RÚV

Heimsglugginn

News IS ↓ 112 episodes

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Trump snýr við blaðinu og stórtap Jafnaðarmanna í Danmörku 20.11.2025

Aðalefni Heimsglugga vikunnar voru dönsk stjórnmál og úrslit sveitarstjórnakosninga þar sem Jafnaðarmenn misstu embætti borgarstjóra Kaupmannahafnar eftir að hafa farið með forystu í höfuðborginni í 123 ár. Fyrst var þó rætt um lög, sem Donald Trump staðfesti í gær, og kveða á um að Epstein-skjölin svokölluðu verði birt. Trump talaði í kosningabaráttunni fyrir því að skjölin yrðu birt, breytti svo...

BBC í ólgusjó og kristalnætur minnst 13.11.2025

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um vandræði breska ríkisútvarpsins vegna mistaka í fréttaskýringaþættinum Panorama sem fjallaði um Donald Trump. Einnig ræddu þau um minningarathafnir um kristalsnóttina svokölluðu í nóvember 1938 þegar nasistar réðust á heimili, eignir og samkunduhús gyðinga. Kristalsnóttin er talin hafa markað tímamót...

Kosningasvindl og ólga í Tansaníu 06.11.2025

Fjallað var um Tansaníu í Heimsglugga vikunnar og einnig kosningarnar í Bandaríkjunum sem voru í fyrradag. Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ, þekkir afar vel til í Afríku, hefur búið og starfað í nokkrum löndum álfunnar og er einn höfunda bókarinnar Afríka sunnan Sahara í brennidepli II, sem kom út í fyrra. Tansanía er stórt land og þar búa um 47 milljónir manna en...

Trump hundsar þrískiptingu ríkisvaldsins 30.10.2025

Bandarísk stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar. Bogi Ágústsson ræddi við Sigríði Rut Júlíusdóttur héraðsdómara um skautun, kjördæmabreytingar, borgarstjórnarkosningar í New York, valdsvið forseta og margt annað.

Vandræðaprinsinn Andrés 23.10.2025

Bresk málefni voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um stöðuna í breskum stjórnmálum þar sem Umbótaflokkurinn (Reform) ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálaflokka í könnunum og hver krísan á fætur annarri ríður yfir Keir Starmer og stjórn hans. Bogi ræddi svo við Önnu Lilju Þórisdóttu...

Hrökklast úr stjórnmálum vegna hatursorðræðu 16.10.2025

Anna-Karin Hatt, leiðtogi Miðflokksins (Centerpartiet) í Svíþjóð, hættir eftir einungis fimm mánuði í starfi vegna hótana og hatursorðræðu. Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu afsögnina í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu einnig valdarán á Madagaskar þar sem forsetinn, Andry Rajoelina, flúði land eftir mikil mótmæli þar sem afsagnar hans var krafist.

Vopnahlé á Gaza og ný bók um fjölþáttaógnir 09.10.2025

Heimsglugginn hófst á umræðu um vopnahlé á Gaza sem Donald Trump Bandaríkjaforseti skýrði frá. Trump tilkynnti á samfélagsmiðlum seint á miðvikudagskvöld að tekist hefðu samningar um vopnahlé Hamas og Ísraelsmanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðuna. Aðalefni Heimsgluggans var samtal Boga og Bjarna Braga Kjartanssonar alþjóðastjórnmálafræðings um nýja bók um fjölþáttaógnir....

Ógnin frá Rússlandi rædd á leiðtogafundi Evrópuleiðtoga 02.10.2025

Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag bætast fleiri evrópskir leiðtogar í hópinn, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands. Þá var einnig rætt um úrslit kosninga í Moldóvu þar sem PAS-flokkurinn (Aðgerðir og samstaða), fékk meirihluta þingsæt...

Drónar, danska ríkissambandið og stórkarlalegar yfirlýsingar Trumps 25.09.2025

Bogi Ágústsson ræddi fyrst við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um drónaflug í Danmörku sem Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra lýsir sem fjölþáttaárás. Þau ræddu svo vestnorræna samvinnu og breytta afstöðu Færeyinga til sambandsins við Dani. Jafnvel Sambandsflokkurinn vill breytingar og flestir Færeyingar virðast vilja samband sem líkist því sem var með Danmörku og Ísland...

Herská Frederiksen og Bretar smjaðra fyrir Trump 18.09.2025

Bogi Ágústsson fjallaði um dönsk varnarmál og heimsókn Trumps Bandaríkjaforseta til Bretlands. Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana sagði í gær að Danir ætluðu að kaupa langdrægar eldlaugar. Frederiksen lýsti ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem þáttaskilum í dönskum varnarmálum. Aðeins eru örfáir dagar frá því að tilkynnt var um kaup á loftvarnarflaugum sem voru mestu vopnakaup í danskri sögu. Dona...

Pólitísk morð í Bandaríkjunum og stjórnmál í Noregi eftir kosningar 11.09.2025

Charlie Kirk, ungur hægrisinnaður áhrifavaldur, var skotinn til bana á fundi í Utah Valley-háskólanum í Bandaríkjunum í gær. Rætt var um pólitísk morð í upphafi Heimsgluggans. Aðalefnið var þó stjórnmálastaðan í Noregi eftir kosningarnar á mánudag. Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með kosningunum og var gestur Heimsgluggans.

Spennandi stórþingskosningar í Noregi 04.09.2025

Norðmenn ganga til kosninga um helgina og útlit er fyrir spennandi kosningar þó að margir telji að þokkalegar líkur séu á að Jonas Gahr Støre verði áfram forsætisráðherra. Verkamannaflokkur hans hefur farið með stjórnarforystu síðustu fjögur ár og frá því í febrúar setið einn í minnihlutastjórn. Verkamannaflokkurinn nýtur mests fylgis samkvæmt könnunum, næstur kemur Framfaraflokkurinn. Hann er póp...

Leiðtogafundur NATO og vandræði breska Verkamannaflokksins 26.06.2025

Bogi Ágústsson og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræddu niðurstöður leiðtogafundar NATO í Haag í gær. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo við Boga um vandræði breska Verkamannaflokksins. Stór hluti þingflokksins hefur lagst gegn frumvarpi stjórnarinnar um breytingar á velferðarkerfinu og niðurskurð um milljarða punda. Undir lokin sagði Björn frá því að Morgunvaktin...

Pópúlistar helsta hættan við frjálslynt lýðræði 19.06.2025

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu í upphafi um stöðuna í Mið-Austurlöndum. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus, var aðalgestur þáttarins og hann og Bogi ræddu hættu sem stafar að frjálslyndu lýðræði. Ólafur sagði Donald Trump grafa undan lýðræði í Bandaríkjunum, eins og Viktor Orban í Ungverjalandi. Hann sagði ekki miklar ytri hættur steðja að lýðræðisríkjum, helsta hættan kæm...

Heimsglugginn: Ísrael, óeirðir í Los Angeles og Ballymena og konungsheimsókn í Færeyjum 12.06.2025

Bogi Ágústsson og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu um refsiaðgerðir gegn ísraelskum ráðherrum, óeirðir í Los Angeles í Bandaríkjunum og Ballymena á Norður-Írlandi, heimsókn Friðriks Danakóngs til Færeyja og Pétur og köttinn Brand. Barnabækurnar um þá félaga Pétur og Brand (Pettson och Findus) eftir Sven Nordqvist hafa verið bannaðar í Rússlandi vegna þess að þýðandinn, Aleksandra Polívanova, er í ónáð...

Heimsglugginn: Gaza, Úkraína, skuldaþak Bandaríkjanna, vestræn varnarmál 05.06.2025

Ástandinu á Gaza hefur verið lýst sem „verra en helvíti“ og forseti Alþjóðaráðs Rauða krossins var afar þungorð um ástandið í viðtali við BBC. Þetta var meðal þess sem Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Þau ræddu einnig styrjöldina í Úkraínu, frumvarp Trumps Bandaríkjaforseta sem hann kallar „Big beautiful bill“, stóra dásamlega fr...

Stjórnmál í Portúgal og ógnarástand á Gaza 22.05.2025

Bogi Ágústsson ræddi við Einar Loga Vignisson, sem þekkir vel til í Portúgal, um úrslit þingkosninga þar um helgina. Einar Logi segir áframhaldandi minnihlutastjórn líklegasta kostinn því engin fylking fékk nægilegan stuðning til að geta myndað meirihlutastjórn. Í síðari hluta Heimgsluggans ræddu Bogi, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ástandið á Gaza. Stór hluti alþjóðasamfélag...

Ísland, norðurslóðir og ný heimsmynd 15.05.2025

Magnús Skjöld, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, var gestur Heimsgluggans að þessu sinni. Hann er meðal fyrirlesara á ráðstefnu í Norræna húsinu: Ísland og norðurslóðir í nýjum heimi. Þar verður fjallað um ógnir, öryggi, áskoranir og tækifæri í breyttum heimi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu ráðstefnuna og alþjóðamálin. Bogi og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo meðal annars niðurskurð...

Fjölmiðlar, andúð erlendis gegn Trump, Indland og Pakistan 08.05.2025

Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um nýja skýrslu Blaðamanna án landamæra um frelsi fjölmiðla í heiminum. Þar er Ísland eftirbátur annarra norrænna ríkja. Andúð erlendis á Donald Trump Bandaríkjaforseta og stefnumálum hans má merkja í kosningaúrslitum í Kanada og Ástralíu og jafnvel í hergagnakaupum. Að síðustu var minnst á átök Indverja og Pakistana um Kas...

Kúvending í Washington 10.04.2025

Heimsglugginn fjallaði að mestu um skyndilega stefnubreytingu Bandaríkjaforseta þegar hann frestaði um þrjá mánuði flestum tollahækkunum. Hlutabréfamarkaðir réttu strax úr kútnum en margir velta fyrir sér hvað hafi valdið kúvendingunni. Flestir hallast að því að verðlækkun bandarískra ríkisskuldabréfa og hærri ávöxtunarkrafa hafi orðið til þess að forsetinn breytti um stefnu. Þórunn Elísabet Bogad...

Mörgæsirnar tollaðar 03.04.2025

Donald Trump kynnti í gærkvöld með miklum tilþrifum nýja tolla á vörur sem eru fluttar inn til Bandaríkjanna. Tollurinn verður minnst 10 prósent og Ísland lendir í þeim tollflokki. Í sama flokki eru einnig Heard og McDonald-eyjur. Þær eru með afskekktustu stöðum á jörðinni, 4000 kílómetra frá næsta byggða bóli og þar hafa aldrei búið menn. Þar er hins vegar að finna skordýr, sjófugla, seli og mörg...

Danski þrællinn sem flúði til Íslands og endurmat sögunnar 27.03.2025

Gísli Pálsson, prófessor emeritus, var gestur Heimsgluggans og ræddi um nýja leikna heimildarþáttaröð Danmarks Radio sem nefnist Slave af Danmark og fjallar um þrælahald á dönsku Jómfrúareyjum og í Danmörku. Ein höfuðpersóna þáttaraðarinnar er Hans Jónatan sem flúði til Íslands í byrjun 19. aldar. Gísli skrifaði bók, Hans Jónatan: maðurinn sem stal sjálfum sér, um ótrúlegt líf Hans Jónatans. Gísli...

„Grænland verður sjálfstætt fyrr eða síðar“ 20.03.2025

Rasmus Gjedssø Bertelsen, prófessor í norðurslóðafræðum við háskólann í Tromsø, telur að Grænlendingar verði sjálfstæð þjóð í framtíðinni. Hann telur Bandaríkjamenn þegar hafa allan rétt á Grænlandi sem þeir óski og Danir hafi alltaf uppfyllt allar óskir þeirra, meðal annars leyft kjarnorkuvopn í herstöðinni í Thule. Þeir hafi logið um það bæði að dönsku þjóðinni og Grænlendingum. Ásælni Trumps Ba...

Risagjaldþrot í Svíþjóð, vopnahlé í Úkraínu og óvænt úrslit á Grænlandi 13.03.2025

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um stærsta gjaldþrot í sænskri viðskiptasögu. Northvolt átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum en reksturinn gekk aldrei eins og skyldi. Fyrirtækið er nú gjaldþrota og þrjú þúsund manns í Skelle...

Serbía, tollastríð og óánægja í Tasiilaq 06.03.2025

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um óeirðir í þinginu í Belgrad og víðtæk mótmæli í Serbíu. Mótmælin hófust þegar þak á lestarstöð í Novi Sad hrundi í nóvember og 15 létust. Þá var rætt um afleiðingar refsitolla Donalds Trumps á efnahagslíf heimsins, Kanadamenn eru reið...

Listen to the Heimsglugginn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.