Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

News IS ↓ 67 episodes

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

Author

Björn Ingi Hrafnsson

Category

News

Podcast website

www.viljinn.is

Latest episode

May 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Flokkur fólksins ekki bara upp á punt 16.01.2025

Sr. Halldór Gunnarsson (kenndur við Holt) tók þátt í stofnun Flokks fólksins ásamt Ingu Sæland og fleira fólki og varpar hér óvæntu og fréttnæmu ljósi á styrk flokksins við ríkisstjórnarborðið. Segir hann að enginn skyldi vanmeta Ingu; hún hafi ýmis vopn upp í erminni. Halldór í Holti rýnir í stöðuna í Grjótkastinu hjá Birni Inga ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra og f...

Ótrúlega áhugaverðir tímar: Af hverju er allt upp í loft í pólitíkinni um allan heim? 08.01.2025

Grjótkastið heilsar nýju ári með greiningu úr efstu hillu þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fv. ráðherra og þingmaður setjast niður með Birni Inga í níutíu mínútur og fara yfir hið pólitíska landslag; brotthvarf Bjarna Ben, fyrstu daga Valkyrjustjórnarinnar, ótrúlega atburðarás sem e...

Miskunnarlausir strigakjaftar II: Uppgjör við áramót 28.12.2024

Rosalegt Grjótkast: Stefán Einar og Ólöf Skafta taka enga fanga í sannkallaðri áramótaveislu.

Draumalandið vs. Hugmyndalandið 19.12.2024

Nú eru tæp tuttugu ár frá því Andri Snær Magnason rithöfundur sendi frá sér bókina Draumalandið — sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin og var síðar kvikmynduð. Stóriðjustefna stjórnvalda var þar gagnrýnd og áhersla á virkjanir. Bókin hafði mikil áhrif og í hönd fór það sem kallað hefur verið kyrrstaða í orkumálum Íslendinga. Er Andri Snær höfundur kyrrstöðunna...

Óttast atvinnulífið ríkisstjórn Valkyrjanna? 16.12.2024

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, betur þekktur sem Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og fv. aðstoðarmaður forsætisráðherra, koma í Grjótkastið og ræða væntingar atvinnulífsins til ríkisstjórnar valkyrjanna sem verið er að reyna að mynda. Hvor verður forsætisráðherra, Kristrún eða Þorgerður? Ásælist ESB auðlindir okkar? Þo...

Erum við að sigla inn í nýja heimsstyrjöld? 11.12.2024

Ekkert léttmeti á aðventunni, því miður, heldur alvöru spjall um raunverulega hættu sem gæti verið að skapast og mun hafa gríðarleg áhrif á okkur öll. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir hvað gæti gerst á árinu 2025. Þetta eru sannarlega sögulegir tímar.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf núna að uppfæra stýrikerfið sitt 06.12.2024

Nú þegar stjórnarmyndunarviðræður valkyrjanna þriggja standa yfir, fær sjálfstæðisfólk tækifæri til að melta úrslit kosninganna og horfa inn á við. Í Grjótkastinu útiloka hvorki Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir né Guðlaugur Þór Þórðarson framboð til formanns á komandi landsfundi í febrúar og greina möguleika Sjálfstæðisflokksins til framtíðar. Hér kemur ansi margt áhugavert fram, sem vitnað verður ti...

Grjótkastið með alvöru kosningauppgjör: Hver er sætasta stelpan á ballinu? 02.12.2024

Alvöru uppgjör í Grjótkastinu, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir úr Viðreisn og Bergþór Ólason úr Miðflokki draga ekkert úr sigrum sinna flokka í samtali við Björn Inga á Viljanum, en setja líka upp hatta álitsgjafanna og greina í smáatriðum nýliðna kosningabaráttu og úrslit kosninganna, auk þess sem rýnt er í möguleikana varðandi nýja ríkisstjórn. Í heimsókn kemur Björn Brynjúlfur Björnss...

Grjótkast á útopnu: Hver fær umboðið til stjórnarmyndunar? 29.11.2024

Grjótkastið á mannamáli með tveimur konum sem kalla ekki allt ömmu sína og þora að hafa skoðanir. Ólöf Skaftadóttir og Vigdís Häsler setjast niður með Birni Inga og greina stöðuna fyrir stóra daginn, það er komið að kosningum og allt getur gerst. Þáttur sem enginn ætti að missa af, sem vill vera með á nótunum.

Grjótkast Bjarna Ben og SDG: 120 mínútur af fyrirsögnum 25.11.2024

Hér koma 120 mínútur af alvöru Grjótkasti, þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fv. Forsætisráðherra, mætast hjá Birni Inga á Viljanum og ræða lokadaga kosningabaráttunnar, hvaða staða sé að teiknast upp og hvernig koma megi í veg fyrir vinstri stjórn sem ætlar í Evrópusambandið. Rætt er og rifist um...

Allt að verða vitlaust: Obba og Gulli í spennuþrungnu Grjótkasti 22.11.2024

Spennan var rafmögnuð í hljóðveri Grjótkastsins þegar Guðlaugur Þór Þórðarson (Gulli) umhverfisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir (Obba) þingkona Viðreisnar mættust hjá Birni Inga, enda birtist rosaleg könnun Prósents um fylgi flokkanna fyrir Moggann meðan á upptöku stóð, en þar sýnist Viðreisn vera nánast tvöfalt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Gulli varar við vinstri slysum, en Obba bendir...

Grjótkast á sterum: Eyþór Arnalds og Vigdís Hauks um lokadaga kosningabaráttu sem skipt geta sköpum 19.11.2024

Grjótkastið er á sterum í dag, en Vigdís Hauksdóttir lögmaður og fv. alþingismaður og borgarfulltrúi og Eyþór Arnalds tónlistarmaður og fv. borgarfulltrúi mæta til Björns Inga og tala umbúðalaust um kosningaherferðir flokkanna, hvað er að virka og hvað alls ekki. Spáð er afsögn formanns stjórnmálaflokks á sjálfa kosninganótt, vill þjóðin ESB? Var afleikur hjá Þorgerði Katrínu að segja í Grjótkasti...

Grjótkast Kristrúnar og Þorgerðar: Hvor verður forsætisráðherra? Þjóðaratkvæði um ESB, skattar og vandræði frambjóðenda 15.11.2024

Hér koma 72 mínútur af pólitískri þungavigt: Er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn óstjórntækur? Hvernig finnst Kristrúnu Þórðarmál vera fyrir Samfylkinguna. Alma Möller og Jón Gnarr eru ráðherrakandídatar. Heilbrigðismál í ólestri, rifist um skattastefnu og bankasölu, af hverju er Viðreisn hætt að vera leiðinleg og orðin skemmtileg? Skiptir máli að kynna útfærða stefnu, eða er það hættulegt? Og margt f...

Grjótkastið: Tilfinningaþrungið uppgjör borgaralega þenkjandi fólks og ný könnun 11.11.2024

Í eftirminnilegu Grjótkasti mætast þau Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen og ræða erfiða stöðu ríkisstjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, ruglið með borgarlínuna, skattamál og vandræði Samfylkingarinnar, ris Viðreisnar, möguleikann á borgaralegri ríkisstjórn og útþenslu báknsins á öllum sviðum. Kynnt er ný könnun Maskínu fyrir Viljann um viðhorf til hægri/vinstri ríkisstjórn...

Grjótkastið: Svandís og Þórdís á trúnó um lok stjórnarsamstarfsins, furðulega kosningabaráttu og heiminn eftir risasigur Trumps 08.11.2024

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum. Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú,...

Grjótkastið: Örlagarík heimsókn til Kristrúnar, Gnarr-áhrifin, sigur Trumps og galdurinn að toppa á réttum tíma 06.11.2024

Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður í stórskemmtilegu spjalli um spennandi tíma! Örlagarík heimsókn til Kristrúnar Frostadóttur. Hverju breytir það í kosningabaráttunni hér að Donald Trump hafi sigrað í Bandaríkjunum? Er varnarsamningi okkar ógnað? Kemst ESB-aðild þá á dagskrá? Er Jón Gnarr hvalreki Viðreisnar? Hvernig toppar maður akkúrat á réttum tím...

Grjótkast Dags og Áslaugar: 113 mínútur af alvöru pólitík 03.11.2024

Engu skiptir hvort reynt er að stilla þeim Degi B. Eggertssyni og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur upp sem aðal- eða aukaleikurum, pólitíkin þeirra nær alltaf máli og þetta 112 mínútna langa Grjótkast hjá Birni Inga sætir miklum tíðindum. Hvaða ríkisstjórn fáum við Íslendingar fyrir jól? Verður kosið um Reykjavíkurmódelið? Á að hækka eða lækka skatta? Borgarlínan, Sundabraut, samgöngusáttmálinn, ver...

Grjótkastið: Víðir kvíðir ekki pólitík og Bergþór tæklar Kragann 30.10.2024

Björn Ingi með Grjótkast af dýrari gerðinni: Víðir Reynisson er hættur að halda upplýsingafundi og kominn í pólitík, hvernig kom það til og við hverja ræddi hann í aðdragandanum? Þarf að gera Covid-tímabilið upp? Hvernig sér hann deilur Kristrúnar og Dags? Miðflokkur mælist með hörkufylgi í Norðvestur, en samt flytur Bergþór Ólason sig um set. Hvers vegna? Skipta upprifjanir á Klaustursmálum máli...

Grjótkastið: Miskunnarlausir strigakjaftar 23.10.2024

Hérna eru 80 mínútur sem þú vilt alls ekki missa af. Ólöf Skaftadóttir og Stefán Einar Stefánsson fara á kostum í Grjótkastinu með Birni Inga þar sem rætt er um komandi kosningar, innanflokksmein í Valhöll þar sem forystan hefur gert ítrekuð mistök, þríeykið, vanda vinstri flokkanna, framboð lukkuriddara og mögulega ríkisstjórn. Hverjir fara á þing og hverjir verða fyrir vonbrigðum?

Nú þarf meirihlutinn að ráða 20.10.2024

Guðmundur Fertram Sigurjónsson frumkvöðull á Ísafirði, hefur tekið forystu um Vestfjarðalínuna, verkefni sem byggir á efnahagsundrinu sem orðið hefur til á Vestfjörðunum undanfarin ár, en kallar eftir stórauknum innviðum og meiri uppbyggingu. Hann gagnrýnir í spjalli við Björn Inga boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem boðaðar eru í fjárlögunum sem nú liggja fyrir þinginu,...

Kosningar draga úr óvissu 18.10.2024

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræða komandi kosningar, helstu verkefni næstu ríkisstjórnar og áskoranir atvinnulífsins eftir langvarandi pólitíska óvissu. Hefur þróun mála áhrif á vaxtalækkunarferlið? Hver eru stærstu verkefnin? Hvað er framundan?

Grjótkastið v. Össur og Þorsteinn ræða ótrúlega stöðu 11.10.2024

Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Össur Skarphéðinsson fv. utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar ræða við Björn Inga um hina ótrúlegu stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórnmálum og einnig nýútkomnar dagbókarfærslur Ólafs Ragnars Grímssonar fv. forseta.

Grjótkastið iv. þáttur: Þorbjörg ætlar sér stóra hluti 07.10.2024

Þorbjörg Gunnlaugsdóttir og Ólöf Skaftadóttir ræða við Björn Inga um stöðuna í stjórnmálunum eftir landsfund VG, kosningabaráttu sem er hafin, aukna stemningu í Viðreisn með innkomu Jóns Gnarr, vandræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sókn Samfylkingarinnar og Miðflokks og fl. Þorbjörg lýsir yfir framboði til oddvita Viðreisnar í Reykjavík í þættinum, svo þar er útlit fyrir spennandi prófkjör.

Grjótkastið iii. þáttur: Bjarni Benediktsson tekur mjög mikla áhættu 10.04.2024

Ólöf Skaftadóttir og Brynjar Níelsson ræða við Björn Inga um nýja ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Ben, áhættuna sem hann tekur með Sjálfstæðisflokkinn, hvers vegna Sigmundur Davíð og Kristrún eru núna kampakát, hvort erindi Viðreisnar er horfið og kannski Pírata líka, komandi forsetakosningar og æluna sem margir þurfa nú að kyngja (enn einn ganginn).

Grjótkastið ii. þáttur 21.03.2024

Hvað gerist eiginlega nú? Ólöf Skaftadóttir og Bergþór Ólason.

Listen to the Grjótkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.