Heimildin
Heimildin - Hlaðvörp
Hlaðvarp Heimildarinnar
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Eitt og annað: Líst ekki á blikuna 10.11.2024 6:16
Meirihluti danskra grunnskólakennara telur að alvarlegur fjárskortur standi starfi danskra grunnskóla fyrir þrifum. Fjárskorturinn bitni á öllum hliðum skólastarfsins. Loforð stjórnvalda um auknar fjárveitingar á næstu árum dugi tæpast til að bæta úr ástandinu.
Formannaviðtöl #2: „Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“ 10.11.2024 42:33
Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á brattann að sækja en segir mikinn þrótt og kraft í flokksfólki. Hún sakar Bjarna Benediktsson um trúnaðarbrest í aðdraganda stjórnarslita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfsstjórn. Það sé fullgild spurning hvort það hafi verið of dýru verði keypt a...
Tuð blessi Ísland #3: Karen Kjartansdóttir segir frá því af hverju maðurinn hennar elskar Ingu Sæland 05.11.2024 1:01:33
Karen Kjartansdóttir almannatengill og fyrrverandi fjölmiðlakona er fyrsti gestur hlaðvarpsins Pod blessi Ísland. Hún ræddi við Aðalstein og Arnar Þór um fyrstu vikur kosningabaráttunnar, hápunktana úr kappræðum síðasta föstudags og hvað Sigurður Ingi er góður maður (fyrirvari: hún er aðeins að vinna fyrir Framsóknarflokkinn þessa dagana). Einnig ræðum við um hvernig Samfylkingunni hefur tekist að...
Þjóðhættir #54: Frískápar og samkennd, matur og rusl 05.11.2024 40:49
Gestur þáttarins hefur rannsakað allt frá ofgnótt matar, matarmenningu og matarsóunn til ruslsins sem safnast upp í kringum okkur.
Út fyrir boxið #1: Bandaríski „fasisminn“ hefur áhrif á Ísland 04.11.2024 58:59
Á sama tíma og einræðisríki rísa upp eiga Íslendingar varnir sínar undir Bandaríkjunum, þar sem stór hluti þjóðarinnar styður stefnu sem líkist sífellt meir fasisma. Silja Bára Ómarsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir um fallvaltleika lýðræðisins í Bandaríkjunum og hvernig Íslendingar geta brugðist við hættulegri heimi.
Flækjusagan: Hin ægilegasta uppreisn 03.11.2024 15:42
Illuga Jökulsson rak í rogastans þegar hann fór að kynna sér furðu lítt þekktan atburð í sögu Kína.
Tuð blessi Ísland #2: Kappræðugreining: Innblásinn Sigurður Ingi, Kristrúnarplanið á xS.is og tilhugalíf Sigmundar og Bjarna Video 02.11.2024 56:51
Gleðilegan kosningamánuð. Í öðrum þætti Pod blessi Ísland fara Aðalsteinn og Arnar Þór yfir kappræður gærkvöldsins. Þáttarstjórnendurnir sjálfir íhuga framboð eins lista í NV-kjördæmi í næstu kosningum til að fá vettvang til að viðra skoðanir sínar í kappræðum ríkismiðilsins. Farið yfir frammistöðu Jóhannesar Loftssonar og allra hinna leiðtoganna í íslenskri pólitík, það sem kom á óvart og það sem...
Tuð blessi Ísland #1: Gnarr jarðsetur Pírata, óvinsæl spurning til Selenskí, einkaskilaboð Kristrúnar og Klaustur-endurfundir 29.10.2024 1:00:11
Í fyrsta þætti Pod blessi Ísland, í umsjá Aðalsteins Kjartanssonar og Arnars Þórs Ingólfssonar, blaðamanna Heimildarinnar, er farið yfir nýjustu vendingar í stjórnmálum og rýnt í líklegar ríkisstjórnir út frá nýrri þingsætaspá Heimildarinnar og Dr. Baldurs Héðinssonar. Var það taktísk snilld hjá Viðreisn að setja Jón Gnarr í 2. sæti? Munu Egilsstaðabúar hætta við að kjósa Samfylkinguna af því að D...
Þjóðhættir #53: Symbiosis: Súrdeig, melting, molta, skyr og aðrar óstýrlátar örverur 29.10.2024 35:49
Í dag í Þjóðháttum hittum við tvo þjóðfræðinga sem síðan 2021 hafa verið að skyggnast inn í heim sem er okkur venjulega hulinn og fæst okkur hugsa mikið um, þ.e. hvernig samlífi manna og örvera lýsir sér.
Flækjusagan: 80 ár frá Bagration, mestu sókn Rauða hersins 27.10.2024 11:44
Í júní var þess minnst að 80 ár voru frá innrásinni í Normandí. Hún skipti miklu máli við að sigra Hitler og nóta hans en seinna í mánuðinum hóf Rauði herinn svo aðra innrás sem varð ekki síður afdrifarík.
Eitt og annað: Bílaframleiðendur með öndina í hálsinum 27.10.2024 7:49
Evrópskir bílaframleiðendur eru uggandi vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Donald Trump hefur heitið því að leggja innflutningstolla á evrópskar vörur verði hann kjörinn forseti. Slíkir tollar hefðu mikil áhrif, ekki síst á bílainnflutning.
Flækjusagan: Ógæfusamasta drottning sögunnar 20.10.2024 13:28
Illugi Jökulsson rekur hér harmsögu um Önnu drottningu á Bretlandi sem bókstaflega varð að eignast barn, hvað sem það kostaði.
Eitt og annað: Mengandi stjórnendur danskra stórfyrirtækja 20.10.2024 7:36
Nokkur dönsk stórfyrirtæki segjast leggja mikla áherslu á umhverfismál í starfsemi sinni. Ný rannsókn sýnir að sú áhersla nær ekki til æðstu stjórnenda sem ferðast milli staða í einkaþotum, sem valda hlutfallslega 17 sinnum meiri mengun en vélar í áætlunarflugi.
Flækjusagan: Þegar Óðinn hermaður fór um Evrópu 13.10.2024 12:50
Illugi Jökulsson gluggaði í nýja bók sem leiðir rök að því að Snorri Sturluson hafi ekki farið með neitt fleipur.
Flækjusagan: Þegar Lenín bað Stalín að útvega sér eitur 06.10.2024 14:01
Illugi Jökulsson veltir fyrir sér hvort næstmesta ógæfa rússnesku þjóðarinnar hafi kannski verið gæfa eftir allt saman.
Eitt og annað: Hægpóstur í flösku 06.10.2024 5:35
Það var jafngott að skilaboðin sem franskur fornleifafræðingur setti í flösku, og lokaði vel, voru ekki áríðandi. Það liðu nefnilega næstum 200 ár áður en flaskan fannst, fyrir skömmu. Sennilega elsti flöskupóstur í heimi.
Flækjusagan: Kóngur glímir við erfitt sakamál 29.09.2024 11:43
Það er ekki erfitt að finna dæmi úr sögunni um hvernig óttinn við „útlendinginn“ tók öll völd af réttsýni og sanngirni.
Eitt og annað: Rispur í lakkinu 29.09.2024 10:47
Í splunkunýrri danskri bók er fjallað um samskipti dönsku konungsfjölskyldunnar við stjórn nasista í Þýskalandi í aðdraganda heimsstyrjaldarinnar síðari. Höfundurinn segir þessi samskipti hjúpuð leynd og vill að Friðrik konungur heimili aðgang að dagbókum Kristjáns X frá þessum tíma.
Flækjusagan: Þegar kínverjar hættu við heimsyfirráð 22.09.2024 12:26
Illugi Jökulsson rifjar upp söguna af Zheng He sem hóf siglingar sem hefðu getað komið í veg fyrir útrás Evrópumanna.
Flækjusagan: Keisarinn sem vildi ekki vera keisari 15.09.2024 10:59
Illugi Jökulsson er vanur keisurum sem gera hvaðeina til að halda í völd sín. En keisarinn í Brasilíu var öðruvísi.
Flækjusagan: Uns lengra varð ekki komist 08.09.2024 12:43
Illugi Jökulsson veltir fyrir sér stórmerkilegu ferðalagi, hinu fyrsta sem nútímamaðurinn lagði í.
Eitt og annað: Heimilisvandræðin í norsku konungshöllinni 08.09.2024 8:21
Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, er aðalpersónan í einhverri verstu krísu sem norska konungsfjölskyldan hefur lent í, að minnsta kosti á síðari tímum. Þar koma eiturlyf og ofbeldi við sögu.
Flækjusagan: Þegar Tarzan hitti Presta-Jón 01.09.2024 11:04
Illugi Jökulsson komst fyrst í kynni við hið einangraða kristna ríki Eþíópíu með því að lesa Tarzanbækur Edgars Rice Burroughs.
Eitt og annað: Að þéra eða þúa 01.09.2024 6:55
Meðan Margrét Þórhildur var þjóðhöfðingi Dana var það ófrávíkjanleg regla að hún skyldi þéruð, Deres majestæt, nema í þröngum hópi fjölskyldu og náinna vina. Eftir að sonurinn Friðrik tók við krúnunni hefur það flækst fyrir mörgum hvernig ávarpa skuli kónginn og sama gildir um drottninguna Mary.
Flækjusagan: Melódrama Verdis var miklu merkilegri harmsaga 25.08.2024 12:13
Illugi Jökulsson sá ekki sýningu Íslensku óperunnar á Don Carlo en kynnti sér ævi fyrirmyndarinnar, Carlosar krónprins.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.