Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 episodes

Hlaðvarp Heimildarinnar

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is

Author

Heimildin

Category

News

Podcast website

heimildin.is

Latest episode

Oct 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Eitt og annað: Meistaraverkið friðað 25.08.2024

Eftir mikla óvissu mánuðum saman hefur SAS hótelið við Vesterbrogade, eitt þekktasta kennileiti Kaupmannahafnar, verið friðað. Húsið er talið merkasta verk hins heimsfræga arkitekts Arne Jacobsen. Eigendurnir ætluðu að gera miklar breytingar á útliti hússins en friðlýsingin kemur í veg fyrir það.

Flækjusagan: Að skrökva upp á sig fjöldamorðum 18.08.2024

Illugi Jökulsson var duglegur að læra Biblíusögurnar sínar í barnaskóla. En fór seinna að efast um ýmislegt af því sem þar stóð.

Eitt og annað: Borga ungum drengjum fyrir að vinna óhæfuverkin 18.08.2024

Glæpaflokkar borga í auknum mæli ungum drengjum fyrir að fremja margs konar óhæfuverk, jafnvel morð. Tveir sænskir piltar voru fyrir skömmu handteknir í Kaupmannahöfn eftir morðtilraun.

Flækjusagan: Gætum við þurft að henda sögubókunum okkar? 11.08.2024

Illugi Jökulsson bíður eftir nýjustu tíðindum frá Gunung Padang en þar var verið að grafa eitthvað afar óvænt upp úr frumskógarmoldinni.

Eitt og annað: Litla hafmeyjan, maturinn og mannlífið 11.08.2024

Dönsk ferðamálayfirvöld hafa á síðustu árum lagt mikla vinnu í að kynna Danmörku í Bandaríkjunum. Sú vinna hefur skilað sér, bandarískum ferðamönnum í Danmörku hefur fjölgað mikið að undanförnu.

Flækjusagan: Djöflar og villidýr og guðsorð á eyðieyju 04.08.2024

Illugi Jökulsson las ungur söguna um Robinson Crusoe en komst löngu seinna að því að til var enn merkilegri saga um fólk á eyðieyju, og sú var meira að segja sönn.

Eitt og annað: Vítamíntöflurnar lengja ekki lífið 04.08.2024

Daglega má sjá í fjölmiðlum auglýsingar um hvernig við getum bætt og lengt líf okkar, bara ef við gleypum reglulega réttu pillurnar, vítamín og heilsubótarefni. Ný viðamikil rannsókn hefur leitt í ljós að vítamínspillurnar lengja ekki lífið.

Á vettvangi: Kynferðisbrotadeildin #5: Konur í viðkvæmri stöðu 02.08.2024

Teymisstjóri Bjarkarhlíðar segir öll ofbeldisbrot í tíunda veldi í fíkniefnaheiminum. „Við erum oft að sjá mjög ungar stelpur í þessum aðstæðum og við vitum af stelpum sem eru fimm árum eldri sem hafa lent í sömu mönnum, tíu árum eldri sem hafa lent í sömu mönnum,“ segir Jenný Kristín Valberg. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lokaþætti hlaðvarpsseríunnar Á vettvangi þar sem Jóhannes Kr. Kristj...

Flækjusagan: Rósamunda hin fagra og eiturmorðið 28.07.2024

Illugi Jökulsson vildi svo gjarnan skrifa eingöngu um hina djúpu þungu strauma sem knýja elfu sögunnar áfram, en lendir þó einlægt í blóðugum þverám þar sem kóngar og drottningar og launmorðingjar halda til.

Flækjusagan: Vitlaus vísindi 21.07.2024

Illugi Jökulsson hélt að hann fengi ekki að upplifa margt nýtt í sögulegum rannsóknum á sinni ævi. Þeim mun kátari varð hann þegar splunkunýjar rannsóknir fyrir nokkrum árum skiluðu óvæntum niðurstöðum.

Flækjusagan: Ógeðsverk á eyðieyju - seinni hluti 14.07.2024

Þessi Flækjusaga er framhald af annari sem heitir Vald og maktsýki á eyðieyju og þar hóf ég að fjalla um hollenska austurindíafarið Batavíu. Af þeirri sögu má draga ýmsa lærdóma – og flesta ófagra.

Flækjusagan: Vald og maktsýki á eyðieyjum - fyrri hluti 14.07.2024

Illugi Jökulsson furðar sig á því hvað maðurinn er alltaf fljótur að efna til valdabaráttu og framapots, þótt samvinna virðist affarasælli.

Eitt og annað: Deilan um marmarastytturnar 07.07.2024

Grikkir og Danir hafa árum saman deilt um grískar marmarastyttur sem voru fluttar frá Grikklandi til Danmerkur fyrir 340 árum. Grikkir vilja fá stytturnar til baka en Danir vilja ekki láta þær af hendi.

Eitt og annað: Joðtöflur, dósakavíar, rafhlöður, kerti og peningaseðlar 30.06.2024

Kannski virðist ekki augljóst hvað það sem nefnt er í fyrirsögninni á sameiginlegt. En eftir að varnarmálaráðherrann nefndi þetta og fleira í ávarpi sem hann flutti fyrir skömmu skilja allir Danir samhengið.

Eitt og annað: Alvarlegt feilspor í ballettinum 23.06.2024

Ný úttekt á kennsluháttum og framkoma kennara við Ballettskóla konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn gagnvart nemendum er áfellisdómur yfir stjórnendum skólans og leikhússins. Úttektin var gerð í kjölfar umfjöllunar eins af dönsku dagblöðunum og vakti mikla athygli.

Eitt og annað: 158 ára og sýnir engin ellimerki 16.06.2024

Ritzau, elsta og stærsta fréttastofa á Norðurlöndum tók til starfa árið 1866. Fjölmiðlaheimurinn hefur gengið í gegnum miklar breytingar á þeim 158 árum sem liðin er frá stofnun fréttastofunnar en Ritzau heldur alltaf sínu striki. Starfsmenn eru um 180.

Eitt og annað: Að drukkna í fatafjallinu 09.06.2024

Evrópulöndin, og mörg önnur lönd, eru bókstaflega að drukkna í fatafjallinu sem stækkar og stækkar. Íbúar Evrópu losa sig árlega við fjórar milljónir tonna af fatnaði og skóm. Nú vill Evrópusambandið auka ábyrgð framleiðenda í því skyni að draga úr framleiðslunni.

Eitt og annað: Evrópa kýs sér 720 þingmenn 02.06.2024

Dagana 6. til 9. júní fara fram kosningar til Evrópuþingsins. Kosið er á fimm ára fresti í aðildarríkjunum sem nú eru 27 og íbúarnir um 450 milljónir. Áhugi fyrir kosningunum virðist meiri en oft áður.

Þjóðhættir #52: Þjóðtrú Íslendinga: Huldufólk og geimverur 28.05.2024

Í þættinum fá Dagrún og Sigurlaug til sín Terry Gunnell, prófessor emeritus í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Terry er nýhættur að kenna við HÍ en situr ekki auðum höndum.

Eitt og annað: Spjöldin komin upp 26.05.2024

Þegar kosningar nálgast breytast óteljandi danskir ljósastaurar í auglýsingasúlur fyrir þá sem vilja þjóna fólkinu, eins og það er orðað. Nú stendur yfir eitt slíkt auglýsingatímabil, kosningar til Evrópuþingsins fara fram í júní. Strangar reglur gilda um kosningaspjöldin.

Þjóðhættir #51: Húmor í mannréttindabaráttu 22.05.2024

Í þessum þætti af Þjóðháttum tala Dagrún og Sigurlaug við hana Önnu Margréti Hrólfsdóttur, þjóðfræðing og framkvæmdastjóra Endó samtakanna.

Eitt og annað: Á hraða snigilsins 19.05.2024

Hægagangur og umferðartafir kosta Dani árlega fjármuni sem svara til 620 milljarða íslenskra króna. Umferðin á vegum landsins hefur nær þrefaldast á tiltölulega fáum árum og útlit fyrir að hún aukist enn frekar á næstu árum. Vegakerfið ræður ekki við aukninguna.

Þjóðhættir #50: Að tala um veðrið og hlæja að tengdamæðrum 14.05.2024

Sigurlaug og Dagrún fá hann Eirík Valdimarsson, þjóðfræðing í þáttinn en Eiríkur starfar á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum - Þjóðfræðistofu.

Á vettvangi: Kynferðisbrotadeildin #4: Skaðleg áhrif kláms 13.05.2024

„Við sjáum í rauninni allan þennan ljótleika sem tilheyrir þessum brotaflokki gerast í nánum samböndum,“ segir Jenný Krístín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Eitt og annað: Sendur í heilaskönnun 2400 árum eftir fæðingu 12.05.2024

Að næturlagi í lok apríl sl. var litlum fólksbíl ekið frá Silkeborg á Jótlandi til Árósa, um 40 kílómetra leið. Tveir farþegar voru í bílnum, annar á miðjum aldri en hinn mun eldri, kom í heiminn löngu fyrir Krists burð. Það var þó einungis höfuð þess gamla sem var með í ökuferðinni.

Listen to the Heimildin - Hlaðvörp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.