Heimildin
Heimildin - Hlaðvörp
Hlaðvarp Heimildarinnar
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Á vettvangi: Bráðamóttakan #3: Æsingsóráð á föstudagskvöldi 06.12.2024 58:42
Í rúminu við gluggann liggur sjúklingur sem lenti í árekstri, var handtekinn og fluttur á bráðamóttökuna. Sjúklingurinn verður órólegur og nær að komast út af deildinni. Hann er fáklæddur og skólaus. Sérhfæfðir starfsmenn bráðamóttökunnar eru úti að leita að sjúklingnum og hjúkrunarfræðingur hringir á lögregluna. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspí...
Móðursýkiskastið: Sýnishorn: Móðursýkiskastið 04.12.2024 5:19
Ein var kölluð fíkill þegar hún lýsti óbærilegum líkamlegum kvölum. Síðar voru verkir hennar útskýrðir með kvíða. Önnur var sögð ímyndunarveik. Sú þriðja áhyggjurófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heilaæxli, fékk sama viðurnefni. Sögur þessara kvenna, kvenna sem hafa mætt daufum eyrum innan heilbrigðiskerfisins þegar þær glímdu við alvarlegan heilsubrest, eru sagðar í nýjum hlaðvarpsþáttum He...
Þjóðhættir #58: Hljóðrit, ævintýri, sagnafólk og metoo 03.12.2024 48:41
Í þættinum er rætt við Rósu Þorsteinsdóttur rannsóknardósent hjá Stofnun Árna Magnússonar, þar sem hún sér um hljóðritasafn stofnunarinnar. Í þættinum segir Rósa frá upphafi hljóðritasafnsins, hvað þar er að finna og vinnunni við að gera það aðgengilegt á netinu.
Flækjusagan: Eilíft vor í paradís 01.12.2024 13:40
Illugi Jökulsson segir frá tveimur nýlendum á 17. öld, önnur var hollensk í NorðurAmeríku en hin bresk í Suður-Ameríku. Og þær tengdust.
Eitt og annað: Urgur í Grænlendingum 01.12.2024 6:23
Fulltrúar Grænlendinga á danska þinginu eru mjög ósáttir við að tveir stórir og öflugir drónar sem ætlaðir eru til eftirlits á Grænlandi og norðurslóðum verði staðsettir í Álaborg á Jótlandi, víðs fjarri svæðinu sem þeim er ætlað að fylgjast með.
Á vettvangi: Bráðamóttakan #2: Hjartastopp á neyðarstæði 29.11.2024 1:08:26
„Eigum við að skipta okkur niður í hlutverk. Soffía er á skráningu. Getur þú verið með tímann á taktgreiningum fyrir okkur? Hún er í “arreste” eins og er þannig að viið þurfum að fá hana bara yfir og við bara byrjum að hnoða,“ segir Þórir Bergsson sérfræðingur í bráðalækningum þegar hann undirbýr komu sjúklings í hjartastoppi á bráðamóttökuna. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á...
Tuð blessi Ísland #6: Tuð blessi kappræður í Tjarnarbíó! 27.11.2024 1:04:53
Kappræður Heimildarinnar fyrir kosningarnar fóru fram í Tjarnarbíó í gær. Í þessum þætti Tuð blessi Ísland gerum við upp kappræðurnar, spilum bitastæða búta og ræðum þá þræði sem teiknuðust upp á sviðinu við Tjörnina. Einnig ræðum við nýja könnun Maskínu fyrir Heimildina, sem sýnir meðal annars að fáir kjósendur Viðreisnar virðast vilja stjórn með Sjálfstæðisflokki. Miklum tíma var einnig varið í...
Þjóðhættir #57: Flökkusögur og orðrómur um flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi 26.11.2024 26:43
Í þættinum í dag ræða Dagrún og Sigurlaug við Andrés Hjörvar Sigurðsson sem nýlega vann meistararannsókn á flökkusögum og orðrómi um flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Formannaviðtöl #6: „Ég er að leggja allt undir“ 25.11.2024 1:11:11
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, stefnir með flokk sinn í ríkisstjórn. „Auðvitað hef ég brugðist sem formaður í þessum flokki ef við endum með hægri stjórn,“ segir hún. Það hafi skort virka pólitíska stefnu alveg frá hruni, pólitískri ábyrgð hafi verið útvistað en nú sé tækifæri til alvöru breytinga.
Formannaviðtöl #7: Tími jaðranna er ekki núna 24.11.2024 41:36
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er sá stjórnmálamaður sem miðað við fylgismælingar og legu flokksins á hinum pólitíska ás gæti helst lent í lykilstöðu í stjórnarmyndunarviðræðum að loknum þingkosningum. Þorgerður boðar fækkun ráðuneyta, frekari sölu á Íslandsbanka og sterkara geðheilbrigðiskerfi. Hún vill koma að ríkisstjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar rey...
Flækjusagan: Þegar Ventidíus hefði getað sigrað heiminn 24.11.2024 15:23
Illugi Jökulsson rifjar upp söguna um múldýrarekann sem stóð allt í einu andspænis þeim möguleika að leggja undir sig heimsveldi.
Eitt og annað: Níu þúsund milljarðar í flóðavarnir 24.11.2024 6:49
Í Danmörku gætu 90 þúsund heimili, 60 þúsund sumarhús og tugir þúsunda verksmiðjubygginga farið undir vatn á næstu áratugum vegna hækkandi yfirborðs sjávar. Varnaraðgerðir eru taldar kosta nálægt 460 milljörðum danskra króna en dugi þó ekki til að bjarga öllum landsvæðum sem eru í hættu.
Pressa #30: Alma og Willum ræða stöðu bráðamóttökunnar 22.11.2024
Alma D. Möller landlæknir og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra voru gestir Pressu í dag og ræddu meðal annars alvarlega stöðu á bráðamóttöku. Willum og Alma leiða bæði lista í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum, Alma fyrir Samfylkingu og WIllum Framsókn. Jóhannes Kr. Kristjánsson mætir einnig í þáttinn og sagði frá nýjum þáttum um bráðamóttökuna sem birtast hjá Heimildinni.
Á vettvangi: Bráðamóttakan #1: Kvöldvakt á bráðamóttökunni 22.11.2024 1:02:23
Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Tuð blessi Ísland #5: Forskot á þingsætaspá: Hverjir eru líklegir á þing? 19.11.2024 56:47
Arnar og Aðalsteinn eru tveir í hljóðveri í þætti dagsins og rýna í upphaf lokaspretts kosningabaráttunnar. Forskot tekið á sæluna og rýnt í funheita þingsætaspá Heimildarinnar og dr. Baldurs Héðinssonar, sem er væntanleg á vefinn. Eru blaðamannafundir, borðaklippingar og rannsóknir liður í kosningabaráttunni? Við spyrjum spurninga í þætti dagsins. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins...
Þjóðhættir #56: Náttúran, stofnfrumur og minjar og minningar í Grindavík 19.11.2024 36:58
Björg Erlingsdóttir er gestur þáttarins. Hún fór erlendis til Svíþjóðar til að læra þjóðfræði og hefur meðal annars rannsakað tengsl mannsins við náttúruna, en það er áhugavert hvernig hugmyndir okkar hafa tekið breytingar á undanförnum árum og milli kynslóða.
Eitt og annað: Ástvinir geta þurft að bíða vikum saman eftir jarðarför 17.11.2024 6:26
Víða í Danmörku hefur árum saman vantað fleiri presta en ástandið hefur aldrei verið jafnslæmt og núna. Ættingjar geta þurft að bíða vikum saman eftir að geta kvatt ástvini vegna annríkis hjá prestum.
Flækjusagan: Hin stoltu skip 17.11.2024 15:19
Illugi Jökulsson rifjar upp að um mánaðamótin maí-júní árið 1916 var haldin mesta sjóorrusta sögunnar þar sem fallbyssuskip voru í aðalhlutverki.
Formannaviðtöl #5: Síðasta tilraun Ingu Sæland Video 15.11.2024 43:24
Flokkur fólksins var stofnaður til að útrýma fátækt á Íslandi, sem Inga Sæland, formaður flokksins, þekkir af eigin raun. Hún boðar nýtt húsnæðiskerfi með fyrirsjáanleika og niðurskurð í öllu því sem heita aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Grænasta land í heimi eigi að nota peningana í heilbrigðiskerfi og aðra innviði sem standi á brauðfótum.
Formannaviðtöl #4: Allir verða sósíalistar fyrir kosningar 15.11.2024 35:52
Hugmyndafræði sósíalismans hefur ekki beðið skipbrot heldur virðast allir flokkar verða sósíalískari fyrir kosningar. Þetta segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalistaflokksins, fyrir komandi þingkosningar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drifkraftur hennar og boðar réttlátara skattkerfi og stefnubreytingu í húsnæ...
Formannaviðtöl #3: Margt sem gengur rosalega vel en enginn vill heyra það 15.11.2024 50:17
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknarflokksins, ræðir um vandamálin í íslensku samfélagi og lausnirnar sem Framsókn býður fram í ítarlegu viðtali við Heimildina.
Tuð blessi Ísland #4: Hin einu sönnu Freyr og Snærós 12.11.2024 58:24
Fjórði þáttur Pod blessi Ísland inniheldur símtal til Búdapest. Við komum síður en svo að tómum kofanum hjá fjölmiðlafólkinu fyrrverandi Frey Rögnvaldssyni og Snærós Sindradóttur. Þau segja frá því hvernig konsúll Íslands í Ungverjalandi tekur á móti kjósendum og fara yfir hvernig kosningabaráttan og slagorð flokkanna hljóma, frá sæluríki Viktors Orbán.
Þjóðhættir #55: Haunted: Minningar um miðborg Reykjavíkur 12.11.2024 45:18
Í þessum þætti af Þjóðháttum er fjallað um hvernig borgarlandslagið í miðbæ Reykjavíkur getur virkað sem minningarbrunnur fyrir þá sem þar fara um.
Formannaviðtöl #1: Pönkið lifir í settlegri Pírötum 12.11.2024 1:06:05
Pönkið lifir í Pírötum, segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, en hreyfingin er þó orðin settlegri. Lýðræðisumbætur eru lykilmál í hennar huga og leita þarf í auknum mæli til þjóðarinnar. Hún segir spillingu vandamál á Íslandi og að hlúa þurfi að fólkinu sem beri uppi heilbrigðiskerfið.
Flækjusagan: Ný frétt: Slapp Hitler lifandi? 10.11.2024 15:08
Á sínum tíma las Illugi Jökulsson með mestu athygli fréttir um að nýbirt skjöl FBI gæfu til kynna að foringi þýskra nasista, Adolf Hitler, hefði komist undan til Argentínu. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem slíkar fréttir bárust.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.