Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

News IS ↓ 82 episodes

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.viljinn.is

Author

Björn Ingi Hrafnsson

Category

News

Podcast website

www.viljinn.is

Latest episode

Nov 14, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Skuggabankastjórnin nóv/2026 14.11.2026

Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson í Skuggabankastjórn Grjótkastsins fara yfir komandi vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabankans, stöðu og horfur í hrollköldu íslensku hagkerfi, sterka krónu, útboð Bláa lónsins, einföldun regluverks, atvinnuleysi, ríkisfjármál og margt fleira.

Vitringarnir tveir (sá þriðji er í fríi) 11.11.2026

Hvað er eiginlega að gerast í Landsvirkjun og hefur staðan þar áhrif á væntanlega samninga við Alcoa? Er stemning fyrir útboðinu í Bláa lóninu á þessu gengi? Hverjir lifa af frostaveturinn sem framundan er í atvinnulífinu og hver er staða efnahagsmálanna almennt? Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson spá í spilin.

Alvörutímar — fyrr og nú 29.10.2026

Þungavigtarumræða á dýptina um alvörutíma fyrr og nú með Dr. Guðna Th. Jóhannessyni prófessor í sagnfræði og fv forseta og þeim Agnari Tómasi Möller og Þorbirni Atla Sveinssyni. Þjóðarsagan um þorskastríðin og sigrana á Bretum, staða alþjóðamála, er eftirsjá að forsetaembættinu, hversu alvarleg staða er að teiknast upp í efnahagsmálum (hversu svört er staðan). Skylduhlustun fyrir þá sem vilja ekki...

Dramatíkin í Viðreisn og næstu skref 21.10.2026

Þrír þungavigtarþingmenn; Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason og Stefán Vagn Stefánsson ræða stöðuna í pólitíkinni; vanda Viðreisnar eftir brotthvarf Jóns Gnarr -- eru frekari tíðindi framundan af flokknum? Hagkerfið hefur snöggkólnað, skattar hækka og gjöld og spurningar vakna um það hve lendingin verður hörð. Hvað er eiginlega framundan og hver verða áhrifin á ríkisstjórnina og stjórnarsamstarf...

Grjótharðar gegn ríkisvæðingu á öllum sviðum 14.10.2026

Þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og útgefandinn Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ræða samdráttinn í samfélaginu, hina endalausu útþenslu báknsins, ríkisvæðingu á öllum sviðum, sjálfkeyrandi bíla, erfðafjárskatt, samkeppnisstöðu fjölmiðla og stöðuna í pólitíkinni.

Skrítin stemning og skellur framundan 07.10.2026

Bjarnheiður Hallsdóttir og Jón Karl Ólafsson þekkja íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustuna sérstaklega út og inn. Þau hafa áhyggjur af því að framundan sé skellur í atvinnulífinu, furða sig á gengi krónunnar og afstöðu stjórnvalda til ferðaþjónustunnar og skorti á langtímasýn og spá í spilin fyrir næsta ár.

Skuggabankastjórnin okt/26 04.10.2026

Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar Hannessonar. Að venju er margt að ræða. Staða á vinnumarkaði, gengi krónunnar, umrót á alþjóðamörkuðum, fjárlögin, atvinnuleysið og blessuð verðbólgan, svo eitthvað sé nefnt. Skylduhlustun fyrir þá se...

Hvað verður um Icelandair? Og niðursveiflan framundan 25.09.2026

Það var ekki töluð vitleysan þegar Hermann Guðmundsson, Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson settust á rökstóla í Grjótkastinu um stöðu og horfur í íslensku hagkerfi. Mjög djúp niðursveifla virðist í vændum, en þó er ofsagt að allt sé að fara í skrúfuna. Miklu skiptir hvað verður um Icelandair á næstu vikum. Af hverju styrkist krónan enn? Hvað gerist þegar atvinnuleysi rýkur upp? Er ríkisstjórni...

Kreppa í kortunum 10.09.2026

Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem margir telja vísbendingu um yfirvofandi alvarlega kreppu á Vesturlöndum og víðar.

Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB? 05.09.2026

Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum og margt fleira.

Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn 27.08.2026

Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?

Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild 25.08.2026

Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðis og margt fleira.

ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg 24.08.2026

Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu. Hann veitir okkur einstaka innsýn í það valdatafl sem er að baki áhuga ESB á aðild Íslands og hvernig farið er með umsóknir ríkja og aðildarviðræður. Skylduhlustun.

Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflum 22.08.2026

Símtal dagsins er við Guðmund Fetram Sigurjónsson athafnamann á Ísafirði um komandi þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd? 17.08.2026

Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í haust hvort sem þjóðin segir nei eða já? Ummæli forsætisráðherra um atvinnulífið og verðbólguna koma við sögu, sem og fjárlög næsta árs sem eiga að verða hallalaus. Þýðir það alvöru hagræði...

Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga 18.05.2026

Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.

Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta 15.04.2026

Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.

Baráttan um Ísland 09.04.2026

Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.

Hvar ertu litla saklausa Ísland? 31.03.2026

Í þessum þætti: Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni? Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt? Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna. Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar? Munu kjósendur v...

Féllust seðlabankastjóra hendur? 24.03.2026

Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Í...

Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum 16.03.2026

Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.

Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum 24.11.2025

Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.

Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun 14.11.2025

Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.

Það er töff að vera trúaður 04.11.2025

Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi...

Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli 31.10.2025

Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.

Listen to the Grjótkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.