RÚV
Heimsglugginn
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Glundroði í Íhaldsflokknum og Boris Johnson ver ráðstafanir sínar 07.12.2023 23:50
Bresk stjórnmál voru á dagskrá þegar Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í vikulegu Heimsgluggaspjalli. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, sat fyrir svörum í gær hjá nefnd sem rannsakar viðbrögð við COVID-19 faraldrinum. Johnson var auðmjúkur og byrjaði á að biðjast afsökunar, sagði að með því að horfa í baksýnisspegil mætti sjá að mistök hefðu v...
Kissinger, netöryggi og ógnin af Rússum, dr. Sigurður Emil Pálsson 30.11.2023 22:51
Heimsgluggi vikunnar hófst á umræðu um Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem er látinn 100 ára að aldri. Kissinger var ótvírætt meðal mestu áhrifamanna í alþjóðamálum á seinni hluta 20. aldar, hann var það sem kallað hefur verið realpolitiker, hafði lítinn áhuga á að tengja utanríkispólitík við mannréttindi eða skilyrða samskipti við aðrar þjóðir. Hann hafði frumkvæði a...
Þetta verða erfið fjögur ár, Milei kosinn forseti Argentínu 23.11.2023 23:25
Þetta verða erfið fjögur ár, sagði Helgi Hrafn Guðmundsson sagnfræðingur um Argentínu eftir að Javier Milei var kjörinn forseti um síðustu helgi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu saman um land og þjóð. Helgi Hrafn bjó í Argentínu í um áratug, lærði og starfaði þar. Hann segir efnahagsstefnuna lengi hafa einkennst af skammtímahugsun. Ástandið sé afar slæmt, verðbólga um 200 prósent, mjög ströng gjaldeyris...
Sunak í ólgusjó, sviptingar í Portúgal 16.11.2023 23:56
Heimsglugginn á Morgunvaktinni á Rás 1 fjallaði um átök í stjórnmálum á Bretlandi og í Portúgal. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands gerði verulegar breytingar á ríkisstjórn sinni á mánudag. Suella Braverman innanríkisráðherra var rekin, James Cleverly tók við embætti hennar og David Cameron varð utanríkisráðherra í stað Cleverlys. Braverman birti afar harðort bréf daginn eftir brottreksturinn,...
Skandalar í Bretlandi og Danmörku 02.11.2023 22:19
Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson. Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var að rannsaka viðbrögð breskra stjórnvalda við farsóttinni. Hin...
Átök popúlista og lýðræðissinna 26.10.2023 21:51
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um átök popúlista og lýðræðissinna víða um heim. Þau ræddu um Argentínu, Venesúela, Bandaríkjaþing, Slóvakíu, Ítalíu, Pólland og Bretland. Í Argentínu má segja að tveir popúlistar takist á um forsetaembættið. Annar er hagfræðingurinn Javier Milei, sem hefur verið lýst sem pólitískum utangarðsmanni, jafnvel...
Martti Ahtisaari minnst og stríð Hamas og Ísraels 19.10.2023 22:38
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseta Finnlands, sem lést fyrr í vikunni. Ahtisaari hlaut friðarverðlaun Nóbels 2008 fyrir áratuga starf í mörgum heimshlutum þar sem hann reyndi að setja niður deilur og sætta stríðandi fylkingar. Alexander Stubb, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands og forsetaframbjóð...
Norðurlönd, Eystrasaltsríkin og Visegrád löndin 12.10.2023 23:36
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, var gestur Heimsgluggans á Morgunvakt Rásar-1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um bók hans sem kom út fyrr á árinu, The Nordic, Baltic and Visegrád Small Powers in Europe. Visegrád ríkin er Pólland, Slóvakía, Tékkland og Ungverland, sem öll voru í Varsjárbandalaginu og leppríki Sovétríkjanna en eru núna í Evrópusambandinu og NATO. Hilmar seg...
Björgun danskra gyðinga 05.10.2023 23:10
Í Heimsglugganum ræddu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir við Boga Ágústsson um dramatíska atburði sem gerðust í Danmörku fyrir réttum 80 árum er langflestum gyðingum var bjargað frá handtöku og flutningi í fangabúiðir nasista. Við heyrðum brot úr dönskum sjónvarpsþætti með viðtölum við nokkur þeirra sem upplifðu þessa atburði. Við heyrðum einnig um Hans Walter Rothenborg, sem va...
State of Chaos-Ríki í ringulreið Bresk stjórnmál 2016-2023 28.09.2023 24:08
BBC hefur gert þriggja þátta röð um bresk stjórnmál frá 2016. Mikil upplausn hefur ríkt og fimm forsætisráðherrar hafa verið á sex árum. Laura Kuenssberg, sem var stjórnmálaritstjóri BBC á þessum tíma, fer í gegnum atburðarásina og nefnir þættina State of Chaos sem þýða sem Ríki í ringulreið eða Upplausnarástand. Kuenssberg ræðir við fjölda fólks og dregur upp mynd af því sem gerðist og ekki síður...
Glæpagengi í Svíþjóð, vandræði Ernu Solberg og Take the money and run 21.09.2023 23:32
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einkum norræn málefni við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar 1. Fyrst um ofbeldisölduna í Svíþjóð þar sem 37 hafa verið myrtir í skotárásum á árinu, langflestir í átökum glæpagengja eða innbyrðis uppgjöri eins og í Foxtrott-glæpaklíkunni þessa dagana. Þá var rætt um vandræði norskra stjórnmálamanna, tveir ráðherrar ha...
Efnahagsmál og breska samveldið 14.09.2023 24:56
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um stöðu efnahagsmála í Evrópu, verðbólga fer minnkandi, litlum hagvexti er spáð og vextir eru enn háir. Í mörgum Evrópulöndum er skortur á vinnuafli og jafnvel ríkisstjórn Ítalíu undir forsæti Giorgiu Meloni hefur rætt við Afríkuríki að fólk til starfa. Meloni og stjórn hennar eru annars afar andvíg innfl...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.