Lestrarklefinn

Hlaðvarp Lestrarklefans

Arts IS ↓ 25 episodes

Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann.

Author

Lestrarklefinn

Category

Arts

Podcast website

rss.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

25. Úr bók í bíó: Kindred 03.07.2026

Er Kindred Yesteryear 1976? Þeirri spurningu og öðrum í þeim dúr verður svarað í þessu spjalli Sjafnar og Rebekku um bókina Kindred eftir Octaviu E. Butler og sjónvarpsaðlögunina á henni frá 2022. Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif

24. Leirburður í grasrótinni 12.06.2026

Lestrarklefinn fær góða gesti í hlaðvarpi vikunnar, Elísu Rún Svansdóttur og Amöndu Líf Fritzdóttur, sem báðar hafa ritstýrt bókmenntatímaritinu Leirburði. Tímarit sem þessi eru einstaklega mikilvæg grasrótinni og Rebekka Sif fékk að forvitnast um þetta góða starf bókmenntafræðinema Háskóla Íslands. Umsjónarmaður: Rebekka Sif Stefánsdóttir

23. Hefðbundnar húsmæður: Yesteryear eftir Caro Claire Burke 20.05.2026

Rebekka og Sjöfn ræða hina geysivinsælu skáldsögu Yesteryear sem hefur aldeilis slegið í gegn á skömmum tíma. Rebekka spyr Sjöfn út í hefðbundnar húsmæður (e. Tradwives), en Sjöfn hefur kafað djúpt í þennan áhugaverða og merkilega mormónska subkúltúr sem tröllríður samfélagsmiðlum og hefur djúpstæð áhrif víða um samfélagið. Umsjón: Rebekka Sif og Sjöfn Asare

22. Ungar stúlkur og eldri menn: Half his Age eftir Jeanette McCurdy 07.05.2026

Díana Sjöfn og Sjöfn ræða bókina "Half his Age" eftir unghöfundinn Jeanette McCurdy, sem þekktust er fyrir feril sinn á Disney stöðinni og fyrir endurminningarsögu sína "I'm Glad My Mom Died." Bókin fellur í flokk þeirra ritverka sem fjalla um ungar konur eða stelpur sem eiga í ástarsamböndum við, eða eru táldregnar af, eldri mönnum, sem eiga það mjög oft sameiginlegt að vera enskukennarar. Hvers...

21. Úr bók í bíó: Wuthering Heights 23.04.2026

Úr bók í bíó snýr aftur með æsispennandi umfjöllun um hina umdeildu aðlögun "Wuthering Heights," sem Sjöfn gerist svo djörf að kalla það versta sem nokkru sinni hefur verið fest á filmu og kallað bíómynd. Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif

20. Hinsegin aðstæður með Evu Rún og Höllu Þórlaugu 17.04.2026

Jæja. Eftir mikla tæknilega örðugleika við framleiðslu og útgáfu þáttarins um bókmenntahátíðina Queer Situations snýr hann aftur á streymið. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu Rún og Höllu um æsispennandi bókmenntahátíðina sem þær standa fyrir þar sem alls konar hinsegin bókmenntir eru í fyrirrúmi. Umsjón: Sjöfn Asare

19. Úr bók í bíó: Hamnet 25.03.2026

Við kynnum nýjan dagskrárlið: Úr bók í bíó! Rebekka Sif segir að þessu sinni Sjöfn Asare af upplifun sinni á sögulegu skáldsögunni Hamnet og kvikmyndaaðlögun hennar. Kafað er ofan í frásagnaraðferðir Maggie O´Farrell og hvernig henni tekst að glæða gamla sögu nýju og hrífandi lífi. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare

18. Leikhúsannáll Lestrarklefans 15.02.2026

Leikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

17. Bókmenntaskandalar ársins 2025 02.01.2026

Í þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur! Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare

16. Krakkakraftur með Emblu Bachmann 16.12.2025

Í þætti dagsins fáum við Emblu Bachmann til okkar að ræða barna- og ungmennabækur og lífið sem ungstirni með milljón bolta á lofti. Leiðrétting: Í þættinum er rætt um ungmennabækur og að þær séu allar fantasíur þetta árið, en það er ekki rétt, þær eru nánast allar fantasíur, það leynist ein hversdagssaga þarna! Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Sjöfn Asare og Díana Sjöfn

15. Ævintýralegar bækur með Ævari Þór 21.11.2025

Einn afkastamesti rithöfundur Íslands settist með okkur í Lestrarklefann og spjallaði við okkur um skrif og bókmenntir. Ævar Þór Benediktsson er með fjórar nýjar bækur í jólabókaflóðinu, Skólastjórann, Góðan daginn, Piparkökuborgina og Gleðileg jól. Verkefnin eru óteljandi og því nóg um að ræða. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

14. Á barmi heimsenda með Þórdísi Helgadóttur 13.11.2025

Í hlaðvarpi dagsins fáum við rithöfundinn Þórdísi Helgadóttur í heimsókn sem gaf nýverið út skáldsöguna Lausaletur. Við ræðum við Þórdísi um bókina, rithöfundalífið og heimsenda. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri 30.10.2025

Hrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins. Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán! Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare

12. Landslag ljóðsins með Maó 24.10.2025

Í þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare.

11. Fyrir flóðið 08.10.2025

Haustlestur er okkur efst í huga í þætti dagsins. Fyrsta bylgja flóðsins er hafin og við könnum þær gersemar sem hafa nú þegar skolað á land. Við skoðum einnig leikárið og ræðum um þau leikverk sem við erum spenntastar fyrir. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare

10. Ungmennabækur með Kristínu Björgu 22.09.2025

Í fyrsta hlaðvarpsþætti vetrarins fengum við góða heimsókn frá rithöfundinum Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur sem skrifar einnig umfjallanir fyrir Lestrarklefann. Við ræðum okkar uppáhalds ungmennabækur og ræðum um bókmenntaformið, fortíð þess og framtíð. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare

9. Aðdráttarafl smásögunnar 30.05.2025

Í níunda þætti Hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um smásögur, aðdráttarafl þeirra og hvort markaðsöflin komi í veg fyrir blómlegri útgáfu smásagna. Þær eru einnig höfundar smásagnasafnsins Innlyksa sem kom út í byrjun apríl og ræða því einnig um aðferðir við að skrifa stuttar sögur og texta. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

8. Bókaútrás með Pedro Gunnlaugi Garcia 27.04.2025

Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða Díana og Sjöfn við rithöfundinn Pedro Gunnlaug Garcia sem er þekktastur fyrir skáldsöguna Lungu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022. Pedro segir frá ferðum sínum erlendis á bókmenntahátiðir þar sem Lungu hefur nú verið þýdd á fjölda tungumála. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

7. Þýðingar með Hörpu Rún 31.03.2025

Í sjöunda þætti hlaðvarps Lestrarklefans fengum við góðan gest, rithöfundinn og bóndann Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Hún starfar einnig sem þýðandi og hefur meðal annars þýtt bækur Emily Henry og leikritið Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare. Þáttarstjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.

6. Hinsegin bókmenntir með Bergrúnu 04.03.2025

Í hlaðvarpi Lestrarklefans í dag ræðum við um flóru hinsegin bókmennta. Til okkar kom góður gestur, Bergrún Andradóttir skrifstofustýra og aðstoðarframkvæmdarstjóri Samtakanna ´78. Bækur sem voru meðal annars ræddar, Eldri konur, You Exist Too Much, Drottningarnar í garðinum, DJ Bambi, Ungfrú Ísland, Herbergi Giovanni ásamt fleirum. Þáttastjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarkle...

5. Lestrarmarkmið á nýju ári 19.01.2025

Rebekka, Díana og Sjöfn ræða lestrarmarkmið, lestrarsnallforrit og furðulegar lestrarvenjur.

4. Jólabókaflóðið með Villa Neto 19.12.2024

Í jólabókaflóðsþætti Lestrarklefans fengum við góðan gest, leikarann og grínistann Vilhelm Neto. Rætt var um nýútkomnar bækur, hvað við erum að lesa og mikilvægi þess að bera út boðskap bóklesturs á TikTok! Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare.

3. Jólabækur og notalegheit 09.12.2024

Í þriðja þætti fjalla Rebekka Sif og Díana Sjöfn um jólalegar bækur eða svokallaðar jólabækur. Bæði fyrir fullorðna og börn. Inn í það blandast jólahefðir, notalegheitin við lestur yfir hátíðarnar og að lokum örstutt umræða um jólabókaflóðið.

2. Sjálfsútgáfa með Halldóri Armand 21.11.2024

Í öðrum þætti ræðum við sjálfsútgefið rusl, Mikilvægt rusl og hvernig rithöfundurinn Halldór Armand yrði flokkaður ef hann væri rusl. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

1. Bókmenntagagnrýni, með eða á móti? 07.11.2024

Í fyrsta þætti hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um tilgang menningargagnrýni. Einnig er farið yfir sögu Lestrarklefans og þáttastjórnendur kynntir til leiks.

Listen to the Hlaðvarp Lestrarklefans podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.