RÚV
Heimsglugginn
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sterk staða Meloni á Ítalíu 19.11.2026 22:25
Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina. Ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami forsætisráðherrann sitji í fjögur ár eins og raunin er með Georgiu Meloni. Hún varð fyrsta konan til að leiða ríkisstjórn þegar hún tók við 2022 og er óskoraður leiðtogi hægriafla á Ítalíu. Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður á Gímaldinu,...
Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu 12.11.2026 21:52
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um nokkuð af því sem er efst á baugi í erlendum fréttum, stríð Rússlands við Úkraínu og friðarviðræður, stjórnmálastöðuna í Bandaríkjunum þar sem Demókratar bættu enn einu öldungadeildarþingsætinu við sig og hafa nú 55, stjórnarmyndunartilraunir í Svíþjóð og Ísrael, kosningaúrslit á Nýja-Sjálandi og óról...
Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum 05.11.2026 42:09
Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þátturinn var tvöfalt lengri en venjulega.
Kosningar í fjórum ríkjum 29.10.2026 24:00
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Bogi segir að túlka megi úrslitin í Brasilíu og Serbíu sem tap þjóðernissinnaðra pópúlista þar sem ungt fólk hafi tekið mikinn þátt og verið virkt í kosningabaráttunni.
Mikil seigla í hagkerfi heimsins 08.10.2026 23:23
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir að vaxtahækkanir víða að undanförnu séu ekki góðar fréttir en hagkerfi heimsins hafi sýnt ansi mikla seiglu undanfarin ár. Það sé ótrúlegt hvað mikið geti gengið á án þess að við lendum í óviðráðanlegri krísu. Jafnve...
Allt í hnút á Norður-Írlandi 01.10.2026 23:28
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd...
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús 24.09.2026 24:03
Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir Grænlands. Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø...
Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð 17.09.2026 23:32
Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“. Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálastö...
Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta 10.09.2026 22:26
Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana Harald og Hákon Noregskonunga og þátttöku konungborinna í þjóðmálaumræðu og í lokin var talað um hörkuspennandi kosningabaráttu í Svíþjóð.
Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál 03.09.2026 22:32
Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur er...
„Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“ 27.08.2026 32:00
Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og b...
Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð 20.08.2026 22:20
Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldarinnar vin sinn. Þetta bætist ofan á misheppnaða stefnu í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu, fjandskap við bandamenn, hótanir um yfirtöku Grænlands og allt annað. Trump kvaðst við...
Farage tekst á við ruslatunnu 13.08.2026 23:22
Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram en enginn stóru flokkanna býður sig fram því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Því hefur helsti keppinauturinn verið Count Binface, Fötufés greifi. Hann kemu...
„Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál 02.07.2026 23:28
„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartí...
„Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ 25.06.2026 22:35
Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vins...
„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“ 18.06.2026 22:57
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess að friðar...
„Ég elska verðbólgu…“ 11.06.2026 23:26
Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing af hækkun olíuverðs. Þetta var til umræðu í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni...
Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku 04.06.2026 21:26
Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði helsærða námsmanninn sem lést á staðnum. Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum o...
Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin 28.05.2026 23:24
Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166...
Norræn öryggismál og fleira 21.05.2026 24:19
Norræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda á miðvikudagskvöld, nema RÚV. Þarna voru meðal annarra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í...
Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi 07.05.2026 23:47
Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli fylgisaukningu. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja má að Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höf...
Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga 16.04.2026 21:56
Nýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi. Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Lögmaður er Beinir Johannesen sem tekur við af föð...
Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi 09.04.2026 23:53
Viktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri sem nam tónsmíðar við Franz Liszt-akademíuna í Búdapest, var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um Ungverjaland og horfurnar í stjórnmálum.
Flókin staða eftir kosningar í Danmörku 26.03.2026 24:47
Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd. State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981....
Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“ 19.03.2026 22:02
Lýðræði í heiminum er á undanhaldi og í Bandaríkjunum hefur það „sokkið eins og steinn,“ segir í skýrslu V-dem-stofnunarinnar við háskólann í Gautaborg. Tveir þungavigtarmenn í Siumut-flokknum á Grænlandi, Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti, hafa sagt sig úr flokknum. Í Bandaríkjunum eiga ráðamenn í mestu vandræðum með að skýra ástæður árásanna á Íran og skýringar eru mó...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.