Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 episodes

Hlaðvarp Heimildarinnar

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is

Author

Heimildin

Category

News

Podcast website

heimildin.is

Latest episode

Oct 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Flækjusagan #55: Í innyflum jarðarinnar geisar aflmesta höfuðskepnan 21.10.2022
Flækjusagan #54: 27 þúsund Frakkar voru drepnir í gær 18.10.2022

Illugi Jökulsson minnist þess að fyrir rúmum hundrað árum síðan voru manndráp fyrri heimsstyrjaldar komin í fullan gang.

Flækjusagan #53: Örlagaríkasta sjóorrustan? 07.10.2022

Illugi Jökulsson hafði á táningsaldri mikinn áhuga á sjóorrustum og las af áfergju um þær stærstu þeirra. Löngu seinna komst hann að því að lítt þekkt orrusta skipti kannski meira máli en þær flestar.

Flækjusagan #52: Gufuvél Rómaveldis 04.10.2022

Illugi Jökulsson býr hér til sögu um það sem hefði getað gerst ef vísindamenn á tímum Rómaveldis hefðu fylgt eftir uppfinningu sem búið var að gera– en enginn vissi til hvers átti að nota.

Á bakvið fréttirnar #3: Dagbók skólastúlku um Jón Baldvin 30.09.2022

Blaðamenn Stundarinnar ræða efni og vinnslu nýjasta tölublaðs Stundarinnar. Margrét Marteinsdóttir ræðir uppljóstrun úr hálfrar aldar gömlum dagbókum unglingsstúlku sem lýsir kynferðislegum samskiptum sínum við gagnfræðaskólakennarann Jón Baldvin Hannibalsson. Valgerður Þorsteinsdóttir, segir frá fundi dagbókanna, sem móðir hennar heitin, Þóra Hreinsdóttir, skrifaði um samband sitt við Jón og dula...

Flækjusagan #51: Viljum við vera Herúlar? 27.09.2022

Illugi Jökulsson heldur áfram að rekja sögu Herúla og þeirrar kenningar að þessi dularfulla þjóð hafi endað hér uppi á Íslandi.

Flækjusagan #50: Eru Íslendingar Herúlar? 23.09.2022

Illugi Jökulsson var spurður í Bónus einu sinni, og síðan á Facebook, hvenær hann ætlaði að skrifa um Herúlakenninguna. Ekki seinna en núna!

Flækjusagan #49: Píndur á dögum Pontíusar Pílatusar 20.09.2022

Illugi Jökulsson furðar sig á því að venjulegur embættismaður í Rómaveldi hinu forna skuli lentur í trúarjátningu okkar. Og reynir að sjá fyrir sér íslenskan embættismann í sömu stöðu.

Flækjusagan #48: Þegar rádýr og villisvín bjuggu í Reykjavík 16.09.2022

Illugi Jökulsson velti því fyrir sér af hverju höfuðborg Íslands skyldi endilega rísa á sama stað og fyrsti landnámsmaðurinn byggði sinn bæ. En komst svo að því að spurningin var á misskilningi byggð.

Flækjusagan #47: Metsöluhöfundurinn sem réðst á orrustuskip 13.09.2022

Illugi Jökulsson segir frá afdrifaríkri loftárás á þýska orrustuskipið Tirpitz sem metsöluhöfundurinn Alistair MacLean tók þátt í. MacLean var á sínum tíma einn vinsælasti spennusagnahöfundur í heimi og alltént hér á Íslandi.

Flækjusagan #46: Að kunna að velja sér eftirmenn 09.09.2022

Illugi Jökulsson rekur hér eitt af sárafáum dæmum sem sagan kann að greina frá um að öflugir leiðtogar óttist ekki að velja öfluga eftirmenn, ólíkt til dæmis Alex Ferguson!

Flækjusagan #45: Þegar Tékkóslóvakía var myrt 06.09.2022

Illugi Jökulsson reynir ekki einu sinni að draga fjöður yfir hvað honum finnst Úkraínumálið núna svipað haustinu 1938 þegar Adolf Hitler þóttist þurfa að „vernda“ þýska íbúa Súdetalanda.

Flækjusagan #44: Þegar Tyrkland var að hverfa 02.09.2022

Illugi Jökulsson rifjar upp vel þekktan atburð frá árinu 1920, en þá var framtíð Tyrklands mjög óráðin eftir fyrri heimsstyrjöldina. Það munaði furðulega litlu að þetta stóra land yrði limað alveg sundur.

Flækjusagan #43: Þegar pabbastrákurinn var gerður kóngur 30.08.2022

Illugi Jökulsson segir gamla sögu um líklega fyrstu alþýðubyltingu sem gerð hefur verið í veröldinni.

Flækjusagan #42: Labbakútar þeir sem hræddir verða 26.08.2022

Illugi Jökulsson lítur svo á að hann hafi sloppið naumlega við að verða því hugarfari Íslendingasagnanna að bráð, sem heltók Snæbjörn í Hergilsey og allt hans fólk.

Flækjusagan #41: Fórnuðu Karþagómenn virkilega börnum? 23.08.2022

Illugi Jökulsson "hélt alltaf" með Karþagómönnum í styrjöldum þeirra við Rómverja, þótt stuðningurinn hafi komið meira en 2.000 árum of seint. Og hann hefur alltaf fussað yfir áróðri Rómverja um grimmilegar mannfórnir fjenda þeirra.

Flækjusagan #40: Stríð í þúsund daga 19.08.2022

Illugi Jökulsson fór að skoða hverjir væru fyrirmyndirnar að uppáhaldspersónu hans í uppáhaldsskáldsögu hans, Hundrað ára einsemd eftir García Márquez.

Flækjusagan #39: Hefur Taívan alltaf verið hluti Kína? 12.08.2022
Flækjusagan #38: Rússland III: Hefði Trotskí endað í Berlín? 03.06.2022

Ill­ugi Jök­uls­son hef­ur í und­an­förn­um flækj­u­sög­um ver­ið að kanna hvað hæft sér í þeirri þjóð­sögu, sem Rúss­ar og stuðn­ings­menn þeirra halda gjarn­an fram, að Rúss­ar hafi sí­fellt og ein­lægt mátt þola grimm­ar inn­rás­ir úr vestri og Vest­ur­lönd hafi alltaf vilj­að þeim illt.

Flækjusagan #37: Rússland II: Eiga Rússar voða bágt? 27.05.2022

Í síðasta þætti hóf Illugi Jökulsson að kanna styrjaldarsögu Rússlands til að vita hvað sé hæft í þeirri trú margra Rússa að land þeirra hafi sífellt sætt grimmum árásum frá erlendum ríkjum, ekki síst Vesturlöndum. Því sé eðlilegt að þeir fái að hafa Úkraínu sem „stuðpúða“ gegn hinni miskunnarlausu ásælni vestrænna stórvelda. Í síðasta þætti höfðu ekki fundist slík dæmi, því oftar en ekki voru það...

Flækjusagan #36: Rússland I: Þurfa Rússar að óttast vestrið? Eða er það kannski öfugt? 20.05.2022

Stuðningsmenn Rússa halda því gjarnan fram að eðlilegt sé að Rússar vilji hafa „stuðpúða“ í vestri — það er að segja Úkraínu — því svo margoft hafi rússneska ríkið og rússneska þjóðin verið nánast á heljarþröm eftir grimmar innrásir úr vestri.

Á bakvið fréttirnar #2: Gleymda fólkið á leigumarkaði 11.05.2022

Helgi Seljan ræðir forsíðuúttekt Stundarinnar um íslenska leigumarkaðinn við blaðakonurnar Margréti Marteinsdóttur og Ölmu Mjöll Ólafsdóttur sem sökkt hafa sér ofan í það að reyna það sem stjórnvöldum hefur mistekist, að greina og kortleggja falda hluta húsnæðismarkaðarins, en segja í leiðinni sögur af fólkinu sem neyðist til að búa sér þar heimili, oft við erfiðar en líka hættulegar aðstæður. Hel...

Flækjusagan #35: Þegar sjóliðarnir neituðu að deyja 22.04.2022

Illugi Jökulsson játar fúslega að hafa sérkennilegt gaman af herskipum og hefur jafnvel sést lesa um sjóorrustur sér til skemmtunar. En hér fagnar hann því að ekki varð af einum slíkum slag.

Á bakvið fréttirnar #1: Stórveldi sársaukans 19.04.2022

Helgi Seljan ræðir við blaðamenn Stundarinnar um efni nýjasta tölublaðsins. Í forsíðuumfjölluninni er meðal annars sagt frá því að íslenska lyfjafyrirtækið Actavis seldi 32 milljarða taflna, eða þriðjung allra morfínlyfja í Banda­ríkjunum 2006 til 2012, á meðan notkun slíkra lyfja varð að faraldri í landinu. Fyrirtækinu var stýrt af Róberti Wessman hluta tímans og var í eigu Björgólfs Thors Björgó...

Flækjusagan #34: Hvað hefði gerst ef Hitler hefði verið drepinn 1938? 15.04.2022

Það hefði sennilega orðið niðurstaðan ef Neville Chamberlain hefði ekki látið Hitler blekkja sig upp úr skónum í München. Og heimurinn hefði orðið óþekkjanlegur.

Listen to the Heimildin - Hlaðvörp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.