Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

News IS ↓ 67 episodes

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

Author

Björn Ingi Hrafnsson

Category

News

Podcast website

www.viljinn.is

Latest episode

May 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga 18.05.2026

Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.

Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta 15.04.2026

Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.

Baráttan um Ísland 09.04.2026

Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.

Hvar ertu litla saklausa Ísland? 31.03.2026

Í þessum þætti: Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni? Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt? Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna. Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar? Munu kjósendur v...

Féllust seðlabankastjóra hendur? 24.03.2026

Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Í...

Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum 16.03.2026

Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.

Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum 24.11.2025

Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.

Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun 14.11.2025

Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.

Það er töff að vera trúaður 04.11.2025

Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi...

Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli 31.10.2025

Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.

Vinstri femínistar eiga ekki jafnréttisumræðuna 21.10.2025

Félagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum, leikskólamál í Kópavogi og í Reykjavík, skóla án aðgreiningar, líðan barnanna okkar og margt fleira í sérlega áhugaverðu spjalli.

Pólitísk vakning og ferðalag ungrar konu frá VG og Stundinni yfir í Miðflokkinn 14.10.2025

Félagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem einnig er stjórnmálafræðingur og hnefaleikaþjálfari. Þau ræða aukinn áhuga ungs fólks á stjórnmálum, nýjar áherslur kvenna í jafnréttismálum, komandi sveitarstjórnarkosningar og margt fleira í s...

Hvað er eiginlega að gerast? 26.09.2025

Er kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á leigumarkaði? Hvað er eiginlega framundan í efnahagsmálum heimsins og hvaða áhrif hefur það hér á landi. Agnar Tómas Möller fjárfestir og einn okkar helsti greinandi í þeim efnum svarar því á dýptin...

Hvað má ræða og hvað ekki? Menningarstríðin hin nýju 16.09.2025

Menningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers vegna er skautunin svo mikil og óþol fyrir andstæðum skoðunum? Morðið á Charlie Kirk, staða Þjóðkirkjunnar, hin ömurlegu átök fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira eldfimt til umræðu og ge...

„Ég varð að fá að kveðja hana Margréti mína“ 10.09.2025

Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, í einkar einlægu og mannlegu spjalli um makamissinn, en eiginkona hans til áratuga, Margrét Hauksdóttir, féll frá fyrr á árinu. Guðni segir frá Njáluástríðu sinni og stórum verkefnum sem henni tengjast og spáir í spilin í pólitíkinni. Hann segir vá fyrir dyrum í heimsmálunum og hér heima við sé ljóst að Framsóknarflokkurinn þurfi nýjan formann; Sigurður Ingi Jóhannss...

Hver eru tækifæri Íslands í gjörbreyttri heimsmynd? 12.04.2025

Hér er nú ekki töluð vitleysan! Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og fv. efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Álfrún Tryggvadóttir hagfræðingur og sérfræðingur hjá OECD og Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Center og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins ræða gjörbreytta stöðu í heimsviðskiptunum og tækifæri og ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir. Er að koma kreppa ofan á tal um ófrið í hei...

Er allt að fara í skrúfuna? Staðan skýrð á mannamáli 07.04.2025

Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson rýna í ótrúlega stöðu á heimsmörkuðum vegna tollastríð Trumps Bandaríkjaforseta, þar sem allt var eldrautt fyrir helgi og óttast að botninum sé ekki náð. Hvað þýðir þetta fyrir Ísland og viðskiptalífið hér á landi? Verður ríkisstjórnin að taka U-beygju í snatri í áformum um tvöföldun veiðileyfagjalds og álögur á ferðaþjónustuna? Er ætlunin að flýta þjóðara...

Tvær grjótharðar láta gamminn geisa 01.04.2025

Þær kalla ekki allt ömmu sína, þær Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fv. ráðherra. Í Grjótkasti dagsins er fjallað um ríkisstjórnina og hundrað fyrstu dagana, tvöföldun veiðigjalda og slaginn sem framundan er um sjávarútvegsmálin, stöðuna í stjórnmálunum, nýja forystu Sjálfstæðisflokksins og fl.

100 daga ríkisstjórn og fyrsti ráðherrann fallinn, Trump, tollastríð og undarlegt ferðalag til Brussel 21.03.2025

Guðmundur Fertram Sigurjónsson í Kerecis og Hermann Guðmundsson í Kemi mæta í Grjótkastið og ræða nýjustu tíðindi: Afsögn barnamálaráðherra á hundrað daga afmæli ríkisstjórnarinnar, hvort rannsaka eigi bakgrunn nýrra ráðherra, furðulegt ferðalag ríkisstjórnarinnar til Brussel, Trump og áherslur hans, tollastríðið sem framundan er, innanlandsflugið, pólitíkina almennt og margt fleira. Allt sem þú þ...

Margeir í Úkraínu: Allir sammála Trump um að þetta stríð verði að enda 16.03.2025

Stórmeistarinn og bankamaðurinn Margeir Pétursson hefur verið búsettur undanfarin ár í Úkraínu og þekkir því manna best hvernig innrásarstríð Rússa hefur bitnað á landinu og íbúum þess. Fyrir þremur árum tæpum -- þegar stríð var nýlega hafið -- fór Björn Ingi Hrafnsson til Úkraínu og heimsótti Margeir og stríðsslóðir í austurvegi. Nú eiga þeir samtal aftur, þegar gífurlegur fjöldi hefur fallið í h...

Evrópa vígvæðist á methraða, verðbólgusamningar við kennara og hvað gerir Valhöll nú? 08.03.2025

Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og þáttastjórnandi og Sigríður Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins gera upp magnaðan landsfund Sjálfstæðisflokksins og næstu skref í Valhöll. Trump er í öllum fréttum og Evrópa vígvæðist í ofboði og hvað þýðir það fyrir Ísland? Hvers vegna sitjum við eftir þegar kemur að gervigreindinni? Hvað gerum við ef sæstrengirnir okkar verða klipptir í sundur? Kannast ríkisstj...

Hvað á borgaralegu fólki eiginlega að finnast um þetta allt saman? 20.02.2025

Það eru alveg ótrúlegir tímar; hvort sem litið er á alþjóðamálin þar sem allt er í steik eða í innlendum stjórnmálum. Vigdís Häsler og Friðjón R. Friðjónsson ræða Trump og Úkraínu, stöðu NATO, varnir Íslands, Evrópusambandið, ríkisstjórnina og stöðu Flokks fólksins, væntanlegan nýjan meirihluta í borginni og komandi landsfund Sjálfstæðisflokksins þar sem kjósa á nýja forystu.

Svandís Svavars rýfur þögnina og fyrstu dagar þingmannsins Jóns Gnarr 07.02.2025

Nú þegar þing er að koma saman, vonum seinna, eftir alþingiskosningar, og spjót standa á ríkisstjórn Valkyrjanna kemur Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, í Grjótkastið og rýfur þögnina eftir skellinn mikla þar sem flokkurinn datt af þingi. Er VG búið að vera? Hvað varð um vinstrið á Íslandi? Jón Gnarr, fv. borgarstjóri og forsetaframbjóðandi, er hins vegar nýr þingmaður og segir frá fyrstu dögunu...

Hvernig formann þarf Sjálfstæðisflokkurinn? 28.01.2025

Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Heimdallar, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, ræða átakamenningu stríðandi fylkinga í Sjálfstæðisflokknum í aðdraganda landsfundar. Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? Er Áslaug Arna svarið við pólitískum vandræðum Sjálfstæðisflokksins til framtíðar? Hvað gera Guðlaugur Þór og Guðrún Hafsteinsdóttir? Ræður elíta flokknum e...

Flokkur fólksins í ólgusjó og valdatafl í Valhöll 23.01.2025

Þótt ríkisstjórnin sé á sínum fyrstu vikum og þing ekki enn komið saman eftir kosningar, er Flokkur fólksins strax kominn í vörn, sumir myndu segja nauðvörn. Framundan er valdatafl í Valhöll og algjör forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum. Hvernig fer stjórnarsamstarfið af stað? Hvað er með Kristrúnu og Dag? Andrés Magnússon á Morgunblaðinu og varaborgarfulltrúinn Sandra Hlíf Ocares greina stöðuna m...

Listen to the Grjótkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.