Ghost Network®
Hið yfirnáttúrulega
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
105. Akashic skrárnar og heilun með Stellu Levy 22.06.2026 19:14
Í þessum þætti fáum við að vita ALLT um Akashic skrárnar, hvernig þær virka og hvernig unnið er með að heila þær og okkur. Við erum báðar í heilunarmeðferð hjá Stellu þar sem hún skoðaði okkar Akashic skrár og förum við yfir hvernig þetta virkar allt saman. Að okkar mati er þetta mögnuð og heildræn heilun á fyrrilífum og karma. Akashic skráin þín, eða sálarbókin þín, er eins og lifandi gagnagrunnu...
104. Stella Levy 17.06.2026 1:38:00
Hin magnaða Stella kom í viðtal til okkar alla leið frá Noregi. Hún er norn af guðs náð og hefur sankað að sér allskonar námi í andlegum málefnum gegnum tíðina Hún hefur lært Usui reiki, angelic reiki (englaheilun) og dreka- og einhyrningaheilun. Einnig les hún í Akashic skrárnar (alheimsskrár sálarinnar). Hún leggur og les í tarot spil, talnaspeki og pendúl. Hún er vægast sagt alger viskubrunnur...
103. Samsæri tengt world cup, geimverur og allt það undarlega sem er í gangi þessa dagana. 15.06.2026 9:17
hæÞað er allskonar stór undarlegt í gangi þessa dagana og er stemningin í loftinu bara pínu skrítin að okkar mati. Maður veit ekkert hverju maður á að trúa lengur og sögusagnir og samsæri spretta fram úr öllum áttum, geimveru fréttir hjá þingmönnum og opinberum starfsmönnum, svakaleg vakning og allskonar, það er eiginlega bara allt í gangi! Við förum um víðan völl í þessum þætti, ræðum m.a. samsær...
102. Draugagangur í Arthur Findlay 08.06.2026 14:54
Arthur Findlay College sem er staðsettur í hinu glæsilega Stansted Hall á Englandi, er ekki aðeins þekktur fyrir kennslu í miðlun og andlegum málefnum heldur einnig fyrir að vera talið eitt af svokölluðum “hot spots” andlegra upplifana. Margir sem heimsækja staðinn lýsa honum sem „charged place“ eins og andrúmsloftið sé hlaðið sérstakri orku sem erfitt sé að útskýra. Í gegnum árin hafa nemendur og...
101. Ufo og alien disclosure - Hvað er verið að plana? 01.06.2026 9:53
Undanfarið hefur umræðan um UFO og opinbera birtingu og allskonar upplýsingar um geimverur aukist til muna, en á bak við tjöldin gæti verið að krauma dularfullt plan djúpríkisins og eru uppljóstrarar að segja að árið 2027 mun þetta "plan" koma upp á yfirborðið og þá hefst í raun leiksýningin. Það hefur verið talað um að djúpríkið sé búið að vera hægt og rólega að setja upp sviðsmynd og planta fræu...
100. Andleg árás – Spiritual Attack 27.05.2026 1:14:05
Andleg árás kemur fyrir flesta hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Það er mikilvægt að þekkja merkin og ná að breyta þessari neiðkvæðu orku áður en það nær tökum á þér. Þegar fólk byrjar að vakna andlega, styrkja innsæið sitt og tengjast hærri orku er oft sagt að það geti orðið næmara fyrir neikvæðum áhrifum sem reyna að skapa ótta, efa og orkuleysi. Andleg árás getur byrjað sem neikv...
99. Fyrrilífs upplifun Dagný 25.05.2026 11:32
Í þessum þætti segir Dagný okkur frá sinni mögnuðu lífsreynslu eftir fyrrilífs dáleiðslu og heilun hjá hinni mögnuðu Vigdísi. Það er ótrúlegt að heyra það sem hún upplifði í þessum tíma og hvað það hjálpaði henni mikið! Selma horfði á og ekki er það sýðri upplifun að vera vitni af svona fyrrilífs dáleiðslu og heilun. Það er magnað hvað sálin man og getur tekið með sér allskonar úr fyrrilífum inn í...
98. Ufo sightings í Hafnarfirði 20.05.2026 57:17
Selma var í göngutúr í Hafnarfirði um helgina og varð hún og sunor hennar vitni að mjög undarlegum fljúgandi furðurhlut. Á himninum birtist hlutur sem hafði fyrst kassalaga form, en á nokkrum sekúntum áður en hún gat byrjað að taka upp video þá breytti þetta um form og varð hringur. Hreyfingar voru óvenjulegar og erfitt var að bera þær saman við hefðbundnar flugvélar, þyrlur eða dróna. Á köflum le...
97. Andleg vegferð er allskonar 18.05.2026 10:34
Andleg vegferð er eitthvað sem flestir fara í gegnum á einn eða annan hátt, jafnvel þó fólk noti mismunandi orð yfir hana. Fyrir suma tengist hún trú, fyrir aðra sjálfsþekkingu, tilfinningum, lífsreynslu eða tengingu við hinn andlega heim. Andleg vegferð snýst í grunnin um að læra að skilja sjálfan sig betur og hjálpa við að finna innri frið. Oft halda margir að andlegt fólk þurfi að vera í hörklæ...
96. Vadíkanið 13.05.2026 1:02:11
Vatíkanið hefur lengi verið eitt dularfyllsta og áhrifamesta ríki heims, bæði vegna trúarlegs valds og sögulegrar arfleifðar. Sem miðstöð Rómversk-kaþólska kirkjan gegnir það lykilhlutverki í lífi milljóna manna, en jafnframt hefur það verið uppspretta fjölmargra samsæriskenninga og sögusagna í gegnum tíðina. Ein þekktasta kenningin snýr að leyniskjölum sem eiga að vera geymd í Vatíkanleyndarsafni...
95. Innsæið 11.05.2026 8:27
Innsæi er oft eitthvað sem við upplifum sem svona „innri tilfinningu“ eins og lítil rödd eða gut feeling sem segir okkur hvað sé rétt eða rangt, jafnvel áður en við höfum hugsað málið almennilega í gegn. Sumir líta á innsæi sem eins konar tengingu við eitthvað meira en bara okkur sjálf eins og við séum að „túna okkur inn“ á stærri orku eða vitund. Þá getur innsæið birst sem sterk tilfinning, hugbo...
94. Arthur Findlay collage - okkar reynsla 06.05.2026 1:31:26
Við erum komnar heim frá Arthur Findlay og erum ekekrt smá ánægðar með þessa geggjuðu ferð! Við lærðum svo mikið og höfum tekið rosalegan vaxtarkipp í andlega heiminum. Þetta var ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi og lærdómsríkt. Við förum aðeins yfir þetta í þessum þætti, hvað við lærðum og hvernig okkur fannst skólinn og námið. Við vorum að læra trans heilun í 7 daga í geggjuðu u...
93. Samsæriskenningar um Tunglið 04.05.2026 10:05
Samsæriskenningar um tunglið eru ansi margar. Sumir halda að tunglið sé ekki náttúrulegt heldur gervihnöttur eða jafnvel geimstöð sem fylgist með jörðinni og jafnvel stýri henni að hluta til. Aðrar kenningar eins og það að tunglið sé mögulega holt að innan eða innihaldi mannvirki sem hafi áhrif á jörðina og mannkynið og að leyndarmál séu falin á tunglinu eins og byggingar eða geimverur. Ein frægas...
92. Geimfréttir með Gunnari Dan 29.04.2026 1:25:19
Við fengum að vita það allra nýjasta og heitasta slúðrið úr geimfréttum með Gunnari Dan. Það er svo mikið að gerast í þessum málaflokk að það er eiginlega bara vandræðanlegt! En við ræddum m.a. um dularfullu morðin og mannshvörfin á vísindamönnunum sem flestir hafa tekið eftir í fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði. Við snertum aðeins á samsæriskenningum um Epstein skjölin og Covid sem komið er á yf...
91. Heilun - Trans heilun 27.04.2026 10:17
Heilun snýst um að endurheimta þetta jafnvægi. Með því að vinna með orku og ásetning er markmiðið að styðja við náttúrulega getu líkamans til að stilla sig af. Aðferðir eins og Reiki, Englareiki, kristallaheilun og transheilun nálgast þetta á mismunandi hátt, en eiga það sameiginlegt að leitast við að róa taugakerfið, hreinsa orkuflæði og efla innri frið. Heilun þykir okkur magnað tól sem hjálpar...
90. Búálfar 22.04.2026 58:51
Búálfar eru ekki aðeins hluti af íslenskri þjóðtrú, heldur finnast svipaðar verur í sögum og menningu víða um heim. Þó að nöfnin og smáatriðin breytist milli landa, eiga þessar verur oft margt sameiginlegt. Á Norðurlöndum eru álfar og huldufólk talin búa í steinum, hólum og fjöllum. Þeir eru oft líkir mönnum í útliti en lifa aðskildu lífi og fylgja eigin reglum. Í keltneskri þjóðtrú, til dæmis á Í...
89. Appalachia fjöllin 20.04.2026 55:32
Appalachia fjöllin eru ein af elstu fjallakeðjum heims og hafa ríka sögu bæði jarðfræðilega og menningarlega. Fjöllin eru þekkt fyrir fallegt landslag, stóra skóga og fjölbreytt lífríki sem hefur varðveist í þúsundir ára. Hið dularfulla við Appalachia er margþætt. Fyrst ber að nefna náttúruna sjálfa. Þykku skógarnir, dimma dali sem skapa ævintýralega stemningu. Þar hafa fundist margir fornir hella...
88. Dark web 15.04.2026 45:12
The dark web er hluti af internetinu sem er ekki aðgengilegur með hefðbundnum vöfrum eins og Chrome eða Safari. Til að komast inn á það þarf sérstakan hugbúnað, til dæmis Tor, sem felur auðkenni notenda og gerir þeim kleift að vafra um nafnlaust. Dark web er þekkt fyrir ólöglega starfsemi. Þar má finna markaði fyrir fíkniefni, stolnar upplýsingar, fölsuð skilríki, morð, mannakjöt og allskonar ólög...
87. Fyrrilífs dáleiðsla - upplifun! 13.04.2026 7:11
Eftir að við tókum viðtalið við hina mögnuðu Vigdísi þá fór Selma í fyrrilífs dáleiðslu til hennar um daginn og auðvitað kom Dagný með og fylgdist með. Þetta var vægast sagt MÖGNUÐ upplifun! Við förum yfir þetta allt í þessum þætti og Selma fer á persónulegu nóturnar og opnar sig upp á gátt. Þessi upplifun var svo áhrifarík og blandar Vigdís öflugri heilun saman við fyrrilífs dáleiðsluna og vinnur...
86. Mandela effect 08.04.2026 58:55
Mandela Effect er eitt af þessum fyrirbærum sem fær mann til að efast um sjálfa raunveruleikann. Hugtakið er kennt við Nelson Mandela, því margir muna eftir því að hann hafi dáið í fangelsi á níunda áratugnum, þó að hann hafi í raun lifað lengi eftir það. Þetta er ekki bara einföld minnisvilla hjá einum einstaklingi, heldur eitthvað sem virðist tengja saman heila hópa fólks sem deila sömu „röngu“...
85. Arthur Findlay "nornaskóli" 06.04.2026 5:24
Við erum svo spenntar að segja ykkur frá því að núna 10. apríl erum við á leiðinni til Arthur Findlay collage að læra trans heilun! Í þessum þætti ræðum við um þennan spiritual skóla og söguna á bak við hann. Við komum svo fullar af fróðleik tilbaka og hlökkum til að segja ykkur allt af létta frá okkar upplifunum, hvað við lærðum og hvernig var í þessum magnaða skóla. komud í áskrift www.patreon.c...
84. Mount Shasta - Yfirnáttúrulegt fjall 01.04.2026 54:03
Mount Shasta er fjall í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum sem hefur lengi verið talið eitt af dularfyllstu og andlegu stöðum heims. Fyrir marga er það ekki aðeins náttúruundur heldur einnig orkustaður þar sem tenging við andlega heima er sterkari en annars staðar. Fjallið hefur laðað að sér leitendur, hugleiðendur og andlega kennara sem telja að þar sé að finna sérstaka tíðni eða vitund sem h...
83. Vigdís Steinþórsdóttir - seinni hluti (fyrrilífs dáleiðsla) 30.03.2026 11:38
Við höldum áfram að ræða við hana mögnuðu Vigdísi um fyrrilífs dáleiðslur og hvernir karma og fyrrilífin hafa áhrif á okkur í þessu lífi. Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.