Ghost Network®
Hið yfirnáttúrulega
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
82. Vigdís Steinþórsdóttir - Fyrrilífs dáleiðari, heilari og hjúkrunarfræðingur. 25.03.2026 1:29:16
Gestur dagsins er engin önnur en Vigdís Steinþórsdóttir. En þessi magnaða kona er hjúkrunarfræðingur, heilari, fyrralífs dáleiðari og hreint út sagt alveg mögnuð kona. Vigdís er hokin af reynslu, alger norn af náttúrunnar hendi, ótrúlega næm og mikil ljósvera. Hún heldur kærleiksdaga út um allt land sem er nærandi samvera fyrir líkama og sál. Einnig er hún með Heimsljós messuna og Heilunar guðþjón...
81. Drekar 23.03.2026 7:02
Drekar hafa um aldir verið meðal dularfyllstu og kraftmestu veranna í goðsögnum og trúarhefðum heimsins. Þeir birtast í ólíkum myndum eftir menningarheimum. Margir í dag upplifa sterka tengingu við svokallaða drekaorku og líta á hana sem hluta af eigin andlegu ferðalagi. Fyrir þeim er þetta ekki bókstafleg trú á líkamlega dreka, heldur tilfinning fyrir ákveðinni orku eða meðvitund sem tengist styr...
80. Samskiptaleiðir framliðna 18.03.2026 50:44
Margar frásagnir víðs vegar um heiminn benda til þess að framliðnir geti, með ýmsum hætti reynt að senda skilaboð til okkar. Ein algengasta leiðin er í gegnum drauma. Fólk lýsir því oft að hafa séð látna ástvini í draumi sem virðast óvenju raunverulegir, næstum eins og heimsókn frekar en ímyndun. Í slíkum draumum koma oft framliðnir með skilaboð til dreymanda. Önnur algeng leið er svona rafræn tru...
79. Andaglas, Pendúll og Rods prik - samskiptatæki við framliðna. 16.03.2026 12:09
Í gegnum aldir hafa fólk notað ýmis verkfæri til að reyna að fá svör við spurningum eða jafnvel hafa samband við andaheiminn. Við skoðum þrjú samskiptartæki við hina látnu, andaglas, pendúl og rods prikin. Andaglas er borð sem yfirleitt er merkt með stöfum, tölum og orðunum „já“ og „nei“. Þegar það er notað setja þátttakendur fingurna létt á lítið glas eða planchette sem er sett á borðið. Síðan er...
78. Klón 11.03.2026 1:15:17
Klónun er ekki vísindaskáldskapur, Klón er tækni sem notuð í heiminum í dag! Frá því að sauðkindin Dolly var klónuð árið 1996 breyttist allt. Vísindamenn sýndu að hægt væri að endurskapa líf úr einni frumu. En spurningin er ekki bara hvernig er klónað heldur afhverju er verið að klóna? Hver var raunverulegur tilgangur klónunar? Er það til þess að bjarga dýrategundum, eða til þess að þróa lækningar...
77. Sálarskipti 09.03.2026 10:36
Hvað ef sálin er ekki bundin líkamanum? Hvað ef „þú“ ert ekki líkaminn þinn heldur eitthvað sem hægt er að færa? Sálarskipti, eða soul swapping , er hugmynd sem hefur birst í fornum trúarhugmyndum, dulfræðum kenningum og nútíma samsærisumræðu. Sumir trúa því að meðvitund sé orka sem hægt sé að flytja á milli líkama. og að það sé til tækni sem getur tekið persónuleika, minningar, taugakerfið ofl. o...
76. Ýmsar yfirnáttúrulegar verur 04.03.2026 43:27
Í dag ætlum við að kafa inn í heim yfirnáttúrulegra vera, furðulegra, dularfullra og stundum ógnvekjandi fyrirbæra sem hafa fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar. Við kynnumst m.a. verum sem kallast Selkies úr Íslenskum þjóðsögum, en þetta eru selir sem geta farið úr ham sínum og breyst í menn. Fresno Nightkrawler er undarleg vera sem er eiginlega bara hægt að lýsa sem krúttlegir hvítir fætur og án f...
75. Geimfréttir með Gunnari Dan - seinni hluti 02.03.2026 5:18
Við höldum áfram þar sem við hættum með honum Gunnari Dan geimveru sérfræðing. Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum þar sem þú getur keypt bækur! Þetta er svo falleg og vegleg bók sem enginn áhugamaður um ójarðnensk öfl og verur ætti að láta fram hjá sér fara! Ufo 101: Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið....
74. Geimfréttir með Gunnari Dan - fyrsti hluti 25.02.2026 49:40
Í þessum þætti förum við um víðan völl og fáum að vita allt það heitasta og nýjasta í geimfréttum. Það er ekkert skemmtilegra en að kíkja í kaffi til Gunnars og heyra æsifréttirnar í ufo og geimveru heiminum! Gunnar er okkar helsti geimveru sérfræðingur og var hann að gefa út bókina Ufo 101 og er önnur bók í smíðum og kemur út í haust. Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum sem selja bækur! Vi...
73. Brottnáms upplifanir eða hvað? 23.02.2026 5:34
Í þættinum í dag köfum við ofan í bresku heimildarmyndina Confessions of an Alien Abductee , þar sem fylgst var með fólki sem taldi sig hafa verið brottnumið ítrekað yfir ævina. Í þáttunum eru m.a. lýsingar frá manni sem heldur því fram að hann eigi móður sem er geimvera og einnig að hann hafi átt í nánu og kynferðislegu sambandi við veru utan úr geimnum, samband sem hann lýsir sem bæði líkamlegu...
72. Svefnrofalömun eða sleep paralysis 18.02.2026 53:16
Svefnlömun er ástand þar sem heilinn er vakandi en líkaminn er enn í djúpsvefni og þú getur ekki hreyft líkamann. Þetta gerist vegna þess að í REM-svefni slakar líkaminn á vöðvum til að koma í veg fyrir að við framkvæmum draumana okkar. Stundum vaknar meðvitundin áður en þessi vöðvalömun hverfur og þá upplifir einstaklingurinn að hann sé vakandi en fastur í eigin líkama. Margir sem upplifa svefnlö...
71. The Glimmer man 16.02.2026 11:04
Í dag ætlum við að fjalla um dularfullt fyrirbæri sem kallast The Glimmer Man. Við viljum taka fram að það var mikill galsi og gleði í þessari upptöku! En okkur þykir bara svoooooo gaman að taka svona undarleg mál fyrir og erfitt að vera ekki í smá hláturskassti á meðan...EN The Glimmer man er heiti sem sumir nota yfir yfirnáttúrulega veru eða skugga sem fólk segist hafa séð, en sem er ekki alveg...
70. Remote viewing 11.02.2026 49:32
Remote viewing er lýst sem aðferð þar sem einstaklingur reynir að fá upplýsingar um fjarlægan stað, hlut eða atburð án þess að vera líkamlega til staðar, og án þess að nota hefðbundin skynfæri. Hugmyndin byggir á því að vitundin sé ekki bundin við tíma og rúm, heldur geti hún ferðast, skynjað og upplifað veruleika sem liggur utan hefðbundinna skynfæra. Margir sem hafa stundað remote viewing lýsa u...
69. Fake miðlar 09.02.2026 10:06
Í dag ætlum við að ræða andlega miðla og spámiðla nánar tiltekið þá sem eru ekki að starfa af heiðarleika. Margir leita í andlega þjónustu á erfiðum tímum í lífinu: í sorg, óvissu eða þegar fólk er að leita að svörum en þar liggur líka hættan. Því miður eru til einstaklingar sem nýta sér trú, vonir og viðkvæma stöðu fólks í eigin þágu. Þeir geta notað almenn orð, sálfræðileg brögð og óljósar spár...
68. Man in black 04.02.2026 32:07
Ef þú skyldir sjá fljúgandi furðuhlut eða eitthvað yfirnáttúrulegt sem er ekki á þessari jarðvist og segir frá því, þá gætu komið dularfullir menn í heimsókn til þín. Þetta eru mennirnir í svörtu jakkafötunum með svarta hatta og sólgleraugu þekktir sem Man in black og er kvikmyndin Man in black byggð á þessum mönnum. Það veit enginn fyrir hverja þeir starfa en eitt er víst að þeir eru mjög dularfu...
67. Dularfullar kenningar um sjóinn 02.02.2026 9:45
Sjórinn er eitt mesta ráðgátaumhverfi Jarðar. Þrátt fyrir að hann þeki meirihluta yfirborðs plánetunnar höfum við aðeins rannsakað lítið brot af djúpinu. Þetta óþekkta rými hefur í gegnum aldirnar alið af sér fjölda samsæriskenninga. Ein sú elsta snýst um glataðar neðansjávarsiðmenningar, líkt og Atlantis, og möguleg manngerð mannvirki sem sumir telja hafa fundist á hafsbotni. Aðrir beina athyglin...
66. Skinwalkers og Mimics 28.01.2026 45:38
Þetta eru verur sem eiga rætur í þjóðtrú og geta tekið á sig mynd dýra… eða jafnvel manna. Þessar óhugnanlegu verur þær fylgjast með, læra og herma. Á afskekktum búgarði í Utah betur þekktur sem Skinwalker Ranch . Þar hefur fólk í áratugi greint frá óútskýranlegum atburðum eins og hræðilegar verur á reiki, dýr eru drepin á hrottalegan hátt og svo sjást þessar ógeðslegu verur á kreiki sem vilja ekk...
65. Risar 26.01.2026 9:18
Risar hafa fylgt okkur í gegnum mannkynnsöguna og birtast þeir í fornum goðsögnum, í biblíunni, í þjóðsögum og jafnvel í landslagi jarðarinnar sjálfrar. En hvað ef þessar sögur eru ekki bara táknrænar? Hvað ef þær lýsa raunverulegum verum og atburðum sem hafa verið fjarlægðir úr sögunum til að fela eitthvað? Í þessum þætti skoðum við sögur af risum í Biblíunni, eins og Nefílím og köfum í samsærisk...
64. Gateway experience 21.01.2026 40:22
Við ætlum að kafa í Monroe Institute og Gateway hugleiðslurnar , kerfi sem var ekki aðeins þróað fyrir andlega leitendur, heldur einnig rannsakað og notað af CIA . Monroe Institute er skóli og rannsóknarsetur sem hefur í áratugi kennt fólki að kanna meðvitund sína með kerfisbundnum aðferðum. Gateway hugleiðslurnar eiga að geta opnað aðgang að breytt meðvitundarástandi þannig þú getur þjálfað þig u...
63. Óútskýrðu ljósin í Hessdalen 19.01.2026 7:54
Hessdalen er pínu lítill dalur í Noregi. Þar hafa óútskýrð ljós birst á himninum í marga áratugi, ljós sem svífa hljóðlaust, þau breyta um lit og lögun, og skjótast fram og hverfa án skýringa. Ljósin hafa verið séð af heimamönnum, ferðamönnum og eru mæld með vísindatækjum og hafa verið rannsökuð í meira en 40 ár! Hessdalen er talinn einn helsti UFO-hot spot í Evrópu. Þar hafa sést óvenju mörg óúts...
62. Gate program 14.01.2026 48:28
The GATE Program for the gifted and talented. Opinberlega átti þetta að vera prógramm fyrir hæfileikaríkt fólk. En samkvæmt frásögnum þeirra sem fóru í gegnum það, var GATE program svo miklu meira og dularfyllra en það. Börn voru tekin í fram í greindarpróf og allskonar sálfræðilegar greiningar, viðbragðspróf, blóðprufur og heyrnamælingar sem áttu að greina hvernig fólk skynjaði tíðnir, boð og áre...
61. Mall world - draumaheimur 12.01.2026 7:50
The Mall World er dularfullur og endurtekinn draumaheimur sem margir lýsa að heimsækja aftur og aftur í draumum sínum. Hann birtist oft sem risastór innanhússheimur sem sameinar verslunarmiðstöðvar, hótel, flugvelli, skóla, sundlaugar og óendanlega ganga sem virðast tengjast á óskiljanlegan hátt. Þrátt fyrir að um draum sé að ræða, upplifa margir staðinn sem óvenju raunverulegan og það skrítan er...
60. Bermuda þríhyrningurinn 07.01.2026 50:27
Í dag ætlum við að tala um einn dularfyllsta stað jarðar, Bermuda-þríhyrninginn. Bermuda-þríhyrningurinn er svæði í Norður-Atlantshafi, afmarkað lauslega af Flórída, Bermúdaeyjum og Púertó Ríkó. Í áratugi hafa sögur gengið um óútskýrð hvarf skipa og flugvéla á þessu svæði. Sumir kenna um óvenjuleg segulsvið, aðrir tala um tímagáttir, geimverur eða jafnvel týnda heimsálfu Atlantíku. Er Bermuda-þríh...
59. Fyrri líf 05.01.2026 5:43
Fyrrilífs upplifanir
58. Áramóta þáttur 31.12.2025 42:49
Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur. Mentioned in this episode: d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.