RÚV
Heimsglugginn
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
„Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál 02.07.2026 23:28
„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartí...
„Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ 25.06.2026 22:35
Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vins...
„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“ 18.06.2026 22:57
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess að friðar...
„Ég elska verðbólgu…“ 11.06.2026 23:26
Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing af hækkun olíuverðs. Þetta var til umræðu í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni...
Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku 04.06.2026 21:26
Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði helsærða námsmanninn sem lést á staðnum. Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum o...
Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin 28.05.2026 23:24
Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166...
Norræn öryggismál og fleira 21.05.2026 24:19
Norræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda á miðvikudagskvöld, nema RÚV. Þarna voru meðal annarra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í...
Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi 07.05.2026 23:47
Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli fylgisaukningu. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja má að Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höf...
Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga 16.04.2026 21:56
Nýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi. Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Lögmaður er Beinir Johannesen sem tekur við af föð...
Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi 09.04.2026 23:53
Viktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri sem nam tónsmíðar við Franz Liszt-akademíuna í Búdapest, var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um Ungverjaland og horfurnar í stjórnmálum.
Flókin staða eftir kosningar í Danmörku 26.03.2026 24:47
Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd. State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981....
Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“ 19.03.2026 22:02
Lýðræði í heiminum er á undanhaldi og í Bandaríkjunum hefur það „sokkið eins og steinn,“ segir í skýrslu V-dem-stofnunarinnar við háskólann í Gautaborg. Tveir þungavigtarmenn í Siumut-flokknum á Grænlandi, Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti, hafa sagt sig úr flokknum. Í Bandaríkjunum eiga ráðamenn í mestu vandræðum með að skýra ástæður árásanna á Íran og skýringar eru mó...
Óljós stríðsmarkmið Bandaríkjamanna 12.03.2026 24:17
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er að það leiði til umtalsverðra almennra verðhækkana um allan heim. Í Bretlandi beit Keir Starmer forsætisráðherra hressilega frá sér í fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Hann á annars undir högg að sækja þó að engar sláandi upplýsing...
Útlit fyrir stjórnarskipti í Færeyjum og ósamræmi í málflutningi bandarískra ráðamanna um árásirnar á Íran 05.03.2026 22:47
Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er þar öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarforystu síðustu ár. Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árás...
„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“ 26.02.2026 22:39
Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the Union-ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig við Boga Ágústsson um orð Finnlandsforseta...
Millibilsástand í fjármálum heimsins 19.02.2026 23:19
Ásgeir Brynjar Torfason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin. Ásgeir Brynjar segir millibilsástand „interregnum“ vera í fjármálakerfinu, dollarinn sé ekki lengur viðmiðunarmynt heimsins og óvíst sé hvað taki við.
Erna Solberg hættir eftir 22 ár sem formaður Høyre 12.02.2026 24:04
Heimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði varnarmála- og utanríkisráðherra. Þá var rætt um grein þar sem Bertel Haarder eggjar norræna stjórnmálamenn lögeggjan til að bregðast við breyttri heimsmynd með stóraukinni samvinnu í varnarmálum. Í lokin var rætt stuttle...
Margt áhrifafólks í vandræðum vegna Epstein-skjalanna. 05.02.2026 24:48
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um Epstein-skjölin og afleiðingar birtingar upplýsinga sem fram koma í þeim. Peter Mandelson hrakist úr starfi sendiherra Breta í Bandaríkjunum og Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, gæti misst stöðu sína vegna þess að hann skipaði Mandelson í sendiherraembættið. Í Noregi vill tæplega helmingur þjóðarinnar ekki að krón...
Krísa gömlu flokkanna í Bretlandi 29.01.2026 23:35
Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi fréttaritari RÚV í Lundúnum, var gestur Heimsgluggans og ræddi við Boga Ágústsson um bresk stjórnmál. Hefðbundnu stjórnmálaflokkarnir tveir sem lengst af hafa farið með völd, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, glíma báðir við tilvistarvanda. Ástæðan er uppgangur Reform, Umbótaflokksins, undir stjórn Nigels Farage. Reform nýtur...
Úkraína og mögulegt samkomulag um Grænland 22.01.2026 22:47
Friðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi og Úkraínu, var gestur Heimsgluggans og ræddi stöðuna í Úkraínu. Hann segir viðstöðulausar árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu hafa leitt til rafmagnsskömmtunar, ekki sé hægt að hita hús í höfuðborginni Kyiv þegar rafmagnið fari. Hann segir þessar árásir séu stríðsglæpi. Bogi Ágústsson ræddi einnig stuttlega um bresk stjórnmál þar sem Robert Jenrick...
Blaðamenn drepnir, Gaza og Grænland 15.01.2026 23:59
Samtökin Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) segja að 67 blaðamenn, hið minnsta, hafi verið drepnir á síðasta ári, Flestir þeirra féllu á Gaza fyrir hendi Ísraelshers. Bandaríkjastjórn hefur lýst því yfir að annað þrep vopnahléssamkomulags á Gaza hafi tekið gildi. Samkvæmt því eiga Hamas-samtökin að afvopnast og Ísraelsher að draga sig enn frekar frá Gaza. Þá skal alþjóðleg nefnd ta...
Skrítin ásælni Trumps í Grænland 08.01.2026 23:17
Margir furða sig á röksemdafærslu bandarískra ráðamanna er þeir krefjast yfirráða á Grænlandi; varnarsamningur Danmerkur og Bandaríkjanna leyfi Bandaríkjamönnum nánast allt sem þeir vilja. Margt í málflutningi Donalds Trumps og annarra ráðamanna er beinlínis rangt, forsetinn hefur til dæmis haldið því fram að 30 þúsund manns búi á Grænlandi. Íbúar landsins eru nær tvöfalt fleiri eða tæp 57 þúsund.
Hlutabréfaverð vestra tvöfalt hærra en ætti að vera 11.12.2025 24:04
Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptadeild Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu og horfur í efnahagsmálum heimsins. Gylfi sagði að hann teldi að hlutabréfaverð í hlutfalli við hagnað fyrirtækja í Bandaríkjunum væri orðið tvöfalt hærra en það væri við eðlilegar aðstæður. Annars var Gylfi þokkalega bjartsýnn á horfur í efnahags...
Úkraína og vandræði norskra og danskra krata 04.12.2025 23:49
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu kröfum sínum svo litlar líkur virðast á vopnahléi eða friði á næstunni. Í Noregi og Danmörku eiga leiðtogar Jafnaðarmanna og forsætisráðherrar landanna í nokkrum erfiðleikum. Litlu munaði að norska stjórnin félli vegna deilna u...
Íslendingar eiga allt undir því að alþjóðlegar reglur séu virtar 27.11.2025 23:05
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim í dag og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs – samtaka um vestræna samvinnu, var gestur Heimsgluggans. Umræðuefnið var þátttaka Íslands í NATO og staða heimsmála. Davíð segir meðal annars að Íslendingar eigi allt undir því að alþjóðaskipulag sé virt og aðrar þjóðir viðurkenni að Ísland sé herlaust land. Rússnesk stjórnvöld ha...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos