Fréttir dagsins

Fréttir dagsins

News IS ↓ 108 episodes

Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.

Author

Fréttir dagsins

Category

News

Podcast website

www.mbl.is

Latest episode

Mar 16, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

17.01.2026 - Fréttir dagsins 17.01.2026

Í fréttum er þetta helst Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, hefur sagt af sér þingmennsku vegna tilraunar til að kaupa vændi árið 2012. Hann var yfirheyrður af lögreglu á sínum tíma en segist ekki hafa verið ákærður. Hann tók ákvörðun um afsögn þegar Vísir ætlaði að fjalla um málið. Hann segist hafa gert stór mistök sem hann harmi mjög. Ákvörðun um að hætta áætlunarflugi Icelandair til Is...

16.01.2026 - Fréttir dagsins 16.01.2026

Í fréttum er þetta helst Stjórnendur Deloitte á Íslandi segjast líta ásakanir á hendur Þorsteini Pétri Guðjónssyni, forstjóra fyrirtækisins, alvarlegum augum og hefur stjórn félagsins skipað Signýju Magnúsdóttur forstjóra til bráðabirgða. Samtök gegn kynbundnu ofbeldi segja alvarlegt að dómari hafi veitt ofbeldismanni skilorðsbundinn dóm fyrir brot gegn sambýliskonu og að ríkissaksóknari hafi kosi...

14.01.2026 - Fréttir dagsins 14.01.2026

Í fréttum er þetta helst Skemman sem brann í Gufunesi í gær taldist ekki hæf til afnota í úttekt slökkviliðsins árið 2024. Í lok nóvember birtist tilkynning á vef félags-og húsnæðismálaráðuneytisins þar sem greint var frá því að Inga Sæland, þáverandi ráðherra, hefði veitt fjórum verkefnum styrk uppá samtals 60 milljónir. Á morgun munu Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur og Vivian Mot...

13.01.2026 - Fréttir dagsins 13.01.2026

Í fréttum er þetta helst Mikill eldsvoði kviknaði í Gufunesi í Reykjavík og sást reykur víða um höfuðborgarsvæðið. Slökkviliðið hefur náð tökum á eldinum. Stjórnarformaður True North segir að mikið tjón hafi orðið á eignum framleiðslufyrirtækisins en TrueNorth leigir skemmuna af Reykjavíkurborg. Héraðssaksóknari hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, um að hafna kröfu um gæsluvarðhald yfir Helg...

12.01.2026 - Fréttir dagsins 12.01.2026

Í fréttum er þetta helst Ríkisráðsfundur var haldinn á Bessastöðum í dag. Þar samþykkti Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, breytingar í ráðherrahópi ríkisstjórnar Kristrúnar Forstadóttur. Karlmaður á sjötugsaldri lést í vinnuslysi á Hvolsvelli í gær. Nýr félags- og húsnæðismálaráðherra segist ætla að taka til hendinni í málaflokknum. Sveiflur á húsnæðismarkaði hafi verið einn helsti drifkraftur v...

11.01.2026 - Fréttir dagsins 11.01.2026

Í fréttum er þetta helst Starfsmenn á þremur spítölum í Íran segja að fjöldi slasaðra og látinna mótmælenda sem streyma til þeirra sé slíkur að ekki þeir hafi ekki undan og ekki gefist tími til að veita þeim lífsbjargandi aðhlynningu. Ekkert lát er á gríðarlegum mótmælum sem staðið hafa yfir í landinu vikum saman. Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin reiðubúin að hjálpa. Þrjátíu til fjörutíu fasteig...

10.01.2026 - Fréttir dagsins 10.01.2026

Í fréttum er þetta helst RÚV hefur ákveðið að hætta við að halda Söngvakeppnina 2026 í ljósi þess að forsendurnar sem lagt var upp með, að sigurlagið yrði framlag Íslands í Eurovision, séu brostnar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort og þá hvenær einhverskonar önnur söngvakeppni verður haldin í staðinn. Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara yfir manni sem hef...

09.01.2026 - Fréttir dagsins 09.01.2026

Í fréttum er þetta helst Guðmundur Ingi Kristinsson hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann mun halda áfram sem þingmaður Flokks fólksins. Inga Sæland ætlar að taka við mennta- og barnamálaráðuneytinu af Guðmundi Inga Kristinssyni sem hefur ákveðið að láta af embætti. Ragnar Þór Ingólfsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, verður félags- og...

08.01.2026 - Fréttir dagsins 08.01.2026

Í fréttum er þetta helst Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Samkvæmt nýrri skýrslu umboðsmanns Alþingis hafa sumir þeirra sem vistaðir eru á lögreglustöðinni á Hverfisgötu neyðst til að gera þarfir sínar í klefum sínum. Klefarnir eru ekki endilega þrifnir...

07.01.2026 - Fréttir dagsins 07.01.2026

Í fréttum er þetta helst Trump útilokar ekki að beita hernaðarlegu valdi, segir í yfirlýsingunni. Danska ríkisstjórnin og landsstjórn Grænlands hafa sent sameiginlega beiðni til utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Þau óska eftir fundi með Marco Rubio, utanríkisráðherra, sem fyrst. Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Bláa lónsins hf. frá 16. mars næst komandi. Hún hefur undanfari...

06.01.2026 - Fréttir dagsins 06.01.2026

Í fréttum er þetta helst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir gott að finna að það ríki algjör samstaða um það að gæta að varðstöðu um íslenska hagsmuni. Fundur utanríkismálanefndar í morgun hafi verið mikilvægur og upplýsandi. Það hafi verið gott að ræða við þingmenn þvert á flokka og heyra þeirra mat á stöðunni. „Bara þannig að ég tali alveg skýrt, því þú nefndir Grænland. Við...

05.01.2026 - Fréttir dagsins 05.01.2026

Í fréttum er þetta helst Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tjáði sig um málefni Grænlands á samfélagsmiðlum í kvöld. „Grænland er hluti af danska konungsríkinu,“ skrifaði Kristrún og lét fylgja með enska þýðingu. „Ekkert um Grænland án Grænlands. Ísland stendur þétt með vinum sínum.“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir að boðað hafi verið til fundar í utanríkismálanefnd Alþingis í fyrramálið ti...

04.01.2026 - Fréttir dagsins 04.01.2026

Í fréttum er þetta helst Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingakona úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, var í kvöld kjörin Íþróttamaður ársins 2025 af Samtökum Íþróttafréttamanna en þetta var tilkynnt í hófi í Hörpu. Einn er látinn eftir umferðarslys sem varð á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastarlundi í dag. Tveir til viðbótar voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Fylgi Sjálfst...

03.01.2026 - Fréttir dagsins 03.01.2026

Í fréttum er þetta helst Íslenskur maður sem gekk í úkraínska herinn lést á víglínunni. Hann var 51 árs gamall og hafði verið í Úkraínu í tæpan mánuð. Bróðir hans staðfestir andlát hans. Kona á fertugsaldri lést þegar vörubíl var ekið yfir hana á bílaplani Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli að kvöldi 30. desember. Málið er rannsakað sem slys. Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mæl...

02.01.2026 - Fréttir dagsins 02.01.2026

Í fréttum er þetta helst Eldsneytisverð lækkaði um í kringum þrjátíu prósent þegar nýtt ár gekk í garð á miðnætti og ný lög um kílómetragjald tóku gildi. Pétur Marteinsson, rekstrarstjóri og fyrrverandi knattspyrnumaður, ætlar að gefa kost á sér í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þar fer hann á móti Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi oddvita og borgar...

01.01.2026 - Fréttir dagsins 01.01.2026

Í fréttum er þetta helst Þriðjungslækkun á eldsneytisverði á höfuðborgarsvæðinu Hvatti landsmenn til að hafna svartagallsrausi í áramótaávarpi Þrír handteknir eftir að hnífi var beitt í alvarlegri líkamsárás Rafmagn er aftur komið á í Tálknafirði sem hafði verið án þess síðan klukkan tvö í nótt þegar spennir í tengivirkinu á Kaldeyri fór. Búið er að tengja varaspenni sem fyrir var í tengivirkinu o...

31.12.2025 - Fréttir dagsins 31.12.2025

Í fréttum er þetta helst Víða er spáð hæglætisveðri á gamlárskvöld og mun lítið blása á suðvesturhorninu. Því má reikna með mikilli loftmengun vegna flugelda. Gert er ráð fyrir tveimur metrum á sekúndu eða minna á höfuðborgarsvæðinu um miðnætti á gamlárskvöld og á að lygna enn meira eftir það. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur hafið innköllun á Rakettupakka 2 og tekið hann úr sölu eftir að ábendi...

30.12.2025 - Fréttir dagsins 30.12.2025

Í fréttum er þetta helst Miðflokkurinn mælist með tæplega 22 prósenta fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup en hann bætir rúmum tveimur prósentustigum við sig milli mánaða. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna fellur um fjögur prósentustig frá síðasta þjóðarpúlsi og mælist nú 47 prósent. Kvikuhlaup og eldgos á Sunhnúksgígaröðinni er komið á tíma samkvæmt öllum breytum sem voru til staðar fyrir fyrri kviku...

29.12.2025 - Fréttir dagsins 29.12.2025

Í fréttum er þetta helst Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar í sjúkraflutninga á sjötta tímanum í dag vegna alvarlegs umferðarslyss á Fagurhólsmýri í Öræfunum. „Ég held að við séum að færast talsvert nær, við erum jafnvel komin ansi nálægt,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að loknum fundi hans og Vólódímírs Selenskíjs Úkraínuforseta á heimili þess síðarnefnda í Mar-a-Lago í Flórída. „...

28.12.2025 - Fréttir dagsins 28.12.2025

Í fréttum er þetta helst Samherji gæti tvöfaldast að stærð nái áform í landeldi fram að ganga að sögn forstjóra félagsins. Félagið hyggist ráðast í þrjátíu milljarða króna fjárfestingu í greininni á næstu misserum með innlendum og erlendum fjárfestum. Það var að eigin frumkvæði lögreglu sem ráðist var í lokanir fjögurra verslana á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna gruns um ólöglega sölu áfengis á hát...

27.12.2025 - Fréttir dagsins 27.12.2025

Í fréttum er þetta helst Jarðskjálfti af stærð 3,1 varð við Kleifarvatn sunnan höfuðborgarsvæðisins klukkan 01:48 í nótt. Um er að ræða þekkt jarðskjálftasvæði. Lögregla gerði rassíu á starfsstöðvar Smáríkisins og Nýju vínbúðarinnar síðdegis í dag og var þeim gert að loka afhendingarstöðum sínum. Fyrirtækin verða sektuð en lögregla sagði heimsendingar í lagi þó hátíðardagur sé. Lögreglan á Suðurne...

26.12.2025 - Fréttir dagsins 26.12.2025

Í fréttum er þetta helst Það blés hraustlega á landinu í gær og í nótt, sérstaklega um landið norðvestanvert. Sunnanáttinni fylgdu mikil hlýindi og í gærkvöldi var desemberhitametið slegið í hnjúkaþey á Seyðisfirði en þar komst hitinn í 19,8 stig. Miðflokkurinn tapaði rúmum 130 milljónum króna á árinu 2024. Flokkurinn stóð uppi með neikvætt eigið fé eftir kosningaárið. Skuldir jukust umtalsvert en...

25.12.2025 - Fréttir dagsins 25.12.2025

Í fréttum er þetta helst Hitastig mældist 19,8°C á Seyðisfirði á aðfangadag. Með þessum hita er fallið Íslandsmet í hita í desembermánuði. Einnig mældist hiti 19,7°C að Bakkagerði á Borgarfirði eystra. Grjóthrun varð hjá Holtsnúpi undir Eyjafjöllum í morgun. Einn bíll lenti á grjóti en enginn slys urðu á fólki. Grindvíkingar láta hremmingar undanfarinna ára ekki á sig fá og halda jólin margir hver...

24.12.2025 - Fréttir dagsins 24.12.2025

Í fréttum er þetta helst Merki um kreppuverðbólgu og mikilvægt að bregðast við. Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira í rúm fjögur ár. Yfir fimmtán þúsund voru atvinnulausir í nóvember samkvæmt tölum Hagstofunnar. Formaður VR segir að vandinn sé heimatilbúinn og stjórnvöld verði að bregðast við. Áfram auknar líkur á eldgosi. Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðu...

23.12.2025 - Fréttir dagsins 23.12.2025

Í fréttum er þetta helst Verðbólga mælist nú 4,5 prósent, miðað við 3,7 prósent í nóvember. Veðurviðvaranir munu einkenna jólahátíðina í flestum landshlutum og munu þær fyrstu taka gildi eftir hádegi á morgun á Breiðafirði og Vestfjörðum. Í kjölfarið dreifast þær yfir landið og ná hámæli á aðfangadag. Hiti getur hæst náð átján stigum, að sögn Veðurstofunnar. Hæstiréttur hefur sýknað Landsbankann a...

Listen to the Fréttir dagsins podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.