augmented reality). Már teku r einnig spennandi viðtal við erlendan lækni á heimsmælikvarða, m.a. í erfðafræði og sérhæfingu í blindu og sjónskerðingu.
Þáttur 44 28.06.2024 1:20:11
Í þessum þætti er fjallað um aðgengi og tæknimál. Eyþór ræðir við Þorkel Jóhann Steindal um snjallúr og hvernig hægt er að nýta sér þau, sem og valdeflingu og umferli. Einnig ræðir Már Gunnarsson við Baldur Snæ Sigurðsson, tækniráðgjafa hjá Blindrafélaginu en sá síðarnefndi sótti Sight City tæknisýninguna í Frankfurt í Þýskalandi í maí. Baldur fer yfir ýmis skemmtileg og spennandi tæki og tól sem...
Þáttur 43 31.05.2024 47:00
Í þessum þætti ræða Hlynur og Eyþór við Sigþór U. Hallfreðsson, formann Blindrafélagsins og Már Gunnarsson kynnir sér sjálfkeyrandi bíla.
Þáttur 42 26.04.2024 52:26
Í þessum þætti er fjallað um heimilishald, húsverk og leiðsöguhunda. Einnig skellir Már Gunnarsson sér á matreiðslunámskeið.
Þáttur 41 29.03.2024 48:45
Í þessum þætti skyggnumst við inn í fortíðina og ræðum þjóðsögur með tilliti til fötlunar, blindu og sjónskerðingar. Eyþór ræðir við Evu Þórdísi Ebenezersdóttur, fötlunarþjóðfræðing um málefnið. Már Gunnarsson kynnir okkur fyrir eina konungnum sem vitað er til þess að hafi verið grafinn hér á landi, en sá var blindur.
Þáttur 40 23.02.2024 1:00:33
Í þessum þætti ræða Eyþór og Már við Baldur Snæ Sigurðsson, tækniráðgjafa hjá Blindrafélaginu um þau verkefni sem eru í gangi í dag. Við skoðum nýja BlindShell takkasímann sem er sérsniðinn fyrir blinda og sjónskerta. Einnig sláumst við í för með Má Gunnarssyni og leiðsöguhundinum Max er þeir ferðast með leigubíl, flugi og lest frá Manchester til Belgíu.
Þáttur 39 26.01.2024 1:14:18
Þessi þáttur er helgaður minningu Rósu Guðmundsdóttur, stofnfélaga og fyrrum formanns Blindrafélagsins. Rósa er önnur tveggja kvenna sem gegnt hafa því embætti. Sérstakur gestur þáttarins er Gísli Helgason sem ræðir við Eyþór og Hlyn um ævi og störf Rósu auk þess sem við heyrum gömul viðtöl við hana. Sérstakar þakkir fær einnig Helga Magnúsdóttir, systurdóttir Rósu, fyrir veittar upplýsingar við g...
Þáttur 38 22.12.2023 56:32
Í þessum þætti ræður jólaandinn ríkjum. Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins, les jólakveðju. Már Gunnarsson hefur grafið upp jólalög sem ýmist hafa verið samin eða flutt af félagsmönnum í Blindrafélagsins. Eyþór kynnir kappaksturstölvuleik sem hann hefur verið að spila undanfarið og við heyrum dæmi. Að lokum spurðum við fólk í þremur mismunandi löndum hvað jólin væru fyrir þeim og he...
Þáttur 37 24.11.2023 1:01:29
Í þessum þætti ræðir Eyþór við Rannveigu Traustadóttur, umferliskennara hjá Sjónstöðinni. Már Gunnarsson fer á stúfana, ræðir við Theodór Helga Kristinsson og kynnir sér heim stefnumótaforrita. Einnig ræða Eyþór og Hlynur um aðgengilega tölvuleiki.
Þáttur 36 27.10.2023 48:43
Í þessum þætti verður fjallað um vinnustaði fyrir blinda og sjónskerta og borin saman staðan á Íslandi og Grikklandi. Hrekkjavakan fær einnig sitt pláss og Már Gunnarsson kemur með innslag frá Manchester.
Þáttur 35 29.09.2023 47:52
Í þessum þætti spjöllum við um spennandi nýjung frá fyrirtækinu Be My Eyes sem nefnist Be My AI og Eyþór sýnir okkur hvernig hún virkar. Einnig tók Hlynur viðtöl við Sóley Guðmundsdóttur, sjálfbærnifulltrúa KSÍ og Kristinn Halldór Einarsson, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, varðandi nýtt samkomulag um sjónlýsingar á landsleikjum.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.