Heimildin
Heimildin - Hlaðvörp
Hlaðvarp Heimildarinnar
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þjóðhættir #49: „Heilagar meyjar og kattafrumvarpið alræmda“ 07.05.2024 35:36
Í þættinum ræða Dagrún og Sigurlaug við Helgu Einarsdóttur, þjóðfræðing, en Helga starfar nú hjá Alþingi sem verkefnastjóri á fræðslusviði.
Á vettvangi: Kynferðisbrotadeildin #3: Kynferðislegt efni notað til fjárkúgunar 06.05.2024 30:34
„Nýlega vorum við með mál þar sem ungur maður kynnist einni á netinu og gerir þetta og hann endaði með því á einni helgi að borga viðkomandi aðila alla sumarhýruna eftir sumarvinnuna og síðan bætti hann við smáláni þannig að hann borgaði alls eina og hálfa milljón krónur en þrátt fyrir það var birt,“ segir Kristján lngi lögreglufulltrúi. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með...
Þjóðhættir #48: Sundlaugamenning á Íslandi: Hversdagsmenning og lifandi hefð 30.04.2024 51:31
Í þættinum ræðir Dagrún við Katrínu Snorradóttur og Sigurlaugu Dagsdóttur þjóðfræðinga.
Á vettvangi: Kynferðisbrotadeildin #2: Hljóðin eru verst 29.04.2024
„Ég fæ bara gæsahúð sjálf þegar ég hugsa um þetta enn þann dag í dag og það eru mörg ár síðan ég sá þetta myndskeið,“ segir Bylgja lögreglufulltrúi sem hefur það hlutverk að myndgreina barnaníðsefni. Það felur meðal annars í sér að hún þarf að horfa á myndskeið þar sem verið er að beita börn ofbeldi. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar...
Eitt og annað: Eldsvoði aldarinnar 28.04.2024 10:06
Talið er að endurbygging Børsen, einnar þekktustu byggingar Kaupmannahafnar, geti tekið 10 ár og kostnaðurinn verði að minnsta kosti einn milljarður danskra króna. Eigandinn, Danska viðskiptaráðið, hefur lýst yfir að húsið verði endurbyggt, en spurningin er hvort nýbyggingin eigi að vera nákvæm endurgerð hins upprunalega og hvort það sé framkvæmanlegt.
Þjóðhættir #47: Slysafrásagnir, skilningarvitin og lykt 23.04.2024 1:06:19
Í þættinum ræða Dagrún og Sigurlaug við Vilborgu Bjarkadóttur þjóðfræðing. Vilborg hafði lokið myndlistarnámi þegar hún kom inn í þjóðræðina og hefur sá bakgrunnur mótað hana sem rannsakanda, en strax í listnáminu fékk hún áhuga á sögnum og þá sérstaklega veikindasögum.
Á vettvangi: Kynferðisbrotadeildin #1: Leigubílstjórinn handtekinn 22.04.2024 1:02:48
„Halló. Þú þarft að koma með okkur,“ segir lögreglan við mann sem verður færður á lögreglustöð vegna gruns um kynferðisbrot. Áður hafði leigubílsstjóri verið handtekinn vegna sama máls. Báðir mennirnir eru komnir í farbann. Á vettvangi er ný hlaðvarpssería þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hér er fyrsti þáttur.
Eitt og annað: OK til bjargar Coop 21.04.2024 8:43
Danska verslanasamsteypan Coop hefur um langa hríð glímt við rekstrarerfiðleika. Margs konar hagræðingar hafa ekki dugað til að koma rekstrinum í viðunandi horf. Nú hefur orkufyrirtækið OK ákveðið að koma Coop til bjargar og leggur til verulegt fjármagn.
Pressa #20: Barist í bökkum velferðarsamfélags 19.04.2024
Í 20. þætti af Pressu verður fjallað um versnandi fjárhagsstöðu fjölda heimila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kannanir hafa að undanförnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnumarkaði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt.
Pressa #19: Samkeppnistríóið 12.04.2024
Í 19. þætti af Pressu verður til umræðu umdeild lagasetning sem heimilar afurðastöðvum í kjötiðnaði að hafa með sér mikla samvinnu og umfangsmikið samstarf. Gestir verða þeir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Eitt og annað: Húðkremsnotkun ungra stúlkna veldur áhyggjum 07.04.2024 5:34
Sænskt fyrirtæki sem rekur 400 apótek í heimalandinu hefur lagt bann við að ungmenni yngri en 15 ára geti keypt tilteknar húðvörur sem ætlaðar eru eldra fólki. Húðsjúkdómalæknar vara við síaukinni notkun ungra stúlkna á slíkum vörum.
Eitt og annað: Kínverjar sagðir niðurgreiða útfluttar vörur til að selja ódýrt 31.03.2024 8:36
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins jókst útflutningur Kínverja langtum meira en spáð hafði verið. Evrópusambandið og Bandaríkin gruna Kínverja um að beita óeðlilegum aðferðum til að halda uppi framleiðslunni og selja varning á undirverði til annarra landa.
Á vettvangi: Kynferðisbrotadeildin: Sýnishorn - Á vettvangi 26.03.2024 1:45
Þáttaröðin Á vettvangi fer í loftið á Heimildinni þann 22. apríl og verða þættirnir fjórir og birtir vikulega.
Eitt og annað: Úr 600 fermetra lúxusvillu í sjö fermetra fangaklefa 17.03.2024 9:00
Áhyggjulaust líf með sand af seðlum fékk skjótan endi þegar laganna verðir bönkuðu upp á hjá Sanjay Shah í lúxusvillu hans í Dubai í lok maí árið 2022 og smelltu á hann handjárnum. Nú er hann fyrir rétti í Danmörku, ákærður fyrir stærsta fjármálasvindl í sögu landsins.
Eitt og annað: Þjóðarréttur fyrir Hæstarétt 10.03.2024 7:08
Indversk matargerð er þekkt víða um heim og heiti margra rétta frá fjölmennasta ríki heims lætur kunnuglega í eyrum. Ef hægt er að tala um indverskan þjóðarrétt verður rauðgulur og bragðmildur réttur oft fyrir valinu. Nú er deilt um hver eigi heiðurinn af þessum rétti.
Eitt og annað: Danski utanríkisráðherrann í innkaupaferð 03.03.2024 7:02
Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur var nýlega á Indlandi og heimsótti stærsta sjúkrahús landsins. Hann kvaðst vonast til að indverskir hjúkrunarfræðingar vilji flytja til Danmerkur þar sem mikill skortur er á hjúkrunarfólki. Slíkar hugmyndir hafa vakið gagnrýni.
Eitt og annað: Eins og hænsn í myrkri 25.02.2024 8:49
Í dönsku tímariti um varnar- og öryggismál birtist fyrir skömmu grein ásamt viðtali við Henrik Lyhne, liðsforingja í danska hernum. Þar líkir hann hernum við hænsn, sem eru varnarlaus í myrkri. Herinn skorti allan búnað til næturhernaðar, fyrir utan allt annað, þrátt fyrir fögur loforð stjórnmálamanna.
Samtal við samfélagið #6: Prófessor í íslensku fangelsi 15.12.2023 55:41
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands ræðir við Francis Pakes, prófessor í afbrotafræði við háskólann í Portsmouth í Englandi. Francis og Helgi hafa lengi átt í samstarfi um afbrotafræðileg málefni einkum málefni fangelsa. Dagana á undan þessu samtali heimsóttu þeir fangelsi hér á landi og kynntu sér aðstæður og tóku viðtöl við bæði starfsfólk og fanga. Jafnframt sóttu þe...
Samtal við samfélagið #5: Rangupplýsingar og fjölmiðlar 27.06.2023 1:15:52
Gordon Neil Ramsey dósent í fjölmiðlafræði við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og Sarah Oates prófessor við Maryland háskóla leggja um þessar mundir lokahönd á bók um áróður Rússa í vestrænum fjölmiðlum en útgefandi bókarinnar er Oxford University Press. Gordon spjallaði við Guðmund Oddsson dósent í félagsfræði við Háskólann á Akureyri um náms- og starfsferil sinn, rannsóknaráherslur og ný...
Samtal við samfélagið #4: Nýlendustefna í norrænum samfélögum 20.06.2023 1:03:43
Hugtök eins og nýlendustefna og síðnýlendustefna heyrast æ oftar í samfélagsumræðunni og hefur fræðafólk í ýmsum greinum skoðað afleiðingar slíkrar stefnu fyrir heimsmynd okkar með gagnrýnum hætti. Ein slík fræðakona er Sólveig Ásta Sigurðardóttir, doktor í bókmenntum frá Rice háskólanum í Bandaríkjunum. Þessa dagana starfar hún sem nýdoktor hjá RIKK – Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Hásk...
Samtal við samfélagið #3: Hvers vegna virðismat starfa? 13.06.2023 44:25
Gestur vikunnar er Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnlaunastofu. Helga Björg er með BA-próf í félagsfræði og MS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Jafnlaunastofa er sameignarfélag í eigu Sambands íslenskra sveitafélaga og Reykjavíkurborgar og hefur það hlutverk að stuðla að launajafnrétti starfsfólks sveitarfélaga og veita stjórnendum stu...
Samtal við samfélagið #2: Af hverju hefur stjórnmálatraust minnkað í þróuðum lýðræðisríkjum? 05.06.2023 54:19
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þá...
Samtal við samfélagið: Áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi 30.05.2023 49:09
Í fyrsta hlaðvarpinu eftir langt hlé fær Sigrún til sín þau Sunnu Símonardóttur aðjúnkt og nýdoktor í félagsfræði og Ara Klæng Jónsson, nýdoktor. Þau stýra stóru rannsóknarverkefni, sem fékk öndvegisstyrk frá Rannís árið 2022. Verkefnið skoðar áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi. Í stóra samhenginu hefur fæðingartíðni löngum verið há á Íslandi í en hún hefur þó farið hr...
Flækjusagan #57: Vissuði að frændur Marokkómanna eru Samar í Skandinavíu? 14.12.2022 18:54
Marokkómenn hafa komið ærlega á óvart á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Hér segir Illugi Jökulsson sögu landsins.
Flækjusagan #56: Furðufyrirbæri á valdastóli keisara 25.10.2022 11:48
Illugi Jökulsson veltir því fyrir sér hvernig sá undarlegi maður Elagabalus entist í fjögur löng ár á valdastóli Rómaveldis þótt margir miklu hæfileikaríkari keisarar entust mun skemur.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.