RÚV
Heimsglugginn
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum og atburðir síðustu vikna 15.08.2024 24:59
Heimsglugginn hófst á því að rætt var um nokkra helstu atburði síðustu vikna á erlendum vettvangi. Meginefnið voru þó samræður Boga Ágústssonar og Jóns Óskars Sólness um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og baráttuna fyrir kosningarnar í nóvember. Viðsnúningur hefur orðið frá því að Joe Biden forseti dró sig í hlé og Kamala Harris varð frambjóðandi Demókrataflokksins.
Bretar kjósa nýtt þing 04.07.2024 22:37
Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um bresku þingkosningarnar sem eru í dag. Við heyrðum í sir John Curtice, helsta kosningaskýranda BBC. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum. Þá var Ólöf með, beint frá Lundúnum, og sagði frá andrúmsloftinu í höfuðborg Bretlands þar sem allir búast við stórsigri Verkamannaflokksins.
Assange, Gershkovich, kostendur á EM og kappræður í Bretlandi 27.06.2024 23:36
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um lausn Julians Assange úr fangelsi í Bretlandi og við heyrðum hluta úr frétt Kristins Hrafnssonar í sjónvarpsfréttum 2010 þegar birt var myndband af árás bandarískrar þyrlu á fréttamenn Reuters í Bagdad. Það var meðal gagna sem Wikileaks birtu og leiddu til þess að bandarísk yfirvöld ákærðu Assange fyrir njósnir. Eva...
Glæfraleikur Macrons 20.06.2024 23:43
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði óvænt til þingkosninga í lok júní og þykir mörgum hann taka mikla áhættu. Bogi Ágústsson ræddi við Damien Degeorges, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur með meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í stjórnmálafræði. Þeir ræddu stöðuna í frönskum stjórnmálum. meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í s...
Kosningar, kosningar, kosningar og kosningar 13.06.2024 22:06
Hægriflokkar áttu erfiðara uppdráttar í norrænu Evrópusambandsríkjunum í kosningunum til Evrópuþingsins en í Frakklandi og Þýskalandi. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu þetta í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Óvæntar þingkosningar í Frakklandi bar einnig á góma sem og tilhneigingu Rishis Sunaks, forsætisráðherra Breta, til að skora sjálfsmörk í kosinngabaráttunni þar.
„Fylgistap Modis er sigur lýðræðisins" 06.06.2024 24:06
Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafræðingur segir að óvænt fylgistap BJP, flokks Narendra Modis forsætisráðherra Indlands, sé í raun sigur lýðræðis. Hann ræddi við Boga Ágústsson um úrslit kosninga í Suður-Afríku og á Indlandi. Í Suður-Afríku tapaði Afríska þjóðarráðið, ANC, meirihluta á þingi í fyrsta sinn frá því að aðskilnaðarstjórn hvíta minnihlutans féll. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi ræddu sv...
Óánægðir Grænlendingar, kosningabarátta í Bretlandi og Mama Cass 30.05.2024 24:01
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu óánægju Grænlendinga með stöðu sína í norrænu samstarfi. Múte B. Egede, formanni landsstjórnar Grænlands, var ekki boðið á fund forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi. Grænlendingar og Færeyingar hafa óskað eftir sjálfstæðri aðild að Norðurlandaráði en það strandar á því að löndin eru ekki sjálfstæð fullvalda ríki. Einnig var rætt um kosningabar...
Bretland: Boðað til kosninga og enn af póstskandal 23.05.2024 22:28
Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram að tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins þegar tæplega eitt þúsund útibússtjórar í...
Svíþjóðardemókratar staðnir að drullukasti, aðskilnaðarsinnar tapa í Katalóníu 16.05.2024 24:51
Svíþjóðardemókratarnir hafa á laun rekið ,,tröllaverksmiðjur" á netinu sem dreifðu áróðri gegn innflytjendum og óhróðri um stjórnmálamenn í öðrum flokkum. Svíþjóðardemókratarnir styðja minnihlutastjórn Ulfs Kristerssons en hafa samt á laun kastað skít í forystumenn ríkisstjórnarflokkanna. Þeir hafa brugðist ókvæða við en ekki er talið að stjórnin falli vegna málsins. Þetta ræddu Þórunn Elísabet Bo...
Úlfakreppa og klúður Skoska þjóðarflokksins 02.05.2024 23:10
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um kosningar á Salómons-eyjum, við heyrðum falsaða yfirlýsingu Mette Frederiksen um frídaga í Danmörku, tillögu Magdalenu Anderson, leiðtoga sænskra Jafnaðarmanna, um refsingar gegn ESB-ríkjum sem brjóta lýðræðisreglur sambandsins. Aðalefnið var þó vandræði Skoska þjóðarflokksins, SNP, sem þarf að velja nýjan leiðtoga...
Børsen, minningar Liz Truss, pólitík og götublöð 18.04.2024 22:36
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um eldsvoðann í Kaupmannahöfn er Børsen brann og byggingar Kristjáns fjórða konungs. Þau ræddu og nýja bók Liz Truss, sem var forsætisráðherra Bretlands í 49 daga. Hún hefur farið mikinn í kynningu á bók sinni þar sem hún ver sjálfa sig og stefnu sína sem leiddi til þess að pundið hrundi, markaðir tóku dýfu og vextir s...
Milljarður Indverja gengur að kjörborðinu 11.04.2024 23:32
Jón Ormur Halldórsson, doktor í stjórnmálafræði, var gestur Heimsgluggans. Jón Ormur þekkir vel til á Indlandi. Hann er fyrrverandi háskólakennari og höfundur fjölda greina og bóka um alþjóðamál og að margra mati mati einn skarpasti greinandi alþjóðastjórnmála á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við hann um þingkosningar sem hefjast á Indlandi í næstu viku og standa fram í maí. Jón Ormur segir það mik...
75 ár frá undirritun Atlantshafssáttmálans 04.04.2024 23:29
Björn Bjarnason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu Atlantshafsbandalagið en 75 ár eru í dag frá því stofnsáttmáli bandalagsins var undirritaður. Björn er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður og jafnframt sérfræðingur um utanríkis-, öryggis- og varnarmál. Norræna ráðherranefndin fékk hann fyrir nokkrum árum til að gera tillögur um eflingu norræns utanríkismálasamstarfs. Bjarni B...
Hörmungarástandið í Mið-Austurlöndum 21.03.2024 23:28
Magnús Þorkell Bernharðsson var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu hörmungarástandið á Gaza og átökin þar sem hafa kostað meir en 30 þúsund manns lífið á undanförnum mánuðum.
Saga Haítí, öryggismál á norðurslóðum og bresk stjórnmál 14.03.2024 23:50
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu um Haítí og langa sorgarsögu landsins. Haítí var frönsk þrælanýlenda og annað landið í Ameríku sem lýsti yfir sjálfstæði á eftir Bandaríkjunum eftir afar blóðuga þrælauppreisn. Fátækt, spilling, stjórnleysi og náttúruhamfarir hafa orðið óhamingju landsins að vopni. Svo má heita að algjört stjórnleysi og ringulreið sé á Haíti og hætta á hungursneyð...
Af 214 ára færeyskri peysu og sjóráni breska flotans 07.03.2024 23:39
Spjall Þórunnar Elísabetar Bogadóttur og Eyrúnar Magnúsdóttur við Boga Ágústsson hófst á sagnfræðilegum nótum. Fyrir nokkrum dögum var opnuð póstsending í þjóðskjalasafni Breta 214 árum eftir að pósturinn var sendur frá Færeyjum til Kaupmannahafnar. Pósturinn komst ekki alla leið því Anne-Marie, skipið sem flutti póstinn, var hertekið af breska flotanum. Farmur Anne-Marie hefur líklega verið boðin...
Ranghugmyndir Íslendinga um eigin sögu 29.02.2024 23:00
Hlaupársþáttur Heimsgluggans var ekki um heimsmálin heldur um lífseiga söguskoðun Íslendinga sem var meðal annars mótuð af bókum Jónasar frá Hriflu og Jóns J. Aðils sem kenndar voru áratugum saman. Draga má þetta saman í að saga Íslands hafi byrjað þegar frjálsbornir höfðingjar í Noregi sættu sig ekki við kúgun Haraldar hárfagra konungs og flýðu til Íslands þar sem þeir settu á stofn fyrirmyndarrí...
Grimm örlög andstæðinga Pútíns 22.02.2024 22:55
Bogi Ágústsson , Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu örlög þeirra sem hafa sett sig upp á móti Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexei Navalny hefur bæst í hóp þeirra sem hafa dáið beint eða óbeint vegna andstöðunnar við forsetann. Á Vesturlöndum er litið svo á að Navalny hafi verið myrtur að undirlagi Pútíns. Í hópi þeirra Rússa sem handlangarar Pútíns hafa myrt eru meðal annar...
Sterk staða Trumps, kosningar í fjölmennustu múslimaríkjum heims 15.02.2024 22:32
Jón Óskar Sólnes var gestur Heimsgluggans að þessu sinni og þeir Bogi Ágústsson ræddu stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Jón Óskar, sem var eitt sinn fréttamaður RÚV, hefur búið í Washington síðustu ár og fylgist vel með stjórn- og þjóðfélagsmálum. Hann telur að staða Donalds Trumps meðal Repúblikana sé miklu sterkari en þegar hann tilkynnti forsetaframboð fyrir hálfu öðru ári. Demókratar eigi und...
Loftrýmiseftirlit og ný stjórn á Norður-Írlandi 08.02.2024 23:07
Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi. Að þessu sinni var rætt um loftrýmiseftirlit yfir Íslandi en norski flugherinn annast slíkt eftirlit um þessar mundir. Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segir mikilvægt fyrir Norðmenn að fylgjast vel með á svæðum nærri Noregi og Íslendingar eru staðfastir vinir og bandamenn. Hann segir að það sé m...
Fátt virðist geta stöðvað Trump, NATO aðild Svía 25.01.2024 24:03
Aðalefni Heimsgluggans var viðtal Boga Ágústssonar við Jón Óskar Sólnes um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og einkum framboðsmál repúblikana. Jón Óskar var lengi fréttamaður hjá RÚV en hefur verið búsettur í Washington síðustu ár. Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig stöðu NATO-umsóknaraðildar Svía við Boga og nýjustu skoðanakannanir fyrir forsetakosningarnar í Finnlandi...
Sektir fóru til að greiða bónusa 18.01.2024 23:55
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram að ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til...
Stórkostlegt réttarfarshneyksli í Bretlandi, meira en 700 saklausir dæmdir vegna tölvugalla 11.01.2024 22:27
Björn Þór Sigbjörnsson ræddi við Boga Ágústsson um eitt mesta réttarfarshneyksli síðari ára í Bretlandi. Síðustu daga hefur allt verið á öðrum endanum í Bretlandi vegna sjónvarpsþátta um það sem kallað hefur verið alvarlegasta hneyskli í breskri réttarfarssögu á síðari árum, þar sem hundruð saklausra voru dæmd fyrir fjárdrátt og þjófnað. Þáttaröðin nefnist Mr Bates vs. The Post Office. Þar er fjal...
Vetrarveður, Mið-Austurlönd og kosningar á árinu 04.01.2024 25:02
Í fyrsta Heimsglugga ársins á Morgunvaktinni á Rás 1 ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga Ágústsson um vetrarveður á Norðurlöndum og í norðanverðri Evrópu, ástandið í Mið-Austurlöndum og kosningar sem verða á árinu.
Úkraína, Serbía, Níkaragúa og forsetakosningar í Finnlandi 14.12.2023 23:49
Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir ræddu við Boga Ágústsson um leiðtogafund ESB þar sem málefni Úkraínu verða á dagskrá, þingkosningar í Serbíu, ungfrú alheim sem er í ónáð stjórnvalda í Níkaragúa og komandi forsetakosningar í Finnlandi. Leiðtogafundur Evrópusambandsins í dag snýst að miklu leyti um málefni Úkraínu, annars vegar áframhaldandi fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning, hins...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.